Bændablaðið - 27.06.2006, Side 21

Bændablaðið - 27.06.2006, Side 21
21Þriðjudagur 27. júní 2006 Veiðikortið ehf. hefur samið um að 10 veiðivötn bætist við þau 23 vötn sem áður var búið að semja um að korthöfum stæði til boða að veiða í á þessu ári. Þetta kemur fram í frétt sem send var Bændablaðinu. Vötnin eru á tveimur vatnasvæðum og tekur þessi breyting gildi frá og með 1. júlí. Annars vegar er um að ræða vatnasvæði Selár á Skagaheiði en hins vegar veiðisvæði á Mel- rakkasléttu sem eru á forræði jarðarinnar Skinnalóns. Undir vatnasvæði Selár heyra Ölversvatn, Fossvatn, Grunna- tjörn, Stífluvatn, Andavatn, Hey- vötn og Selvatn auk lækja sem renna á milli vatnanna. Veiði- kortshafa veiða endurgjaldslaust á vatnasvæðinu frá 1. júlí nk. Þetta vatnasvæði er eitt af vinsælustu svæðunum á Skagaheiði. Á Melrakkasléttu er Veiðikortið búið að semja um þrjú vatnasvæði fyrir korthafa Veiðikortsins. Þau vötn sem um ræðir eru Hraunhafnarvatn, Æðarvatn og Arnarvatn í landi Skinnalóns. Það skal tekið sérstaklega fram að þessi vatnasvæði sem bætast við eru hrein og klár viðbót og fela ekki í sér neinn kostnaðarauka fyr- ir þá sem eru handhafar Veiði- kortsins 2006. Veiðikortið er nýr og mjög hag- kvæmur valkostur sem hentar jafnt vönum veiðimönnum sem og fjöl- skyldufólki á ferð um landi sem vill skjótast í veiði með skömmum fyrirvara. Með Veiðikortið í vasan- um hefur verið hægt að veiða ótak- markað í 23 veiðivötnum víðsveg- ar á landinu sem og tjalda endur- gjaldslaust við mörg þeirra. Frá og með 1. júlí nk. er fjöldi vatnanna innan vébanda Veiðikortsins 2006 orðinn vel á fjórða tuginn. Veiðikortið 2006 er til sölu á bensínstöðvum ESSO um land allt, hjá veiðifélögum, veiðivöruversl- unum, Fosshótelunum og á heima- síðunni www.veidikortid.is. Áður var búið að semja um eftirtalin 23 vatnasvæði fyrir árið 2006 1. Baulárvallavatn á Snæfellsnesi 2. Haukadalsvatn í Haukadal í landi Vatns 3. Hítarvatn á Mýrum 4. Hraunsfjarðarvatn á Snæfellsnesi 5. Hraunsfjörð á Snæfellsnesi 6. Kringluvatn í Suður-Þingeyjarsýslu 7. Langavatn í Borgarbyggð 8. Langavatn á Skaga 9. Ljósavatn í Suður-Þingeyjarsýslu 10. Sandvatn í Suður-Þingeyjarsýslu í landi Hamars. 11. Skorradalsvatn í Skorradal í landi Indriðastaða 12. Sléttuhlíðarvatn í Skagafirði í landi Hrauns 13. Syðradalsvatn við Bolungarvík 14. Sænautavatn á Jökuldalsheiði 15. Torfdalsvatn á Skaga (10 daga hámark) 16. Urriðavatn í nágrenni Egilsstaða 17. Úlfljótsvatn í landi Efri-Brúar 18. Vatnsdalsvatn í Vatnsfirði 19. Vífilsstaðavatn í Garðabæ 20. Víkurflóð við Kirkjubæjarklaustur 21. Þingvallavatn fyrir landi þjóðgarðsins 22. Þórisstaðavatn í Svínadal 23. Þveit í Hornafirði fyrir landi Stórulágar. Veiðikortið kostar aðeins 5.000 krónur og gildir út árið 2006. Allar nánari upplýsingar um Veiðikortið má finna á heimasíðunni www.veidikortid.is Veiðikortið býður á fjórða tug veiðivatna Leiðrétting Sæðingakostnaður í Handbók bænda Í Handbók bænda 2006, bls. 204 og 205, er yfirlit yfir sæðingakostn- að hjá búnaðarsamböndum. Í töflum um kostnað á Vestfjörðum og á Kjalarnesi er rangt farið með gjaldtöku. Hið rétta er að verð á þessum stöðum er hið sama og hjá Búnaðarsamtökum Vesturlands, eins og greint er frá á heimasíðu sam- takanna, buvest.is Síðasta Bændablaðið fyrir sumarleyfi kemur út 11. júlí Auglýsendur vinsamlegast hafið samband við Eirík Helgason í síma 563-0303 í síðasta lagi þriðjudaginn 4. júlí

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.