blaðið - 30.08.2007, Page 18
18
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007
blaöiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
<mb Fyrirtækin sem við erum að skoða eru yf-
irleitt með tekjur á blinu 5 til 50 milljónir
dollara og fjárfestingastærðin er yfirleitt
5 til 20 milljónir dollara.
Dregur úr útlánum
Það sem af er ári hefur hægt á
útlánavexti ýmissa lánafyrirtækja,
samkvæmt tölum frá Seðlabank-
anum. Tólf mánaða vöxtur útlána
þessara lánafyrirtækja var 26,4
prósent í júlí. Það er um 1,5% hæg-
ari vöxtur en i júní og tæplega 7%
hægari en í upphafi ársins. Með
ýmsum lánafyrirtækjum flokkast
þau fyrirtæki sem ekki eru innlánsstofnanir, svo sem íbúðalánasjóður,
fjárfestingarbankar og eignaleigufyrirtæki.
Á vef Greiningar Glitnis kemur fram að undanfarið hafi fjármagn á
fjármálamörkuðum verið dýrara og því líklegt að aðgengi að því versni.
Verðtryggðir innlendir langtímavextir hafa hækkað nokkuð undan-
farið og umrót á erlendum mörkuðum tengt húsnæðislánamarkaði í
Bandaríkjunum hefur orðið til þess að aðgengi að erlendu lánsfé hefur
versnað og áhættuálag á vexti hækkað töluvert. Af þessum ástæðum er
því líklegt að áfram dragi úr útlánavexti. mge
Straumur verður
viðskiptabanki
Fjármálaeftirlitið hefur veitt
Straumi-Burðarási Fjárfest-
ingarbanka hf. starfsleyfi sem
viðskiptabanka. Frá sama tíma
fellur niður starfsleyfi félagsins
sem lánafyrirtækis.
Fjármálaeftirlitið segir, að megin-
breytingin felist í því að hér eftir
hafi Straumur-Burðarás heimild
til þess að taka við innlánum
frá viðskiptavinum. Með þessari
starfsleyfisveitingu eru íslensku
viðskiptabankarnir nú orðnir
fimm. mbl
Aukið stofnfé
ÍSM
Byggðaráð Borgarbyggðar ákvað
á síðasta fundi sínum að auka
stofnfé sveitarfélagsins í Spari-
sjóði Mýrasýslu um 500 milljónir
króna. Samkvæmt lögum geta
eigendur sparisjóða eingöngu
greitt sér arð sem nemur 70 pró-
sentum af stofnfé. Nú er stofnfé
sveitarfélagsins einungis fjórar
milljónir króna og því hámark-
ast mögulegar arðgreiðslur
sveitarfélagsins við 70 prósent
af þeirri fjárhæð, óháð afkomu
sparisjóðsins.
Á síðasta ári var hagnaður Spari-
sjóðs Mýrasýslu tæplega einn
og hálfur milljarður króna og
því vill sveitarfélagið nýta sér
meiri hlutdeild í afkomunni með
þessum hætti. Páli S. Brynjars-
syni, sveitarstjóra í Borgarbyggð,
hefur verið faíið að ræða við
forráðamenn sparisjóðsins og
Fjármálaeftirlitið vegna málsins.
skessuhorn.is
Þéna margfalt á við meðaljóninn
Bilið milli ríkra og fátækra í Bandaríkjunum eykst ár frá ári, samkvæmt
könnun sem Institute for Policy Studies og United for a Fair Economy
birtu á dögunum. Þar kemur fram að framkvæmdastjóri í bandarísku
stórfyrirtæki hefur 10,8 milljónir dollara í árslaun, sem er 364 sinnum
meira en meðal starfsmaður í Bandaríkjunum þénar árlega. Þegar
fríðindi eru tekin með í reikninginn minnkar bilið nokkuð, en þá hafa
framkvæmdastjórar 270 sinnum hærri laun en starfsmaður sem ekki er í
stjórnunarstöðu.
Laun framkvæmdastjóranna blikna þó í samanburði við stjórnendur
hlutabréfa- og vogunarsjóða. Stjórnendur þessara sjóða þénuðu að með-
altali 657,5 milljónir dollara í fyrra, sem er 16 þúsundfalt meira en meðal-
starfsmaðurinn þénar og 61 sinni meira en framkvæmdastjórinn. Mikið
hefur verið rætt um starfsemi hlutabréfa- og vogunarsjóða vestanhafs
undanfarið og hefur komið til umræðu á bandaríska þinginu að hækka
skatta á afkomu stjórnenda þeirra. mge
Minni fyrirtæki
með mikla burði
M Áslaug Magnúsdóttir stofnar fjárfestingarfyrirtæki með Marvin
Traub M Fjárfesta í tískufyrirtækjum sem stefna á alþjóðamarkað
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Áslaug Magnúsdóttir hefur
stofnað nýtt fjárfestingarfyrirtæki,
TMC Capital, ásamt þeim Marvin
Traub og Mortimer Singer. Félagið
einbeitir sér að fjárfestingum á sviði
tísku og smásölu, en Traub er eng-
inn nýgræðingur í þessum bransa.
Hann var stjórnarformaður og
framkvæmdastjóri Bloomingdales í
yfir 20 ár áður en hann stofnaði ráð-
gjafarfyrirtækið Marvin Traub As-
sociates (MTA) árið 1994. Er hann
sagður einn af frumkvöðlunum
í tískuheiminum. Áslaug, sem
áður var fjárfestingastjóri Baugs í
London, er framkvæmdastjóri nýja
félagsins.
Ekki í keppni við Baug
Áslaug hóf störf hjá MTA í fyrra
þegar hún flutti til New York ásamt
eiginmanni sínum sem er banda-
rískur. Hún var ráðin til fyrirtækis-
ins með það i huga að koma á legg
fjárfestingadeild sem og var gert í
sumar undir nafninu TMC Capital.
Áslaug segir að félagið sæki fyrst og
fremst í að kaupa minni fyrirtæki
sem eru á fyrstu stigum starfsem-
innar. „Við erum að leita að minni
fyrirtækjum með merki sem hafa
burði til að verða alþjóðleg merki.
Fyrirtækin sem við erum að skoða
eru yfirleitt með tekjur á bilinu 5 til
50 milljónir dollara og fjárfestinga-
stærðin er yfirleitt 5 til 20 milljónir
dollara."
t fyrradag tilkynnti TMC um sína
fyrstu fjárfestingu þegar það keypti
22 prósenta hlut í fyrirtæki tísku-
hönnuðarins Matthew Williamson
fyrir 2 milljónir punda. Williamson
er einn efnilegasti hönnuður Bret-
lands og ætlar hann meðal annars
að nota fjárfestinguna til að opna
búðir í New York, Los Angeles og
París. Áslaug er ekki ókunnug Willi-
amson, en Baugur keypti í fyrra 26
prósenta hlut í fyrirtækinu og stjórn-
aði hún þeirri fjárfestingu. Hún vill
þó ekki meina að hún sé komin í
samkeppni við fyrrum vinnuveit-
anda sinn, heldur sé hún komin í
samstarf með Baugi. „Baugur fjár-
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR
► Áslaug er framkvæmda-
stjóri TMC Capital í New
York.
► Hún var áður fjárfestinga-
stjóri Baugs í London.
Hún hefur einnig starfað
hjá McKinsey & Company
í London og Deloitte á
íslandi.
festir yfirleitt í stærri fyrirtækjum
þannig að við erum ekki beinir
samkeppnisaðilar."
60 ára reynsla
Þótt aðaláherslan verði á fjárfest-
ingar í Bandarikjunum, beinir TMC
spjótunum að mörkuðum víðar.
Nefnir Áslaug að MTA hafi verið
með fyrirtæki frá Indlandi, Mið-
Austurlöndum og Suður-Evrópu á
sínum snærum og segir hún að þekk-
ing Traubs á tískuiðnaðinum komi
mjög til góða. „Marvin er búinn að
vera í bransanum í 60 ár og hefur
mikla þekkingu á alþjóðlegum
markaði. Hann hefur rnikla reynslu
og góð sambönd. Það er mjög mik-
ilvægt að geta veitt fyrirtækjunum
innsýn og sérfræðiþekkingu á fjar-
lægari mörkuðum ef þau ætla sér að
ná því að verða alþjóðleg."
Aðspurð segir Aslaug að hún hafi
ekki haft tækifæri til að kynnast
íslenskum merkjum nógu vel til
að meta möguleiíca þeirra á alþjóða-
vettvangi. „Ég verð að viðurkenna
að ég hef ekki eytt nógu miklum
tíma á Islandi undanfarið, en það
eru eflaust nokkur merki sem eiga
góða möguleika. Elm hefur til
dæmis náð athyglisverðum árangri
erlendis.“
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 29. ágúst 2007
Vióskipti í krónum ATH. = Athugunarlisti Félög í úrvalsvísitölu a Atorka Group hf. ▼ Bakkavör Group hf. ♦ Existahf. ▲ FLGrouphf. ▲ Glitnir banki hf. ▼ Hf. Eimskipafélag íslands ♦ lcelandair Group hf. ▼ Kaupþing banki hf. A Landsbanki íslands hf. Vlðsklpta- verð 9,30 67,00 33,20 25,90 28,05 41,30 26,75 1143,00 40,50 Hlutfallsl. Dagsetning Fjðldi breyting viösk.verös viðskipta 0,43% 29.8,200/ 3 -0,74% 29.8.2007 7 0,00% 29.8.2007 67 0,19% 29.8.2007 19 0,18% 29.8.2007 44 -202% 29.8.2007 18 0,00% 28.8.2007 -0,26% 29.8.2007 155 1,00% 29.8.2007 60 Heildar- viðskipti dagsins 50.143.663 63.922.162 514.614.402 99.158.377 779.153.509 44.947.763 3.660.942.609 469.517.939 Tilboð í lok dags: Kaup Sala 9,30 9,31 66,80 67,50 33,00 33,20 25,90 26,00 28,00 28,10 41,30 41,50 26,75 26,95 1139,00 1144,00 40,50 40,70
Mosaic Fashions hf. 17,50 ▼ Straumur-Buröarás Fjárf.b. hf. 20,30 ▼ Teymihf. 6,12 -0,25% -0,49% 17.8.2007 29.8.2007 29.8.2007 43 24 507.417.733 854.645.869 20,25 6,12 20,35 6,17
▼ össurhf. Önnur bréf á Aðallista 105,50 -0,47% 29.8.2007 1 296.772 105,50 106,00
▼ 365 hf. 2,79 -0,71% 29.8.2007 2 159.914 2,79 2,82
Actavis Group hf. - 20.7.2007 - - - -
a Alfescahf. 5,87 0,51% 29.8.2007 7 3.038.681 5,81 5,87
♦ Atlantic Petroleum P/F 1096,00 0,00% 28.8.2007 - 0 1080,00 1087,00
♦ EikBanki 688,00 0,00% 29.8.2007 1 810.326 686,00 692,00
e Flaga Group hf. 1,55 0,00% 28.8.2007 - 1,54 1,56
Foroya Bank 226,00 -2,16% 29.8.2007 8 9.312.629 226,00 231,00
lcelandic Group hf. 5,95 - 22.8.2007 - - 5,90 5,98
▼ Marelhf. 93,10 -0,53% 29.8.2007 4 2.718.448 93,10 93,30
Nýherji hf. 21,50 - 21.8.2007 - - 21,50 21,90
Tryggingamiöstööin hf. 39,80 . 29.8.2007 2 3.024.200 39,20 39,80
Vinnslustöðin hf. 8,50 - 22.8.2007 . - - 12,00
First North á Islandi
a Century Aluminium Co. 2979,00 0,78% 29.8.2007 5 44.088.000 2955,00 2996,00
HB Grandi hf. 11,00 . 18.7.2007 . - - 10,90
Hampiðjan hf. 6,50 - 20.6.2007 - - 6,60
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX í
gær voru með bréf Kaupþings, fyrir
um 3,7 milljarða króna. Næstmest
viðskipti voru með bréf Teymis,
fyrir 0,9 milljarða.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Landsbankans, eða 1,0%. Bréf
Century Aluminum hækkuðu um
0,78% og bréf Alfesca um 0,51%.
• Mesta lækkunin var á bréfum
Foroya Banka, eða 2,16%. Bréf Eim-
skipafélagsins lækkuðu um 2,02%
og bréf Bakkavarar um 0,74%.
• Úrvalsvísitalan hækkaði um
0,02% í gær og stóð í 8.173 stigum
í lok dags.
• íslenska krónan styrktist um
1,22% í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
hækkaði um 1,86% í gær. Breska
FTSE-vísitalan hækkaði um 0,5%
og þýska DAX-vísitalan um 0,1%.