Orðlaus - 01.09.2003, Qupperneq 24
Líkamstjáning eða „Body-language" eru hin
hljóðlátu boðskipti sem fara fram manna á milli
mörgum sinnum á dag án þess að flestir gefi
þeim nokkurn gaum. Þetta tungumál er án orða
en getur þó sagt meira en nokkuð annað um
ívað þér finnst virkilega um manneskjuna sem
dú ert að tala við og hvað henni finnst um þig.
kringum 70% af öllum skilaboðum sem við
sendum frá okkur eru í gegnum líkamstjáningu
þar sem líkaminn sendir frá sér skilaboð
endalaust og mjög oft ómeðvitað.
Þessa líkamstjáningu má túlka á tvenna vegu.
[ fyrsta lagi sýnir þetta að manneskjan sé kvíðin og líði
óþægilega og sé líklega að Ijúga. Heilinn skipar þá hendinni
að grípa fyrir munninn og stöðva lygina. Ef hún nuddar augun
eða klórar sér í nefinu er það ennþá betri vísbending þess að
hún sé að Ijúga.
í öðru lagi má túlka hana á þann vecj að hún sé bara stressuð
í kringum þig og barf þetta þá ekki að vera neitt slæmt. Þú
þarft þá bara að beina samtalinu á léttar nótur og tala um
eitthvað sem henni finnst þægilegt að tala um.
Þetta sýnir mikið óöryggi. Manneskjan er hrædd um að segja
eða gera eitthvað vitlaust eða asnalegt og reynir að stjórna
því sem hún er að segja með því að fela hendurnar líkt og lítil
börn gera oft á tíðum.
Stelpur: Hann er virkilega pirraður og það má líka lesa af
andlitsdrættinum eða ef nann er á sífelldu iði og danglandi
fótunum í allar áttir.
Strákar: Ef hún nuddar á sér hálsinn hæqt og rólega niður
á herðarnar og lítur á þig er hún að reyna að vera kynþokkafull
og þetta gæti virkað sem lúmskt merki um að hún vilji að þú
sért að nudda sig en ekki hún!!!
Þegar manneskja situr á móti þér og hallar sér aftur, krossleggur
fæturna og heldur höndunum fyrir aftan haus þá vill hún ráða
ferðinni. Þessi líkamstjáning er meðal annars einkennandi fyrir
sölustjóra, lögfræðinga eða aðra fagmenn sem eru sjálfsöruggir
oq ánægðir með sig. Þessar manneskjur telja sig ort klárari en
aðra og vilja sýna að þær hafi ráð við öllu sem þú hefur að
segja.
Strákar: Það hafa nú eflaust flestir heyrt hvað það þýðir að
krossa fæturna. Ef þeir snúa að þér þýðir það áhugi en ef ekki
þá bara því miður og þetta er rétt.
Konur sitja yfirleitt með krosslagða fætur því það er þæqilegt
en það skiptir máli hvernig þær gera þao. Krosslagða fætur
kvenna verður nefnilega ao taka meo varúð. Ef kona situr
með krosslagða fætur og krosslagðar hendur fyrir framan þig
getur það táknað vanþóknun eða þá að hún vill draga sig út
úr samræðunum. Ef fæturnir snúa bara beint áfram en ekki
að þér hefur hún ekki minnsta áhuga en vill bara ekki vera
ókurteis. Ef hún krossar fótleggina og heldur um ökklann á
sér sýnir það að hún er ákveðin og þrjósk og erfið í rökræðum.
Fólk stendur einnig oft með krosslagða fótleggi ef það er
feimið eða að hitta manneskju i fyrsta skipti.
AF OUUM SKILADODUM
SEM VID SENDUM ,
FRA OKKUR ERU I
Að skilja líkamstjáningu er ákveðin
list en ef þú reynir meðvitað að taka
eftir því hvernig skilaboð er verið að
gefa þér geturðu orðið margs vísari.
Stelpur: Hárið er eitt af því sem skiptir okkur hvað mestu máli
varðandi útlit okkar og á það ekki bara við um kvenmenn
þannig að ef karlmaður rennir höndunum í gegnum hárið á
sér er nann að reyna að líta vel út fyrir þig. Ef nann gerir þetta
þó í tíma og ótíma þá er hann virkilega stressaður og tæpur
á taugum og þá ættirðu nú bara að forða þér.
Strákar: Þeqar hún sveiflar hárinu til og frá og fleygir því
aftur fyrir bak er hún greinilega að reyna að vekja á sér athygli.
Hún er farin að daðra þegar hún fiktar stöðugt í hárinu á sér
en það qetur samt líka þýtt að hún sé óörugg með sig eða að
hún hafí eitthvað að fela.
Þessi líkamsstaða kallast brjóstvörn oq er mjög lokuð og
fráhrindandi. Hún sýnir að manneskjan nafi ekki áhuga á að
hlusta eða sé ef til vill ekki alveg örugg með sig. Þetta er
tilraun til að verjast aðsteðjandi ógnun eða óvænlegum
aðstæðum því þegar manneskja er óstyrk eða neikvæð
krossleggur hún hendurnar fyrir framan brjóstið og gefur
þannig til kynna að hún telur sér vera óqnað. Ef manneskjan
stendur á táberginu í leiðinni og er með kreppta hnefa synir
það fiandsamlega afstöðu. Konur halda oft á tösku, jakka,
biórqlasi eða vínglasi og geta því falið brjóstvörnina þannig
að ekki láta blekkjast.
Þetta sýnir að viðmælandi þinn nennir ekki að spjalla við þig.
Ekki hafa þó of miklar áhyggjur, kannski er það ekki þú heldur
bara umræðuefnið sem fer í taugarnar á honum.
N^^^^^^^ngustu daðursaðferðunum en ekki margir
sem vita það.
Stelpur: Þegar karlmaður qerir þetta merkir það að hann hafi
áhuga en sé að bíða eftir að þú takir fyrsta skrefið. Þetta getur
reyndar líka þýtt að verið sé að skoða þiq og meta. Taktu það
til þín sem hros því það nennir enginn að eyða tíma í að meta
manneskju sem vekur engan áhuga.
Strákar: Ef kona hallar höfðinu þegar hún horfir á þig er hún
að sýna áhuga sinn, þannig að þá er rétta tækifærið til að
grípa gæsina...
Ef þú átt í hrókasamræðum við stelpu eða strák sem þú værir
vel til í að hitta aftur en ert ekki viss hvort hún/hann hafi
áhuga, taktu þá eftir því hvernig hún/hann hallar sér í stólnum.
Manneskja sem er að reyna að sýna áhuga sinn hallar sér að
þér en ef hún vill að þu drattist í burtuliallar hún sér aftur
eins langt og hún kemst. Okkur líður illa ef ókunnug manneskja
kemur inn a okkar svæði og sýnum það þá með því að reyna
að færa okkur í burtu. Ef manneskjan hallar sér fram og grípur
um stólsetuna eða styður höndunum á hnén er hún þó því
miður ekki að sýna þér neinn áhuga heldur er hún orðin
óþreyjufull og er tilbúin til að fara og vill kurteisislega slíta
samtalinu.
Lófarnir gefa oft meira til kynna en mann grunar. Annars vegar
tákna opnir lófar heiðarleika og tryggð og sýna að
manneskjunni líði vel og sé örugg með þér. Hún nefur engu
að leyna. Hins vegar tákna faldir lófar, til dæmis fyrir aftan
bak eða undir handakrikum, að manneskjan sé að leyna
einhverju. Ef lófinn snýr niður í samræðum getur það merkt
að manneskjan vilji ráða ferðinni.
Stelpur: Þetta gera karlmenn oft þegar þeir eru mjöq hrifnir
af stelpunni sem þeir eru með og merkir þetta að þú ert
mikilvægasta manneskjan í kringum þá. Ef hann snýr ekki að
þér og er stöðugt að líta í kringum sig gæti verið að áhuginn
sé að minnka. Et hann horfir á alla nema þig er hugurinn ekki
á þér.
Þetta sýnir að manneskjunni leiðist, sé óþreyjufull, pirruð eða
að eittnvað sé að. Ber líka vott um gremiu eða reiði. Ef hún fer
síðan að slá fingrunum í borðið eða hökuna ættirðu að forða
þér því hún gæti allt eins hrópað: ÉG NENNI EKKI AÐ VERA
HÉRNAH!"
Texti: Steinunn og Erna
Myndir: Atli