blaðið - 14.04.2007, Page 48
48 LAUGARDAGUR 14. APRÍL 2007
Konur í fangelsum
Fjöldi kvenna í fangelsum í Bandaríkjunum hefur aukist um 138%
á síöustu 10 árum og er talið að ástæðan sé helst sú aö hagur
kvenna þar í landi hefur versnað töluvert á undanförnum áratug.
1 Brasilíu líkt og annars staðar í heiminum
er fjöldi kvenfanga mun færri heldur en fjöldi
karlfanga en aðeins um 4% fanga í landinu eru
konur. Lengi hefur verið talað um illa meðferð
fanga í Suður-Ameríku þar sem fangelsin eru
oftar en ekki yfirfull og í hrikalegu ástandi.
Kvenfangelsin eru litlu skárri þar sem fang-
arnir sæta oft illri meðferð og fá hvorki lækn-
is- né lögfræðiþjónustu. Klefarnir eru búnir
litlu sem engu nema kannski skítugri dýnu og
slitnu teppi og víða er salernið einungis gat í
gólfinu.
Slæmur aðbúnaður
Stærstur hluti kvenna í fangelsum í Brasilíu
hefur fengið dóm vegna fíkniefnabrota en oft
er um að ræða aðeins smávægileg afbrot ólíkt
því sem tíðkast meðal karlfanga sem eru lík-
legri til þess að sitja inni vegna ofbeldisverka.
Fangelsið í Sao Paulo hýsir flesta kvenkyns
fanga en það er eins og gefur að skilja mun
smærra í sniðum en fangelsi þar sem karlar
eru vistaðir. í Sao Paulo eru fjórar álmur og
var húsið byggt til þess að hýsa um 2500 konur
en er fjöldi fanga nú þegar kominn yfir 4000
og eru því oftast tvær eða fleiri í einstaklings-
klefum. I þessu fangelsi er talin versta vistin ef
tekið er mið af aðstæðum sem fangarnir búa
við. Fangelsið er staðsett á svæði sem kallast
Crackolandia vegna mikillar eiturlyfjaneyslu
og sölu en stór hluti fanganna eru forfallnir
fíkniefnaneytendur eða vændiskonur.
í klefunum er nánast engin birta og er rétt að
sólarljósið nái að lýsa upp gangana. Fangaverð-
irnir skipta sér lítið sem ekkert af konunum
og jafnvel þó að sumir fanganna séu barnshaf-
andi og kvarti undan verkjum er lítið sem ekk-
ert gert til þess að útvega þeim læknisaðstoð.
Skortur á læknisþjónustu
Þrátt fyrir þá staðreynd að kvenfangar þarfn-
ist oftar læknisaðstoðar en karlfangar er algjör
skortur á læknisþjónustu. í kvenfangelsinu
í Joao Pessoa er engin heilsugæsla til staðar
og eina heilbrigðisþjónustan felst í heimsókn
hjúkrunarkonu sem kemur á svæðið þrisvar
sinnum í viku.
HIV er alvarlegt vandamál innan veggja
fangelsanna en rannsóknir sýna fram á mun
hærrri tíðni HIV smits meðal kvenfanga en
karla. í fangelsinu í Sao Paulo eru að minnsta
kosti 20% fanganna eyðnismitaðar en margar
smitast vegna þess að þær hafa notað mengað-
ar nálar.
Andlegt ofbeldi
Líkamlegt ofbeldi tíðkast síður meðal kven-
fanga en meira ber á andlegu ofbeldi og hótun-
um af ýmsu tagi. Þó er ástandið verra í sumum
fangelsum en öðrum en. í Natal fangelsinu í
Rio Grande de Norte er meira um líkamlegt of-
beldi en gengur og gerist og hópur kvenna ræð-
ur ríkjum með barsmíðum og manndrápum.
Ofbeldi af hálfu fangavarða er fátítt. Fangar
hafa þó greint frá árásum karlkyns fangavarða
þar sem þeim er misþyrmt í svokölluðum pynt-
ingarklefum vegna lítilla brota.
Konur í fangelsum greina hins vegar oftar
frá andlegu ofbeldi, sérstaklega af hendi karl-
kyns fangavarða sem kalla þær niðurlægjandi
nöfnum.
Stór hluti fanganna á fjölskyldu og finnst
mjög mikilvægt að halda sambandi við börn
sín á meðan á vistuninni stendur og flestar ótt-
ast mjög að missa forræði yfir börnunum eða
að maki þeirra yfirgefi þær á meðan þær sitja
inni. í Suður Ameríku á kona sem brotið hefur
að sér oft ekki viðreisnar von þar sem hún er
talin hafa kallað mikla skömm yfir fjölskyldu
sína. Fæstar fá fjölskylduna í heimsókn og
þurfa að sætta sig við að vita ekki hvað þeirra
bíður eftir að refsivistinni er lokið.
Fátækt helsta ástæðan
Ástandið er ekki einungis slæmt í Suður
Ameríku því í Bandaríkjunum hefur fjöldi
kvenkynsfanga aukist umtalsvert á undan-
förnum árum. Nú eru yfir 90.000 konur í fang-
elsum landsins en stærstur hluti þeirra situr
inni vegna efnahagsbrota. Fátækt er yfirleitt
ástæða þess að konur leiðast út í glæpi en 80%
kvenfanga í Bandaríkjunum eru með tekjur
sem eru innan við 150.000 krónur á ári og 92%
þeirra hafa tekjur undir 650.000 á ári.
Þær sem sitja inni vegna ofbeldisverka hafa
oftast verið að verja sig eða börn sín fyrir mi-
syndismönnum en í Ríkisfangelsinu í Kaliforn-
íu sitja 600 konur sem fengu dóma fyrir að
koma ofbeldisfullum eiginmönnum fyrir katt-
arnef í sjálfsvörn.
Svo virðist vera sem það sé verri glæpur að
myrða karl en konu í Bandaríkjunum en kon-
ur fá að meðaltali tvisvar sinnum þyngri dóma
fyrir að myrða eiginmenn en menn sem myrða
konur sínar. Um 90% kvenna í bandarískum
fangelsum eru einstæðar mæður og fjölmargar
missa forræðið yfir börnum sínum en talið er
að um 167.000 börn eigi mæður sem sitja inni
fyrir misalvarlega dóma.
HALLA FEKK 43 SKEYTI,
FLEST AF ÖLLUM í BEKKNUM
Heillaskeyti á fermingardaginn er persónuleg teið tit aó tjá vináttu og væntumþykju.
Sendu skeyti - faróu inn á www.postur.is eóa hringdu í síma 1446.
Einfalt og skemmtilegt!