Bændablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 4
4 Þriðjudagur 27. júní 2006
Undirritaður hefur verið nýr
samningur um Landbúnaðar-
vefinn sem er sameiginlegt vef-
svæði fimm stofnana á sviði
landbúnaðar: Bændasamtaka
Íslands, Landbúnaðarháskóla
Íslands, Landgræðslu ríkisins,
Lífeyrissjóðs bænda og Land-
búnaðarstofnunar. Það er fyrir-
tækið Eskill ehf. sem tekur að
sér hugbúnaðargerð, hönnun og
ráðgjöf vegna vefsvæðisins.
Svæðið hefur verið til í nokkur
ár en nú eru fyrirhugaðar ýmsar
breytingar á útliti þess og einnig
innihaldi. Hvað Bændasamtökin
varðar verður annars vegar hin
hefðbundna heimasíða bondi.is
þar sem eru upplýsingar um sam-
tök bænda, uppbyggingu þeirra og
þá þjónustu sem þau veita. Hins
vegar verður bbl.is sem verður
fréttasíða á vegum Bændablaðsins.
Hún verður uppfærð jöfnum hönd-
um og á að verða lifandi fréttaveita
með áherslu á fréttir úr landbúnaði
og af landsbyggðinni.
Hjónabandið heitir ágætt
,,band“ sem á rætur í Fljótshlíð-
inni. Hjónabandið skipa tvenn
hjón, sem sendu frá sér disk á
dögunum. Diskurinn einkennist
af frumsömdum lögum og text-
um eftir meðlimi sveitarinnar.
Textarnir koma úr daglega líf-
inu og má segja að þeir séu
svona svolítið sveitalegir eða
sem kallað er ,,country“ upp á
enska tungu. Þarna má finna
notarleg brekkusöngslög og
rokkaða slagara.
Hjónabandið skipa hjónakorn-
in Jón Ólafsson og Ingibjörg Sig-
urðardóttir, sem reka veitingastað-
inn Kaffi Langbrók, og hjónin
Auður Halldórsdóttir, sem er
kennari í Hvolsskóla og Jens Sig-
urðsson sem er kjötiðnaðarmaður
hjá Sláturfélagi Suðurlands og
tónlistarkennari. Auður og Jens
búa á Hvolsvelli en Jón og Ingi-
björg á Kirkjulæk. Jón vinnur við
smíðar og grjóthleðslu en Ingi-
björg stendur vaktina á Kaffi
Langbrók.
Hjónabandið sá dagsins ljós
fyrir áratug í Fljótshlíð þegar
hjónin hófu að spila á jólatrés-
skemtunum og ættarmótum svo
dæmi séu tekin. Eftir að Ingibjörg
og Jón hættu hefðbundnum bú-
skap og byggðu kaffihús í stað
fjóss færðist spilamennskan inn í
Kaffi Langbrók.
,,Fljótlega fóru að verða til lög
og textar hjá þessum spilaklúbb,
enda frjósemi ágæt til hugar og
handa. Við heimsóttum bónda
nokkurn, Tryggva Sveinbjörnsson
Heiði Ásahrepp, sem þá nýlega
hafði gerst ,,búleysingi“ eins og
við, en hafði fengið sér upptöku-
tæki og tölvu til stúdíónotkunar.
Hann tók upp þessi 12 lög sem eru
á diskinum, eitt lag fyrir hvern
mánuð ársins. Lag aprílmánaðar
er t.d. ,,Sumardagurinn fyrsti“ en
lag maímánaðar er að sjálfsgöðu
,,Verkalagið“ . Fyrir ágúst er lagið
,,Töðugjöld“ og jólalagið er
,,Jólafjör,“ “ sagði Ingibjörg.
Hægt er að panta diskinn í síma
863 4662, eða með því að senda
tölvupóst á netfangið lang-
brok@isl.is og með því að mæta á
Kaffi Langbrók. Fyrir áhugasama
um músík og kaffidrykkju þá er
þess að geta að kaffihúsið er í
landi Kirkjulækjar í Fljótshlíð -
u.þ.b. 10 km austur frá Hvolsvelli.
Bandið mun aðallega spila á Kaffi
Langbrók í sumar en stefnan er að
fara í stuttar tónleikaferðir sem
verða auglýstir síðar.
Hjónabandið sendir frá sér disk
Eitt lag fyrir hvern mánuð ársins!
Hjónabandið kynnti diskinn sinn á Grensásdeild fyrir skömmu. F.v. Jón Ólafsson, Auður Halldórsdóttir,
Ingibjörg Sigurðardóttir og Jens Sigurðsson. /Bbl. Motiv-Media Jón Svavarsson.
Auður Halldórsdóttir með
geisladiskinn í inn-
saumuðum vasa og bók
með málbandi þannig að
hægt er að mæla með
þessum disk ...
Landbúnaður
á krossgötum
Þættir á Rás 1
um landbúnað
Karl Eskil Pálsson fréttamaður á
Ríkisútvarpinu er umsjónarmað-
ur þriggja þátta á Rás 1 um land-
búnað. Yfirskrift þáttanna er
,,Landbúnaður á krossgötum“
Fyrsti þátturinn var sendur út
síðasta laugardag, 24. júní. Í
þættinum var rætt við Harald
Benediktsson formann Bænda-
samtaka Íslands , Andra Teitsson
sem hyggur á stór-
fellda sauðfjár-
rækt í Húnaþingi
vestra og Brynjar
Skúlason verkefn-
isstjóra Norður-
landsskóga.
Haraldur Bene-
diktsson sagðist í
þættinum hafa trú á
því að bændum í sauðfjárrækt og
mjólkurframleiðslu fækki umtals-
vert á næstu árum, þeir verði hins
vegar umsvifameiri.
Karl Eskil segir í viðtali við
Bændablaðið að í næstu þáttum
verði vonandi komið sem víðast við
í landbúnaði, þó sé ekki ætlunin að
gera greininni tæmandi skil. Til
þess þurfi meira en þrjá þætti. Hann
segir greinilegt að yfirskriftin
,,Landbúnaður á krossgötum“ sé
réttnefni, greinilegt sé að miklar
hræringar séu í íslenskum landbún-
aði þessi misserin. Sem dæmi megi
nefna að líklegt sé að landbúnaður
eflist á einhverjum landssvæðum,
en dragist að sama skapi saman
annars staðar.
Næsti þáttur verður laugardag-
inn 1. júlí og þriðji og síðasti 8. júlí.
Þeir eru endurteknir á mánudögum.
Á myndinni má sjá Hafstein Guðmundsson og Guðjón Helga Þorvaldsson
handsala samninginn en Guðjón er vefstjóri Landbúnaðarvefsins og Haf-
steinn tengiliður Eskils ehf. Að baki þeim standa Jón Baldur Lorange
sviðsstjóri tölvumála hjá Bændasamtökum Íslands og Þröstur Haralds-
son blaðamaður sem mun hafa daglega umsjón með fréttasíðunni bbl.is
sem fer í loftið þegar líður á sumarið.
Nýr landbúnaðar-
vefur í mótun
Ljóst er að umtalsvert afurða-
tjón blasir þegar við hjá bænd-
um í Fljótum eftir vorið, sem er
það versta í áratugi. Á flestum
bæjum gekk hefðbundinn sauð-
burður bærilega, en áhlaupið
sem gerði um 20. maí setti al-
varlegt strik í reikninginn og
hafa menn verið að glíma við
afleiðingar þess. Í áhlaupinu
gerði um eins metra djúpan
snjó um stærstan hluta sveitar-
innar og í kjölfarið kom rúm
vika þar sem ekki var hægt að
láta út fé. Þá voru lömb víða
orðin 3-5 vikna gömul og fór að
bera á selenskorti. Ekki bætti
úr skák að snemma í júní var
allt selen uppselt í lyfjabúðum
og liðu nokkrar vikur þar til
það varð aftur fáanlegt. Þá hef-
ur verið mikið um júgurbólgu í
fé sem stafar að hluta til að
lömbin hafa gengið hart að
ánum og sár hafa myndast á
spenum. Einnig hefur mikið úr-
felli komið illa við féð samfara
takmörkuðum gróðri.
Jón Númason býr á Þrastastöð-
um í Austur-Fljótum ásamt fjöl-
skyldu sinni. Hann sagði í samtali
að sauðburðurinn hefði í raun
gengið vel en eftir að farið var að
láta kindur út hefði farið að bera á
efnavöntun í lömbum og einnig
svartri skitu sem í sumum tilfell-
um dró þau til dauða. Jón sinnir
minkaveiðum og er því talsvert á
ferðinni meðfram ám og lækjum
ísveitinni og sagðist vera búinn að
finna hræ bæði af ám og lömbum.
Einnig vissi hann til fé hefði lent í
skurðum og drukknað en skurðir
standa víða hálffullir af vatni og
skapa þannig stórhættu fyrir féð.
Jón sagðist vita til þess að sveit-
ungar sínir hefðu verið að missa
fullorðnar kindur þannig að tals-
vert væri um móðurlaus lömb í
haganum. Þetta myndi eflaust
segja til sín í haust. Það væri líka
ljóst að það kæmi alger stöðnum í
þau lömb sem væru með skitu svo
dögunum skipti og þó svo að þau
næðu sér væri ljóst að þar töpuð-
ust mörg kjötkíló þegar kæmi að
innleggi í haust. ÖÞ:
Verulegt tjón á búfé
vegna tíðarfarsins í vor
Algeng sjón á sauðfjárbúum í Fljótum á þessu vori,tugir lamba að éta
með mæðrum sínum úr jötunni. mynd ÖÞ: