blaðið - 30.08.2007, Page 28
28
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 2007
blaöið
ÍÞRÓTTIR
ithrottir@bladid.net
Hinn óþroskaði Craig Beilamy sem prýðir
framlínu West Ham og miklar vonir voru
bundnar við hefur fallið í gamla gryfju og sent
Curbishley þjálfara vel valdar kveðjur á æfingu.
Álög Eggerts
Aföllin dynja á West Ham Dyer út og Bellamy ybbar gogg
Það liggur við að litla íslenska
fótboltahjartanu blæði fyrir hönd
Eggerts Magnússonar, stjórnarfor-
manns og eins eigenda West Ham
United. Þeirra sterkustu kaup fyrir
leiktíðina á landsliðsmanninum Ki-
eron Dyer frá Newcastle eru farin í
súginn tveimur vikum síðar enda
Dyer fótbrotinn og sparkar ekki
bolta meira í bráð. Minna kemur á
óvart að annað nýtt stórt nafn hjá
West Ham, Craig Bellamy, er merki-
legt nokk með læti og vesen. Hvers á
Eggert okkar að gjalda?
Æ sér gjöf til gjalda
Tilkynningin um fótbrot Dyer er
einstaklega leiðinleg. Hann fékkst
fyrir gott verð og flestir trúa að
Dyer geti aftur náð þeim hæðum
sem á tímabili gerðu hann að lands-
liðsmanni og einhverju mesta efni
Englendinga um langa hríð. Veðj-
uðu Eggert og Curbishley þjálfari
einmitt á að hann fyndi sig á ný en
með fullfrískan Dyer í formi var
tekið bónusskref að draumi Eggerts
um að koma liði sínu sem fyrst í
fremstu röð á ný. Fleira þurfti eðli-
lega til en nú er endanlega loku fyrir
það skotið enda bekkur West Ham
ekki upp á marga fiska og enginn
fyllir í skarð Dyer svo auðveldlega.
Sjö - níu - þrettán
Annars er undarlegt hversu
óheppnir þeir eru hjá West Ham
eftir að Eggert tók við. Strax voru
keyptir leikmenn til að styrkja liðið
og voru stærstir þar Lucas Neill og
Matthew Upson sem fylla áttu upp í
slaka vörn liðsins á þeim tíma. Hvor-
ugur náði í raun að reima skóna
sína áður en þeir lentu í meiðslum
og voru lítið með það sem eftir lifði
tímabilsins í vetur. Þökk sé Carlos
Tevez náði liðið að halda sér uppi en
byrjunin nú eftir mörg og dýr kaup
bendir ekki til þess að West Ham
verði til stórræðanna í vetur eins og
kexkónginn Eggert dreymdi um.
Bellamy röflar
Hinn óþroskaði Craig Bellamy
sem prýðir framlínu West Ham
og miklar vonir voru bundnar
við hefur fallið í gamla gryfju og
sent Curbishley þjálfara vel valdar
kveðjur á æfingu. Engin tilviljun
að hann hefur sjaldan enst lengur
en eitt tímabil hjá fyrri félögum.
Virðist hann glíma við marga og
ljóta innri djöfla miðað við að hann
springur úr bræði af minnsta tilefni
og virðist ekkert læra. Annar skap-
hundur, Lee Bowyer, á einnig eftir
að springa og miðað við að sá er á
sama þroskastigi og Bellamy gerist
það fyrr en síðar.
Ein skærasta íshokkístjama heims glímir við meiðsli
Atvinnulaus og bíður síns tíma
SKEYTIN INN
Komið
hefur upp
úr kafinu
að AC Milan
hefur hug á fleiri
leikmönnum en
Ronaldinho og
kemur ekki á óvart að hinn 33
ára gamli Fabio Cannavaro sé í
sigti Ancelotti og félaga. Smell-
passar hann inn í aldraðan hóp
Milan. Stóðu kaup Real Madrid
á Cannavaro á síðustu leiktíð
fyllilega undir væntingum og
karl á eitt til tvö góð ár effir enn.
Kurr er í
efnilegustu
leikmönn-
um Real Madrid.
Yngri sveitir
liðsins fram-
leiða reglulega
bráðefnilega leikmenn sem á
endanum fara í burtu, enda eru
möguleikar litlir að komast í
stjörnum prýtt aðalliðið. Hafa
þeir þannig misst af góðum
bitum f hundskjaft gegnum
tíðina og er Samuel Eto '0
besta dæmið. Nú hefur Schuster
þjálfari ákveðið að fjórir þeir efni-
legustu, Granero, Balboa, Red
og Adrian, sem var hálfþartinn
búið að lofa spileríi í vetur, verði
lánaðir út og eru þeir ekki sáttir.
Dagar Jens
Lehmann
sem
aðalmarkvarðar
Arsenal eru taldir.
Er óhætt að saka
Þjóðverjann um
mörk þau er liðið hefur fengið á
sig í deildinni hingað til og hafa
þau verið í ódýrari kantinum.
Varð kappinn brjálaður yfir því
að vera ekki valinn f liðið gegn
Manchester City þrátt fyrir að
vera í toppformi að eigin mati
og talið er líklegt að Wenger láti
hann fara fyrir lok mánaðarins.
Luis Figo
þakkar
sínum sæla
fyrir að vera
utan vallar vegna
meiðsla þegar lið
hans Inter Milan
mætir Barcelona á Nou Camp í
dag í vináttuleik þessara tveggja
risa. Figo, sem lengi var stjarna
hjá Barca, hefur ekki verið vel-
kominn þangað síðan hann fór til
Real Madrid og áhorfendum hitn-
ar mikið í hamsi spili hann með.
Er það afar ólíklegt og segist Figo
sjálfur nokkuð sáttur með það.
Svíinn Peter Forsberg sem fyrir
margt löngu festi nafn sitt kyrfilega
á spjöld íshokkísögunnar er atvinnu-
laus og bíður síns tíma. Öll 30 félög
NHL-deildarinnar vestanhafs bíða
slefandi átekta.
Biðin kemur ekki til af góðu.
Forsberg er samansaumaður á alla
kanta eftir tólf tímabil i hörðustu ís-
hokkídeild heims. Var gerð aðgerð á
báðum hælum hans f vor skömmu
eftir að samningur hans við Nas-
hville Predators rann út. Forsberg
er sérlundaður nokkuð og vantar
svo sem engan pening og vill því
sjá til með viðræður við önnur félög
meðan sár hans gróa. Hvert sem
hann fer verður liðið sem fyrir val-
inu verður sjálfkrafa líklegt í úrslita-
keppni NHL næsta haust.
W" Mr } ,/
ME- * é. JW
HLEÐSLUR
www.meistari.is
Félag Skrúðgarðyrkiumeistara
Birgir Leifur á Johnny Walker í Skotlandi
Verður að spýta vel í lófa
Atvinnukylfingurinn Birgir
Leifur Hafþórsson þarf að taka á
honum stóra sínum á Johnny Wal-
ker-mótinu sem hefst í Skotlandi
í dag en fá mót eru eftir og Birgir
langt frá því að vera búinn að
tryggja sér þátttökurétt áfram á Evr-
óputúrnum eins og stefnt var að.
Um tíu mót alls eru eftir í yfir-
standandi keppnisröð en ólíklegt er
að Birgir fái að keppa á þeim öllum.
Árangur hans undanfarið hefur
valdið honum vonbrigðum og hann
þarf að enda ofarlega nú því pressan
mun segja til sín þegar mótum
fækkar frekar. Aðeins tvær Ieiðir
eru til að fá endurnýjun; vinna eitt
mót eða verða ofar en 120. sæti alls
á peningalistanum. Eins og sakir
standa er Birgir númer 187.
Koma svo Frábært væri ef Birgir
Leifur tæki sig til og ynni eins og eitt
mót í Evrópumótaröðínni. *r
Áfram Afríka
Það er ekkert nýtt við að sjá
nöfn Bandaríkjanna eða
Rússlands í efstu sætum í
frjálsíþróttakeppnum en eftir
þrjá daga á heimsmeistara-
mótinu í frjálsum íþróttum í
Osaka í Japan er þriðja þjóðin
jöfn þeim fyrrnefndu hvað
gullverðlaun varðar. Kenía er
með þrenn gullverðlaun eins
og Bandaríkin og Rússland
og Eþíópía kemur næst með
tvenn gullverðlaun. Afríku-
þjóðirnar ætla ekkert að gefa
eftir í langhlaupsgreinum
heldur þvert á móti bæta í ef
eitthvað er.
Steinunn Sigurgeirsdóttir
íshokkíleikmaður vekur
athygli í Malmö í Svíþjóð en
þar leikur hún listir sínar
í íshokkíi með nýstofnuðu
félagi þar í borg. Steinunn er
reyndar ekki að gera neinar
rósir ennþá, enda leiktíma-
bilið ekki hafið, heldur er
hún tíu árum eldri en aðrar
stúlkur í liðinu. Steinunn er
samt aðeins 26 ára.
Áfram ísland
Eiður Smári Guðjohnsen
verður vart með Islandi
í tveimur erfiðum lands-
leikjum gegn Spáni og Norður-
írum hér í næsta mánuði
vegna meiðsla. Möguleikar
landans í riðlinum eru engir
og betra tækifæri til að blása
til nýrrar sóknar með breyttu
iði og skipulagi gegn topp-
>jóðum gefst ekki aftur í bráð.
það minnsta höfum við engu
að tapa.
Áfram meö
smjörið
Standi eitthvert eitt þrætu-
epli eftir hjá kylfingum hjá
stærstu klúbbum landsins
eftir sumarið er það vafalítið
frekari fjölgun meðlima hjá
yfirfullum klúbbunum. Með-
algolfhringur sem löngum
var hægt að klára á rúmum
fjórum klukkustundum tekur
nú milli fimm og sex tíma að
jafnaði.