Bændablaðið - 27.06.2006, Síða 28

Bændablaðið - 27.06.2006, Síða 28
28 Þriðjudagur 27. júní 2006 Er mjaltakerfið þitt að valda júgurbólgu? Hugsanlega er það raunin en oftar er það mjaltamann- inum að kenna því sé honum kunnugt um veikleika mjaltakerfisins getur hann í flestum tilvikum mjólkað án þess að valda kúnni heilsu- tjóni (júgurheilsu) en það krefst mikillar yfirlegu og varkárni svo betra er að hafa gott lag á mjaltakerfinu. Helstu og mestu áhrifa- valdar þess að mjaltakerfi or- saki júgur- og spenamein eru sogskiptar, spenagúmmí, af- kastaleysi mjaltakerfis t.d. vegna ónógs halla rörmjaltakerfa að mjólkurhúsi og röng soghæð t.d óhreinn sogjafni eða hreinlega bilaður. Í þessum pistli verður eingöngu fjallað í stórum dráttum um sogskiptinn, en um aðra þætti síðar. Sogskiptar nýrri kerfa, s.k. elektrón- ískir, eru yfirhöfuð afar gangvissir og mælast sárasjaldan í ólagi við eftirlit. Hins vegar eru gömlu vökva- og loft- skiptarnir jafn varasamir og hinir eru ör- uggir. Þar þarf stöðugt eftirlit og eftirtekt mjaltamanns- ins og að reglulega (lágmark einu sinni á ári) séu þeir línuritaðir og leiðréttir af þjónustumanni. Mjaltamaðurinn verður að hlusta eftir takti, gang og slagtíma og verði hann var við breytingu má prófa að þvo þá úr volgu sápuvatni og þurrka vel á eftir. Verði gagnsemi þeirra ekki skárri við þá aðgerð á umsvifalaust að taka þá úr umferð og senda í viðgerð. Með því að hlusta reglu- lega á sogskiptinn getur glöggur maður heyrt hvort ástand hans er að breytast og hvort hann slær jafnt í báðar áttir og með því að telja slög hans í tíu sek. hvort hraði hans er réttur. Þeir eiga að slá u.þ.b.10 tvöföld slög á þeim tíma eða 60 tvöföld slög á mínútu. Líka má telja hvert slag og verður talan þá 20 og 120. Einnig heyrist auðveldlega hvort slögin eru eins á báðar hliðar, en dauft slag í aðra áttina en kröftugt í hina bendir til að skiptirinn mjólki ekki vel á aðra hliðina vanalega vegna þess að loftrásin þeim megin er að stíflast af óhreinindum og hvíldarfasinn er þar með orðinn handahófskenndur og veld- ur það of miklu álagi á spenann þar sem hvíldarstaða milli fasa er afar mikilvæg. Auðvitað er ástæða til að hlusta eftir takti elektrónískra sogskipta og þá á eins og hina að mæla og línurita minnst einu sinni á ári. Sogskiptirinn er heili mjaltanna og eins og mann- leg heilabilun getur orsakað slæma fylgikvilla (afsak- ið samlíkinguna) þá er bilaður sogskiptir eitt það al- varlegasta og áhrifamesta þegar sett er samasem- merki milli júgurheilbrigðis kúa og vélmjalta. Heyrt í sveitinni Kristján Gunnarsson, mjólkur- eftirlitsmaður, Norðurmjólk Ný bók frá Land- græðslunni um innlendar víðitegundir Landgræðsla ríkisins hefur gef- ið út bókina „Innlendar víðiteg- undir - líffræði og notkunarmögu- leikar í landgræslu“ í ritstjórn Kristínar Svavarsdóttur, plöntu- vistfræðings hjá stofnuninni. Bók- in fjallar um rannsóknarverkefni sem hafði það meginmarkmið að auðvelda markvissa notkun inn- lendra víðitegunda í landgræðslu og var mest áhersla lögð á gulvíði og loðvíði. Að verkefninu stóðu Landgræðsla ríkisins, Rannsókn- arstöð Skógræktar ríkisins á Mó- gilsá, Landbúnaðarháskóli Íslands og Náttúrufræðistofnun Íslands en verkefnið var m.a. styrkt af Tæknisjóði Rannís og Framleiðni- sjóði landbúnaðarins. Bókin sam- anstendur af níu sjálfstæðum köfl- um eftir níu höfunda og eru helstu efnisflokkar: Blómgun og fræ- framleiðsla, meðhöndlun og geymsla víðifræs og rekla, land- nám víðis og víðisáningar, aðferð- ir við ræktun víðis og erfðabreyti- leiki. Í þessari bók má finna mik- inn fróðleik um gulvíði og loðvíði, sem þeir er vinna við landgræðslu eða aðra ræktun, hvort sem er að starfi eða áhugamáli, ættu að hafa gagn af. Bókin er til sölu hjá Land- græðslu ríkisins og kostar kr. 1.000. Pöntunarsími er 488 3000. Á Fjallalækjarseli í Þistilfirði búa þau Gunnar Kjartan Þorleifsson bóndi og kær- astan hans Ina Leverköhne. Þau eru með fjárbúskap en einnig myndarlegan geitabú- skap, en geitur eru einstök sjón á þessu svæði. Geiturnar voru enn í húsi í enda maí þegar blaðamaður Bændablaðsins renndi í hlað, en hafa vafalaust hlakkað til að kom- ast til fjalla. Gunnar hefur alla tíð búið á Fjallalækjar- seli, enda fæddur þar og uppalinn. Foreldrar hans voru með búskap á bænum en hann hefur nú séð alfarið um búskapinn áratugum saman. Ina er komin í búskapinn með honum en hún flutti að alkomin í janúar síðastliðnum. Í meira en áratug hefur hún búið tímabundið í Reykja- vík og unnið víða um land en hún er frá Þýska- landi. Hún er dýralæknir og Ph.D. (doktor) í dýrameinafræði. Þau eru alsæl saman í bú- skapnum en Ina ætlar að sjá hvað tíminn leiðir í ljós með starf tengt námi sínu. Í vor eru um 320 ær sem bera á bænum en fjárhúsin taka um 400 ær. Það er heldur færra en í fyrra því í haust fóru 20 ær í fyrstu stór- hríðinni sem gerði í lok september. Sauðburð- urinn gekk vel en snjór og kuldi gerðu það að verkum að engar kindur var hægt að setja út fyrr en í lok maí. Bærinn liggur hátt upp til landsins, um 100 m yfir sjávarmáli, og eru heiðarlöndin skammt undan. Þegar Gunnar sleppir út af túnunum eru ærnar komnar svo gott sem í heiðarhagana. Því getur það verið slæmt þegar snjóa gerir seint á vorin. Árið 1995 gerði mikla snjóhríð í júní og hann þá bú- inn að sleppa um 200 ám upp í heiði, þar missti hann um 60 kindur og segir þetta hafa verið al- veg hroðalegt áfall. Mest af fénu er hvítt en Gunnar segist hafa klikkað laglega á flekkótta hrútinum þetta árið. Lánaði hann til undaneldis og fékk hann ekki til baka fyrr en seint á fengitíðinni. Þá setti hann hrútinn á nokkrar ær en fékk eingöngu hvítt. „Það hefur líklega allur liturinn verið bú- inn,“ segir hann og hlær dátt. Má ekki endurnýja í geitastofninum Svæðið frá Jökulsá á Fjöllum og að Vopna- firði er riðulaust svæði, en þar hefur aldrei greinst riða. Af þeim sökum eru sauðfjárveiki- varnir sterkar og engir flutningar leyfðir inn á svæðið. Fullorðnar geitur á bænum eru þrettán tals- ins, þar af einn hafur. Þar sem þetta er eini geitahópurinn á svæðinu getur engin endurnýj- un átt sér stað. Gunnar segir það vera orðið erf- itt að hafa svona mikla skyldleikaræktun og bíður eftir leyfi fyrir því að fá sæði fyrir geit- urnar til endurnýjunar á stofninum. Í vetur fæddust þrettán kiðlingar en einungis 8 lifðu. Gunnar segist alltaf láta einhverja kiðlinga á hverju ári. Á sínum tíma fóru nokkrar geitur frá honum í húsdýragarðinn í Reykjavík og lif- ir kyn þeirra enn þar. Stofninn er upphaflega frá Arnarstöðum, þaðan kom hann í Hagaland sem er bær skammt frá Fjallalækjarseli og endaði hjá for- eldrunum Gunnars árið 1957. Geitunum er sleppt á fjall á vorin. Þær hafa alltaf sama van- ann, eru heima á túnunum í þrjá daga og fara svo til fjalls. Á haustin þarf síðan að smala þeim sér, ekki gengur að smala þeim með kindunum því geiturnar eru svo fljótar í förum. „Það þarf að vera með góðan hest til að fylgja þeim eftir.“ Þau segjast heldur vilja fjölga geit- unum heldur en hitt en það verði þá að fá end- urnýjun. Gunnar telur að þessi stofn haldist ekki nema í um 10-15 ár ef þessi skyldleika- ræktun heldur áfram. Ina segist una sér vel í sveitinni en það sé allt öðru vísi en lífið hennar áður fyrr í Þýska- landi. Þau eru virkir félagar í gönguhópnum í Þistilfirði og grípa hvert tækifæri sem gefst til félagsstarfa, hvort sem það er bingó, tónleikar eða dansleikir. Gunnar gefur lítið út á söngstarf og segist vera svo vita laglaus að hann syngi bara í dráttavélinni þegar enginn heyrir til. Þau skötuhjúin segjast bjartsýn á gott sumar, enda engin ástæða til annars. /GBJ Geitabúskapur upp til fjalla Gunnar Kjartan Þorleifsson bóndi og kærastan hans Ina Leverköhne. Í héraðinu Champagne í Frakk- landi óttast vínbændur um sinn hag. Á síðasta ári var urðunar- svæði fyrir geislavirkan úrgang lokað þar sem sprungur höfðu fundist í varnarveggjum kring- um svæðið. Eftir að viðgerðum er lokið hefur svæðið aftur verið opnað fyrir móttöku úrgangsins. Vínbændur óttast að hugsanleg- ur leki á geislavirku efni frá svæð- inu geti mengað hinar víðfrægu vínekrur héraðsins, segir á vefsíð- unni foodproductiondaily.com Losunarsvæðið í Soulaine í Champagne héraðinu er eitt stærsta geymslusvæði fyrir geisla- virkan úrgang í heimi. Áhyggju- fullir vínbændur í Rhone héraði hafa áður komið því til leiðar að urðunarstað fyrir geislavirkan úr- gang í héraði þeirra var lokað. Bændur í Champagne treysta því að ríkisstjórnin loki einnig urðun- arsvæðum hjá þeim. Efrideild franska þingsins mun á næstunni afgreiða ný lög um geymslu og meðferð á geislavirk- um úrgangi. Þessi úrgangur er mikið vandamál í Frakklandi þar sem 75% af raforku í landinu kem- ur frá kjarnorkuverum. Franskir vínbændur óttast urð- unarsvæði fyrir geislavirk efni Nýtt afbrigði af kúariðu í Evrópu? Á alþjóðlegri ráðstefnu um búfjársjúkdóma nýlega lögðu ítalskir og franskir vísindamenn fram gögn um að fram væri komið nýtt af- brigði af kúariðu. Frá þessu er sagt í blaðinu Farmers Weekly. Kúar- iða nefnist á fagmáli Bovine Spangiform Encephalopathy en nýja af- brigðið Transmissible Spongiform Encephalopathy. Nýja afbrigðið hefur fundist í nokkrum kúm, 5-15 vetra gömlum. Það greinist frá eldra afbrigðinu á því að meðgöngutími þess er lengri og það kemur í ljós í eldri kúm en hitt. Að öðru leyti líkist það mjög því afbrigði sem þekkt var fyrir. Bændablaðið kemur næst út 11. júlí, en þá fara starfsmenn blaðsins í sumarleyfi.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.