Orðlaus - 01.07.2003, Blaðsíða 41

Orðlaus - 01.07.2003, Blaðsíða 41
FfRGfTTENLtRES Hail to the Thief Stöðnun jafngildir dauða og skref afturábak er þá draugagangur á háaloftinu, skarkali sem vekur þig um miðja nótt, bergmál af liðnum tíma - eitthvað sem tekur gildi úr tómu lofti og minningum manna af þvi sem var. Ég vil fá aðra „OK Computer" hvar er„The Bends" gítarrokk, gítarrokk, gítarrokk. Ég vil kaupa sömu plötuna átta sinnum (röð og ég vil að líf mitt núna verði nákvæmlega eins og líf mitt í fyrra og árið þar áður og stðast en ekki síst vil ég festa allt eins og það er nákvæmlega núna. Ekki hreyfa þig hársbreidd! Það er hættulegt! Já eins og tilraunamennska og framfarir eru oftast af hinu góða er engu að stður hollt á stundum að staldra við og horfa yfir farinn veg. Þetta gera Radiohead á sinni nýjustu skífu, Hail to the thief. Tvíburarnir „Kid-A" og „Amnesiac" voru metnaðarfull skref framávið af hálfu Radiohead manna, svo stór reyndar að margir aðdáendur áttu í mesta basli með að fylgja goðunum eftir og áðu þess ( stað við vegarkantinn, fengu sér samloku og biðu þess að hetjurnar snéru baki við rafsoðnum öngstrætum tilraunamennskunnar. Heim í Ijúfa gítarrokkið. Og vissulega höfðu þeir eitthvað til sfns máls - Autechre-innblásnar rafstemmur Radiohead voru ekki alltaf sannfærandi. Oftast þó. Og nú er hún semsagt komin. „Gítarplatan" sem beðið hefur verið eftir. En í stað þess að hlaupa til baka og gera aðra „OK Computer" tóku háskólaborgararnir í Radiohead vel menntaða ákvörðun um að mæta aðdáendum sínum á miðri leið.„Á Hail to the thief" reynir sveitin semsagt að sameina óbeislaða tilraunamennsku síðustu tveggja platna við hefðbundnara gítarrokk forvera þeirra. Og það gengur svona líka ágætlega upp! „Hail to the thief" er taugaveikluð plata fyrir taugaveiklaða tima. Hún hefst á vísun í 1984 Orwells, laginu„2+2=5" en eins og flestir vita fjallaði sú bók m.a. um algera bugun mannsandans af hálfu fasískra stjórnvalda. Textalega heldur söngvarinn Thom Yorke sig á þeim nöturlegu nótum út skífuna - ekkert „She loves you yeah, yeah, yeah" hér. Enda svosem ekki ástæða til. Undir taugaveikluðum textum Yorke's hljómar taugaveikluð (og oft á tíðumóreiðukennd) tónlist Radiohead sem er.eins og áður sagði, hefðbundið gítarrokk hæfilega blandað óbeislaðri tilraunamennsku. Þetta má t.d. glöggt heyra í laginu „Sit down. Stand up." sem hristist einhvernvegin fram úr hátölurunum í spastfskum sveiflum eins og þeim sem söngvarinn er frægur fyrir að beita á sviði. „Go to sleep"er Zeppelin-skotinn rokkari sem hefst á Ijúfu 12 strengja kassagítarspili en verður á endanum að einhverju sem jafnvel mætti kalla suðurríkjarokk (upphaf lagsins er n.b. eitt af fáum Ijúfum stundum disksins - á honum er Wtið um vögguv(sur). Þv( lagi er fylgt eftir af hinu ágæta „Where I end and you begin" sem minnir skemmtilega á nýbylgjudiskópönkarana í New Order. Reyndar skilst mér að það hafi verið ætlunin. Fyrsta smásk(fulagið,„There, there" ættu flestir að kannast við. Frábært lag sem gefur stemmningu disksins ágætlega til kynna. Annars dugar lítið að týna til einstök lög af „Hail to the thief" diskurinn rennur Ijúflega ( gegn án þess að falla nokkurntlmann ( hyldýpi meðalmennsku;sum lögin eru góð og önnureru mjög góð.Ólíklegt er að Radiohead afli sér margra nýrra aðdáenda með plötunni,en þeir sem fyrir eru (og af þeim er nóg) munu væntanlega styrkjast f trúnni á þessa einu af fáum meginstraumsrokksveitum okkar tima sem virðist líkleg til þess að standast tímans tönn. hauxotron@hotmail.com Hljómar vel... Radiohead hressir strákar að vestan Straight outta Oxford! Hin hressa rokksveit Radiohead varð til í Oxford-héraði Englands við lok níunda áratugar síðustu aldar. Liðsskipan sveitarinnar hefur haldist hin sama allar götur síðan, en hún samanstendur af þeim Thom Yorke (söngur, gítar), Ed O'Brien (g(tar), Phil Selway (trommur) ásamt bræðrunum Jonny (gítar) og Colin (bassi) Greenwood. Upphaflega var Radiohead lítið meira en áhugamál drengjanna, sem stunduðu flestir háskólanám og fórst það ágætlega úr hendi. Annálaður metnaður þeirra gerði hinsvegar fljótt vart við sig og skilaði sér fyrst ( EP- plötunni„Drill"sem kom á markaðárið 1992. Eins og svo margar aðrar breskar rokksveitir þess tíma voru Radiohead undir miklum áhrifum frá frumkvöðlunum í My bloody valentine og öðrum hljómsveitum af svipuðu sauðahúsi, sem jafnan voru settar undir hinn furðulega titiaða hatt „Shoegazer” (liösmenn slíkra sveita munu hafa gert mikið af því að góna á skóna sína á tonleikum). Féll EP-platan vel í þann flokk, jafnframt dugði hún til þess að útvega hljómsveitinni plötusamning, þó hún vekti enga feiknar athygli. Eins-lags-undur? Margt breyttist hinsvegar frá þv( að„Drill"kom út og þar til fyrsta stóra breiðskífa Radiohead, „Pablo Honey" leit dagsins Ijós árið 1993. .Shoegazer” bylgjan, sem lofað hafði svo góðu, var þá x andaslitrunum effcir banahögg frá Nirvana (og ámóta bandarísku gruggrokki) - markaðurinn gerði kröfu um nýjan hljóm og nýtt útlit. Fyrsta smásk(fulag„Pablo Honey" „Creep"flaut einmitt ágætlega með hinum nýja meginstraumi og varð óvæntur slagari i Bandaríkjunum.Téður slagari varð reyndar til þess að hljómsveitin var afskrifuð af bresku popppressunni sem eins-lags-undur, enda er sú jafnan ekki par hrifin þegar landar þeirra rísa til frægðar á meginlandinu án þess að hljóta náð í heimalandinu fyrst. Svipað átti síðar meir eftir að koma fyrir (hina ólíkt verri sveit) Bush, sem öllum að óvörum slóg f gegn í BNA um miðbik síðasta áratugar. Því voru fáir sem áttu von á stórum hlutum frá Radiohead þegar meistarastykkið „The Bends" kom út tveimur árum síðar (og VSHtiUllega eiXXt færri sem sáxt fyrir að hljómsveifcin æfcfci effcir að selja plötur í milljónavís nær áratug SÍðar).„The Bends" seldist illa upphaflega, en vann mikið á í kjölfar stífrar tónleikaspilamennsku sveitarinnar og nokkurra vel heppnaðra myndbanda.Loks varð úr að við enda ársins var platan ofarlega á topp-tíu listum gagnrýnenda og seldist i fjölda eintaka þegar upp var staðið. Radioheadnördar og listrænt frelsi Strax þá fór að bera á svokölluðum Radiohead-nördum, sem fylgja kennisetningum sveitarinnar sem guðspjall væru og hlusta helst ekki á annað en torfundnar b-hliðar og búttlegg þeirra. Slíkir vita fátfc verra en kasjúal Radiohead-aödáendur, sem vifca ekki einusínni hvað fcrommuleikarinn heifcir (Phil Seiway!). Þessum traustu aðdáendum fjölgar með ári hverju og tryggja þeir að hljómsveitin mun selja allt sem frá henni kemur í að minnsta kosti nokkurhundruðþúsund eintökum. Ekki kemur á óvart að svo margir finni sáluhjálp í tónlist Radiohead, enda er undantekningalítið mikill metnaður að baki útgáfum þeirra. Jafnframt eiga ugglaust margir auðvelfc með að endurspegla eigin tilímningar í ágæfcum (og oft einmanalegum) fcexfcum Thoms Yorke. Hin mikilfenglega „OK Computer" sem er til í diskarekkum flestra (slendinga, staðfesti svo endanlega yfirráð Radiohead í rokkheimum - hljómsveitin varð veldi í tónlistarbransanum.HÚU. gafc þar effcir gert næstnffl hvað sem hún vildi og áfcfc vísan sfcuðning gagnrýnenda sem og plofcukaupenda. tíi aiirar hamingju hafa Radiohead-menn enn sem komið er ekki kosið að misþyrma þessu mikla trausti sem á þá er lagt, það heyrist best á þeim skífum sem komu á eftir„OK Computer"og eru hver annarri betri, nú síðast hin ágæta „Hail to the thief? Meðlimir: Byrkir, Class-Bjee, Diddi Felix, Intro og B-Ruff Tónlistarstefna: Hip hc;- Útgáfur: Nokkrir singlar, Sannleikurinn, Munið þetta, Raiders of the Lost Art, Salliva, Sprög Rap. Hvað er á döfinni: Stór platan Týndi hlekkurinn og svo er B-Ruff að gefa út mix tape sem heitir Mishljómur vol. 1. Einnig verða tvö lög á safnplötu sem Grænir fingur gefur út í sumar. Hvar verður spilað næst: Flestir meðlima okkar eru búsettir í Danmerku i sumar en platan kemur út í haust og þá verða feitir útgáfutónleikar...Á besta stað i bænum. Skandall: Ég held að skandallinn sé riot á Akureyri þegar við vorum að spila á AK Extrem mótinu. Riotið endaði út á götu, öll glös voru brotin og Badda var hent inn í lögreglubíl og handjérnaður, alvöru thugs þar á ferð, hehe. Stærsti rokkviðburðurjúnímánaðar (og jafnvel ársins) er Ifklega útgáfa deibjú plötu rosasveitarinnar Mars Volta, De-Lo«sed m the Comatorinm.Sveitin var stofnuðafforsprökkumAt tfce Driwe-in (sem breytti næstum þvf heiminum á sinum tima, en hætti er hæst stóðu leikar). Skemmst er frá því að segja að frumburður er alveg rosalegur, slík verk heyrast allt of sjaldan. Tilraunakennt konsept-rokk sem á rætur sinar að rekja jafnt til semMinor Threat (og annarra hardkor pönksveita) Pönkskotið progg-rokk með döbb-lvafi?... sanna rækilega á sinni nýjustu afurð að þeir eru nánast eina„nú-metal"(ecch) hljómsveitin sem eitthvað var varið (. Þeir bregðast ekki frekar en áður og skila fjölbreyttri, en þó heilsteyptri skífu, sem hentar við ýmis tækifæri (en þó helst þegar pirringur og fýla hrjá mann)... Lengi hefur verið beðið eftir nýrri plötu frá ellismellunum í Mfttalliea.Hún er komin út og gripurinn heitirSf. An .Skemmst erfrá þvíað segja að þau sem höfðu gaman af stðustu tveimur plötum sveitarinnar munu einnig hafa gaman af þessari, hin þurfa ekki að missa svefn þó þau láti hana óhreyfða i plötubúðinni ... Vert er að minnast á fimmtu plötu Maas, Mnsic, sem kom eftir langa bið í hljómplötuverslanir (síðasta mánuði. Hljómplata þessi var til umfjöllunar í fyrir nokkru síðan,fékk þar ágætis dóma og hefur bara batnað síðan. Skyldueign fyrir alla rokkara, poppara, moddara, pönkara og diskófrík ... „Og-Vodafone rokkararnir Dandy Warhols áttu einnig nýja skífu í júnímánuði, (titillinn er vísun í samnefnda skáldsögu snillingsins Kurt Vonnegut). Þar breyta þeir kyrfilega um stil og kanna það sem eightís popp hefur upp á að bjóða með miklum glæsibrag. Hress plata og vel til þess fallin að hlýða á jafnt í kokteilboðum sem kókaínveislum. Að lokum: nú er rúmur mánuður liðinn af sumrinu.Hvar er« allar stelpurokksveitimar?!?

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.