blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 1
KONAN»22
152. tölublað 3. árgangur
Fimmtudagur
16. ágúst 2007
FRJALST, OHAÐ & OKFvn,S!
Sigur Rós
heima
Heimildamyndin Sigur Rós
- heima, verður frumsýnd
fljótlega. „Við vonum
að þeir 35.000 sem
mættu á tónleikana Jm
mæti í bíó," segir j||
Kári Sturluson.
ORÐLAU
Konur í þrounarlöndum
Sjöfn Vilhelmsdóttir
framkvæmdstjóri UNIFEM
á fslandi og félagar hennar
munu um helgina kynna
. fslendingum lífog
. starfkvennaí
jjk þróunarlöndunum.
Utvarpsmannastaður
Helga Vala Helgadottir
lætur rekstur kaffihússins í
Edinborgarhúsinu á fsafirði i
hendur Þóris Traustasonar.
Þetta er einskonar út-
varpsmannastaður," segir j
Helga Vala. I
MATUR»24
Einn á viku kvartar
vegna lýtaaðgerða
■ Aðallega kvartað vegna sýkinga og dreps eftir aðgerðirnar ■ Reykingafólk í stórhættu
á að drep myndist við skurðina, segir yfirlæknir á lýtalækningadeild Landspítalans
Eftir Björgu Magnúsdóttur bjorg@bladid.net
Tuttugu og níu manns hafa leitað til Lífsvogar,
samtaka gegn læknamistökum, það sem af er ár-
inu vegna magaminnkunar eða brjóstaaðgerða
sem hafa farið úr böndunum. Það samsvarar
því að u.þ.b. einn á viku hafi kvartað vegna
misheppnaðrar aðgerðar. „Það er aðallega þegar
sýking kemur upp og drep myndast eftir aðgerð-
irnar sem fólk leitar til okkar,“ segir Jórunn Sig-
urðardóttir, varaformaður samtakanna.
Jens Kjartansson, yfirlæknir á lýtalækninga-
LÝTAAÐGERÐIR
►
►
689 fegrunarskurðaðgerðir voru fram-
kvæmdar á íslandi árið 2006.
Lagfæringar eða nýgerð líkamshluta
eftir áverka eða skurðaðgerðir telst til
lýtaaðgerðar. Strekking á magahúð í
fegrunarskyni og háreyðing með laser
meðferð telst til fegrunarlækninga.
deild Landspítala-háskólasjúkrahúss, segir lýta-
aðgerðir áhættusamar og bendir á að reykinga-
fólk sé í stórhættu þegar þær aðgerðir eru annars
vegar. Ekki sé algengt að lýtaaðgerðir misheppn-
ist, en gerist það sé það oftast nær hjá reykinga-
fólki, þar sem súrefni nái ekki til skurðarsáranna
og drep, til dæmis eftir brjóstaminnkun, svuntu-
aðgerð eða andlitslyftingu, myndist. „Við drep
getur vefurinn orðið alveg hvítur, blár eða jafnvel
svartur og vessað getur úr sárinu," segir Jens og
bætir við að á því stigi sé lítið hægt að gera fyrir
sjúkling nema byggja vefinn frá grunni sem sé
tímafrekt og geti skilið eftir ljót ör.
REYKINGAFÓLK f MEIRIHÆTTU »4
Sonurinn sýndur á
rússneskri vefsíðu
Myndir af syni Maríu Katrínar
Jónsdóttur voru á meðal þeirra sem
rússneska vefsíðan „Little Boys
Rule“ vísaði notendum sínum á af
Barnalandi. „Það er alger
viðbjóður að lenda í þessu.“ aJÆm
Svæft verður við
tannviðgerðir
Komið verður upp aðstöðu fyrir
svæfingar fyrir fatlaða og börn
vegna tannviðgerða á St. Jósefs-
spítala þegar i næstu viku. Frá því
greinir Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra í kjölfar ..
umfjöllunar Blaðsins. ##0
Hvíld á friðsælum stað
Erf itt að vera í sumarf ríi á íslandi
Það getur verið erfitt að vera í sumarfríi á íslandi. Þessir ferðamenn litu að minnsta kosti út fyrir að vera göngu-
lúnir þar sem þeir hvíldu sig á bekk i Fógetagarðinum við Aðalstræti í gær. Það ætti að vera friðsæll staður, enda
var þar kirkjugarður Reykvíkinga öldum saman. Stígur Andri Herlufsen, lesandi Blaðsins, tók myndina og sendi
því. Blaðið hvetur lesendur, sem luma á jafnskemmtilegum fréttamyndum til að senda þær á frettir@bladid.net.
Hundaleit
á þyrlunni
Tveir hundar norska milljóna-
mæringsins Ole T. Bjernevik
týndust nýlega í gönguferð
með eiganda sínum. Bjernevik
dó ekki ráðalaus heldur fékk
sérstakt leyfi sveitarfélagsins
í Norður-Þrændalögum til
að nota þyrluna sína við
leitina. Hefur auðmaðurinn
síðan flogið linnulaust um
heimaslóðir. Hann leitaði
einnig til miðils í von um að
hundarnir myndu finnast.
Annar hundurinn fannst á
þriðjudag en hinn er ekki enn
kominn í leitirnar. sme
NEYTENDAVAKTIN i 0 1
Verð á majonesi
Verslun Krónur
Bónus 71
Kaskó 72
Krónan 72
Samkaup-Úrval 100
Melabuðin 115
Kjarval 158
Verð á Gunnars majonesi, 250 ml
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
gj^ USD 67,07 1,76 ▲
GBP 133,62 1,37 ▲
5S DKK 12,16 1,04 A
• JPY 0,57 2,45 A
■1 EUR 90,46 1,02 A
GENGISVÍSITALA 122,90 1,28 ▲
ÚRVALSVÍSITALA 7.874,66 1,20 ▲
VEÐRIÐ í DAG
TILBOÐSLÍNABÍLALANDS B&Ll
Renault Laguna 5 dyra, nýskráður 10/2003, ekinn 45 þúsund kílómetra. Verð ádur kr. 1.880.000- TILBOÐSVERÐ kr. 1.290.000
Hyundai Sonata 5 dyra, nýskráður 07/2001, ekinn 89 þúsund kílómetra. Verd áður kr. 890.000 - TILBOÐSVERÐ kr. 590.000
Opel Zafira, nýskráður 11/2002, ekinn 124 þúsund kílómetra. Verð áður kr. 7.190.000 - TILBOÐSVERÐ kr. 870.000
Komdu og kíktu á tilboðslínu Bílalands B&L, gott úrval á staðnum . Fyrstir korna fyrstir fá. Höfum opið til kl. 18 alla virka daga!
Bílaland B&L - Grjóthálsi 1 - 575 1230 - bilaland@bilaland.ís - www.bilaland.is
j