blaðið


blaðið - 31.08.2007, Qupperneq 17

blaðið - 31.08.2007, Qupperneq 17
blaöið FÖSTUDAGUR 31. ÁGÚST 2007 25 LÍFSSTÍLLBÍLAR bilar@bladid.net 7Af hverju? Jú, til að kreista 170 hest- öfl út úr 1,4 lítra bensínvél. Skoðaðu þessar tölur aftur; ég efast um að þú sjáir þær á hverjum degi. ÚRBÍLSKÚRNUM • Árekstrarprófanir Í vikunni til- kynnti Euro NCAP niðurstöður úr árekstrarprófunum fjögurra bíla. Hinn nýi Fiat 500 hlaut 5 stjörnur í öryggi fullorðinna, 3 fyrir börn og 2 fyrir vegfarendur. Renault Twingo hlaut 4 fyrir fullorðna og 2 fyrir vegfarendur en ekki tókst að koma fyrir barna- stól í bílnum með framsætið í stöðu fyrir fullorðna. Kia Cee’d fékk 5 stjörnur fyrir fullorðna, 4 fyrir börn og 2 fyrir vegfarendur á meðan Peugeot 308 fékk 3 stjörnur fyrir vegfarendur, 5 fyrir fullorðna og 4 fyrir börn og skoraði því hæst í þessari umferð. • Enginn útblástur Fiat hefur ákveðið að hefja takmarkaða framleiðslu á Palio Elétrico, litlum rafmagnsbíl sem hefur hámarks- hraða upp á 105 km/klst. Bíllinn vegur 600 kg. • GolfVari- ant Um síð- ustu helgi frumsýndi Heklanýjan Volkswagen Golf Variant, fjölskyldubíl sem er íslendingum að góðu kunnur. Bíllinn er nú rúmbetri og meira í hann lagt en áður. í bílnum er meðal annars kæling í hanska- hólfi, hitaeinangrandi gler og ISOFIX-barnabílstólafestingar. • Ford KKf varlíkaglatt ___ á hjalla um -wTratJt síðustu helgi en þá var frumsýndur nýr og end- urhannaður Ford Escape. Bíllinn hefur fengið allsherjar andhtslyft- ingu, jafnt að innan sem utan, og hefur fengið góðar viðtökur, bæði hjá kaupendum og fagtímaritum. • Jeppaferðir B&L Nú styttist í árlegar jeppaferðir Hyundai- og Land Rover-eigenda. Þeir fyrr- nefndu fara í sína ferð laugardag- inn 8. september en hinir síðari viku síðar, eða 15. september. Eigendur þessara bíla geta skráð sig á www.bl.is. • Umhverfis- vænni Ford Til að mæta sívaxandi eftirspurn eftir bílum sem losa lítinn koltvísýring hefur Ford þróað tækni sem kölluð er ECOnetic. Fyrsti bíllinn með þeirri tækni verður Ford Focus með 1,6 lítra dísilvél sleppir 115 grömmum af koltvísýringi á hvern kílómetra. Það mun vera það allra minnsta í þessum flokki bifreiða. • Stiku- ferð 4x4 Stikuferð umhverf- isnefndar Ferðaklúbbs-fc ins 4x4 verður farin nú um helgina. í kvöld verður ekið í Jökulheima þar sem verður gist í skálum Jöklarannsóknafélagsins. Skráning fyrir félaga er á www. f4X4.is. (<*&: .. f> j flihi (rk Æ Hg Leynir á sér Vélarstærð Golf GT gefur litlar vísbend- 5 "ÍwtB ingar um atliö. BlaöiO/AtniSæberg ■ Við fyrstu sýn er Golf GT eins og hver annar Golf. Heildarútlitið er ekkert óaðlaðandi en það fær hjartað heldur ekkert til að slá hraðar. Við verðum því að rýna í smáatriðin til að finna gleðina. 17” felgur fá aðra augabrúnina til að lyftast, svart grillið sér um hina. Fram- ljósin á Golf hafa breyst lítillega, eins og annað, á undanförnum árum og er skipt upp í fjórar linsur með svartri umgjörð. Loksins flott framljós á Golf. Hefðbundinn að mestu Hér gildir það sama, hefðbundinn Golf að viðbættum smáatriðum til að gefa GT-týpunni sérkenni, sem felast reyndar aðallega í GT-merkjum hér og þar og sérframleiddu sætaáklæði. Bíllinn er annars ágætlega búinn, allt frá dekktum rúðum aftur í til loftkæ- lingar, topplúgu og aksturstölvu sem stjórnað er, líkt og útvarpinu, með að- gerðahnöppum í stýrishjólinu. Loks er það svo þrýstingsmælirinn í mælaborðinu sem gefur bílnum sér- stöðu. Það erþrælmagnað að sjáhann kippast við þegar maður stígur á bens- íngjöfina en við skulum geyma það aðeins að útskýraþað nánar. Sætin í bílnum eru sæmilega þægi- leg, þó að mjóbaksstuðning vanti reyndar, og hægt er að fá sportsæti sem aukabúnað. Ótrúlegartölur Þrýstingsmælirinn í mælaborð- inu á GT gefur vísbendingu um að utan á vélinni starfi einhverskonar forþjappa. Það er þó ekki nema hálf sagan, bókstaflega, því þær eru tvær. Hefðbundin forþjappa sem snýst með útblæstrinum og önnur vélræn sem snýst með vélinni sjálfri. Af hverju? Jú, til að kreista 170 hestöfl út úr 1,4 lítra bensínvél. Skoðaðu þessar tölur aftur; ég efast um að þú sjáir þær á hverjum degi. Reynslubíllinn var búinn DSG (direct shift gearbox) sjálfskiptingu sem ég get ekki lýst öðruvísi en; Snilld, snilld, snilld og snilld. Einu sinni enn: Snilld. Hik á milli gíra er nánast ekk- ert og sex þrep tryggja að það er alltaf hagstæður snúningur á mótornum. I venjulegum akstri er Golf GT þægi- legur, stilltur og hlýðinn. Eyðslan er mjög hagstæð og á jöfnum 90-100 km hraða sýndi eyðslumælirinn 5,5 lítra að meðaltali. Sé maður í þeim hugleið- ingum er hins vegar sáralítið mál að láta hann rífa upp malbikið. Litli bróðir eða jafnoki? Með DSG-skiptingunni er GT-bíll- inn 7,9 sekúndur í hundrað eða 0,7 sek- úndum lengur en GTI sem er með 200 hestafla, 2 lítra vél. Og af hverju skyldi ég vera að bera þá saman? Jú, GT-bíll- inn er ekki nema 100.000 krónum ódýrari. Fyrir utan 30 hestöfl og 40 Nm er það helst karakterinn í akstri sem skilur bílana að. GT-bíllinn þrýstir manni aðeins minna í sætið á botn- gjöf en þegar komið er á kolólöglega siglingu finnur maður fyrst alvöru mun. Þá finnst manni GT-bíllinn vera að pína sig og maður vorkennir honum pínulítið. A sama hraða bíður GTI-bíllinn bara eftir að maður geri eitthvað. Sá síðarnefndi er líka með sportfjöðrun, ólíkt þeim fyrri. Á móti kemur að GT-bíllinn virðist ráða betur við aflið þegar kemur að stýr- ingu. GTI er eilítið „tork-stýrður“ en nánast ekkert ber á því í GT sem full- komnar svo dulargervi sitt með því að vera ekki sama hraðaþyrsta villidýrið og GTI í akstri. Nema maður biðji hann um það. Niðurstaða Eins og aðrir Golf-bílar er GT rúm- góður, léttur, þægilegur og þéttur í akstri. Verandi svo stutt frá GTI í verði, en samt svo líkur grunntýpunni, getur maður ekki annað en spurt sig hvaða hlutverk honum sé ætlað í lín- unni. í mínum augum er það fyrst og fremst hlutfall vélarstærðar og afls sem gefur þessum bíl sérstöðu, en hann er líka eilítið „siðprúðari" í akstri en stóri bróðirinn sem er á sterum. Væntanlegir kaupendur eru því líklega annars vegar þeir sem vilja ekki GTI-„stimpilinn“ og hins vegar þeir sem kunna einfaldlega betur við þá aksturstilfinningu sem GT-bíllinn kallar fram. SAMANBURÐUR ► Golf (bsk.): 1,6 1,102 hö, 140 Nm, 11 sek í 100,1.998.000 kr. ► Golf GT (DSG): 1,41,170 hö, 240, Nm, 7,9 sek í 100, 3.290.000 kr. ► Golf GTI (DSG): 2,0 I, 200 hö, 80 Nm, 7,2 sek í 100, 3.390.000 kr. Golf GTI Edition 30 (DSG): 2,0 I, 230 hö, 300 Nm, 6,6 sek í 100, 3.990.000 kr. BMW í málaferlum Kínverjar stæla X5 Ástarrennireið Bílatímarit í Bandaríkjunum gerði nýlega könnun á því hvaða bíl fólk teldi vera tákn hippatíma- bilsins. Gamla góða rúgbrauðið frá Volkswagen var oftast nefnt á nafn og voru margar myndir sendar ritstjórn blaðsins sem þakk- aði sendingarnar en tók fram að sögur af ástaratlotum í bílunum hefðu verið óþarfar. Bíllinn sem var valinn flottasta ástarrcnni- reiðin er enn í notkun hjá uppruna- legum eigendum og segjast þau fara reglulega í útilegur á bílnum. Meira viljum við ekki vita. í höfuðstöðvum BMW nötrar nú allt og skelfur vegna kínverskrar eftirlíkingar af fíaggskipinu X5. Eftirlíkingin ber hið virðulega ef ekki uppalega nafn CEO og mun að öllum líkindum verða í boði fyrir þýska kaupendur eftir 4-6 vikur. BMW hefur höfðað mál á hendur Kínverjunum til að reyna að fá lög- bann á eftirlíkinguna en bílasalar telja að það sé til lítils annars fallið en að auka eftirspurn eftir kínverska bílnum. Þar sem bílarnir eiga vænt- anlega fátt annað sameiginlegt en útlitið má spyrja sig hvort áhyggjur BMW séu ekki óþarfar. Það er í það minnsta hæpið að þeir sem hafa efni á frumgerðinni láti freistast af eftirlíkingunni, þó þeir hafi kannski heldur ekki sér- stakan áhuga á að eyða tíu millj- ónurn í þýskan bíl sem lítur út eins og ódýr kínverskur bíll. ÚR BÍLSKÚRNUM • Umferðarfréttir Á heimasíðu Umferðarstofu, www.us.is, er tengill á umferðarfréttir sem gott getur verið að fylgjast með. Þar birtast tilkynningar um vega- og gatnagerðarframkvæmdir, ástand vega og annað rask sem getur haft áhrif á umferðina. • Svartur Maserati Á bílasýning- unni í Frankfurt í september ætlar Maserati að svipta hulunni af Qu- attroporte Sport GT S (dágott nafn það!). Þó að bíllinn sé byggður á Quattroporte Sport GT felur „S“-ið í sér nokkrar breytingar. Til dæmis verður bíllinn aðeins í boði svartur, með svörtu grilli, gluggum og púst- röri. Bíllinn hefur verið lækkaður um 10 mm að framan og 25 mm að aftan og kemur nú með Brembo ál- og járnbremsum. • Loksins loksins! Þaðer ekki oft sem við í bílskúrnum sjáum ameríska bQa sem heilla okkur. Dodge hefur þó fangað athygli okkar með nýjum fjölskyldusportara sem heitir Journey. Hann verður í boði 5 eða 7 manna, er mitt á milli þess að vera fjölnotabíll og sportjeppi og fer í sölu í Banda- ríkjunum snemma á næsta ári. • 307 innkallaðurPeugeothefur neyðst til að innkalla 240.000 eintök af 307-bílnum sínum til að skipta um litla viftu í bílnum. Bílarnir sem voru innkallaðir voru settir saman á árunum 2003 til 2006 og eru alls 12% þeirra 307-bfla sem hafa verið seldir í Evrópu. Búið er að hafa samband við íslenska eigendur sem innköllunin nær til. • Jaguar má sjást Þann 28. ágúst afturkallaði Jaguar í Banda- ríkjunum beiðni tÚ vef- og fjöl- miðla um að birta ekki myndir af nýjasta Jaguar-bílnum, XF. Illa hefur gengið að finna nákvæmar upplýsingar um bílinn sjálfan en þær ættu að birtast öðrum hvorum megin við helgina. • Flottur Ford Ford ætlar líka að koma bílskúrsmönnum á óvart, því í vikunni birtust myndir af þessum nýja hugmyndabfl frá þeim, Verve, sem gæti orðið næsta Fiesta. Reikna má með að hann fari í sölu seinni part árs 2008 í Bandaríkjunum og Evrópu. • Norsararnir ruglast í Noregi eykst sala dísilbíla hratt og eru sjö af hverjum tíu nýjum bílum með dísilvél. Þar á bæ eru menn mjög gjarnir á að ruglast á bens- ínstöðvum og dæla venjulegu bensíni á dísilbílana. Á einni bensf nstöð sagðist starfsfólk hjálpa tveimur eigendum á dag eftirslíktklúður.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.