blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 31.08.2007, Blaðsíða 18
26 FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 blaöið ÍÞRÓTTIR ithrottir@bladid.net 160 keppendur úr tólf golfklúbbum hvaðanæva af landinu hófu leik í gærmorgun í veðri sem var ekki upp á ýkja marga fiska en hafði lítil áhrif á vana menn og konur sem þátt tóku og flestu eru vön. SKEYTIN INN David Beckham áekki sjö dagana sæla. Loks þegar hann var farinn að æfa og spila á ný eftir meiðsli tognaði hann á hné og þarf tíma til að ná sér. Sem kemur sér afar illa enda hefur L A Galaxy leikið dapurlega og gengi liðsins ekki verið verra í háa herrans tíð. Beckham græðir samt á tá og fingri því fleiri koma á leiki liðsins og hann fær hlutdeild af þeim tekjum. Hjarta Nico- lasAnelka liggur á sama stað og hjá Guðna Bergssyni; hjá Bolton Wander- ers. Hefur Frakkinn framlengt samning sinn við liðið til 2011 og lýkur þar með vangaveltum um hvert annað hann færi fýrir lokun leikmannagluggans á laugardaginn. Hefur hann því sem næst verið orðaður við öll félög í Englandi og víðar en telur sig best eiga heima með Heiðari Helgusyni og félögum. Það vantar ekki stóra hugsun hjá West Ham. Félagið gerði tilboð í Adriano hjá Inter Milan um leið og ljóst varð að þar er kappinn ekki velkominn lengur. Því var neitað um leið og Adriano sjálfur hló dátt. Gott og blessað að reyna en kannski er örlítið mikilmennskubrjálæði í gangi hjá Eggerti Magnússyni enda kemur West Ham seint upp í huga sem eitt af stórliðum álfunn- ar. Nema í huga Eggerts sjálfs. Dregið í Meistaradeild Hefnd Roma Hlátur og gnístran tanna Aldurinn deyfir ekki kappsemi Öldungar í sveitakeppni Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Rigningarúði og nettur haust- hrollur setti engan af þeim 160 kepp- endum í sveitakeppni öldunga út af laginu þegar keppni hófst á Grafar- holtsvelli í gær en keppnin er jafnan einn af hápunktum sumarsins í öld- ungaflokki en golfið er sem kunn- ugt er ein af fáum íþróttum þar sem aldur skiptir nánast engu máli og hver sem getur lyft kylfu frá grasi getur tekið þátt. 160 keppendur úr tólf golf- klúbbum hvaðanæva af landinu hófu leik í gærmorgun í veðri sem var ekki upp á ýkja marga fiska en hafði lítil áhrif á vana menn og konur sem þátt tóku og flestu eru vön. Kulda og trekk er jú yfirleitt alltaf hægt að klæða af sér og þó að þátttakendur flestir hefðu vonast eftir sól og sumaryl, kjöraðstæðum fyrir golf, þá var ekki áberandi vart við neikvæðni út í veðurguð- ina. Það gæti reyndar breyst því keppni verður framhaldið í dag og á morgun og rigning er áfram í spám. Aðstæður eru að öðru leyti frábærar og Grafarholtsvöllur í fínu ásigkomulagi. LEIKENDUR Karlaflokkur Golfklúbbur Garðabæjar og Kópavogs Golfklúbbur Reykjavíkur Golfklúbbur Oddfellowa Golfklúbbur Akureyrar Golfklúbbur Kellls Golfklúbbur Suðurnesja Golfklúbburinn Kjölur Golfklúbbur Selfoss Golfklúbbur Vestmannaeyja Golfklúbburinn Leynir Golfklúbbur Sandgerðis Nesklúbburinn Kvennaflokkur Golfklúbbur Reykjavíkur Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Golfklúbburinn Keilir Golfklúbbur Oddfellowa Golfklúbbur Akureyrar Golfklúbbur Suðurnesja Golfklúbburinn Kjölur Nesklúbburinn Spáð og spekúlerað Þrátt fyrir að veðrið hefði getað verið betra fyrsta mótsdaginn í sveitakeppni öldunga var ekki annað að sjá en fólk skemmti sér hið besta. Töluverður rígur er milli sveita en það er meira í orði en á borði og menn skilja sáttir og spenntir fyrir næsta móti í leikslok. Leikið verður áfram í dag og mótinu lýkur á morgun Blaðið/Frikki Rómverjum gefst strax tæki- færi til að hefna fyrir einhverja mestu niðurlægingu liðs í Meistaradeild Evrópu þegar það mætir Manchester United, en liðin drógust saman í F-riðil í gær. Rómverjar fengu spark í rassinn í vetur þegar þeir töp- uðu 7-1 á Old Trafford. Aðrar skemmtilegar viður- eignir verða milli Barcelona og Lyon, Arsenal og Sevilla og Chelsea mætir Valenciu á nýjan leik. Þá gæti Schalke þvælst fyrir þeim báðum í B-riðli. Erfiðustu mótherjar meistar- anna úr Milan verða Celtic og Benfica. Sendibílar til leigu Vandamálið hjá Harry Guðjohnsen á óskalistanum Það segir kannski sitt um stöðu Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Barcel- ona að um miðjan dag í gær hafði enginn af stóru spænsku fjölmiðl- unum fjallað nokkurn skapaðan hlut um þá staðreynd að Barcelona tók tilboði frá Portsmouth í íslenska landsliðsfyrirliðann. Harry Redknapp þykist geta betur en Eggert Magnússon og fengið Eið til að samþykkja endur- komu í ensku úrvalsdeildina undir merkjum Portsmouth. Yrði það talsvert skref niður á við fyrir Eið sem er byrjaður að habla spænsku eins og innfæddur og kann vel við að dúlla sér á veikindadögum í Kata- lóniu úti á svölum með sólarbros á vör. Engu sliku er fyrir að fara í Port- smouth sem er einna helst þekkt fyrir... ekki neitt. Alonso milli tanna Keppnislið Toyota í Formúlu 1 vill gjarnan fá Fernando Al- onso til liðs við sig fyrir næstu vertíð í Formúlunni en ýmis minna þekkt lið horfa með áhuga á það drama sem fram fer í herbúðum McLaren. Þar er heimsmeistarinn afar óham- ingjusamur með frábært gengi liðsfélaga síns Lewis Hamilton og má heita klárt að hann fari annað um leið og færi gefst. Hvort lið Toyota er nógu stórt fyrir hann og hans egó er svo allt önnur spurning. Hátt uppi Eyjarskeggjar eru að gera fína hluti á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Osaka í Japan og tveir lítt þekktir íþróttamenn tryggðu smálöndum sínum fyrstu verð- launapeninga nokkru sinni í hástökki. Donald Thomas náði gullinu fyrir hönd Ba- hamaeyja og Kuriakos Iannou bronsi fyrir Kýpur. Eru þetta fyrstu verðlaun beggja manna og þjóða á heimsmeistaramóti. Komið að stelpunum Frábær sigur karlalandsliðs íslands í körfubolta á Georg- íumönnum verður í minnum hafður enda gáfust íslensku leikmennirnir aldrei upp og uppskáru eftir því. Á morgun mætir kvennalandsliðið Hollandi í enn mikilvægari leik í Evrópukeppni landsliða. Úrslit strákanna gefa þeim vonandi byr undir báða vængi auk þess sem frítt er inn á leik- inn sem fram fer að Ásvöllum í Hafnarfirði. Niðursveifla Kyifingurinn Birgir Leifur Hafþórsson stóð sig bærilega á fyrsta degi Johnnie Walker- mótsins í Skotlandi en náði ekki að gera alvöru rósir. Spil- aði hann á pari sem er ekkert hræðilegt en betur má ef duga skal því tími hans til að end- urnýja keppnisrétt sinn er að renna sitt skeið.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.