blaðið - 21.07.2007, Page 2

blaðið - 21.07.2007, Page 2
2 FRÉTTIR LAUGARDAGUR 21. JÚU 2007 blaöió Danmörk íraskir túlkar til landsins Um tvö hundruð íraskir túlkar sem hafa unnið fyrir danska herinn í írak, hafa verið fluttir til Danmerkur. írökunum var boðið hæli í Danmörku af ótta við að þeir kynnu að verða skot- mörk uppreisnarmanna vegna starfa sinna fyrir erlent herlið. Nöfnum túlkanna hefu rverið haldið leyndum til að tryggja öryggi mannanna. Danski herinn birti þó mynd af túlkunum á heimasíðu sinni þar sem augu túlkanna sáust, en nef og munnar voru skyggð. Herinn hefur beðist afsökunar á myndbirtingunni og fjarlægt myndina, en túlkarnir óttast að fjölskyldur þeirra í írak verði fyrir aðkasti hafi þeir þekkst á myndinni. Reykjavík Brunaslys á hóteli Kona um tvítugt brenndist á nokkrum stöðum á líkam- anum, meðal annars á báðum höndum, við vinnu sína á hóteli í Reykjavík á fimmtudag. Fékk hún yfir sig heitt vatn úr hraðsuðukatli. Konan var flutt á slysadeild Landspítala - háskólasjúkrahúss. STUTT • Skemmdarvargar Þrír drengir á grunnskólaaldri hafa orðið uppvísir að skemmdar- verkum á byggingasvæði á höfuðborgarsvæðinu. Dreng- irnir munu hafa krotað á veggi, sprengt rúður og skvett máln- ingu á nærliggjandi hús. • Umferðartafir Fyrsta áfanga malbikunar við nýtt hringtorg á mótum Vesturlandsvegar og Þingvallavegar er lokið. Umferð á þessu svæði hefur verið hliðrað til og því má búast við einhverjum töfum af þeim sökum. Ókumenn er beðnir um að sýna aðgát og þolinmæði. Mynd/Eyþór Tvíburamömmurnar fjórar eru oft spurðar að því hvað sé í vatninu í Hveragerði Berglind með Auðun Inga og Odd Olav Davíðssyni, Hildigunnur með Þorstein Dag og Þórhildi Söru Jónasbörn. Jór- unn með Júlíu Nótt og Jökul Dag Gunnlaugsbörn og Guðrún Lára með Ólafssyni sem eru einu eineggja tviburarnir í hópnum. Fremst stendur Þura Lárusdótt- ir, 8 ára. sem aðstoðar Berglindi við að gæta Auðuns Inga og Odds Olavs. Femir tvíburar á einu ári í Hveragerði ■ Tvær tvíburamæðranna búa í sömu götu og þrjú hús á milli hinna ■ Á næsta ári verða 7 tvíburapör í grunnskólanum í Hveragerði ■ Bæjarbúar taka fjölguninni fagnandi Fftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur i-igibjorg@bladid.net Það kom ekki öllum mömmunum fjórum í Hveragerði sem eignast hafa tvíbura á síðastliðnum n mán- uðum á óvart þegar í ljós kom að von var á tveimur börnum en ekki einu. „Þetta var ekki spurning um hvort við myndum eignast tvíbura, heldur hvenær," segir Hildigunnur Hjör- leifsdóttir sem eignaðist tvíburana Þórhildi Söru og Þorstein Dag fyrir sex og hálfum mánuði. „Ég á sjálf tvíburabræður og maðurinn minn á tvíburasystur. Maður beið bara eftir þessu,“ segir Hildigunnur sem átti fyrir tvo stráka, 5 og 9 ára. Hinar mömmurnar þrjár, Jórunn Krist- jánsdóttir, Berglind Guðnadóttir og Guðrún Lára Magnúsdóttir segja tví- bura hins vegar langt aftur í ættum hjá þeim. Búa í sömu götu Mömmurnar fjórar, sem allar fæddu á Landspítalanum, eru sam- ankomnar heima hjá einni þeirra með litlu krílin sín þegar útsendarar Blaðsins heilsa upp á þær og er þetta í fyrsta sinn sem þær hittast allar. Tvær þeirra, Berglind og Guðrún Lára, sem búa reyndar í sömu götu, voru að eignast hörn í fyrsta skipti en Jórunn, sem eignaðist tvíburana Júlíu Nótt og Jökul Dag fyrir 7 vikum, eða þann 1. júní, átti fyrir 3 ára strák og 6 ára stelpu. Tvíburarnir hennar Guðrúnar Láru eru einnig 7 vikna en þeir fæddust 3. júní. Ókunnugir prjóna á krílin Bæjarbúar hafa að vonum brugð- ist vel við þessari íjölgun í plássinu og boðið öll litlu krílin velkomin. „Fólk sem maður þekkti ekki neitt fór að prjóna á tvíburana og svo var allt í einu komin tvíburakerra í Bónus,“ segir Berglind sem á elstu tvíburana í hópnum, Odd Olav og Auðun Inga en þeir verða 11 mánaða í næstu viku. Hún segir það hafa verið talsverða vinnu að sinna þeim litlu í fyrstu. „Þetta er erfitt í fyrstu en venst svo. Maður fyllist orku og kemst i ákveð- inn gír. Maður verður að vera skipu- lagður og láta hlutina bara rúlla.“ TVÍBURAFÆÐINGAR W. Árið 2006 voru tví- ^ burafæðingar á Landspítala- háskólasjúkrahúsi 85 eða 2,8 prósent af öllum fæðin- gum þar í fyrra. Árið 2005 voru tvíburafæðingarnar 62 eða 2,1 prósent af öllum fæðingum það ár. ► í júnílok 2007 voru tví- burafæðingarnar á Land- spítalanum orðnar 32. Spurð að því hvort skapgerð litlu herramannanna sé mismunandi segir Berglind að svo sé. „Þetta er eins og svart og hvítt. Annar er alltaf á ferðinni en hinn er rólegur og virð- ist spekúlera meira í hlutunum." Þótt tvíburarnir hennar Jórunnar séu aðeins sjö vikna merkir hún þegar talsverðan mun á skapgerð þeirra. „Stelpan er róleg en strákur- inn frekja," segir hún og kímir. Guð- rún Lára segir skap sinna stráka ósköp svipað. „Enda eru þeir ein- eggja," bendir hún á. Hildigunnur segir sína tvíbura mjög ólíka og tekur það fram að hún þurfi að hafa meira fyrir stráknum. 7 tvíburapör í skólanum Þótt Jórunn og Hildigunnur búi ekki í sömu götu eins og Berglind og Guðrún Lára er stutt á milli þeirra. „Það eru bara þrjú hús á milli okkar og ég fór í tvíburafræðslu til Hildi- gunnar,“ segir Jórunn. Þótt hún hafi fætt tvö börn núna segir hún ekki tvöfalt meira að gera nú heldur en þegar hún eignaðist hin börnin. „En þótt það sé ekki tvöfalt meira að gera er samt miklu meira að gera,“ tekur hún fram. Þar til tvíburapörin fjögur fædd- ust nú á 11 mánaða tímabili höfðu ekki fæðst tvíburar í Hveragerði síðan árið 2000. „Það má hins vegar geta þess að á næsta skólaári verða 7 tvíburapör í grunnskólanum hér og þeir elstu í 8. bekk,“ segir Hildi- gunnur sem kennir við skólann. HEFUR ÞÚ ÁBENDINGU? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net VEÐRIÐ í DAG Á MORGUN Tilvalid Kjarngód napring í þaegilegum umbúdum bAmamatur is Án vidbaetts sykurs! Án vidbaptts salts! Skúrir Hæg breytileg átt, skýjað og sums staðar stöku skúrir. Hiti 12 til 22 stig, hlýjast á Norður- og Austurlandi. Logn og væta Hæg breytileg átt og dálitil væta öðru hverju. Hiti 11 til 16 stig. VÍÐA UM HEIM Algarve 25 Halifax 20 New York 25 Amsterdam 19 Hamborg 24 Nuuk 6 Ankara 36 Helslnki '20 Orlando 24 Barcelona 27 Kaupmannahöfn 19 Osló 17 Berlín 26 London 16 Palma 26 Chicago 22 Madrid 27 París 21 Dublin 14 Mílanó 35 Prag 27 Frankfurt 21 Montreal 16 Stokkhólmur 20 Glasgow 15 Miinchen 26 Þórshöfn 13 Heilbrigöisráðherra Nefnd fjalli um sjúkraflutninga Guðlaugur Þór Þórðarson heil- brigðisráðherra hefur ákveðið að skipa vinnuhóp til að taka saman og gera tillögur um skipulag sjúkraflutninga. Tillög- urnar skulu miðast við landið allt, að því er segir í fréttatil- kynningu frá ráðuneytinu. Vinnuhópurinn, sem skila á tillögum í haust, á sérstak- lega að skoða þætti sem snúa að mönnun og rekstri sjúkraflutninganna. Vinnu- hópurinn á jafnframt að kalla eftir tillögum um menntun sjúkraflutningamanna. Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.