blaðið - 26.04.2007, Page 16

blaðið - 26.04.2007, Page 16
16 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 blaðið Mennt er máttur Á hátíðarstundu er menntun á Is- landi sögð góð. Staðreyndin er sú að íslendingar leggja minnst fjármagn til menntamála samkvæmt skýrslu OECD, miðað við höfuðtölu og verga landsframleiðslu. Það er því alls ekki verið að bera í bakkfullan læk- inn þegar kemur að þessum málum eins og menntamálaráðherra vill oft halda fram. Síðan grunnskólinn var færður yfir til sveitarfélaganna hefur mikil þróun átt sér stað í innra starfi skólanna. Eftir situr að kjara- mál kennara eru í ólestri og samn- ingsumleitanir kennara bera lítinn árangur í hvert sinn sem sest er að samningaborði. íslandshreyfingin - lifandi land telur að menntun tryggi samkeppnishæfni einstak- lingsins og velferð hans. Það er því mikilvægt að hlúa að menntun allra landsmanna frá vöggu til grafar. Til að gera þetta að veruleika verður að setja raunhæf markmið og þau er hægt að nálgast í stefnuyfirlýsingu og aðgerðaáætlun Islandshreyfing- arinnar. Þar segir meðal annars: menntamálallra Umrœðctn Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Fjölbreytilegar námsleiðir Eitt helsta verkefni stjórnvalda er að efla og treysta skólastarf á öllum stigum, tryggja menntun þjóðar- innar og búa í haginn fyrir öflugt vísinda- og rannsóknastarf. Þörf er á fjölbreytilegum námsleiðum fyrir nemendur með ólíka hæfi- leika til að öðlast verkmenntun og bókþekkingu. Efla skal verknám, listnám, skapandi hugsun, siðræna hugsun og umhverfis- og lýðræðis- vitund nemenda strax á unga aldri. Minnka skal miðstýringu og gera skólum kleift að verða sjálfstæðari bæði hvað varðar námsstefnu og fjármál. Sjálfstæðir skólar skulu njóta jafnræðis við opinbera skóla. Fjármagn fylgi hverjum nemanda frá lögheimilissveitarfélagi sam- kvæmt grunnskólalögum. Sjálf- stæðir skólar skulu ekki innheimta skólagjöld af nemendum sínum. Mennt er máttur fyr- ir innflytjendur Kunnátta í íslensku og helstu þáttum samfélagsins er mikilvæg fyrir nýja þjóðfélagsþegna til að að- lagast og verða virkir þátttakendur á öllu sviðum íslensks samfélags. Efla þarf þennan þátt á öllum skóla- stigum og bjóða innflytjendum að kostnaðarlausu. íslensk menning og náttúra Efla ber rannsóknir á íslenskri menningu og náttúru. Einnig skal að því stefnt að nýta sérstöðu lands- ins við þekkingarsköpun og miðla henni til verr settra þjóða, eins og t.d. í sjávarútvegsmálum, orku- málum og jafnréttismálum. Á íslandi er fjölmenningarlegt samfélag. Fólk af erlendum upp- runa hefur fest hér rætur. Eins eru fatlaðir hluti af flóru mannlífsins á íslandi. Það verður að taka tillit til þessa og er það gert í Islandshreyf- ingunni. Markmið okkar er að allir fái menntun við sitt hæfi og getu. Þörfin hefur aldrei verið meiri en einmitt núna og nauðsynlegt að efla menntakerfið gagnvart minni- hlutahópum. Minnihlutahópar samfélagsins hafa orðið útundan hvað menntun varðar. Eitt skamm- arlegasta dæmi sem um getur er í sambandi við blindrakennslu. Henni hefur ekki verið sinnt að neinu ráði og nú er staðan sú að það er aðeins einn blindrakenn- ari til að sinna 160 blindum og sjónskertum nemendum í grunn- skólum landsins. Tvær flugur í einu höggi Táknmálsnotendur hafa borið skarðan hlut frá borði, eftir ára- langa baráttu fyrir réttindum sínum á forsendum táknmálsins og nú hanga þær bráðabirgða- lausnir sem stjórnvöld hafa rétt þeim á bláþræði. Menntun geðfatl- aðra hefur verið skert á tímabili núverandi stjórnvalda. Fatlaðir framhaldsskólanemendur hafa misst tómstundaúrræði sitt sem er mikilvægur þáttur í þeirra lífi með- fram framhaldsskólanámi. Fólk af erlendum uppruna fékk lengi vel lítið fjármagn til íslenskukennslu en á einhvern undraverðan hátt hristu stjórnvöld fram úr erminni too milljónir til að sinna þessu. Samt sem áður er það fjármagn ekki tryggt í fjárlögum og því að- eins um bráðabirgðalausn að ræða. Það er vitað mál að það hentar út- lendingum einkar vel að nýta sér textun sjónvarpsefnis til íslensku- námsins. Með þá vitneskju í far- teskinu hefur Islandshreyfingin meðal annars á stefnuskrá sinni að koma textun á innlent sjónvarps- efni í lög. Með því sláum við tvær flugur í einu höggi, eflum íslensku- kennslu fyrir útlendinga ogbætum aðgengi þeirra og heyrnarlausra að upplýsingum um samfélagið, en heyrnarlausir landsmenn telja um ío prósent þjóðarinnar. Full mannréttindi íslandshreyfingin - lifandi land lætur sig menntamál allra hópa á landinu miklu varða og mun eftir fremsta megni leitast við að hafa sem nánusta samvinnu við fjöl- menningarsamfélagið þegar að mál- efnum þeirra kemur til ákvarðana. Því þegar upp er staðið hefur þetta með rétt þegnanna að gera eins og segir í aðgerðaáætlun Islandshreyf- ingarinnar. Þar segir meðal annars að allir þegnar landsins skuli njóta fullra mannréttinda án tillits til kyn- ferðis, trúarbragða, skoðana, þjóð- ernis, kynþáttar, kynhneigðar, litar- háttar, efnahags, ætternis eða stöðu. Höfundur er í 3. sæti í Reykjavík norður fyrir (slandshreyfinguna - lifandi land Mikið úrval af heilsuskóm og vinnufatnaði Fæst einnig í svörtu Verð kr. 5.990- ... Þegar þú vilt þægindi Síðumúli 13 sími 5682878 www.praxis.is Engin karlremba Ég les mér það til mikillar furðu og heyri út undan mér, að maðurinn minn sé nefndur „karlrembusvín”. Margt hef ég nú heyrt misjafnt um manninn, en aldrei þetta. Það þarf nú ekki nema fletta í endurminn- ingum hans (sem hann kallar Til- hugalíf) til að komast að hinu sanna um, hvern hug hann ber til kvenna. Eftir þann lestur verður miklu frekar sagt um hann, að hann sé í meira lagi kvenhollur. Hann er t.d. sýnu meiri aðdáandi kvenna en þær konur eru aðdáendur karla, sem leggja það í vana sinn að úthúða þeim kvölds og morgna og vilja kenna við fem- ínisma. Er jafnvel til eitthvað, sem hægt er að kalla kvenrembu? Að hætti Vestfirðinga uppnefnir Jón Baldvin flesta, sem hann um- gengst, eða eru honum hugstæðir. Þetta eru eins konar gæluorð, þó ég viðurkenni, að í þeim felist oft ákveðin írónía. „Ljóskan í mennta- málaráðuneytinu” er ein þeirra. I því felst engin lítilsvirðing. Stall- systur hennar í öðru ráðuneyti kallar hann gjarnan „Ljósmóður- ina frá Lómatjörn” (eftir að Friðar- gæslunni í Afganistan var að sögn breytt í ljósmóðurstarf). Önnur kona, sem hann átti mikil sam- skipti við um tíma hét hvorki meira né minna en „heilög Jóhanna”. Og svo enn ein, sem hann vænti mik- ils af, hét bara „Sóla”. Svo var það Krulli, Össi babe, Skallagrímur og Hermannsbur. Man ekki fleiri í bili. Mig kallar hann bara Brynku, þegar vel liggur á honum. Mundi hann þora að vera með karlrembu- hátt við mig? You bet not! Skelfing er mér annars farið að leiðast þessar eilífu svívirðingar og forakt í ræðu og riti gagnvart fólki, sem er komið á þroskaðan Annars skora ég á fólk að tala um eitthvað, sem máli skiptir Umrœðan Bryndis Schram aldur. Ef það flokkast ekki undir ómengaða mannfyrirlitningu, þá veit ég ekki hvað á að kalla það (a la Svandís Svavarsdóttir í Mogga í gær). Manni leyfist ekki einu sinni að hafa skoðanir, hvað þá að setja þær á prent. Og með leyfi að spyrja, hver eru aldurstakmörkin? Annars skora ég á fólk að tala um eitthvað, sem máli skiptir, í kosningabarátt- unni, fremur en að vekja upp storm í tebolla! List án landamæra 2007 List án landamæra er kröftug há- tíð sem setur sterkan svip á menning- arárið á Islandi og hefur brotið niður ýmsa múra. Á hátíðinni hafa ólíkir aðilar unnið saman að mismun- andi listtengdum verkefnum með frábærri útkomu, sem hefur leitt til aukins skilnings manna á milli með ávinningi fyrir samfélagið allt. Með þetta að leiðarljósi er lagt upp með nýja hátíð á árinu 2007, en þetta er í fjórða sinn sem hún er haldin. Há- tíðin hefst þann 26. apríl og stendur til 16. maí. Samstarfsaðilar í stjórn Listar án landamæra eru: Fjölmennt, fullorðinsfræðsla fatlaðra, Átak, fé- lag fólks með þroskahömlun, Hitt Húsið og Landssamtökin Þroska- hjálp. Öryrkjabandalag íslands er nýr félagi að stjórninni en fulltrúi frá þeim bættist í hópinn í vor. Ekki nógu áberandi Þátttakendur í hátíðinni gefa góða mynd af því fjölbreytta og kröftuga listalífi sem hérþrífst. Hæfileikafólk er á hverju strái en stundum skortir tækifæri fyrir það til að koma sér á framfæri. Fólk með fötlun eða þroskaskerðingu er því miður ekki nógu áberandi í „almennu" menn- ingarumhverfi. List án landamæra stuðlar að því að breyta því og landamæra er i®' kröftug hátíð Vw' wí Umrœðan Margrét M. Norödahl samstarf og opnun á milli hópa og ólíkra einstaklinga leikur þar stórt hlutverk. Stefnt er að því að festa hátíðina í sessi sem árlegan stórvið- burð í íslensku menningarlífi. Hún hefur breyst og þróast ár frá ári og fleiri eru að verða meðvitaðir um gildi hennar í listalífinu, bæði þátt- takendur og njótendur. Hátíðin í ár stefnir í að verða bæði fjölbreytt og skemmtileg. Á dagskrá eru 25 viðburðir, flestir í Reykjavík, en einnig á Akureyri, á Selfossi og á Egilsstöðum. Hátíðin verður opnuð fimmtu- daginn 26. apríl, kl.17.00, i Ráðhúsi Reykjavíkur en þá verður einnig opnuð samsýning í austursal Ráð- hússins. Á dagskrá í Ráðhúsinu eru fjölmörg skemmtileg atriði og meðal annarra koma þar fram Linda Nýtt heimili fyrir heimilislausa I forsíðufrétt Blaðsins miðvikudag- inn 18. apríl 2007 er ekki farið alls- kostar rétt með staðreyndir varðandi félagsmálaráðuneytið en upplýsing- arnar voru ekki bornar undir ráðu- neytið áður en greinin var birt. Haft er eftir framkvæmdastjóra Geð- hjálpar að félagsmálaráðuneytið telji níu eða tíu geðfatlaða vera vegalausa. Samkvæmt skýrslu samráðshóps um heimilislausa í Reykjavík frá haustinu 2005 eiga 45 til 55 einstaklingar hvergi höfði sínu að að halla á hverjum tíma. Nokkrir í þeim hópi eiga við fötlun að stríða vegna Iangvarandi geðröskunar. Félagsmálaráðuneytið og Reykjavík- urborg hafa tekið upp samstarf til að auka umtalsvert þjónustu á þessu sviði. Á næstu mánuðum verður opnað nýtt heimili fyrir heimilislausa sem ekki geta nýtt sér önnur úrræði. Þar geta tíu einstaklingar dvalið á sama tíma. Ætla má að heimilið nýtist 20 - 30 ein- staklingum á ársgrundvelli. I skýrslunni „Þjónusta við geðfatlað fólk - stefna og framkvæmdaáætlun vegna átaks félagsmálaráðuneytisins 2006-2010“ kemur fram að geðfatlaðir sem þarfnast sértækrar búsetuþjón- ustu séu 161 á landinu öllu. Þar af búa 84 í Reykjavík og um helmingur þeirra dvelur á geðsviði Landspítala - háskólasjúkrahúss. Átakið beinist að öllum sem á þurfa að halda Átak félagsmálaráðuneytisins i upp- byggingu þjónustu fyrir geðfatlað fólk, Simi: 553-9595 www.gahusgogn.is Armúla 19 SÉFISMÍÐAÐIR SÓFAR Eftir ÞÍNUM MÁLUM Rós Pálmadóttir í söngsamstarfi við Heiðu Eiríksdóttur söngkonu, Bjöllukórinn flytur lög og Elísabet Jökulsdóttir les ljóð. Tökum höndum saman Óupptalinn er fjöldi skemmtilegra atburða sem má kynna sér á Netinu eða í dagskrárbæklingi sem má nálg- ast hjá Þroskahjálp, Hinu Húsinu og Fjölmennt. Einnig er hægt að fylgjast með á heimasíðum Þroskahjálpar, ÖBl, Hins Hússins og Fjölmenntar. List án landamæra er einnig með bloggsíðu og er netfangið þar: www.listanland- amaera.blog.is. Þar má sjá dagskrána fyrir hátíðina í vor og fjöldann allan af myndum frá hátíðinni í fyrra. Við hjá List án landamæra hvetjum ykkur til þess að mæta á atburði hátíðarinnar enda af nógu að taka. Sérstaklega hvetjum við ykkur til þess að kippa vinum og vandamönnum með að Reykjavíkurtjörn laugardaginn 28. apríl kl. 13.00 og mynda þar hring samstöðu og einingar með okkur. Þar verður framinn gjörningurinn Tökum höndum saman, en markmiðið er að mynda óslitinn hring í kringum tjörn- ina en til þess þarf 1000 manns. Höfundur er framkvæmdastýra Listarán landamæra Geðfatlaðir sem þarfnast sértækrar búsetuþjónusu 161 á landinu öllu Umrœðan Einar Njálsson skv. framangreindri framkvæmda- áætlun, beinist að öllum sem þurfa á nýjum úrræðum að halda en einskorð- ast ekki við þá sem dveljast á sjúkra- stofnunum eins og haldið er fram í grein Blaðsins. Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir að samvinnu skorti milli ráðuneyta félags- og heilbrigðis- mála. Rétt þykir að benda á að bæði ráðuneytin eiga aðild að verkefnis- stjórn sem fer með yfirstjórn átaksins í þjónustu við geðfatlað fólk. Verkefn- isstjórninni til ráðuneytis er ráðgjafar- hópur, skipaður af félagsmálaráðherra, sem framkvæmdastjóri Geðhjálpar situr í. Á þeim vettvangi hefur Geð- hjálp komið sjónarmiðum sínum til skila beint við framkvæmdahóp átaks- ins en samstarfið í þágu geðfatlaðra hefur verið með miklum ágætum. Höfundur er verkefnisstjóri hjá félagsmálaráðuneytinu

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.