Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 26

Bændablaðið - 27.06.2006, Qupperneq 26
26 Þriðjudagur 27. júní 2006 „Opinberar álögur á landflutn- inga eru svakalega miklar og skekkja samkeppnisstöðu fyrir- tækja úti á landi stórkostlega. Nærri lætur að önnur hver króna af flutningsgjöldum séu skattar í einhverri mynd og því ætti ríkið að eiga auðvelt með að lækka þessa gjaldheimtu eitt- hvað. Hins vegar virðist viljinn til þess ekki mikill hjá ríkis- stjórnarflokkunum„, segir Kristján L. Möller þingmaður Samfylkingar. Á nýliðnum þingvetri spurði Kristján iðnaðar- og viðskiptaráð- herra hvað liði aðgerðum til að jafna flutningskostnað, samanber loforð ríkisstjórnarflokkanna fyrir síðustu alþingiskosningar. Að því er fram kom í svari þáverandi ráð- herra, Valgerðar Sverrisdóttur, hef- ur starfshópur fulltrúa samgöngu-, iðnaðar- og fjármálaráðuneyta far- ið yfir þessi mál, ásamt Byggð- stofnun. Iðnaðarrráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu á grundvelli tillaga Byggðastofnunar að væn- legasta leiðin til þess að jafna að- stöðu fyrirtækja væri að endur- greiða þeim úr ríkissjóði hluta kostnaðar við flutninga. Á hinn bóginn hefur ekki náðst samstaða um framgang málsins milli áður- nefndra ráðuneyta og á hinum pól- ítíska vettvangi. Þar stendur hníf- urinn í kúnni. Tillögurnar eru ríkisleyndarmál „Þetta mál er allt hið einkenni- legasta. Fyrir það fyrsta hef ég ekki fengið að sjá tillögur ráðu- neytanna og Byggðastofnunar líkt og þær séu ríkisleyndarmál. Frómt frá sagt virðast ríkisstjórnarflokk- arnir afar áhugalausir um þetta mál og þessi tregða til að láta mér sjálf- sagðar upplýsingar í té bendir til að tillögur ráðuneytanna séu harla lítilfjörlegar„, segir Kristján, sem hefur reifað þetta mál á Alþingi reglulega frá því hann tók þar sæti árið 1999. Kristján bendir á að fyrir nær þremur árum hafi stjórnvöld tekið ákvörðun um að hækka þungaskatt um 8% til að undirbúa frekari upp- töku olíugjalds. Sú hækkun hafi farið þráðbeint út í verðlagið. Síð- asta sumar hafi olíugjaldið svo komið í stað þungaskatts - sem sé þó áfram lagður á stærstu gerðir flutningabíla. „Þetta hefur haft í för með sér töluvert mikla hækkun flutningsgjalda og þar við bætist virðisaukaskattur„, segir Kristján - og bætir við að þau varnaðarorð sín að upptaka olíugjalds myndu íþyngja atvinnurekstri á lands- byggðinni hafi komið á daginn. Mikilvægar dæmisögur „Nú í aðdraganda sveitarstjórn- arkosninga ræddi ég við fram- kvæmdastjóra stórs fyrirtækis á Akureyri sem sagði mér að árlegur flutningskostnaður þar á bæ væri 150 milljónir króna. Þar af má ætla að ríkið tæki helming. Þetta eru afar sláandi tölur og að sama skapi er sárt að stjórnvöld lækki ekki skatta á flutninga. Slíkt myndi gjörbreyta rekstrarskilyrðum fyrir- tækja úti á landi, sem mörg hver eru að sligast undan þessum kostn- aði„, segir Kristján, sem fær reglu- lega tölvubréf eða símhringingar frá landsbyggðarfólki sem vekur máls á því hve há flutningsgjöld það þarf að greiða. Þannig keypti fjölskylda vestur á fjörðum borð- stofuborð og tíu stóla í Reykjavík fyrir 90 þúsund - en þegar hús- gögnin voru komin vestur höfðu 32 þúsund krónur bæst við í flutn- ingskostnað. Flutningur á smá- pakka frá Akureyri til Vopnafjarðar kostnaði 10 þúsund krónur. „Ég vil gjarnan fá fleiri svona dæmisögur. Mikilvægt er að klappa steininn sem ég trúi að leiði til þess að skattar á flutninga verði lækkaðar„, segir þingmaðurinn. Dýrir flutningar vestur Fyrir nokkrum dögum var greint frá niðurstöðum athugunar á flutningskostnaði sem unnin var fyrir sjávarútvegsklasa Vestfjarða. Markverðasta niðurstaðan þar er sú að fjórðungi dýrara er að flytja eitt tonn til Ísafjarðar en Horna- fjarðar frá Reykjavík, þrátt fyrir að vegalengdin sé sú sama. Kemur fram að þegar olíugjald og kíló- metragjald var lagt á í stað þunga- skatts í fyrra lögðust opinber gjöld þyngra á flutninga til Vestfjarða en annarra landshluta. Ástæðan er sú að olíunotkun er meiri á leiðinni vestur, enda yfir fjallvegi að fara. „Ég kannast við þetta dæmi. Vestfirðingar greiða hæstu flutn- ingsgjöld sem þekkjast á landinu, enda olíueyðsla bíla á þessari leið mikil þar sem um háa fjallvegi er að fara. Oft er líka vindasamt á leiðinni, þannig að ríkissjóður hagnast talsvert á mótvindi ef þannig blæs. Það leggst allt á eitt„, segir Kristján L. Möller. Kristján L. Möller alþingismaður vill lækkun flutnings- gjalda sem hann segir íþyngja landsbyggðinni: Ríkissjóður hagnast á mótvindi ef þannig blæs „Fjórðungi dýrara er að flytja eitt tonn til Ísafjarðar en Hornafjarðar frá Reykjavík, þrátt fyr- ir að vegalengdin sé sú sama.„ Nú í sumar eiga 25 fjölskyldur kost á því að dveljast á bændabýl- um á Mið-Jótlandi og kynnast dýr- unum á bæjunum. Það er Holster- bro Turistbureau og samtökin Åbent Landbrug Midt & Vest sem standa fyrir þessu tilboði. Nýlega spurði amma Markús litla hvaðan mjólkin kæmi? Úr búðinni, svaraði hann. Afi og amma komust þá að þeirri niður- stöðu að tími væri til kominn að fara með barnið út í sveit, til að sjá alvöru kú. Þetta er algeng saga og sama gildir um kunnugleika barna á öðr- um búgreinum. Því ákvað ferða- skrifstofan að gera eitthvað í mál- inu. Í heimsóknunum verður lögð áhersla á velferð búfjárins og kynntur uppruni þeirra búvara sem við kaupum úti í búð. Vakin verður athygli á lífrænum framleiðsluað- ferðum og því að útgjöld margra heimila til matarkaupa fara lækk- andi, sem hljómar sem mótsögn. Þetta verða eins dags heim- sóknir á hverjum bæ þar sem fylgst verður með daglegum verk- um á bænum. Síðan verður farið á fleiri bæi en einn daginn verður farið á byggðasafnið í Hjerl Hede. Þar gefst tækifæri til að reyna sig við að kemba ull, strokka rjóma og þreskja kornhálm, eins og gert var í gamla daga. Vikunni lýkur svo með því að fjölskyldan, sem hefur allan tím- ann búið í húsvagni, fer á landbún- aðarsýningu sem fer fram um þetta leyti í Herning. Þar er boðið upp á fjölbreytta dagskrá fyrir fjölskyld- una, auk þess sem þar eru endur- nýjuð kynni við fjölskyldurnar sem höfðu verið heimsóttar fyrr í vikunni. Á sýningunni eru auk annars, matvæladeild, blómadeild, deild fyrir náttúruskoðun, umhverfis- og orkudeild, hestasýning og að sjálf- sögðu meira en 2000 dýr af öllum gerðum. Sumarfrí með dýr- unum á bóndabæjum í Danmörku Nú eru 237 hjúkrunarrými í Suðurkjördæmi. Þetta kemur fram í svari heilbrigðisráðherra við spurningu Guðjóns Hjörleifssonar en hann fýsti að vita hversu mörg hjúkrunarrými væru í notkun í Suð- urkjördæmi og hversu mörg hjúkrunarrými væri áætlað aðtaka í notkun í kjördæminu á næstu fjórum árum? Í svarinu kemur fram að í Reykjanesbæ sé áætlað að byggja hjúkrun- arheimili með 30 hjúkrunarrýmum og mun það fela í sér aukningu um 10 hjúkrunarrými. Þá er í byggingu á Selfossi hjúkrunarheimili með um það bil 40 hjúkrunarrýmum, en 26 verða lögð niður á Ljósheimum, þannig að fjölgunin nemur um 12 rýmum. Samtals er því áætlað að fjölga hjúkrunarrýmum í kjördæminu um 24 á næstu árum. Hornafjörður 26 Klaustur 17 Vík 12 Heilbrigðisstofnunin í Vestmannaeyjum 16 Hraunbúðir, Vestmannaeyjum 30 Kirkjuhvoll, Hvolsvelli 11 Lundur, Hellu 25 Blesastaðir, Skeiðum 3 Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Ljósheimar 26 Kumbaravogur, Stokkseyri 42 Sólvellir, Eyrarbakka 3 Ás, Hveragerði 26 237 hjúkrunarrými eru í Suðurkjördæmi

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.