Bændablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 27.06.2006, Blaðsíða 34
34 Þriðjudagur 27. júní 2006 Umfangsmikill útflutningur á perlumöl úr Austurfjörum við Hornafjörð til Bandaríkjanna er að hefjast. Að sögn landeigand- ans, Ómars Antonssonar á Horni, er í ár áformað að flytja alls um 10 þúsund tonn og eru fyrstu sendingarnar þegar farn- ar vestur um haf. Vonast Ómar til að þessi útflutningur sé aðeins upphafið að því sem koma skal. Það var um mitt síðastliðið ár sem fyrstu þreifingar vegna malar- sölu til Bandaríkjanna hófust. Væntanlegir kaupendur komu þá hingað til lands og könnuðu að- stæður sem leiddi til þess að 2.000 tonna prufusending fór vestur á vormánuðum. Önnur ámóta stór sending fór nú um miðjan júní og þriðja sendingin er áformuð í ágúst næstkomandi Steypuefni í sundlaugar „Kaupendurnir eru í Arisona- fylki í Bandaríkjunum, sem er eitt af miðríkjunum svonefndu. Þeir kaupa jarðefni víðsvegar frá, en mölin héðan hentar vel til dæmis sem steypuefni í sundlaugar og þannig verður hún notuð. Mölin er hörpuð niður í eins til fimm milli- metra stærð samkvæmt óskum kaupenda, en þetta er einn fárra staða í heiminum þar sem fá má svartar perlur nákvæmlega í þess- ari stærð,“ segir Ómar, sem vegna útflutningsins hefur reist tuttugu metra bryggju á Austurfjörum. Skip sem sigla inn í Horna- fjarðarós eiga að geta lagst þar að og tekið möl um borð. Hann segir að vegna útflutningsins og þeirra hagsmuna sem undir séu, hafi þetta verkefni verið mjög aðkall- andi. Hafnarframkvæmdir séu strangt til tekið á hendi ríkisvalds- ins, en sjálfur hafi hann talið að málið væri aðkallandi og að engan tíma mætti missa. Ef bíða hefði átt eftir fjárframlögum frá ríkinu og atbeina opinberra aðila hefði verk- ið efalítið tekið mörg ár. Gull og grjót Ómar segir Austurfjörur nánast ótæmandi námu; brimið kvarni og skoli fíngerðri möl á land. Í tímans rás hafi gríðarlegt magn jarðefna verið tekið í fjörunum án þess að sjái högg á vatni og svo verði efa- lítið áfram. „Í perlunum eru steinefni eins og blágrýti og gabbró; afar slit- sterk efni sem gætu til dæmis hent- að vel í íslenska vegklæðningu. Þá höfum við að undanförnu selt mik- ið af möl til Reyðarfjarðar, sem þar er notuð sem klæðningarefni í þær miklu framkvæmdir sem þar eru nú yfirstandandi vegna byggingar álvers,“ segir Ómar sem minnir á að fyrir margt löngu hafi Einar heitinn Eiríksson bóndi á Hvalnesi gert sér miklar vonir um útflutning á gulli og grjóti úr námum í landar- eign sinni. Þær hafi á sinni tíð þótt fjarstæða, en séu nú að verða að veruleika, vonum seinna en ætlað var. Hafnargerðin er einkaframtak Ómars Antonssonar. Hann segir tímann dýrmætan og ekki hefði verið hægt að bíða eftir því að ríkið sinnti þessari aðkallandi framkvæmd. Dyngjan mikla. Perlumölin sem flutt er til Bandaríkjanna er perluð niður í eins til fimm millimetra stærð, í samræmi við óskir kaupenda. Reisir bryggju á Austurfjörum í Hornafjarðarósi vegna útflutnings á möl: Hornfirskar perlur í bandarískar sundlaugar! Niðurrif ónýtra útihúsa í Danmörku kostar 7,5 milljarða dkr. Það mun kosta 7,5 milljarða dkr. og taka 15-20 ár að fjarlægja ónýt útihús í Danmörku. Bændur einir ráða ekki við það verkefni. Þetta er stærsta hreinsunarátak í sögu Danmerkur, ef reiknað er með að jafn mikið sé rifið og byggt er af nýjum útihúsum árlega, segir Kræn Ole Birkkjær, arkitekt hjá Ráðgjafarmiðstöð dansks landbúnaðar, bygginga- og tæknideild. Skýrsla vinnuhóps um málið mun birtast fljótlega. Viðtal við hann birtist í LandbrugsAvisen í byrjun mánaðarins. Vinnuhópurinn áætlar að í Danmörku séu útihús alls um 100 milljón fermetrar að stærð og af því séu um 40 milljón fermetrar í notkun. Af hinum hlutanum eru 25 milljón fermetrar í svo lélegu ástandi að farga megi þeim nú þegar, enda hafi þær byggingar ekki varðveislugildi. Fjárþörfin, 7,5 milljarðar dkr., er áætluð til að fjarlægja þann hluta. Lagt er til að ríkið hlaupi undir bagga með skattaívilnun og rýmri afskriftar-reglum. Þá er lagt til að sveitarfélögin leggi verkefninu lið, sem og tryggingarfélög, lána- stofnanir og Samtök byggingar- iðnaðarins í Danmörku. Þá leggur nefndin til að arki- tektar fái sérstaka fræðslu um það hvernig staðið skuli að endur- skipulagningu útihúsa á jörðum út frá þeim rekstri sem þar fer fram og stöðu jarðarinnar í umhverfinu. Að lokum verði haft í huga að niðurrifið fari þannig fram að nýti- legt byggingaefni fari ekki for- görðum. Krókhálsi 3 569-1900 hvítlist LEÐURVÖRUVERSLUN Allt til nýsmíði, viðhalds og viðgerða á reiðtygjum.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.