blaðið - 26.04.2007, Qupperneq 25
blaðið
FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 33
he
heilsa@bladid.net
Fræðsla um krabbamein
Lionshreyfingin stendur fyrir fræöslufundi
fyrir almenning um krabbamein í sal 5 á Hót-
eli Loftleiðum þann 3. maí kl. 17.
Netsamtal Tryggingastofnunar
Þjónusturáðgjafar Tryggingastofnunar geta nú svarað erindum
viðskiptavina sinna með netspjalli á vef stofnunarinnar tr.is.
Netsamtalið er opið alla virka daga frá kl. 8:30 til kl. 15:30.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 588 57 11 og 694 61 03
YOGA YOGA YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunar-
æfingar, slökun og hug-
leiðsla.
www.yogaheilsa.is
Sértímar fyrir byrjendur og
barnshafandi konur.
Morgun-, hádegis-,
síðdegis- og kvöldtímar.
NÝTT! Astanga yoga
Horft til framtíðar
Árleg ráðstefna útskriftarnema í
þroskaþjálfafræðum við Kennara-
háskóla íslands fer fram í dag og á
morgun. Ráðstefnan ber yfirskrift-
ina Horft til framtíðar og þar kynna
útskriftarnemar lokaverkefni sin til
BA-gráðu.
Verkefnin að þessu sinni eru á
sviði barna- og fjölskyldumála,
skólamála, heilbrigðismála og
öldrunarþjónustu, réttinda og at-
vinnumála og fullorðinsfræðslu og
búsetuþjónustu.
Ráðstefnan er haldin í Skriðu, fyrir-
lestrasal Kennaraháskóla íslands í
Stakkahlíð, og hefst klukkan 9.
Efni ráðstefnunnar höfðar jafnt til
fagfólks og annars starfsfólks og
notenda þjónustunnar og aðstand-
enda þeirra. Aðgangur er öllum
opinn og ókeypis og hægt er að
sækja einstaka fyrirlestra.
Ohollustan útlæg
Fjöldi barna sem eiga við offitu að
stríða lækkaði um sex prósentustig
á fjórum árum í þeim skólum Stokk-
hólms þar sem óholl matvæli á borð
sælgæti, sætabrauð og gosdrykki
voru sett á bannlista. Þetta kemur
fram í niðurstöðum rannsóknar
sem Karólínska stofnunin í Stokk-
hólmi stóð að.
Fjöldi þeirra barna sem voru ann-
að hvort of þung eða áttu við offitu
að stríða féll úr 22% í 16% í skólun-
um tíu sem tóku þátt í rannsókn-
inni. Jafnframt því að leggja bann
við sætindum var boðið upp á heilsu-
samlegri hádegismat í skólunum en
áður hafði tíðkast.
Til samanburðar var fylgst með
offitu í öðrum skólum þar sem
ekki voru settar reglur um matvæla-
neyslu og jókst þar hlutfallslegur
fjöldi þeirra barna sem voru of þung
eða of feit úr 18% í 21%.
Niðurstöður rannsóknarinnar
voru kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu
um offituvandann sem hófst í Búda-
pest á sunnudag.
Á ráðstefnunni kom einnig fram
að um 22 milljónir af þeim 75 millj-
ónum barna sem búa í löndum Evr-
ópusambandsins eru of þung og 5,1
milljón á við offituvanda að stríða.
virkar straxt
Kemur i veg fyrir og eyöir: Bólgum, þreytuverkjum og harðsperrum
á feröalögum og viö álagsvinnu. Cilyfja
Styrkir varnir húöarinnar gcgn skaöscmi sólar. Húöin verður fyrr fallega brún _
I sól og Ijösabekkjum, meö reglulegri inntöku helst húöin lengur brún.
Klamydia leynir a ser „Um 50
70% fólks sem fær klamydiu
vita ekki af því. Það eru engin
einkenni. Við erum að reyna
að benda fólki á að þó að það
viti ekki af þvi þá er hættan til
staðar," segir Ómar Sigurvin,
formaður Ástráðs, forvarna-
starfs læknanema.
Blaöiö 'Eyþor
Forvarnastarf læknanema við Háskóla íslands
Fræða unglinga um kynlíf
Mikill árangur hefur náðst í að
draga úr tíðni þungana, fóstureyð-
inga og klamydíusmits meðal ung-
linga á undanförnum árum og er
það meðal annars að þakka Ástráði,
forvarnastarfi læknanema. Ástráð-
ur er eitt stærsta forvarnastarf á
landinu enda heimsækja læknanem-
arnir nemendur á fyrsta ári í nær öll-
um framhaldsskólum landsins og
fræða þá um kynsjúkdóma, getnað-
arvarnir og annað sem tengist kyn-
lífi. Ekki stendur á áhuga ungmenn-
anna enda kynlíf nokkuð sem fæstir
vilja fara á mis við en vilja jafnframt
stunda af öryggi.
Ómar Sigurvin, formaður
Ástráðs, segir viðbrögð krakkanna
mjög misjöfn og ýmsar sögUsagnir
og ranghugmyndir séu á kreiki með-
al þeirra, sérstaklega í sambandi við
kynsjúkdóma. „Við fáum til dæmis
alltaf þá spurningu hvort maður
geti fengið kynsjúkdóm í sundi eða
á klósettsetu," segir Ómar en bendir
jafnframt á að þetta sé að breytast
með auknu aðgengi krakkanna að
upplýsingum til dæmis fyrir tilstilli
vefsíðna á borð við doktor.is.
Klamydía leynirá sér
Læknanemarnir beina einkum
sjónum sínum að algengustu kyn-
sjúkdómum sem ungt fólk á við
að stríða eins og klamydíu. „Um
50-70% fólks sem fær klamydíu vita
ekki af því. Það eru engin einkenni.
Við erum að reyna að benda fólki
á að þó að það viti ekki af því þá er
hættan til staðar. Það er talað um
að 1500-1600 manns greinist með
sjúkdóminn á ári þannig að það er
mjög líklegt að það séu allt að helm-
ingi fleiri með hann án þess að vita
af því,“ segir Ómar og bætir við stór
hluti þessa hóps sé undir tvítugu.
„Okkur finnst það sorglegt, ekki
síst út af því að það er auðvelt að
koma í veg fyrir að fólk fái þennan
sjúkdóm með því að nota smokkinn.
Svo er líka auðvelt að greina hann
með því að fara í þvagprufu sem er
víðast hvar ókeypis. Þá er auðveld-
ast að meðhöndla hann af þessum
sjúkdómum. Það eru sýklalyf gefin
við honum,“ segir Ómar og bendir á
að klamydía geti haft alvarlegar af-
leiðingar og jafnvel valdið ófrjósemi
hjá fólki.
Lítil kynfræðsla í grunnskólum
Þó að félagar í Ástráði beini
einkum sjónum sínum að ung-
mennum á fyrsta ári í framhalds-
skóla heimsækja þeir einnig
stundum félagsmiðstöðvar og
grunnskóla eftir þvi sem við verð-
ur komið. Þá kenna þeir í Háskóla
unga fólksins á sumrin en hann
sækja krakkar á aldrinum 12-15
ára. Ómar segir að kynfræðsla í
grunnskólum sé lítil og mismun-
andi eftir skólum.
„Hún hefur reyndar verið að
aukast undanfarin ár, til dæmis
kom Námsgagnastofnun með
nýtt fræðsluefni fyrir grunnskóla
í fyrra þannig að það er vakning i
þessum málum. Við vonum bara
að hún verði enn þá meiri því að
það þarf að byrja á þessu í kring-
um 11-12 ára aldur ef vel á að fara,“
segir hann.
Ástráður heldur einnig úti heima-
síðunni astradur.is þar sem hægt er
að nálgast margs konar upplýsingar
um allt sem tengist kynlífi og kyn-
sjúkdómum. Þá getur fólk sent inn
fyrirspurnir á netfangið leyndo@
astradur.is og í síðustu viku var
símalína félagsins opnuð en í hana
getur fólk hringt og fengið svör við
þeim spurningum sem brenna á því.
Síminn er 896 9619 og er svarað í
hann á þriðjudögum og fimmtudög-
um kl. 20-22.
Öll vinna læknanemanna er unn-
in í sjálfboðastarfi og nýtist þeim
vel í náminu.
„Þetta er gríðarlega góð æfing
fyrir fólk að koma fram og tala um
alls konar viðkvæm efni sem við
komum til með að þurfa að gera
í framtíðinni þegar við förum að
starfa sem læknar,“ segir Ómar Sig-
urvin að lokum.
MEGA
OMEGA-3
1300 mg
80 hylki
heilsa
-haföu það gott
*