blaðið - 14.04.2007, Page 44
44 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007
blaðið
íþróttir
milljónir króna eru þau vikulaun sem Cristiano Ronaldo hjá
Manchester United er með samkvæmt erlendum fregnum eftir
að hafa skrifað undir nýjan fimm ára samning. Ótaldar eru allar
aukasporslur og bónusar vegna sigra og titla sem liðið vinnur.
mörk í 28 leikjum er öfundsverður árangur Brasilíu-
mannsins Afonso Alves hjá Heerenveen í Hollandi.
Er hann markahæstur í Hollandi en vel er fylgst
með kappanum af stórliðum álfunnar.
ithrottir@bladid.net
Margrét Lára Átt
stórkostlegan feril hingað
til þrátt fyrir ungan aldur
J'osé Mour-
inho var
valinn stjóri
ánaðarins í
Bretlandi og Petr
Cech markvörður
Chelsea valinn
leikmaður mán-
aðarins í ensku
úrvalsdeildinni.
Vann Chelsea ijóra leiki í röð án
þess að fá á sig mark og gera nú það
sem þeir geta til að setja pressu á
Manchester United í toppsætinu. Er
Cech fyrsti markvörðurinn til að
hljóta þessi verðlaun í sjö ár.
að verðtir vængbrot-
} ið lið Sevilla sem
mætirValenciu
í gríðarmiklum slag
um helgina en
bæðiliðberjast
um efstu sæti
spænsku deildar-
innar.DanielAlves
og Freddie Kanoute
verða frá vegna meiðsla
auk þriggja minni spámanna.
Munar um þá félaga. Alves besti leik-
maður Spánar þessa leiktíðina og
Kanoute markahæstur í deildinni.
r<S
» \
16.05 RUV
Körfubolti
Keflavík - Haukar
16.25 Sýn____________________
Knattspyrna
Watford - Manehester United
18.20 Sýn____________________
Knattspyrna
Racing - Real Madrid
20.00 Sýn
Knattspyrna
Real Betís- Real Socíedad
21.55 Sýn______________
Hnefaíeikar
Valuev - Manfredo
Sunnudagur
11.10 RÚV
Kappakstur
Formúla 1
13.50 SkjárSport
Knattspyrna
Everton - Charlion
14.50 Sýn
Knattspyrna
Blackburn - Chelsea
16.05 RÚV
Handbolti
DHL deiidin
16.50 Sýn
Knattspyrna
Barcelóna - Mallorca
18.20 SkjárSport
Knattspyrna
Inter - Palermo
18.50 Sýn
Knattspyrna
Valencia -Sevilla
20.50 Sýn ________
Beinar utsendingar
Laugardagur
10.50RÚV______
Kappakstur
Formúla 1
Handbolti
Hamburg - SG Krona
12.55 Sýn______
Handbolti
Flensburq - Kie
Niarövik - KR
13.30 SkjarSport
Knattspyrna
Sheffield United - West Ham
Margret Lara Viöarsdóttir, skærasta
stjarna kvennafótboltans hér á landi
I \
Fer strax eftir sumarið
Ætlar til langdvalar
Fyrirspurnir nokkuð reglulegar
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Ein skærasta, ef ekki skærasta,
stjarna Islands í kvennaboltanum,
Margrét Lára Viðarsdóttir, ætlar
í atvinnumennsku erlendis eftir
sumarið hvað sem tautar og
raular og ætlar ekki að láta eina
misheppnaða tilraun hafa nein
áhrif á sig. Segir hún bráðnauð-
synlegt hvað ferilinn varðar að
komast annað enda komist hún
í raun ekki lengra hér á landi en
hún hefur þegar gert.
Atvinnumennskan heillar áfram
Margrét Lára ætlar að spila eitt
tímabil enn með Val í sumar en
hefur tekið stefnuna út eftir það.
Það sé draumurinn og þó óvissa
sé með hvert, hvenær eða með
hvaða liði þá muni hún láti hún
slag standa. „Mig vantar meiri
áskorun og ég þarf að komast í at-
vinnumannadeildir til að komast
lengra í íþróttinni. Hér heima er
deildin góð og fullt af sterkum og
efnilegum stelpum en tímabilið
er stutt og ég þarf að hafa miklu
meira fyrir að halda mér í formi.“
Slæm reynsla í Þýskalandi
Margrét Lára gekk til liðs við
þýska liðið Duisburg í haust til
að uppfylla drauminn sem varð
þó fljótlega að martröð og hún
sneri heim á ný. Renndi hún blint
í sjóinn án umboðsmanns og rak
sig fljótlega á að ekki var allt sem
sýndist. Loforð við hana voru
brotin og samningurinn hélt ekki
vatni þegar til kom. Ákvað hún
að spila með Val aftur í sumar en
er gallhörð að reyna aftur í haust.
„Mér finnst tíminn vera hárréttur.
Ég hef þroskast og lært heilmikið
gegnum allt .ferlið í Þýskalandi.
Þar renndi ég alveg blint í sjó-
inn, ekki staðið við samninga
og ég hafði engan mér til halds
og trausts nema fjölskyldu og
vini. Liðið var mjög gott og það
var engum að kenna í raun að ég
hætti. Ég vissi bara ekki betur. Nú
ætla ég að verða mér úti um um-
boðsmann sem ég hafði ekki áður
og gera skotheldan samning.“
Svíþjóð eða Bandaríkin
Margrét getur hugsað sér að fara
nánast hvert sem er í heiminum þar
sem kvennafótbolti er stundaður
en viðurkennir að Svíþjóð og Banda-
ríkin heilli mest. „Ég tek engar
ákvarðanir strax en það koma fyr-
irspurnir nokkuð reglulega til mín
og ég tek ákvörðun þegar fram líða
stundir. En það yrði flott að komast
að hjá góðum félögum í þessum
löndum og það er stefnan.”
Landsliðið og framtíðin
Það er auðvelt að gleyma að
Margrét Lára er aðeins tvítug að
aldri. Hún varð íslandsmeistari
með Val í fyrra og var valin knatt-
spyrnumaður landsbankadeildar
kvenna auk þess sem hún var
markahæst. Ferill hennar með
landsliðunum er glæsilegur með
afbrigðum en hún hefur alls
skorað 52 mörk í 68 landsleikjum
með bæði A-landsliðinu og yngri
flokkum. Hún segist lifa fyrir
landsliðið og segir þann stórskrýt-
inn sem ekki finnst sannur heiður
að spila fyrir þjóð sína. „Það skil
ég alls ekki. Það hlýtur að vera
hverjum kappsmál að standa sig
sem best þegar viðkomandi er
valinn til að koma fram fyrir þjóð
sína. Landsliðið er mjög gott og
fullt af góðum stelpum en mér leið-
ist dálítið hvað við erum gleymdar
hér. Það tala allir um kvennaliðin
í Noregi og Svíþjóð en aldrei
minnst á það íslenska. Samt erum
við með mjög margar stelpur sem
eru jafngóðar eða betri en margar
þær erlendu. Smæðin skemmir
og því er mikilvægt að komast á
stórmót sem fyrst og sanna okkar
getu. Til að ná árangri þarf sjálfs-
traust og það hafa allar stelpurnar
í liðinu. Frábær hópur.“
Golf
Verizon mótið