Bændablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 42

Bændablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 42
42 Þriðjudagur 27. júní 2006 Landbúnaðarráðuneytið ákvað með útgáfu reglugerðar nr. 289/2005 og með síðari breytingum nr. 972/2005 að allt búfé skuli merkt og skráð. Ætti öllum bændum nú að vera kunnugt um þær skyld- ur sínar sem reglugerðin kveður á um. En ábyrgðin hvílir ekki eingöngu á herðum bænda. Bændasamtök Íslands hafa t.d. fengið það hlutverk að annast skráningu upplýsinga í umboði landbúnaðarráðuneytisins. Landbúnaðarstofnun fer með eftir- lit með framkvæmd ákvæða reglugerðarinnar og síðast en ekki síst eru það sláturleyfishafar landsins sem annast aflestur og skráningu merkj- anna við slátrun, ásamt upplýsingagjöf þar um til Bændasamtaka Ís- lands. Markmið reglugerðarinnar Flestir eru væntanlega sammála því að matvæli skuli vera örugg og holl. Ekki er hins vegar víst að allir séu sammála um hvernig staðið skuli að framleiðslu matvælanna svo þau megi verða örugg og holl. Lög og reglugerðir um aðbúnað dýra, framleiðslu matvæla, slátrun og vinnslu afurðanna svo fátt sé nefnt eru gefin út í þeim tilgangi að tryggja sem best þessi atriði. Gott væri ef þar með væri markmiðinu náð. Svo er víst ekki að margra áliti og er talið nauðsynlegt að hafa eft- irlit með öllum stigum framleiðslunnar. Í fyrstu grein reglugerðarinnar um merkingar búfjár er markmið hennar skilgreint. Það er að: „... tryggja rekjanleika búfjárafurða frá upprunahjörð og/eða fæðingu viðkomandi dýrs til sölu afurða og skapa með því grundvöll að markvissu matvæla- og búfjáreftirliti, eft- irliti með flutningum dýra, skráningu búfjársjúkdóma og meðhöndlun þeirra.“ Hér hefur verið ákveðið að rekjanleiki dýra og afurða skapi grund- völl að eftirliti og skráningum. Þetta er í raun meginkjarni reglugerðar um merkingu búfjár og skýrir þá stefnu sem landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út með setningu hennar. Hlutverk bænda Fyrst og fremst snýst hlutverk bænda um að: 1. Merkja búfé sitt samkvæmt reglugerðinni. Með búfé er átt við hross, nautgripi, svín, sauðfé, geitfé og alifugla. 2. Merkja með merkjum sem hlotið hafa viðurkenningu Land- búnaðarstofnunar. 3. Skrá upplýsingar um öll dýr hjarðar sinnar í sérstaka hjarð- bók sem er annað hvort gagnagrunnur eða skýrsluform sem Bænda- samtök Íslands láta í té. Í 7. grein reglugerðarinnar eru þau atriði talin upp sem þarf að skrá í þessu samhengi. 4. Tilkynna til skráningaraðila (Bændasamtaka Íslands) um at- riði er varða búfé á þeirra ábyrgð, en þau eru skilgreind í viðauka I í reglugerðinni. Mikilvægt er í þessu samhengi að merki í ásetningsdýr eru ekki endurnýtanleg. Jafnframt er bent á að óheimilt er að endurnýta lamba- /kiðmerki nema með leyfi Landbúnaðarstofnunar. Ákveðið hefur verið að heimilt sé að endurnýta lamba-/kiðmerki með eftirfarandi skilyrð- um: 1. Merki séu þrifin í viðkomandi sláturhúsi 2. Merki séu sótthreinsuð í viðkomandi sláturhúsi 3. Héraðs- eða eftirlitsdýralæknir í viðkomandi sláturhúsi við- urkennir framkvæmd þrifa og sótthreinsana. Samkvæmt þessu er það í raun samningsatriði á milli bónda og slát- urleyfishafa hvort þrif og sótthreinsun á lamba-/kiðmerkjum geti farið fram í sláturhúsi. Sjái sláturleyfishafi sér ekki fært að framkvæma þrif- in og sótthreinsunina er ekki heimilt að afhenda merkin eða endurnýta þau. Hlutverk sláturleyfishafa Fyrst og fremst snýst hlutverk sláturhúsanna um að: 1. Tilkynna til skráningaraðila um slátrun, númer dýra, fjölda og uppruna þeirra. 2. Tryggja að rekjanleiki haldist áfram með því að láta viðkom- andi númer gripa eða hópa fylgja vinnslu afurðanna eftir því sem við á. Hlutverk Bændasamtaka Íslands Fyrst og fremst snýst hlutverk BÍ (skráningaraðili samkvæmt reglu- gerð) um að: 1. Annast skráningu upplýsinga í umboði landbúnaðarráðu- neytisins samkvæmt ákvæðum reglugerðarinnar. 2. Útbúa gagnagrunn eða skýrsluform fyrir skráningu upplýs- inga. 3. Útbúa aðgang að tölvuskráningarkerfi eftir því sem við á hverju sinni. Hlutverk Landbúnaðarstofnunar Fyrst og fremst snýst hlutverk Landbúnaðarstofnunar um að: 1. Framfylgja stefnu landbúnaðarráðuneytisins sem fram kemur í reglugerðinni. 2. Fara með eftirlit með skráningu upplýsinga í kerfið f.h. land- búnaðarráðuneytisins. 3. Fara með eftirlit með framkvæmd ákvæða reglugerðarinnar. 4. Viðurkenna merki sem ætluð eru til merkingar búfjár. 5. Viðurkenna skráningarform (eyðublöð, tölvuskrár, gagna- grunn). 6. Meta sönnur á uppruna dýra ef þau koma ómerkt til slátrunar sbr. 10. grein reglugerðarinnar. 7. Mæla fyrir um aðgerðir, úrræði (tilmæli). Hlutverk landbúnaðarráðuneytis Ráðuneytið hefur ákveðið að allt búfé skuli merkt. Samkvæmt reglugerðinni hefur það yfirumsjón með rekstri skráningarkerfisins en felur Bændasamtökum Íslands eða öðrum til þess bærum aðilum, að hafa umsjón með skráningu upplýsinga í tölvuskráningarkerfi skv. ákvæðum reglugerðarinnar. Áherslur Landbúnaðarstofnunar vegna eftirlits Mikilvægt er að allir sem að merkingu búfjár koma, framkvæmda- sem eftirlitsaðilar, vinni saman að markmiðum reglugerðarinnar, þ.e. að tryggja rekjanleika búfjárafurða frá upprunahjörð til sölu afurða. Ljóst er einnig að árangur næst ekki á einni nóttu. Hér er um um- fangsmiklar breytingar að ræða hvað merkingar búfjár varðar og þurfa allir sinn aðlögunartíma. Margt hefur verið undirbúið, sumt er tilbúið, annað ekki. Eftirlitsaðilinn verður því að gera ráð fyrir ákveðnum sveigjanleika á meðan breytingar eiga sér stað, enda tekur það tíma fyrir sumar búfjártegundir að fæðast inn í kerfið. Megináhersla Landbúnaðarstofnunar á næstu misserum verður að: 1. Hvetja alla bændur til þess að merkja búfé sitt samkvæmt reglugerðinni. 2. Stuðla að sem bestri samvinnu sláturleyfishafa, Bændasam- takanna og Landbúnaðarstofnunar svo ná megi markmiðum reglugerð- arinnar sem fyrst. 3. Beita sér sérstaklega þar sem búfé er ómerkt og gera aðilum grein fyrir afleiðingum þess ef ákvæðum reglugerðarinnar er ekki fylgt. Að ofantöldu má m.a. stuðla með eftirlitsferðum dýralækna á bú, góðri samvinnu við búfjáreftirlitsmenn, sláturleyfishafa, BÍ og síðast en ekki síst bændur. Reglugerðin hefur tekið gildi fyrir allar búfjártegundir og ætti allt búfé nú að vera merkt samkvæmt henni. Margir bændur hafa merkt búfé sitt á réttan hátt og er það vel. Þeir bændur sem ekki hafa kynnt sér reglugerðina og hvernig standa eigi að merkingu búfjár eru hér með hvattir til þess, svo forðast megi vandræði á seinni stigum, svo sem við sölu eða slátrun. Rétt er einnig að benda á að reglugerðin bannar flutning á ómerktu búfé. Sömuleiðis bannar hún vinnslu og sölu á búfé eftir slátrun í þeim tilvikum þegar búfé er ómerkt. Ljóst er því að ef vel á að ganga, þarf samstillt átak allra svo forðast megi vandræði vegna ómerktra gripa. Þeir bændur sem merkja búfé sitt á réttan hátt og senda til slátrunar þurfa ekki að hafa sérstakar áhyggjur af því ef t.d. eitt og eitt lamb er án merkis í haust vegna þess að það tapaðist úr eyra. Verra er ef hópur lamba kemur ekki merktur til slátrunar samkvæmt reglugerðinni. Við slíku verður að bregðast af hálfu Landbúnaðarstofnunar. Á söluaðila merkja hefur ekki verið minnst. Mjög mikilvægt er að þeir sinni hlutverki sínu vel og skrái sölu merkjanna í gagnagrunn Bændasamtakanna. Ef þetta er ekki gert hefur það talsverð óþægindi í för með sér sem helst koma niður á bændum. Konráð Konráðsson Landbúnaðarstofnun Frá Landbúnaðarstofnun Merkingar búfjár og hlutverkaskipti Kísilgúrsjóður Rúmar 3 milljónir í hlutafé og styrki Kísilgúrsjóður var stofnaður árið 2000 þegar farið var að hilla undir endalokin á starf- semi Kísiliðjunnar við Mývatn. Honum er ætlað að „kosta und- irbúning aðgerða til þess að efla atvinnulíf í þeim sveitarfélögum sem nú eiga verulegra hags- muna að gæta vegna starfsemi“ verksmiðjunnar eins og segir í reglugerð um sjóðinn. Hefur síð- an verið úthlutað úr sjóðnum tvisvar á ári. Í reglugerðinni segir einnig að sjóðurinn skuli einbeita sér að „nýsköpun í atvinnulífi, einkum á sviði þekkingariðnaðar eða ann- arrar framsækinnar atvinnustarf- semi sem er til þess fallin að auka fjölbreytni atvinnulífsins“. Í því skyni er sjóðnum bæði heimilt að eiga minnihluta í sprotafyrirtækj- um og veita styrki til „tækniað- stoðar, rannsókna, vöruþróunar og markaðsathugana“. Við úthlutun sem lauk um miðjan júní hafði stjórn til ráðstöf- unar rúmlega þrjár milljónir króna. Stjórnin samþykkti að kaupa hlutafé í dúfueldi fyrir 500.000 krónur og styrkja 12 verkefni með samtals 2.650.000 krónum. Ekki er til siðs að tíunda upphæðir einstakra styrkja en verkefnin sem hlutu styrk að þessu sinni eru eftirtalin: Aðgengi að Samgönguminjasafni Áhrif jarðganga undir Vaðlaheiði Svartárkot - menning, náttúra, menntun Goðafossmarkaður - þróun og kynning Jóga stúdíó við Mývatn - þróun Sjálfbært samfélag Töfrar Mývatns - kynningarverk- efni Snow Magic vegna sýningar í Frakklandi Heilsubúð á Húsavík Matur og menning - sérstaða svæðis Þingeyskur sagnagarður Þingeyskur sögugrunnur - korta- gerð/margmiðlun Stjórn Kísilgúrsjóðs er skipuð fulltrúum Húsavíkurbæjar, Skútu- staðahrepps og þriggja ráðuneyta: samgöngu-, umhverfis- og iðnað- arráðuneytis. Stjórn sjóðsins skipa Hreiðar Karlsson formaður, Birkir Fanndal, Helgi Kristjánsson, Margrét Hólm Valsdóttir og Soffía Gísladóttir. Athugið! Vegna sumarlokunar Bændasamtaka Íslands þurfa allar tilkynningar um breytingar á reikningsnúmerum og handhöfum beingreiðslna sem taka eiga gildi 1. ágúst n.k. að berast skrifstofunni í síðasta lagi 10. júlí n.k.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.