blaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 8
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 16. AGUST 2007
blaóiö
W%} %
\l/
VOGABÆR
Frábær köld úr dósinni eöa hituð upp, með lambakjöti,
nautakjöti, fiski eöa kjúklingaréttum í ofni.
Tilv\in köid út á kjötiö, / fiskrétti, meö reyktum silungi og
sjáværfangi. Góö meö köldum, steiktum lunda og sem ídýfa.
ÍÞRÓTTIR
Auglýsingasíminn er
Klukkan 18:00 í dag Fyrirlestur í Laugum
»Einstaklingsmiðuð
þjðlfun er framtíðin«
Aðgangur ókeypis <
iak • Einkaþjálfari
Sæktu um fyrir 20. ágúst
meira nám-meiri metnaður
www.akademian.is
Y -\ /•
-1* A *r
íþrótta
akademían
Endurskipulagning Ratsjárstofnunar
Fólkið ekki fengið skýr svör
„Uppsagnir eru alltaf viðkvæmt
mál. Starfsmenn tóku við þessum tíð-
indum og hafa síðan verið að meta
málið hver fyrir sig,“ segir Ólafur
ÖrnHaraldssonforstjóriRatsjárstofn-
unar. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ut-
anríkisráðherra tilkynnti í fyrradag
um endurskipulagningu á stofnun-
inni og uppsögn alls starfsfólks.
Ólafur segir að eftir að Bandaríkja-
menn drógu sig út úr rekstrinum
hafi starfsmönnum verið ljóst að endurskoðun yrði
gerð á starfsemi Ratsjárstofnunar. „Menn gerðu senni-
lega ráð fyrir því að einhvern tíma kæmi að uppsögnum
vegna endurskipulagningar.“
Á blaðamannafundi í fyrradag sagði Ingibjörg Sólrún
ljóst að einhver hluti starfsmanna Ratsjárstofnunar yrði
endurráðinn. Hins vegar er líklegt að ekki verði allir
endurráðnir þar sem markmiðið er
að hagræða í rekstri.
Ólafur segir að starfsmenn hafi
ekki fengið skýr svör um það hversu
margir starfsmenn verði endurráðnir.
Hann bendir þó á að Ratsjárstofnun
sé hátæknifyrirtæki með mikla sér-
þekkingu. Það liggi því í hlutarins
eðli að leitað verði til þessara starfs-
manna fyrst um framhaldið.
Fjallað var um málefni Ratsjár-
stofnunar á fundi fjárlaganefndar í gær. Gunnar Svav-
arsson, formaður fjárlaganefndar, lagði til að óskað yrði
eftir upplýsingum frá utanríkis- og fjármálaráðuneyti
um hvaða fjárheimildir væru til staðar. Sagði Gunnar
að þær yrðu væntanlega lagðar fram á næsta fundi
nefndarinnar.
magnus@bladid.net
Orkuöflun fyrir ál-
ver á Bakka hálfnuð
M Bora á fimm holur á árinu vegna jarðvarmavirkjunar í Þingeyjar-
sýslu ■ 300 störf skapast í álveri á Bakka og jafn mörg afleidd
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
BORANIRÁ ÁRINU
Boranir við Þeistareyki eru
komnar vel á veg vegna orkuöflunar
fyrir fyrirhugað álver á Bakka. „Gert
er ráð fyrir að álverið verði byggt í
tveimur áföngum. Hver áfangi þarf
um 200 megavatta orku og erum við
komnir vel á veg með að eiga orku
fyrir fyrri áfangann,“ segir Tryggvi
Finnsson, framkvæmdastjóri At-
vinnuþróunarfélags Þingeyinga.
Álverið skapar 900 störf
Tryggvi segist fullur bjartsýni á
að álverið verði að veruleika. „Það
er samningur í gildi á milli sveitar-
félagsins og Alcoa, með stuðningi
iðnaðarráðuneytisins, um að vinna
að þessu verkefni. Orkuöflun hefur
enn sem komið er gengið vel - nóg
er af jarðvarma á svæðinu og hita-
stig vatnsins gott - og á meðan ekk-
ert kemur upp á höfum við enga
ástæðu til að ætla annað en að virkj-
unin verði að veruleika.“ Tryggvi
er ekki í vafa um að fleiri fyrirtæki
hafi áhuga á að framleiða ál á Bakka,
hætti Alcoa við.
►
Bora á 5 holur við Þeistar-
eyki á þessu ári vegna fyrir-
hugaðs álvers að Bakka.
W Hver hola er 2Vi til 3 kíló-
^ metrar að dýpt og hitinn í
þeim 250° til 300°.
►
Kostnaður á árinu vegna
þessa mun nema um 1,5
milljörðum og með því verð-
ur búið að leggja 3,5 millj-
arða í verkefnið á 3 árum.
►
Landsvirkjun og Þeistareyk-
ir ehf. fjármagna borunina,
en Alcoa mun kaupa af
þeim orku ef af álverinu
verður.
Gert er ráð fyrir að 300 störf
skapist við álverið og telur Tryggvi
að 600 afleidd störf, til dæmis við
kennslu og ýmiss konar þjónustu,
skapist til viðbótar. „Við vitum að
töluvert margir heimamenn hafa
flust af svæðinu vegna skorts á at-
vinnutækifærum, sem vilja gjarnan
koma aftur ef fleiri störf skapast."
Vaxandi ferðamannasvæði
Tryggvi segir Þingeyjarsýslur
vera vaxandi ferðamannasvæði
og eitt það öflugasta á landinu í
dag. „Sem dæmi er gert ráð fyrir
að 30 þúsund ferðamenn fari í
hvalaskoðun frá Húsavík á þessu
ári. Einnig hefur Mývatn mikið að-
dráttarafl fyrir ferðamenn og eins
Ásbyrgi og þjóðgarðurinn í Jökulsár-
gljúfrum.“ Unnið hefur verið að því
að skapa heilsársstörf í tengslum
við ferðaiðnaðinn á svæðinu. „Það
vita það til dæmis allir að íslensku
jólasveinarnir búa í Dimmuborgum,
og höfum við verið að reyna að gera
okkur mat úr því.“
Tryggvi hefur ekki áhyggjur af
því að fyrirhugað álver sverti Imynd
svæðisins í huga tilvonandi ferða-
manna. „Öll orka álsversins er búin
til með jarðvarma og svæðið sem
verið er að virkja hefur verið frekar
óumdeilt sem virkjanasvæði. Svo
hefur Kröfluvirkjun í gegnum tíð-
ina laðað að sér ferðamenn, þannig
að álver og virkjun sem henni fylgir
ætti að geta farið saman við ferða-
mannaiðnað á svæðinu.“