blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 21

blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 21
blaöió 21 Tvöfalt brúðkaup Giftu sig í Las Vegas og Norrath Hlutverk tölvuleikja hefur þróast jafnt og þétt með árunum. Með til- komu fjölspilunarleikja á Netinu hafa leikir farið að snúast meira um samfélag og samskipti leikmanna á milli heldur en bara hreina og klára afþreyingu. Nú til dags þykir það ekkert nýtt þótt grunnurinn að vinasamböndum, ástarsamböndum og jafnvel hjónaböndum sé lagður á meðan verið er að spila leiki á Net- inu. Það var einmitt í gegnum tölvu- leikinn Everquest sem hjónakornin Nathan „Garthan“ Davalos og Kelly „Quaddra“ Kane kynntust og þegar að því kom að gifta sig kom ekki annað til greina en að heiðra tölvu- leikinn sem leiddi þau saman. Það Óttast ekki refsingar f nýlegri rannsókn sem fór fram á netnotkun barna á aldr- inum 9 til 14 ára í Evrópu kom það í Ijós að börn á þessum aldri eru vel fróð um mögu- legar afleiðingar þess að hlaða niður ólöglegu efni af Inter- netinu, svo sem kvikmyndum, leikjum og tónlist. Börnin, sem komu frá 37 löndum Evr- ópusambandsins, íslandi og Noregi, voru þó flest sammála um að viðurlögin við þessum brotum væru eitthvað sem þau þyrftu ekki að óttast. Mörg barnanna höfðu þar að auki afsakanir á reiðum höndum til að réttlæta þessa ólöglegu niðurhleðslu sína. Þar á meðal voru afsakanir eins og; „DVD- og CD-diskar eru of dýrir“, „tekjutap listamanna og fram- leiðenda er ofmetið" og síðast en ekki síst: „Pabbi og mamma gera þetta svo að það er í lagi að ég geri það.“ 5"~~- . IHll'TIIIIW- in 1« »<• »• » >»»■.*» »*• m* w,.—x.h.». .Minmiw C**^ « . » . IsJI . * - • -«« • Oivu-*. Ot**. ♦ A r *~*~-*‘ +*•■*** Google eykur plássið Mörgum netverjum brá hressi- lega í brún þegar þeir sáu að Google-fyrirtækið væri að bjóða óllum þeim sem skráðu sig fyrir G-mail netaðgangi upp á 2,8 Gb afgeymslurými, frítt. Nú hefur Google lýst því yfir að það hyggist gera enn betur, en í þetta skipti þurfa notendur að borga fyrir aukna plássið. Notendur að G-mail og Picasa-vefalbúmunum geta nú keypt sér sex Gb aukalega fyrir einungis 20 dollara á ári. Þeir sem þurfa enn meira geymslu- pláss geta borgað 500 dollara á ári og fá þá 250 Gb í staðinn. Það er svo bara spurning hver þarf 250 Gb fyrir tölvupóstinn sinn? var því á nýafstaðinni hátíð, SOE Fan Faire 2007 í Las Vegas, sem þau létu gefa sig saman fyrir framan fullan sal af æstum tölvuleikjaaðdáendum. Eftir að hafa verið vísað inn í salinn af sjálfum Svarthöfða og nokkrum af sérsveitarmönnum hans játuðust þau hvort öðru og settust síðan beint fyrir framan tvær tölvur og endur- tóku brúðkaupið inni í Everquest- leikjaheiminum. Ekki er vitað hvort brúðkaupsferðin hefur verið farin í raunheimum eða í sýndarheimi Ev- erquest. Það verður þó að viðurkenn- ast að fátt er rómantískara en hjón að berjast, hlið við hlið, á móti öllum þeim skrímslum sem flakka um sléttur ævintýralandsins Norrath. Tangarhnffta P ♦ 11P Rp.ykjfivIk..»-SImi..fi7? 4400 • www hifrpiria^alan jg Skólabíladagar! Renault Megane Berline 1600,07/03 ekinn 93,000.km - Tilboð: 1090,000.- MMC Lancer Comfort, árg 2005, ekinn 59,000.km - Verð: 1,290,000.- MMC Lancer Wagon GLXI, 04/99, ekinn 121,000.km - Ný tímarei, nýyfirfarinn og skoðaður - Tilboð: 390,000.- Ford Focus Trend Station, 05/05, ekinn 31,000.km - Tilboð: 1,580.- staðgreitt. Allt að 100 % lán á sumum bílum, visa rað á ðrum og beinharðir peningar fyrir enn aðra! Prútt prútt og jafnvel skipt á bílum.. Mercedes Benz ML 500, árg 2003, ekinn 65,000.km - Tilboð fyrir laganema 3,700,000.- Verð: 4,450,000,- Toyota Corolla Wagon Luna 02/99, ekinn 100.000.- Tilboð: 390.000,- KIA Magentis, 05/05, ekinn 47,000.km Sjálfskiptur - Tilboð: 1,390,000.- Impreza Z ekinn 146,000.km - Tilboð: 690,000,- 4WD, 06/00, Jeep Grand Cherokee Limited, árg 1998, ekinn 90,000 mílur - mikið endurnýjaður bill. Tilboð: 590,000.- :«ÍK Hyundai Sonata GLS, 10/97, ekinn 139,000.km - búið að skipta um tímareim og bremsur Góður fyrir tónlista- menn! Verð: 250,000.- rsn Honda Jazz, árg. 06/05, ekinn 50,000.km Þessi er fínn fyrir tónlistarnemann - Tilboð: 1,290,- Citroen Berlingo sendibíll, diesel, 09/06, ekinn 5,000.km - Þessi væri fínn fyrir iðnnemann! Verð: 1,790.- Subaru Impreza, árg. 2000, ekinn 149,000.km Verð: 590,000.- Meigou 50 QT Vespa, árg 2007 *NÝTT* Frábær fyrir grunnskólanemann! - Tilboð: 169,000,- VW Golf CL, árg. 1994, ekinn 130,000.km Verð: 129,000,- Opel Vectra-B-Caravan, árg. 2001, ekinn 130,000.km - Tilboð: 450,000,- Subaru Impreza Z 4WD, 06/00, ekinn 146,000.km - Tilboð: 690,000

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.