blaðið - 24.04.2007, Page 14

blaðið - 24.04.2007, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2007 blaðið ,Ungt fólk setti mikinn svip á þingiö og meðal hugmynda þess má nefna kvikmyndaver og tónlistarháskóla, enda sterk tónlistarhefð í Botungarvik. “ Hraustur bær, traustur bær Bolvíkingar eru í sóknarhug og vilja efla og styrkja samfélagið innan frá ásamt því að nýta þau nýju tæki- færi sem skapast með göngum undir Óshlíð. Á íbúaþingið mættu 130 manns á öllum aldri. Fyrir þingið var unnið með 3 bekkjum grunn- skólans og var afrakstur þeirrar vinnu kynntur á þinginu. Samtals tóku því 14,5 prósent íbúa þátt í um- ræðu um framtíðarsýn Bolvíkinga, sem unnið verður frekar úr við gerð aðalskipulags sem nú stendur yfir. Yfirskrift þingsins var „Það er rok, rok ég ræ ekki... hvað geri ég þá?” og vísar til „þjóðsöngs” Bolvíkinga. I yfirskriftinni felst sú grundvallar- spurning á hverju Bolvíkingar vilja byggja til framtíðar, nú þegar sjáv- arútvegur hefur dregist saman frá því sem mest var. Samvera með fjöl- skyldunni, falleg náttúra allan árs- ins hring og kyrrð er það sem íbúar í Bolungarvík kunna best að meta og ennþá frekar þegar nóg er að gera og Óshlíðin ógnar ekki. Ýmis sóknarfæri I umræðu um atvinnumál komu ýmis sóknarfæri fram, t.d. í menn- ingar- og heilsutengdri ferðaþjón- ustu sem er lítil fyrir, þótt á miklu sé að byggja. Náttúra og saga býður upp á ýmis tækifæri. Sem dæmi má nefna einstaklega góð berjalönd í nágrenni bæjarins. Þar að auki er náttúrulegt umhverfi Bolungar- víkur áhugaverður vettvangur ým- iskonar vísindarannsókna, að mati þátttakenda. Ýmsir möguleikar eru í fjarvinnslu, t.d. fyrir opinbera aðila en ótraust rafmagn er þó til vandræða á því sviði. Menntun, fullorðinsfræðsla og samstarf skóla var ofarlega á baugi í umræðu um samfélag Bolvíkinga. Þá mætti auka samskipti ýmissa hópa, t.d. yngri og eldri borgara og ekki síst samskipti erlendra íbúa og hinna íslensku. Töldu þátttakendur að allt samfélagið þyrfti þar að leggjast á eitt, vinnustaðir, stofnanir og leið- togar í samfélaginu, af innlendu og erlendu bergi. Húsnæði vantar fyrir Umrœðan Framtíðarsýn íbúaersú að Bolungarvík verði „hraustur bær" í víðustu merkingu þess orðs. Grímur Atlason félagsstarf eldri íbúa en almennt var mikil ánægja með opinbera þjón- ustu í Bolungarvík. Lifandi menningarmiðstöð Miðbær Bolungarvíkur er að mati þátttakenda við þau gatnamót þar sem Félagsheimilið Vikurbær stendur. Kallað var eftir endur- bótum á þvi húsi og að það verði lif- andi menningarmiðstöð. Vilji var til að bæta ásýnd og umhverfi í bænum með tiltekt þar sem allir legðu sitt af mörkum. Auk þess kom fram sú hugmynd að útbúa þrjár gönguleiðir í bænum, svokallaða heilsuhringi. Samkvæmt hugmyndinni yrði til einn þrekhringur á bökkum Hólsár, einn hringur í gegnum byggðina þar sem göngufólk upplifði útsýni og mannlíf bæjarins og einn útivist- arhringur sunnan við bæinn. Sterk tónlistarhefð Ungt fólk setti mikinn svip á þingið og meðal hugmynda þess má nefna kvikmyndaver og tónlistarháskóla, enda sterk tónlistarhefð í Bolungar- vík. Góðar aðstæður til útivistar og tómstunda eru mikilvægar að þeirra mati og einnig lögðu þau áherslu á fleiri atvinnumöguleika fyrir háskóla- menntað fólk samhliða blómlegum sjávarútvegi. Einn hópur vann út frá yfirskriftinni „Villtir draumar” og varpaði hann fram ýmsum hug- myndum sem einungis þurftu að upp- fylla það skilyrði að vera ekki of ger- legar. Þar kom fram að Bolungarvík „Crazy Town” eða „Hvatabær” gæti orðið staður sem fólk ferðaðist til með Vestfjarðahraðlestinni, færi í kláf upp á Bolafjall og gisti og skemmti sér í stóru skipi sem komið væri upp á land og gerði út á ný mið í ferðaþjón- ustu, svo fátt eitt sé nefnt. Heilbrigði Framtíðarsýn ibúa er sú að Bolung- arvík verði „hraustur bær” í víðustu merkingu þess orðs, þannig að stefnt sé að heilbrigði í umhverfi, efnahag og í samfélaginu. Vildu þinggestir sjá að umhverfið verði áfram jafn fal- legt og að íbúum fjölgi í fjölskyldu- vænu samfélagi þar sem í boði eru fjölbreytt atvinnutækifæri fyrir alla, án stóriðju. Byggt verði á styrk Bol- ungarvíkur og á þeim grunni sem þegar er til staðar, s.s. Heilsubæjar- verkefni. Keppnisskap Bolvíkinga verði virkjað og samfélagið einkenn- ist af sköpun, frumkvæði og sam- heldni, þannig að Bolungarvík verði líka „traustur bær”. Höfundur er bæjarstjóri Bolungarvíkur Hafnfirðingar láta „misnota" sig Þrátt fyrir að nú sé gott atvinnu- ástand, er það ekkert sem er sjálf- gefið og aðstæður geta verið fljótar að breytast. Það þarf því að tryggja, að traust fyritæki sjái sér hag í að starfa hérlendis og þau hafi styrk og getu til að takast á við þær kröfur sem við gerum, svo sem í náttúru- vernd og fleiru. Umhyggja fyrir nátt- úrunni er ekki eitthvað sem á að vera á dagskrá eingöngu fyrir kosn- ingar, heldur á hún að vera stöðugt í huga okkar og virðing fyrir nátt- úrunni í allri sinni mynd á að hafa áhrif á allar okkar gjörðir. Virðing þessi má þó ekki rugla allri dóm- greind okkar og stjórnast af öfgum og ofstæki. Sorgleg staðreynd Við Hafnfirðingar stöndum nú frammi fyrir þeirri sorglegu stað- reynd að uppbygging álversins var felld og mun þessi ákvörðun hafa veruleg áhrif á tekjur Hafnar- fjarðar og atvinnumöguleika fjölda fólks. Sú mikla tekjuaukning sem hefði skapast við stækkun, hefði auðveldað stjórnendum bæjarins að bæta hlutina á ýmsum sviðum svo sem varðandi skóla, íþróttir, fé- lagsþjónustu við aldraða og margt fleira. Skynsemi við ákvörðun, réði ekki þessari niðurstöðu, heldur var það taugaveiklun vegna komandi þingkosninga, eða tímabundnir eig- inhagsmunir og gegndarlaus áróður úrtölufólks sem réði. Fremstir þar í hópi fóru stjórnmálamenn, en þeir yfirbjóða hver annan í umræðu um umhverfismál og keppninni um staðsetningu álvera. Einnig er mjög áberandi hvað fjölmiðlafólk misnotar aðstöðu sína og segja ekki fréttir, heldur troða skoðunum sínum að fólki. Hafnfirðingar létu þessa aðila nánast „nauðga“ sér og kusu á móti hagsbótum fyrir fjöld- ann til framtíðar. Stjórnmálamenn án skoðana Til stóð að öllum kröfum bæjar- ins um mengunarvarnir, breytingar línumannvirkja og margt fleira yrði fullnægt. Það er mér því gjör- samlega um megn að skilja hvernig bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar hafa klúðrað þessu mesta hagsmun- armáli Hafnfirðinga. Þeir hafa valið sér það að vera skoðanalausir og borið þvi við að þeir vildu ekki hafa áhrif á kosninguna. Ég hélt að þeir hefðu verið kosnir til að stjórna bænum. Það hefur lengst af verið meginmarkmið stjórnmálamanna að hafa áhrif og koma skoðunum sínum á framfæri. Hvað ætla þessir aðilar að segja fyrir næstu kosn- ingar, efþeir hafa engar skoðanir og fela sig á bak við eitthvað sem þeir kalla íbúalýðræði. Þeir geta þá bara stillt upp símastaurum í næstu kosn- SMun ég því segja mig úr Samfyik- ingunni og halda áfram að vera Ai- þýðuflokksmaður Umrœðan Árni Hjörleifsson ingum, þeir hafa víst ekki meiri skoðanir en þeir. Ég dreg í efa það lýðræði, sem íbúakosningar um ein- stök málefni muni skapa og tel það frekar hamla framförum. Til að mynda hefur þetta svokallaða íbúa- lýðræði verið notað í Sviss, en þar hefur afturhald og þröngsýni ríkt á ýmsum sviðum og staðið í vegi fyrir framförum. í Sviss fengu konur til að mynda ekki kosningarétt fyrr en árið 1971 og þeir samþykktu loks aðild að Sameinuðu þjóðunum árið 2002. Nú er svo komið að ýmsir efna- hagssérfræðingar þeirra spá því að Sviss verði í hópi fátækustu þjóða Evrópu innan tuttugu ára, ef þeir breyti ekki frá þessari afturhald- sömu stefnu sinni sem stendur í vegi fyrir framförum. Úr Samfylkingunni Ég var félagi í Alþýðuflokknum og var fluttur með félagaskrá hans inn í Samfylkinguna, þegar hún var stofnuð. Alþýðuflokksmenn voru ætíð náttúruverndarsinnar og tals- menn þess að byggja upp blandað hagkerfi sem stuðlar að öflugu at- vinnulífi, því þeir vissu að atvinnu- leysi og samdráttur varþað sem bitn- aði verst á venjulegu launafólki. Þar sem Samfylkingin vill fara þá braut að hafa ekki skoðanir og bera við einhverju lýðræðishjali og hrekja þannig eitt af bestu og öflugustu fyrirtækjum bæjarins burtu, sé ég ekki að við eigum samleið. Mun ég því segja mig úr Samfylkingunni og halda áfram að vera Alþýðuflokks- maður (krati). Höfundur er rafvirki og var bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins, form. skipulags- nefndar, skólanefndar Hafnarfjarðar og form. sambands sveitafélaga á höfuðborgsvæðinu. 5MÁAUGLÝSINGAR blaðiðs Enginn niðurskurður I leiðara Blaðsins laugardaginn 14. apríl sl. er farið með rangt mál. Þar er því haldið fram að í ráðuneytum þeim sem framsóknarmenn hafa stýrt undanfarin ár hafi niðurskurð- arhnífnum verið beitt af alefli. Nú er það svo að á undanförnum tólf árum hefur verið sótt fram á flestum sviðum samfélagsins. Á þeim tíma hefur staða ríkissjóðs tekið stakka- skiptum, skuldir ríkisins eru óveru- legar og efnahagur traustari en áður í sögu lýðveldisins. Á sama tíma hefur átt sér stað mikil uppbygging öflugs atvinnulífs og kröftug nýsköpun sem hefur búið í haginn fyrir eflingu vel- ferðarkerfisins. Til þeirra málaflokka sem þar teljast undir hefur orðið veru- leg raunaukning fjármagns. Aukin framlög Framlög ríkisins til heilbrigðis- mála voru til að mynda áætluð ríf- lega 80 milljarðar á árinu 2006 og höfðu þá aukist að raungildi um 27,5 milljarða frá árinu 1998 eða um 49 prósent. Framlög ríkisins samkvæmt fjárlögum 2006 námu um 8 prósentum af áætlaðri vergri landsframleiðslu. Árið 1998 nam þetta hlutfall 6,9 prósentum. Fram- lög ríkisins til almannatrygginga og velferðarmála voru áætluð 73,4 milljarðar króna í fjárlögum 2006 og jukust að raungildi um 23 millj- arða króna frá árinu 1998 eða um 45 prósent. Framlög ríkisins til al- mannatrygginga og velferðarmála samkvæmt fjárlögum 2006 námu um 7 prósentum af áætlaðri vergri landsframleiðslu. Árið 1998 nam þetta hlutfall 6,3 prósentum. Samfellt vaxtarskeið Framlög ríkisins til fræðslumála voru áætluð 33,1 milljarður í fjár- tí undanförnum tólfárum hefur verið sótt fram á flestum sviðum samfélagsins Umrœðan Sigfús Ingi Sigfússon lögum 2006 og jukust að raungildi um 12,3 milljarða frá árinu 1998 eða um 59 prósent. Framlög ríkisins til fræðslumála samkvæmt fjárlögum 2006 námu um 3,2 prósentum af áætlaðri vergri landsframleiðslu. Árið 1998 nam þetta hlutfall 2,6 prósentum. Framlög ríkisins til há- skólastigsins voru áætluð um 16,7 milljarðar í fjárlögum 2006 og juk- ust að raungildi um 7,4 milljarða króna frá árinu 1998 eða um 80 prósent að raungildi. Er þá ótalinn nýr samningur við Háskóla íslands sem undirritaður var í janúar sl. og fól í sér stórauknar fjárveitingar til skólans. Þessar staðreyndir sýna að í ríkisstjórnartíð Framsóknarflokks- ins hefur hann beitt sér fyrir mikilli aukningu framlaga til velferðarmála. Til menntunar, heilbrigðisþjónustu, aldraðra og öryrkja. Styrk stjórn efnahagsmála hefur því ekki aðeins leitt af sér lengsta samfellda vaxtar- skeið kaupmáttar og hagvaxtar í ís- landssögunni, heldur hefur á sama tíma verið byggt upp enn öflugra velferðarkerfi. Með áframhaldandi uppbyggingu öflugs atvinnulífs og árangri áfram er unnt að gera enn betur í þeirri samhjálp sem við viljum geta boðið fólki um land allt. Höfundur er framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.