Orðlaus - 01.09.2003, Blaðsíða 22

Orðlaus - 01.09.2003, Blaðsíða 22
Georgie Bush! Our SONS and DAUGHTERS are NOT your little green arnty men ffíT FIND ANOTHiR TOY Fáir menn eru eins umtalaðir um þessar mundir eins og forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, eða eigum við kannski að kalla hann „That-Son- Of-A-Bush", „The Global Village Idiot" eða „The Smugly American" eins og landar hans eru farnir að gera. Skoðanir manna eru þó skiptar. Af mörgum er hann dýrkaður og dáður á meðan aðrir telja hann eitt mesta illmenni mannkynssögunnar. Gegn-Bush hreyfingar (anti- Bush organisations) fara hríðvaxandi um allan heim og trúverðugleiki Bushstjórnarinnar hefur beðið verulega hnekki. Heimasíður með áróðri gegn forsetanum eru nær óteljandi og dreifa hreyfingarnar barmmerkjum, límmiðum, bolum og derhúfum með slagorðum eins og „Bush verður að víkja, niður með Bush - stuðlum að óháðum stjórnmálum", „Hendum Bush, ekki sprengjum", „Bush laug og hermennirnir okkar létu lífið" ásamt mörgum fleirum sem sjá má hér á opnunni. And- ófsmenn telja að frá því að hann „stal" kosningu- num árið 2000 hafi valdatíð hans einkennst af mis- gjörðum, hneykslis- málum, vanhæfni, lygum og glæpum. Fólk er farið að gera sér grein fyrir því að hagur al- mennings sé ekki eins ofarlega á lista í huga forsetans eins og hann vill meina. Mótmaelaalda hefur gengið yfir landið og ókvæðisorð um allt frá stríðinu í írak til skattamála, málefna innflytjenda, borgaralegra réttinda, réttinda kvenna til fóstureyðinga, réttinda samkynhneígðra og svo mætti lengi telja eru hrópuð í átt til hans. Nú finnst fólki komið nóg. Nóg af lygum, nóg af uppgerð, nóg af dómurum á hægrivængnum sem stuðla að því að afturhaldssöm stefna Bush nái fram að ganga. Það segir: „Bush, við höfum fengið nóg af trassaskapnum!" Fólk er vissulega reitt og af mörgu er að taka, en það helsta er líklegast eftirmálar (raksstríðsins. Ástæðurnar fyrir þessari reiði eru margar og nær ómögulegt að gera grein fyrir þeim öllum því þegar ég fór að kynna mér málin gróf ég til að mynda upp yfir sextíu þúsund heimasíður á netinu og fjölda greina í blöðum og tímaritum. Það sem hér fer á eftir er því aðeins brot af því sem sagt hefur verið. BUSH OG BARÁTTAN G€GN HINU ILLA Þegar árásin á turnana tvo (WTC) var gerð 11. september árið 2001 var Bush ekki búinn að sitja lengi á valdastóli. Hann stóð þá frammi fyrir þjóðínni og lofaði öllu fögru, sagðist skyldu berjast gegn hinu illa í heiminum og ekki hætta fyrr en hann hefði sigrað í baráttunni gegn hryðjuverkum. Nú tveimur árum seinna er þetta farið að hljóma eins og gömul klisja. Fólk sem hafði trú á honum árið 2001 telur nú að árásin 11. september hafi verið notuð til að leyna því sem stjórnin stefndi að. Gagnrýnendur hafa meðal annars sakað Bushstjórnina um að hirða ekki um aðvaranir fyrir árásina. Þeir halda því i fram að stjórnin hafi vitað að áras, gerð af al- Qaeda hryðjuverkasamtökunum, með flugvélum sem áttu að miða á bandarísk skotmörk, væru væntanlegar, án þess að senda út neinar viðvaranir. Síðan eftir að WTC var rústir einar þóttist stjórnin ekkí einu sihni hafa grunað að nokkuð slíkt gæti komið fyrir. Eftir árásina hafði Bush ákveðið markmið. Allt skyldi gert sem þyrfti til að ná erkióvininum Osama bin Laden og hans hryðjuverkasamtökum, sama hvað það kostaði. Enn er Osama ófundinn. NÝIR ÓVINIR, NÝ MARKMIÐ Frammistaða Bush í stríðinu gegn hryðjuverkum hefur verið harðlega gagnrýnd. Hann hefur ekki náð að handsama Osama bin Laden og hefur verið sakaður um að fórna baráttunni gegn a!-Qaeda í Afganistan og Pakistan fyrir (raksstríðið. ((rak fann hann sér nefnilega nýjan óvin, Saddam Hussein. í Miðausturlöndum eiga Bandaríkin líka mikilla hagsmuna að gæta þegar kemur að olíu- lindum þó svo hann segist hafa verið að fyrirbyggja það að Saddam gæti hugsanlega gert árás á Vesturveldin. Hann réðst inn í (rak þrátt fyrir brot á alþjóðalögum, þrátt fyrir það að aðrar þjóðir væru harðlega á móti því og þrátt fyrir það að þetta væri ólögmæt aðgerð. Það þótti honum þó í lagi þar sem markmiðið var jú að frelsa íröksku þjóðina, var það ekki annars? BUSH LAUG OG HERMENNIRNIR FÉLLU Nú eru um fimm mánuðir síðan innrásin hófst og þrátt fyrir það að Bush hafi sagt að stríðinu væri lokið halda sprengjur áfram að falla á bandaríska hermenn og óbreytta borgara. Meira en 1000 særðir hermenn hafa komið til baka frá frak og fjöldi frá Afganistan svo ekki sé talað um þá sem látist hafa á víg- vellinum. dc ftrW*Pfcw_' Stuðningur Banda- ríkjamanna við Bush jókst að vísu eitt- hvað meðan á stríðinu stóð en er nú farinn að dala aftur meðal annars vegna þess að stöðugar árásir eru gerðar af and- spyrnumönnum á bandaríska hermenn í (rak. Fólki finnst þetta ástand algjörlega óviðunandi. Það hefurfengið nóg af því að Bandaríkjastjórn haldi að þau geti drepið, fangelsað eða hernumið alla sína óvini, eins og núverandí ráðamenn virðast telja, á kostnað þeirra sem engu fá um ráðið. Það spyr: „Hvar eru loforðin núna? Bush laug og hermennirnir okkar þurftu að gjalda fyrir það með lífi sínu. Hann sendi þá út í rauðan dauðann á veikum staðreyndum og tómum lygum," sagði bandarísk móðir fallins hermanns. Fólk er reitt yfir því að sagan um gereyðingavopn íraka, sem notuð var til að auka stuðning við stríðið, virðist ekki á rökum reist. Um er að ræða m.a. þá umdeildu fullyrðingu að (rakar hefðu reynt að kaupa úran til a ð b ú a t i I kjarnorkusprengjur sem Bush hikaði ekki við að setja í stefnuræðu sína á Bandaríkjaþingi í janúartil að styrkja stríðsáform sín. Gögnin eru nú sögð vera fölsuð. Menn vilja að stjórnvöld geri hreint fyrir sínum dyrum og viðurkenni mistök sín og fljótfærni. B u s h hefur þó reynt að halda andlitinu með því að segja að hugsanlega hefði einhver rænt öllum vopnunum og þess vegna finnist þau hvergi. Nú upp á síðkastið hefur hann einnig eitthvað dregið úr ásökunum sínum og talar ekki lengur um gereyðinga-vopnin öllum stundum heldur ólöglegar „vopnaáætlanir". Allt í einu breytast gereyðingavopn í vopnaáætlanir á nokkrum vikum. „Merkilegt", segir fólkið. HURRA! STRIÐINU ER „LOKIÐ"! Bush hélt því fram að (rakar myndu fagna komu Bandaríkjamanna og taka þeim sem hetjum. Sú gleði stóð í nokkra daga. Nú standa skipulagðar sveitir í frak fyrir stöðugum hryðjuverkaárásum sem hafa drepið fleiri hermenn eftir að stríðinu „lauk" en á meðan á þvi stóð og jafnvel Shítar, sem voru hvað mest á móti Saddam, eru bálreiðir yfir því sem þeir kalla vanhæfni Bandaríkjastjórnar. En af hverju hrópar fólkið ekki húrra fyrir frelsurum síhtlm og ræðst gegn þeim illvirkjum sem vilja sprengja þá í loft upp? Af hverju tekur það á móti þeim með blóði, r i f f I u m o g píslarvættisdauða? Mustapha Alani, írakskur fræðimaður gaf það svar að „jafnvel á verstu tímum (rak/(ran stríðsins þurftu flestir irakar (fyrir utan Kúrda og Marsh-Araba) ekki að hafa áhyggjur af persónulegu öryggi, þ.e.a.s að það væri til rafmagn, vatn og eitthvert síma-samband. Núna eru þeir hræddir um að ráðist verði á þá sofandi í rúmum sínum og geta ekki treyst því að hafa rafmagn, vatn eða síma þar sem sprengjuárásir á vatnsbirgðir og olíulindir landsins gerast reglulega." Núna vilja (rakar bara fá fullvissu um það að dætrum þeirra verði ekki nauðgað eða synum þeirra rænt á leið sinni út í búð. Ríkið er ófært um að tryggja íbúum sínum viðunandi lífskjör og er því ekki furða að hryðjuverkasveitir, hvattar áfram af þjóðernis-sinnuðum niðurlægðum múslimum sem vilja hefnd vegna al-mennrar óánægju fólksins í landinu, fari vaxandi. Þeir byggja upp hatur sem Bush er ekki líklegur til að milda. Á meðan fjöldi íbúa mótmælir veru bandarísku hermannanna í írak segist Bush ekkert hafa miklar áhyggjur af þessu enda er hann upptekinn við að safna í kosninga- sjóðinn. Hann segir þessi mótmæli vera „merki um að frelsi sé til staðar í (rak. írakar eru bara ekki alveg búnir að átta sig á því að þeir séu frjálsir og að frelsinu fylgi ábyrgð," segir hann. BUSH BÝR TIL HRYÐJU- VERKAÞJÓÐ Sumum finnst sprengingin í jórdanska sendiráðinu og höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Bagdad og árásirnar á bandaríska hermenn sönnun þess að Bandaríkin hafi hertekið þjóð sem ekki stóð mikil ógn af áður (þó svo að þvi hafi verið haldið fram af bandarískum stjórnvöldum) en breytt henni í þjóð hryðju- verkamanna. Nú fyrst, eftir að ráðist var til atlögu, sjáum við raunveruleg hryðjuverk. Meiri hryðjuverkaógn stafaði af mörgum öðrum þjóðum en (rak en nú er búið að gefa hryðju- verkamönnum góða ástæðu til að koma sér fyrir í þar í landi og berjast gegn Bandaríkjamönnum þó svo að Bush hafi sagt: „Við tryggðum það að hryðjuverkasamtök gætu ekki notað (rak sem vopnabúr." EITT STÓRT KLÚÐUR Flest í kringum innrásina telja Gegn-Bush hreyfingarnar hafa verið eitt stórt klúður. Bush og Blair lofuðu upp í ermina á sér gífurlegu uppbyggingarstarfi og sögðust hafa gífurlega eftirstríðsáætlun sem þeir höfðu greinilega ekki. Nú ríkir algjör ringulreið. Börnum er rænt og sum þeirra drepin sem farþegar í bílum eða gangandi vegfarendur. Menn eru teknir fanga án þess að fá að vita ástæðuna og konur, menn, börn og gamalmenni láta lífið á meðan fjölskyldurnar leita villt og galið að týndum ástvinum. Þetta vekur mikla reiöi og svo vitnað sé í greinarhöfund Buzzflash.com, sem talar beint
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.