blaðið - 21.07.2007, Blaðsíða 17
blaðiö
ATVINNUBLAÐIÐ
AUGLÝSINGASÍMI 510 3728
ERTU AÐ LEITA?
Ráðningarþjónustan sérhæfir sig í persónulegri þjónustu
á sviði ráðninga, jafnt til fyrirtækja sem og umsækjenda.
Kynnið ykkur þjónustu okkar á www.radning.is
RAÐNINGAR
ÞJÓNUSTAN
Krókháls 5a • HOReykjavík • Sími: 588 7700 • Fax: 588 8700 • www.radning.is • radning@radning.is
Gestamóttaka (Vaktavinna)
Vinnutíminn er frá 07:00 - 19:00
Hæfniskröfur:
-Almenn tölvukunnátta
-íslenska, enska og helst eitt norður-
landamál
-Hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknir skulu sendast Sigurði á
netfangið sigurdurs@hotel-ork.is
og veitir hann nánari upplýsingar í
síma 864-3122
Fjöldi starfa í boði
www.radning.is
RAÐNINGAR
ÞJÓNUSTAN
Persónuleg og fagleg þjónusta
Krókháls 5a • 110 Reykjavík • Sími: 588 7700
Fjallabyggð
Spennandi starf í Fjallabyggö
Laun samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Skipulags- og byggingarfulltrúi Fjallabyggðar
Sveitarfélagið Fjallabyggð lýsir eftir umsóknum um stöðu skipulags- og byggingarfulltrúa.
Skipulags- og byggingarfulltrúi starfar samkvæmt skipulags- og byggingarlög nr. 73/1997, byggingareglugerð 441/1998 og skipulagsreglugerð
400/1998. Hann hefur umsjón með skipulagsgerð, gefur út framkvæmdaleyfi, að fengnu samþykki sveitarstjórnar, og annast eftirlit með því að
framkvæmdir séu í samræmi við útgefin leyfi. Hann hefur auk þess yfirumsjón með umhverfismálum, gatnagerð, hreinlætismálum (sorphirða
og sorpeyðing, hreinsun gatna, opinna svæða o.þ.h.), fráveitumálum, umferðar- og samgöngumálum, ferlimálum, skráningu fasteigna, lóða- og
jarðamálum, búfjármálum og forðagæslu.
Skipulags- og byggingarfulltrúi er yfirmaður tæknideildar Fjallabyggðar og ber ábyrgð á rekstri hennar og þeirra stofnana sem undir hana heyra,
s.s. áhaldahúsa og veitustofnana. Hann gerir starfs- og framkvæmdaáætlanir fyrir þá málaflokka sem undir hann heyra og vinnur með yfirstjórn
sveitarfélagsins að fjárhagsáætlun varðandi þá.
Skipulags- og byggingarfulltrúi hefur yfirumsjón með framkvæmdum á vegum sveitarfélagsins, gerð útboða og samninga og eftirlit þeirra.
Hann hefur auk þess yfirumsjón með viðhaldi fasteigna sveitarfélagsins og annarra mannvirkja á vegum þess.
Skipulags- og byggingarfulltrúi á sæti í almannavarnanefnd.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Umsækjendur þurfa að uppfylla skilyrði 48. og 49. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997og greinar 2.7 í skipulagsreglugerð
nr. 400/1998.
• Færni í mannlegum samskiptum
• Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
• Reynsla af stjórnun og/eða verkefnisstjórnun
• Góð þekking á skipulags-, bygginga- og umhverfismálum
Fjallabyggð
Gránugötu 24, 580 Siglufirði, s. 464 9100, f. 464 9101
Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfirði s. 464 9200, f. 464 9201
Sveitarfélagið Fjallabyggð er nyrst á Tröllaskaga og varð til
við sameiningu Ólafsfjarðar og Siglufjarðar arið 2006. Þar
búa um 2.400 manns. Bæirnir tveir eru afar fjölskylduvænir
og þaðan er stutt i góða útivistarmöguleika jafnt að sumri
sem vetri. Fjolbreytt þjónusta er i bæjunum og mannlif gott
og liflegt.
Umsóknarfrestur er til 7. ágúst n.k.
Tengiliður : Þórir Kr. Þórisson bæjarstjóri,
thorir@fjallabyggd.is, s. 464-9100