Orðlaus - 01.06.2005, Blaðsíða 20

Orðlaus - 01.06.2005, Blaðsíða 20
20 I or'C^LSuS Komdu konunni til Nokkur góð ráð til að krydda kynlífið Samkvæmt könnun sem kemur fram hér til hliðar þá eru 66% kvenna ófullnægðar með limastærð maka sinna. Karlmenn eru því greinilega undir pressu um að standa sig betur þegar kemur að kynlífi og því eru hér nokkrir punktar sem fá kærustuna til að gleyma stærðinni og einbeita sér að því hversu góður þú ert í að koma henni til. Reyndu nýja stellingu Komið ykkur saman um nýja stellingu til að prófa. Reynið eitthvað nýtt sem þið hafið ekki prófað áður. Hvenær reynduð þið að gera það á stól? Það eru til milljónir stellinga og hundruð bóka um kynlíf þannig að þetta á ekki að vera erfitt. Þið getið einnig búið ykkur til stellingar í sameiningu. Farið á æfingu Fólk er oftast mjög ánægt nokkrum tímum eftir æfingu vegna losunar á endorfíni og þreytu í vöðvum. Það er ekkert betra en að stunda kynlíf eftir að þú hefur losað þig við alla líkamlega orku og allt stress. Farið á æfingu og gufu eftir á til að slaka vel á, skellið ykk- ur síðan í sturtu og síðan beint heim upp í ból. Kynferðislegar fantasíur Leyfðu henni að deila fantasíunni sinni með þér. Þetta á eftir að koma þér jafn mikið til og henni. Láttu hana segja þér frá því hvað hana dreymir um að láta gera við sig og síðan getið þið snúið dæm- inu við. Segðu henni hvað þig dreymir um og fáðu hana til að lýsa því myndrænt og munnlega. Þetta á eftir að krydda kvöldið og gera eftirleikinn í rúminu mjög skemmtilegan. Hafðu hemil á shortaranum Einbeittu þér virkilega að því að fá það ekki of snemma, eða þang- að til að hún er að fá það. Það eru til nokkrar leiðir og fer það bara eftir hverjum og einum hver virkar en gott er að nota munnmök á hana eða hugsa um eitthvað annað en það sem þú ert að gera á með- an þú ert inni í henni og hún er að æsast upp. Finndu G-blettinn Finndu G-blettinn hennar og taktu þér góðan tíma í það með útskýr- ingum frá henni. Það er ekki sjálfgefið að þú hafir fundið hann hing- að til en með leiðbeiningum frá sérfræðingi þá ætti það að verða mun auðveldara. Þú færð ekki hamingjusamari konu en þá sem þú hefur fróað og þú hefur fundið G-blettinn á. Loka á skilningarvit Það er ótrúlegt hvað þú getur komið konunni til með því að loka á skilningarvit hjá henni. Einsog þú veist þá eru blindirtaldirhafa mun betri heyrn og snertiskyn en aðrir og þetta sama á við um okkur ef við erum svipt sjóninni. Haltu fyrir augun á meðan þú strýkur henni og hún mun njóta þess margfalt betur og getur einbeitt sér mun betur að unaðinum. Notaðu titrara Margar konur nota titrara. Notaðu hann með henni. Til að fá allt á fullt notarðu titrarann meðan á forleik og samförum stendur, á meðan snertirðu brjóstin með höndum og munni. Það á eftir að örva hana um allan líkamann. Nuddið hvert annað Gefðu konunni heilnudd. Sendu hana í sturtu og láttu hana leggjast á magann og nuddaðu hana frá toppi til táar. Sérstaklega viðicvæm svæði eru fætur, lófar, hnakki og mjaðmir. Það er ekki gott að ein- beita þér bara að nuddi heldur verðurðu að koma henni til í leiðinni svo að hún verði ekki of afslöppuð. Hlutverkaleikur Fáðu hana til að velja sér hlutverk sem hún vill að þú sért og þú gerir slíkt hið sama. Þetta erskemmtiieg tilbreyting í kynlífið og þið getið látið fantasíur ykkar rætast. Klæmstu Láttu hana vita hvað þig langar til að gera við hana. Segðu henni það fyrst og gerðu það síðan. Þetta er hægt að framkvæma á marg- an hátt en skemmtilegt er að gera þetta, klæmast, áður en þið farið upp í rúm. Þú getur gefið henni smjörþefinn af því sem þig langar til að gera við hana með því að hvísla því að henni en ekki fara alla leið. Gerðu hana æsta áður en þið komist upp í rúm. Lykt hefur áhrif hrifningu Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að lykt gegnir lykilhlutverki þegar fólk laðast hvort að öðru. Niðurstöðurnar byggja þeir á rannsókn sem gerð var á samkynhneigðu fólki og voru samkynhneigðir karl- menn mjög góðir í að finna lykt af öðrum samkynhneigð- um karlmönnum. Rannsókn- in leiddi einnig í Ijós að sam- kynhneigðum karlmönnum og lesbískum konum líkar betur við aðra líkamslykt en frá gagnkynhneigðu fólki. ( annarri rannsókn sem gerð var með heilaskanna kom í Ijós að efni í karlmanns- svita hefur sömu áhrif á heila samkynhneigðra manna og gagnkynhneigðra kvenna. Lengi hefurverið talið að ferómón, náttúru- lega líkamslyktin okkar, hafi áhrif á hegðun okkar þó svo að við séum mjög ómeðvituð um lyktina. tmmmmmmmmmrn# Stærðin skipt- ir máli í nokkrum könnunum sem gerðar hafa verið undanfarið um limastærð karlmanna hefur kom fram að yfir 95% karlmanna segist vera óánægður með stærðina. Einnig kom í Ijós að 66% kvenna eru ekki ánægðar með stærð- ina á typpi makans. Fullnægingar- degi fagnað Brasilíski bærinn Espertant- ina fagnaði degi fullnæg- ingarinnar 9. maí. Ástæðan fyrir hátíðarhöldunum er sú að hjálpa giftu fólki að bæta samband sitt. Meiri- hluti bæjarmanna tók þátt í fögnuðinum og verður 9. maí framvegis dagur fullnæginga þará bæ. Fékk raðfullnæg- ingu í fyrsta sinn 52 ára bandarísk kona lét nýlega koma fyrir rafskauti í hryggnum á sér til þess að hún gæti fengið fullnæg- ingu. Konan, Mary Clegg, hefur ekki getað fengið fullnægingu mest allt sitt líf. Hún var gift í 18 ár og átti tvær dætur en lifði nánast engu kynlífi með manni sínum og á endanum hættu þau saman. Þegar henni var svo boðið að taka þátt í til- raun með því að koma fyrir rafskauti neðst í hryggnum ákvað hún að láta á það reyna. Aðgerðin gekk vel og Mary fékk sína fyrstu raðfull- nægingu með núverandi eig- inmanni sínum. Hún þurfti þó að skila rafskautinu en það þarf eflaust ekki að bíða lengi eftir því að boðið verði upp á slíka aðgerð.

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.