Bændablaðið - 27.06.2006, Side 43

Bændablaðið - 27.06.2006, Side 43
43Þriðjudagur 27. júní 2006 Lyftigeta 1150 - 1600kg Matvöruverslunum í Danmörku hefur fækkað um fimmtung á sl. 10 árum. Á hinn bóginn hefur orðið 16% aukning á hillurými í matvöruverslunum á sama tíma. Þróunin er færri en stærri versl- anir, segir Klaus Jörgen- sen, hagfræð- ingur hjá Land- brugsraadet. Neytandinn á lengri leið til kaupmannsins á horninu en áður. Hins vegar hefur fjölgað lágvöru- verslunum í eigu verslanakeðju í íbúðahverfum, sem vegur á móti fækkun litlu hverfisverslananna. „Það virðist svo sem að bylgja lágvöruverslananna hafi stöðvað þróunina í fjölgun stórmarkaða,“ segir Klaus Jörgensen. Þrátt fyrir meira en 450 nýjar lágvöruversl- anir hefur matvöruverslunum í Danmörku fækkað úr 3.982 í 3.260 frá árinu 1995. Í öðrum löndum Evrópu hefur þó breyting í rekstri matvöruversl- ana verið enn meiri. Þeim hefur þannig fækkað um 24% á sama tíma í „gömlu“ ESB-löndunum 15. Matvöruverslunum fækkar í Danmörku Meirihluti Danska þingsins, Folketinget, vill aðbannaður verði innflutningur á salmónellusmit-uðu kjöti. Salmónellu hefur fast að því verið útrýmt í dönsku kjöti en Matvælaeftirlitið fann árið 2004 sal- mónellu í öllum sendingum af kalkúnakjöti frá Ítalíu. Sýkillinn fannst einnig í 76% af öllum sendingum af kjúklingakjöti frá Póllandi og í 33% af svínakjöti frá Þýskalandi. “ Það er fráleitt að við látum það yfir okkur ganga að smitað innflutt kjöt sé í dönskum verslunum á sama tíma og við verjum himinháum fjárhæðum í það að berjast gegn salmónellu í dönsku kjöti“ , segir talsmaður Sósíalíska þjóðarflokksins á Folketinget, Kristen Touborg. Danska þingið vill banna innflutning á salmónellusmituðu kjöti Verð kr. 957.000 m/vsk Burðargeta 14 tonn Stærð palls = 2,50x9,0m H. Hauksson ehf. Suðurlandsbraut 48 Sími: 588-1130. Fax. 588-1131. FLATVAGNAR 2500 2040

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.