blaðið - 30.08.2007, Page 8

blaðið - 30.08.2007, Page 8
8 FRETTIR FIMMTUDAGUR 30. AGUST 2007 blaðiö ísland er á meðal ríkja sem eiga aðild að Eftirlits- og upplýsingamiðstöð ESB vegna hamfara Vilja samevrópska hjálparsveit Risademantur Risademantur fannst nýlega í demantanámu í Suður-Afríku og á hann að vera sá stærsti sem nokkru sinni hefur fundist. Steinninn er sagður vera um helmingi stærri en Cullinan- steinninn sem fannst í sama landi 1905, en hann var 3.106 kar- öt, eða 621 gramm. Að sögn talsmanns námafyrirtækisins sem fann demantinn, var hann fluttur í öryggishólf í banka í Jóhannesarborg og verður þar uns menn róa sig niður og ákveða hvað skuli gera við hann. aí Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hyggst leggja fram tillögur í haust um að koma sérstakri hjálp- arsveit á legg, sem væri reiðubúin til að kljást við skógarelda, flóð og annars konar náttúruhamfarir í álfunni. Það sem af er ári hafa flóð valdið mikilli eyðileggingu í Bret- landi, hitabylgja herjað á íbúa í mið- og suðurhluta Evrópu og nú geisa miklir skógareldar í Grikklandi sem hafa valdið dauða tæplega sjö- tíu manna síðustu daga. Andstæðingar hugmynda ESB benda á að nær væri fyrir sam- bandið að vera sneggri til að veita fjárhagsaðstoð, í stað þess að koma sér upp sérstakri hjálparsveit. Fram- kvæmdastjórnin segir að núverandi kerfi hafi sína annmarka. Ekkert þeirra þrjátíu ríkja sem taka þátt í starfi Eftirlits- og upplýsingamið- stöðvar ESB (MIC), þar á meðal ísland, svöruðu kalli búlgarskra stjórnvalda um þyrluaðstoð vegna slökkvistarfsins í landinu fyrr í sumar, þegar miklir skógareldar brutust þar út eftir mikla þurrka. Michel Barnier, fyrrum fram- kvæmdastjóri hjá ESB og núverandi landbúnaðarráðherra Frakka, lagði fram skýrslu á síðasta ári þar sem hann benti á nauðsyn alþjóðlegrar samvinnu í álfunni þegar skógar- eldar blossa upp. Þar hvatti hann til stofnunar sérstakrar evrópskrar hjálparsveitar sem væri tilbúin að halda á vettvang með tólf klukku- stunda fyrirvara og væri með tíu flugvélar, ætlaðar til slökkvistarfs, á sínum snærum. atlii@bladid.net STUTT • Stytta Stytta af Nelson Man- dela, fyrrum forseta Suður-Afr- íku, var afhjúpuð á torginu við breska þinghúsið í Lundúnum í gær. Gordon Brown, forsætisráð- herra Breta, lýsti af því tilefni Mandela sem „merkasta og hug- aðasta leiðtoga okkar kynslóðar". • Samningaviðræður Benazir Bhutto, fyrrum forsætisráð- herra Pakistans, hefur gefið Pervez Musharraf, forseta landsins, tvo sólarhringa til að bregðast við tilboði sínu um að þau deili með sér völdum í landinu. • Skógareldar Skógareldarnir í Grikklandi héldu áfram í gær, sjötta daginn í röð. Að sögn grískra yfirvalda eru eldarnir þó færri en áður og umfang flestra þeirra hefur minnkað. Yfirvöld segjast vera að ná tökum á ástandinu. nangs f ... þeqar vindtar (nvín! .................................... r Góð með kjúklingi, svínakjöti, reyktum laxi, graflaxi, sem salatsósa og í kalt pastasalat hverskonar. (DrádcstasésúL. ... þeqar sclin skín! VOGABÆR Frábær köld með kjúklingi og lambakjöti og út á pizzuna. Góð á saltkexið með rifsberjahlaupi og sem ídýfa. Kína vantar fólk og laun hækka H Verð hækkar á Vesturlöndum ■ Auglýst stíft eftir ungu verkafólki Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Laun á kínverskum vinnumark- aði hafa farið hækkandi þar sem atvinnurekendur virðast margir hverjir eiga í vandræðum með að finna verkamenn sem eru líkam- lega í stakk búnir til að vinna þau verk sem þarf að vinna. I frétt New York Times segir að hækkun launa í Kína muni líklega skila sér í hærra verði i bandarískum verslunarmið- stöðvum, matvöruverslunum og jafnvel á bensínstöðvum. Kínversk fyrirtæki eru þegar farin að koma hækkandi framleiðslu- kostnaði yfir á neytendur erlendis. Verð á kínverskum varningi hefur farið lækkandi síðustu ár, en frá því í febrúar hefur verðið hækkað um 1,2 prósent. Hækkunin í júlímán- uði var sú mesta frá upphafi þegar verð hækkaði um 0,4 prósent frá fyrri mánuði. Styrking kínverska júansins hefur einnig haft áhrif. Skorturá vinnuafli Ekki liggja fyrir neinar tölur um meðallaun í Kína, en fyrir liggur að ekki er mark takandi á tölum kínverskra stjórnvalda. Á síðustu áratugum hafa sérfræðingar talað um að gríðarlegur fólksfjöldi Kína myndi sjá atvinnulífinu fyrir nán- ast ótakmörkuðu vinnuaíli. Þessi mikli fjöldi myndi svo valda því að laun héldust lág. Árið 2003 var því spáð að flestir hinna 150 milljóna at- vinnulausra á kínversku landsbyggð- Lág laun Þrátt fyrir að víða sé skortur á vinnuafli í Kína þá eru launin enn gríðarlega lág á vest- rænan mælikvarða. inni myndu flykkjast til borganna, en þess í stað varð vart við skort á vinnuafli við óshólma Perlufljóts í suðausturhluta landsins árið 2003 og hefur sá skortur nú breiðst út norður og suður með ströndinni. Talsmenn kínverskra yfirvalda segja að skortur á vinnuafli sé ekki vandamál. Frekar sé um að ræða skort á ungu verkafólki sem sé reiðubúið að samþykkja þau lágu kjör sem voru í boði á síðasta áratug. Verksmiðjur í borgum eins og Guangzhou auglýsa nú grimmt eftir ungu verkafólki, þrátt fyrir að atvinnuleysisskrifstofur telji góðan árangur fyrir skjólstæðinga eldri en fertuga að fá vinnu á innan við ári. Jonathan Unger, sérfræðingur í málefnum Kína við Háskólann í Canberra í Ástralíu, segir í New YorkTimes að kínverskir atvinnurek- HÆKKUN LAUNA ► Leðurfataframleiðandi í borginni Hangzhou segir að mánaðarlaun verkamanna hjá honum hafi verið um sjö þúsund krónur árið 2003. Nú þarf í það minnsta 13 þúsund króna mánaðarlaun ef halda á í starfsfólkið. ► Vinnueftirlit í Kína er ekki virkt og reglulega ber- ast fréttir af skelfilegum starfsaðstæðum kínversks verkafólks. endur ráði nú rétt rúmlega þrítugt fólk til vinnu. „Þeir telja að þeir sem eldri eru þoli ekki starfsaðstöðuna, 11 tíma vinnudag, líka um helgar, auk hins erfiða lífs í svefnskáluum í eigu fyrirtækjanna sjálfra." Kraftvélar ehf. /// Dalvegi 6-8 /// 201 Kópavogi /// Sími 535 3500 /// Fax 535 3501 /// www.kraftvelar.is y KRAFTVÉIAR Höfum til sölu KOMATSU PC27-MR

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.