blaðið - 31.08.2007, Page 10

blaðið - 31.08.2007, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 blaöið blaði Útgáfufélag: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Að rífa hjartað úr miðbænum Örfá hús eru eftir í Reykjavík, sem voru reist á nítjándu öld. Þau eru innan við 170. Enn færri eru eftir, sem eiga sér jafnmerkilega sögu og Austurstræti 22, sem hefur hýst margar merkar stofnanir og atburði. Nú er byrjað að rífa brunarústir hússins og allt í óvissu um ffamtíð þess. Eig- endur lóðarinnar vilja víst fá að byggja eitthvert stórhýsi, í samræmi við tuttugu ára gamalt skipulag. Það sama er uppi á teningnum neðst á Laugaveginum; þar á að rífa tvö nítjándualdarhús, sem eiga sér merkilega sögu, til að rýma fyrir hótel- kumbalda úr steypu og gleri. Torfusamtökin hafa lagt fram raunhæfar og smekklegar hugmyndir um hvernig mætti endurbyggja þessi hús, stækka og byggja aftan við þau, án þess að fórna svipmóti elztu verzlunargötu Reykjavíkur. Á þessar hugmyndir er ekki hlustað. Raunar eru gömul hús uppi um allan Laugaveg í hættu. 1 skipulaginu, sem samþykkt var í tíð Reykjavíkurlistans, var gengið alltof langt í að heimila niðurrif húsa við götuna og byggingu annarra miklu stærri til að koma til móts við óskir fjárfesta, sem vilja breyta Miðbænum í einhvers konar Kringlu eða Smáralind. Og ef dæma má af ýmsum nýbyggingum, sem risið hafa í miðbænum síðustu ár, er lítið gefandi fyrir yfirlýsingar um að „halda eigi yfirbragði byggðarinnar" og fleiri orðaleppa, sem eru not- aðir þegar þarf að réttlæta það að rífa gömlu Reykjavík. Hafa Reykvíkingar ekki gert nógu mörg mistök í þessum efnum og komið sér upp nægilegri uppsafnaðri eftirsjá eftir gömlum húsum, sem aldrei hefði átt að rífa? Fjalakötturinn við Aðalstræti var rifinn til þess eins að byggja seinna eftirlíkingu af honum aðeins sunnar í götunni. Amt- mannshúsið við Þingholtsstræti var rifið til að rýma til fyrir götu, sem aldrei var lögð. Og svo framvegis. í borgum úti um allan heim hafa menn rifið niður það, sem þeim fannst gamalt og lúið, til að greiða fýrir „uppbyggingu“ af því tagi, sem kaupsýslumenn vilja nú endilega við Laugaveg. Og séð eftir öllu saman nokkrum árum eða áratugum síðar. Við eigum ekki mikið af gömlum timburhúsum. Þau sem við eigum eru mikilvægur hluti af menningararfi okkar og á að sýna þeim tilhlýðilega virðingu. Gömlu húsin eru hjartað í miðbænum - án þeirra er hann ekki miðbærinn, sem Reykvíkingar þekkja og láta sér þykja vænt um. Getur Sjálfstæðisflokkurinn í borgarstjórn ekki reynt að standa undir naftii sem íhalds- og varðveizluflokkur og slegið skjaldborg um byggingar- arfleifð Reykjavíkur? Hver annar getur stoppað þetta niðurrifsæði? Ólafur Þ. Stephensen SÆKTU LEIÐARANN A WWW.MBL.IS/PODCAST Auglýsingastjón: Stánn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á augiýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladKÍnet, frettir@bladidnet auglysingar@bladidx»et Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins SMÁAUGLY SING AR A blaðiðn SMAAUGLYS1NGAR@BUDID.NET Er dýrmætara að passa peninga en fólk? Margir voru slegnir af fréttavið- tali sem birtist á dögunum þar sem rætt var við konu sem unnið hafði á leikskóla í níu ár og var komin í efsta launaþrep. Hún ákvað hins vegar að hætta á leikskólanum og fara að vinna sem bankagjaldkeri enda byrj- unarlaunin þar hærri en efsta launa- þrep ófaglærðs leikskólastarfs- manns. Hún furðaði sig á því að hér á fslandi væri fólki borgað meira fýrir að passa peninga en fólk. Síðan þetta viðtal birtist hef ég farið víða þar sem fólk hefur velt vöngum yfir Íiessari einföldu spurningu: Finnst slendingum dýrmætara að passa peninga en fólk? Það merkilega er að þessu segist enginn sammála en eigi að síður virðist þetta staðan. Það eru gömul sannindi og ný að ekki geta allir tekið jafnan þátt í samfélaginu. Börn, sjúkir og aldr- aðir þurfa iðulega á aðhlynningu og umönnun að halda. Fyrr á öldum var þetta mál hvers og eins, aldraðir fóru út á guð og gaddinn ef þeir áttu ekki börn sem gátu um þá annast. Aðhlynning aldraðra og barna lenti að megninu til á konum sem unnu heima og tóku þar af leiðandi ekki sama þátt í atvinnulífi og karlmenn. Þökk sé baráttunni fyrir öflugu vel- ferðarkerfi breyttist þetta. Samfélag- ið tók á sig ábyrgð á þeim sem þurfa á umönnun og aðhlynningu að halda, börn fóru að fá menntun allt niður í leikskóla og konur fóru að geta tekið sama þátt í atvinnulífinu og karlmenn. Velferðarkerfið er lík- lega ein merkasta uppfinning 20. aldar og um það hefur hingað til ríkt sátt. Flestum þykir sjálfsagt að sam- félagið sé samábyrgt fyrir velferð okkar allra. Eða hvað? Á undanförnum tveimur áratug- um hefur orðið mikil frjálshyggju- bylgja á Vesturlöndum. Þessi bylgja hófst líklega með stjórnartíð Ro- nalds Reagans og Margrétar Thatc- her. Margir vonuðust til þess að hún rénaði þegar þessir tveir áhrifamiklu þjóðarleiðtogar hurfu fr á völdum en sú varð ekki raunin. Frjálshyggjan hefur náð að sá fræjum sínum viða með þeim afleiðingum að rætur Katrín Jakobsdóttir þessa trausta velferðarkerfis hafa á undanförnum árum veikst. Þessi veiking velferðarkerfisins hefur m.a. lýst sér í því að ríkið hef- ur falið æ fleiri verkefhi í hendur einkaaðilum með þeim sívinsælu skýringum að einkarekstur sé ávallt hagkvæmari en opinber rekstur. Því miður er það ekki endilega svo. Al- mannaþjónusta lýtur nefnilega ekki sömu lögmálum og önnur þjónusta. Heilbrigðis- eða menntastofnanir á ekki að reka með arðsemiskröfum heldur á að setja viðmið um hvaða þjónustu við viljum að þær veiti og áætla fé til þeirra út frá því. Þess vegna er erfitt að ræða um fram- úrkeyrslu opinberra stofhana án þess að hafa um leið í huga hvaða þjónustu þær veita. Við ædumst til þess að sjúkrahús- ið taki á móti Siggu frænku þegar hún fær hjartaáfall. Við ætlumst til þess að öll börn fái menntun við hæfi. Sama má segja um heita og kalda vatnið; þess eiga allir að njóta. Að því leyti lýtur almannaþjónusta öðrum lögmálum en hefðbundinn samkeppnisrekstur. Rannsóknir sem gerðar hafa verið víða í ná- grannalöndum okkar sýna að einka- rekstur almannaþjónustunnar hefur ekki endilega skilað aukinni hag- kvæmni né betri þjónustu fyrir neytendur. Full ástæða er til að kanna einnig þessi mál hér á landi. Hins vegar er ljóst að almanna- þjónustuna má bæta og það er auð- vitað hápólitískt mál. Það er hápóli- tískt mál að fólk fáist ekki til starfa á leikskólum sökum bágra kjara, að börn fái ekki notið bestu mögulega umönnunar og menntunar, að gamalt fólk sé enn á biðlistum eftir hjúkrunarrýmum í löngum röðum. Þar liggur ábyrgðin hjá stjómvöld- um og því er eðlilegt að spurt sé; Telja íslensk stjórnvöld að það sé dýrmætara að passa peninga en fólk? Því hluti af því að efla al- mannaþjónustuna er að bæta kjör þeirra sem við hana starfa og efla þannig stoðir velferðarkerfisins. Höfundur er varaformaöur vinstri grænna. KLIPPT OG SKORIÐ Svo virðist sem æ fleiri séu farnir að hall- ast á þá skoðun að Islendingar eigi að fleygja krónunni fyrir evru. Árni Páll Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði í hádegisfréttum RÚV í gær að íslenska krónan væri ekki sjálfstæður gjaldmiðill og þjónaði ekki íslenskum hagsmunum. Gengi hennar ráðist af þáttum sem Seðlabankinn hafi litla sem enga stjórn á. Verður forvitnilegt að vita hvort þessi umræða um gjaldmiðilinn kemst inn á Al- þingi þegar það hefst í byrjun október. Astarvikan í Bolungarvík vekur jafn- an athygli en í þeirri viku gerast heima- menn ástleitnari en á öðrum dögum. Samkvæmt vefnum bb.is hefur þetta uppá- tæki nú haft áhrif á gróður og grænmeti, þ.e. jarðvegurinn er orðinn svo frjósamur að íbúi í bænum sem var að taka upp kartöflur fékk óvæntan glaðning, kartöflu sem var hjartalaga. Sú ætti að minna á ástina og kær- leikann, segir á bb.is. Nú er mál manna að hefja eigi ræktun á hjartalaga kartöflum til að setja á markað fyrir næstu Ástarviku. T T'Rbirtií \ / vikunni V niður- stöður könnunar um hversu lengi félagsmenn væru að komast til og frá vinnu. Meðaltíminn var 36 mínútur eða 18 mínútur hvor leið. VR Capacent gerði sams konar könnun meðal landsmanna í byrjun mánaðarins og kom þar í Ijós að meðaltími væri 11,6 mínútur. I þeirri könnun kom fram að 59% landsmanna fara einir í bíl í vinnuna, 19% eru í samfloti með öðrum en aðeins 2% tóku strætó. elin@bladid.net

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.