Bændablaðið - 27.06.2006, Side 1

Bændablaðið - 27.06.2006, Side 1
Auglýsingasíminn er 563 0300 Netfang augl@bondi.is Næsta blað kemur út 11. júlí Upplag Bændablaðsins 14.500 Þriðjudagur 27. júní 2006 12. tölublað 12. árgangur Blað nr. 241 Ferðaþjónusta Landbúnaðarumræðan Landbúnaður snýst ekki aðeins um afurðir í hæsta gæðaflokki Þórunn Sigurðar- dóttir ferða- þjónustu- bóndi á Skipalæk. 22 18 Peningarnir komnir en framkvæmda- leyfið vantar! Bæjarstjórn Snæ- fellsbæjar bíður þess að geta byggt við dvalarheimilið Jaðar Bæjarstjórn Snæfellsbæjar er nú í þeirri sérkennilegu stöðu að standa uppi með fjármagn til þess að reisa hjúkrunarálmu við Dvalarheimilið Jaðar í Ólafsvík en geta ekki hafist handa vegna þess að samþykki hefur ekki borist frá heilbrigðisráðuneyt- inu. Eins og kunnugt er falla hjúkr- unarheimili fyrir aldraða undir rík- isvaldið og því þurfa sveitarfélög að sækja um fjármagn og fram- kvæmdaleyfi til ráðuneytanna. Fjárlaganefnd Alþingis hefur þeg- ar afgreitt beiðni bæjaryfirvalda og fjármálaráðuneytið afhent þá fjármuni sem beðið var um. Teikn- ingar liggja fyrir að álmunni og bíða þess nú að heilbrigðisráðu- neytið leggi blessun sína yfir þær. Kristinn Jónasson bæjarstjóri sagði Bændablaðinu að á Dvalar- heimilinu væru nú 10 hjúkrunar- rými en aðstaða starfsfólks til þess að sinna þeim sem þar liggja væri afleit. Þess vegna hefði verið ákveðið að ráðast í viðbyggingu. Þegar nýja álman verður komin í gagnið verður pláss fyrir 12 manns í hjúkrunarrýmum og öll aðstaða til þess að sinna þeim batnar verulega. Því til viðbótar geta 13 manns búið á dvalarheimilinu og eftir breytingarnar verða allir í eins manns herbergjum með nútímaað- stöðu, svo sem baðherbergi og öðru sem til þarf. En það stendur sem sé upp á heilbrigðisráðuneytið að veita samþykki fyrir því að fram- kvæmdir hefjist. Kjósa heldur að farga ánum ef þær veikjast Kostnaður kúabænda vegna dýralyfja og þjónustu dýralækna hækkaði um 42,1% á árunum 1995-2004 og er þá miðað við kostnað á hverja kú á verðlagi árs- ins 2004. Þetta kemur fáum á óvart en hitt er athyglisverðara að á sama tíma lækkaði sambærilegur kostnaður sauðfjárbænda um 13,7%. Skýringin á því er fyrst og fremst talin vera sú að bændur séu í auknum mæli hættir að leita til dýralækna þegar fé þeirra veikist heldur kjósi þeir að farga því. Þessar upplýsingar komu fram í svari landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Pálmadóttur á alþingi skömmu fyrir þinglok. Sjá nánar á bls. 8. Fyrirtæki frá Hollandi hefur hafið starfsemi í tvö þúsund fer- metra gróðurhúsi í Reykholti í Bláskógabyggð þar sem ræktuð eru pottablóm, sem flutt eru með skipi til Hollands. Ástæðan fyrir þessari ræktun er sú að það er ekki hægt að rækta plönturnar í Hollandi vegna hitans þar, held- ur passar hitinn og íslenska veðráttan plöntunum miklu bet- ur. Um er að ræða berjaplöntur, sem ræktaðar eru í litlum pott- um og eru mjög vinsælar í Hol- landi sem stofublóm. Hollend- ingarnir geta ræktað um 240 þúsund blóm í einu í Reykholti. „Við erum mjög ánægð á Ís- landi og starfsemin gengur vel hjá okkur. Ísland er frábært land fyrir þessa ræktun enda gengi hún aldr- ei heima í Hollandi, þar er alltof mikill hiti og ræktunaraðstæður allt öðruvísi. Okkur hefur verið tekið vel hér á landi og við ætlum okkur að halda áfram á sömu braut í ræktuninni,,, sagði Astrid Kooij, starfsmaður stöðvarinnar . Faðir hennar, Hans Kooij, er fram- kvæmdastjóri og eigandi fyrirtæk- isins í Hollandi, sem sér um rækt- unina í Reykholti. Hann kemur annað slagið til landsins og hjálpar til við starfsemina og er með fasta búsetu í Reykholti. MHH Hollenskt fyrirtæki haslar sér völl í Bláskógarbyggð Feðginin Astrid og Hans við pottablómin sem þau rækta á Íslandi og senda síðan með skipum frá Eimskip til Hol- lands. Þetta eru tveggja mánaða plöntur, sem komnar eru með nokkur ber en í lok ræktunartímabilsins þegar plönturnar eru sex mánaða eru þær alþaktar berjum og tilbúnar til að prýða heimili í Hollandi. Bændablaðs- mynd/MHH Fyrsta samþykkt- in um hundahald í Grímsnes- og Grafningshreppi Hundar verða örmerktir Samþykkt um hundahald í Grímsnes- og Grafnings- hreppi ásamt gjaldskrá var nýlega samþykkt. Slík sam- þykkt hefur ekki áður verið í gildi í hreppnum. Hún gerir ráð fyrir að hundar verði ör- merktir og að eigendur verði ábyrgir fyrir því tjóni sem hundar þeirra kunna að valda. Þá kemur fram í sam- þykktinni að hundar mega ekki vera lausir á almanna- færi og að eig- endum ber að sjá til þess að hundar raski ekki ró íbúa sveitarfé- lagsins. Gunnar Þorgeirsson oddviti í Grímsnes- og Grafningshreppi segir að um sé að ræða örmerki líkt og tíðkast hefur að merkja hross með og að eigendur fá slíka þjónustu hjá dýralæknum. "Merkingar eru æ meira að fær- ast yfir á þennan máta," segir Gunnar. "Við höfum ekki haft neinar reglur um hundahald í sveitar- félaginu áður, en það þýðir að við höfum ekki heimild til að handsama hunda, séu þeir á ferli þar sem þeir ekki eiga að vera," segir Gunnar, en skortur á þeirri heimild hafi fyrst og fremst orðið til þess að sam- þykktin var gerð nú. "Við verð- um að hafa einhver úrræði ef til þess kemur að handsama þarf hund, slík mál hafa enn ekki komið upp en við viljum byrgja brunninn, gera þetta áður en eitthvað kemur upp á." Skólahald í hreppnum hefur verið fært frá Ljósafossi að Borgarsvæðinu og eitthvað hef- ur verið kvartað yfir lausum hundum í námunda við skól- ann. Þá nefndi Gunnar að í ein- staka sumarhúsahverfum sé hundahald alfarið bannað og í sumum tilvikum leyft að upp- fylltum ströngum reglum. "Menn eru að vakna dálítið upp við það að Reykjavíkurhundar eru farnir að smala fé fyrir bændur hér í hreppnum og það er ekki alltaf mikil kátína með þá aðstoð," segir Gunnar.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.