blaðið - 30.08.2007, Side 10
10
FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007
blaðiö
Fyrirtæki og íbúð-
ir á Hólmsheiði
Skipulagsráð Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gærmorgun
að auglýsa tillögu að nýju deiliskipu-
lagi athafnasvæðis á Hólmsheiði.
Meginmarkmið tillögunnar er að
tryggja fjölbreytt tækifæri fyrir-
tækja til að setjast að eða stækka
í Reykjavík. Verða húshæðir frá
einni upp í sex hæðir. Ef heimildir
til uppbyggingar eru nýttar að fullu
er áætlað að á svæðinu geti rúmast
byggingar sem verða samtals allt að
700.000 fermetrar að flatarmáli.
Svæðið er staðsett norðan Suður-
landsvegar á milli Hafravatnsvegar
og hesthúsasvæðisins í Almannadal
og er heildarstærð þessa nýja at-
hafnasvæðis um 170 hektarar. Stefnt
er að því að deiliskipulagsferlinu
verði lokið í nóvember og lóðunum
úthlutað fljótlega eftir það. mbl.is
Vagnhöfða 25 112 Reykjavík sími 567 4455 fax 567 4453
' •/ - "7 -... .v- • • •
SIEMENS
Vie HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
Ný þvottavél
frá Siemens,
sem lætur
blettina hverfa.
RLAND
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Mest kvartað
undan hundum
■ Talsvert um lausagöngu hunda á höfuðborgarsvæðinu
■ Yfir hundrað lausir hundar handsamaðir árlega í Reykjavík
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Öldruð kona liggur beinbrotin
á sjúkrahúsi eftir að hafa reynt að
verja lítinn hund sinn fyrir árás
stórs hunds sem stökk inn í garð
hennar í Mosfellsbæ. Tvísýnt var
um líf litla hundsins hennar í
nokkra daga. Árni Davíðsson, starf-
andi framkvæmdastjóri Heilbrigð-
iseftirlits Mosfellsbæjar, segir að
þangað berist talsvert af kvörtunum
vegna lausagöngu hunda. Þeir sem
séu handsamaðir séu þó færri en
kvartanirnar.
Lausaganga hunda er algengasta
kvörtunin sem Heilbrigðiseftirlitinu
í Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ og
Álftanesi berst, að sögn Guðmundar
Einarssonar, framkvæmdastjóra
Heilbrigðiseftirlitsins á þessum
stöðum. Það er mat Guðmundar að
óskráðir hundar gangi oftar lausir
en skráðir.
„Það eru talsverð brögð að lausa-
göngu hunda en hún hefur þó
minnkað,“ segir Helgi Helgason,
hundaeftirlitsmaður hjá Heilbrigðis-
eftirliti Reykjavíkur. Helgi segir að
árlega séu á annað hundrað hunda
handsamaðir í Reykjavík og er þá
farið með þá í hundageymslu þaðan
sem eigendur þeirra þurfa að leysa
þá út en slíkt getur kostað yfir 20
þúsund krónur. Helgi segir kvartan-
irnar vegna lausagöngu hunda fleiri
en útköllin.
Konan í Mosfellsbænum var að
reyta arfa í garðinum sínum i síð-
ustu viku þegar hundurinn hennar
varð fyrir árás stórs hunds sem
stökk inn í garðinn. Konan datt
um bandið sem hundur hennar var
bundinn með og skall með höfuðið
í stétt. Gat kom á höfuðið og þurfti
að sauma sárið. Konan brotnaði jafn-
framt bæði á hné og ökkla.
Tvísýnt var um líf hundsins
hennar í nokkra daga en svæfa
llla bitinn Kolur litli varð fyrir árás
stórs hunds sem stökk inn í garðinn
þar sem hann var bundinn.
mijí
Myndir/Kristinn Ingvarsson
LAUSAGANGA HUNDA
►
Gjald vegna lausagöngu
hunda er mismunandi eftir
sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu eða frá
5500 krónum upp í rúmlega
20.000 krónur. Fer upphæð-
in eftir því hvort um fyrstu
lausagöngu er að ræða eða
ekki og einnig eftir því hvort
hundurinn er skráður eða
ekki.
Sé farið með hundinn á
á hundahótel bætist við gisti-
kostnaður sé hundurinn
ekki sóttur strax.
þurfti hann þrisvar sinnum þegar
gert var að sárum hans.
Dóttir öldruðu konunnar sem
beinbrotnaði, María Jónsdóttir,
sagði í viðtali við Blaðið í gær að
ekki væri sjálfgefið að hundur væri
meinlaus þótt eigandi hans teldi
það. „Það þarf að grípa til einhverra
ráða vegna lausagöngu hunda áður
en eitthvað enn alvarlegra gerist,"
Iagði hún áherslu á.
>
ir
Dagleg þrif eru leikur einn
- með Unique örtrefjamoppum og klútum *
Unique örtrefjamoppusettið byggir á tveimur mismunandi
moppugerðum.
1 stk. hvítri þurrmoppu sem er notuð til þess að sópa. Moppan
dregur í sig óhreinindi og ryk með því að mynda stöðurafmagn.
2 stk. bláum blautmoppum sem eru notaðar til þess að þvo
öll hörð gólfefni. __
örtrefjaglerklútur
örtrefjaklútur
Moppugrind með
frönskum lás
Stillanlegt skaft
Rekstrarvörur
- vinna meö þér
Réttarhálsi 2*110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Fasteignasala
undir viðskipta-
ráðuneytið
Málefni fasteignasala og lög
um fasteignakaup verða flutt
frá dómsmálaráðuneytinu í
viðskiptaráðuneytið við endur-
skoðun þeirra fyrir 1. janúar
á næsta ári. Björn Bjarnason,
dóms- og kirkjumálaráðherra,
skipaði vinnuhóp þann 31. maí
sem á meðal annars að kanna
hvort ástæða sé til að mæla áfram
með skylduaðild að Félagi fast-
eignasala og hvort markmið með
eftirlitskerfi laganna hafi náðst.
hbv
STUTT
• Fiskveiðistjórnun Þróunar-
samvinnustofnun hefur ákveðið
að styðja verkefni um fiskveiði-
stjórnun í vötnum og uppistöðu-
lónum í Asíu. Verkefnið er unnið
á vegum NACA, stærstu samtaka
fiskeldisríkja í heiminum, og er
skipulagt til þriggja ára og lýkur
um mitt ár 2010.
Þungt haldinn
eftir bílveltu
Tvítugur karlmaður liggur þungt
haldinn á Landspítalanum í
Fossvogi eftir að vörubíll valt við
Hellisheiðarvirkjun á þriðjudag-
inn. Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu festist maðurinn, sem
var einn á ferð, inni í vörubílnum
þegar hann valt. Tildrög slyssins
liggja ekki fyrir.
mbl.is
• Salerni Bæta þarf við fimm
nýjum salernum í miðborg
Reykjavíkur, að mati starfshóps
á vegum Reykjavíkurborgar
um málefni almenningssalerna
í Reykjavík. Einnig þarf að
merkja betur og kynna nokkur
velbúin salerni sem eru þegar til
staðar í miðborginni.