Bændablaðið - 29.05.2007, Page 6

Bændablaðið - 29.05.2007, Page 6
Bændablaðið | Þriðjudagur 29. maí 20076 Úr sorpvanda í stórhagnað Stundum er það með hreinum ólíkindum hversu hratt hlutir geta breyst. Það er ekki liðið ár síðan sorpmál Eyfirðinga sátu pikkföst í ágreiningshnút sem virtist óleysanlegur. Akureyringar voru búnir að ákveða að hætta að taka við sorpi úr eyfirskum byggðum til urðunar á Glerárdal. Þá ákvörðun skilja allir sem hafa ekið inn til Akureyrar í suðvest- anátt og þarf engar kröfur frá Evrópusambandinu til. Þegar þessi ákvörðun lá fyrir var farið að svipast um eftir öðrum stað og fannst brátt. Allflest sveitarfélög í firðinum voru sammála um að best væri að urða sorpið í Hörgárdal. Sá hæng- ur var þó á þessari hugmynd að íbúum Hörgárdals leist ekki sem best á að fá yfir sig allan úrgang Eyfirðinga. Þeir neituðu staðfast- lega og þar við sat árum saman. Eftir áralangt þóf misstu Akureyringar þolinmæðina og sögðu sig úr sorplögum við aðra Eyfirðinga. Ekki virtust þeir samt hafa neina hugmynd um það hvernig ætti að leysa sorpmál bæjarbúa heldur var tilgangurinn með úrsögninni sennilega sá einn að leggja þrýsting á hin sveit- arfélögin um að koma sér saman um nýjan stað sem allir gátu sætt sig við. Það gerðist þó ekki. Þá kviknar allt í einu hug- mynd í kolli framkvæmdastjóra Norðlenska, Sigmundar Ófeigs- sonar, þótt honum kæmi málið þannig séð ekkert við. Hann hafði alla vega ekki verið kosinn til að hafa skoðun á því. Vissulega er hann í forsvari fyrir fyrirtæki sem þarf að losna við töluvert magn af úrgangi á ári hverju og á í sívaxandi vandræðum með það eins og gengur og gerist í matvælaiðnaði nútímans. Hann var á ferð í Englandi og rakst þar á moltugerðartæki í notkun sem honum fundust vera kjörin til að leysa mál, ef ekki Eyfirðinga allra þá í það minnsta Norðlenska og jafnvel Samherja líka. Sigmundur flýtti sér heim og safnaði liði í kringum þessa hug- mynd. Hún er nú það vel á veg komin að Morgunblaðið gat um helgina greint frá stórfenglegum áformum Eyfirðinga sem ekki bara leysa vanda hinnar hefðbundnu sorphirðu heldur sýnast ætla að verða eigendum sínum allvæn féþúfa. Það er sem sé í uppsigl- ingu stórfyrirtæki í Eyjafirði sem ætlar að starfrækja í það minnsta tvö sorpeyðingarver. Annars vegar moltugerð sem breytir lífrænum úrgangi þéttbýlisbúa og iðjuvera í jarðveg. Hins vegar lífmassaverk- smiðju sem tekur við búfjáráburði og breytir honum í gas sem nota má til að knýja 3.200 bíla eða framleiða 10 gígavattsstundir af raforku. Þarna er semsé búið að snúa illvígum vandræðahnút upp í arðvænlegt fyrirtæki sem eflaust á eftir að skaffa þónokkrum fjölda fólks atvinnu. Og ekki nóg með það heldur leggur það fram drjúg- an skerf til þess að Íslendingar geti staðið við skuldbindingar sínar gagnvart Kýótó-bókuninni. Með því að breyta öllum búfjár- áburðinum í vistvæna orku væri fyrirtækið að skapa ígildi 70.000 tonna losunarkvóta. Fyrir bændur er þetta mikil himnasending. Nú geta þeir fjölg- að kúm sínum að vild og aukið mjólkurframleiðsluna án þess að hafa nokkrar áhyggjur af gróð- urhúsaáhrifunum. Kýrna mega ropa og freta eins og þær lystir, bændur sofa vært fyrir því. Og það þarf ekki einu sinni að spyrja Hörgdæli… –ÞH Málgagn bænda og landsbyggðar LEIÐARINN LOKAORÐIN Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjölmargra annarra er tengjast landbúnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Árgangurinn kostar kr. 5.100 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.300. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Þröstur Haraldsson, ábm. th@bondi.is Blaðamenn: Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurdór Sigurdórsson ss@bondi.is Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Upplag: sjá forsíðu – Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins að mestu leyti. ISSN 1025-5621 Ný ríkisstjórn settist í ráðherrastólana í lið- inni viku, samstjórn Sjálfstæðisflokks og Sam- fylkingar. Bændasamtökin óska henni farsæld- ar í störfum og lýsa yfir vilja sínum til þess að eiga við hana gott samstarf. Sömuleiðis bjóða samtökin nýjan landbúnaðarráðherra velkom- inn til starfa. Það hefur ávallt verið stefna sam- takanna að starfa með stjórnvöldum á hverj- um tíma að því verkefni að efla og bæta hag landbúnaðarins og styrkja byggðina í sveitum landsins. Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar um mik- ilvægi landbúnaðar er því fagnaðarefni og Bændasamtök Íslands lýsa yfir eindregnum vilja sínum til þess að starfa í þeim anda. Þetta er í samræmi við þann vilja sem kom fram hjá frambjóðendum allra flokka á framboðsfund- um um landbúnaðarmál sem Bændasamtökin efndu til í kosningabaráttunni. Í stefnuyfirlýsingu hinnar nýju ríkisstjórn- ar segir að nú skuli endurskoða „landbún- aðarkerfið“. Bændasamtökin taka þessari yfirlýsingu ekki sem neikvæðum skilaboðum heldur að hún sýni vilja stjórnarinnar til þess að halda áfram að þróa og bæta rekstrarum- hverfi búgreinanna. Stjórnkerfi landbúnaðar- ins hefur tekið miklum breytingum á liðnum árum. Það kerfi sem nú er við lýði er töluvert frábrugðið því sem var fyrir áratug enda hafa orðið breytingar á því í takt við breyttan tíð- aranda og aðstæður. Sú þróun þarf að halda áfram enda breytingar orðnar aðkallandi á ýmsum sviðum. Þar má nefna sem dæmi eftir- lit með landbúnaðarframleiðslunni sem hefur verið að aukast á síðustu árum. Þar þarf að samræma starfshætti og fleira. Það þarf einn- ig að huga að þeim möguleikum sem uppi eru til að auka fjölbreytni í framboði og vinnslu matvæla. Framleiðslustýring mjólkur kallar á athygli og þannig mætti áfram telja. Það er fagnaðarefni að nýr landbúnaðar- ráðherra hefur lýst því yfir að ekki skuli ganga lengra í því að breyta rekstrarum- hverfi búvöruframleiðslunnar en væntanleg- ir alþjóðasamningar gætu gefið tilefni til. Bændasamtökin telja sjálfgefið að samn- ingamenn Íslands fylgi áfram að málum þeim ríkjahóp sem Íslands hefur hingað til fylgt, það er þeim ríkjum sem flytja inn mikinn hluta matvæla sinna og þurfa jafnframt að gæta að hagsmunum viðkvæms landbúnaðar. Ríkisstjórnin hefur þegar hafið samein- ingu ráðuneyta landbúnaðar og sjávarútvegs og boðar frekari breytingar á ýmsum verk- efnum sem snúa að bændum. Þar ber fyrst að nefna landbúnaðarháskólana sem eru nýstofnaðir. Nú virðist standa til að færa þá undir menntamálaráðuneytið en þeir hafa hingað til heyrt undir landbúnaðarráðuneytið. Við þá breytingu þarf að hafa hugfast að mannafli búnaðarskólanna beggja er bæði landbúnaðarráðuneytinu og bændum mjög mikilvægur. Landbúnaðarháskóli Íslands er til dæmis að stórum hluta reistur á grunni Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og er því brýnt að atvinnuvegurinn hafi hér eftir sem hingað til góðan aðgang að og samráð um þær rannsóknir sem þar eru stundaðar. Önnur verkefni sem rætt hefur verið um að flytja eru Landgræðsla og Skógrækt. Hvað þessar stofnanir varðar er rétt að vara við því að tengsl landbúnaðar við þær séu slit- in. Landgræðsla og skógrækt eru búgreinar og mörg verkefni þessara stofnana unnin af bændum, oftar en ekki innan vébanda sér- stakra verkefna sem sérstök lög kveða á um. Fyrir því eru sterk rök að þeir þættir í starfsemi þessara stofnana, sem lúta að nýt- ingu auðlinda og eru unnir af bændum, heyri áfram undir fagráðuneyti bænda. Spurningin er hvort ekki væri nær að færa slík verkefni til búnaðarsambanda og leiðbeiningarstöðva þeirra. Um þessa ríkisstjórn má að öðru leyti segja að hún hefur styrk til breytinga. Hvort sá styrkur felur í sér ógnun við landsbyggðina eða opnar henni ný tækifæri verður reynslan að skera úr um. Það er hins vegar fagnaðar- efni að stjórnin leggur mikla áherslu á stöð- ugleika í efnahagslífinu því besta byggða- málið er að halda uppi góðu efnahagsástandi. Stjórnin hefur líka styrk til þess að bæta úr því mikla misræmi sem ríkir í búsetuskilyrðum á milli landsbyggðar og þéttbýlis, til dæmis hvað varðar samgöngur og fjarskipti. Vonandi beitir hún styrk sínum til þess að gera lands- byggðina samkeppnishæfa og búsetuvæna. Í því á hún stuðning bænda vísan. HB/–ÞH Ný og öflug ríkisstjórn sest að völdum Guðni Ágústsson kvaddur Fráfarandi landbúnaðarráðherra, Guðna Ágústssyni, var haldið kveðjusamsæti í boði Bændasamtaka Íslands sama daginn og hann lét af embætti. Þangað kom hann ásamt eiginkonu sinni, Margréti Hauksdóttur, og aðstoðarmanni sínum, Eysteini Jónssyni. Haraldur Benediktsson formaður BÍ ávarpaði Guðna og þakkaði honum gott samstarf og að sjálfsögðu svaraði Guðni fyrir sig með snjallri ræðu sem fjallaði að mestu um gildi íslensks landbúnaðar sem hann taldi hafi aukist nokkuð í ráðherratíð sinni. Ekki kvaðst hann eiga heiðurinn að því óskiptan heldur bæri að þakka það ýmsum, þar á meðal starfsfólki Bændasamtakanna. Á myndinn sem tekinn var í samsætinu sjást gestirnir ásamt nokkrum starfsmönnum og forystumönnum BÍ, talið frá vinstri: Hildur Trausta- dóttir, Eysteinn Jónsson, Haraldur Benediktsson, Guðni Ágústsson, Sigur- geir Þorgeirsson, Margrét Hauksdóttir, Jón Baldur Lorange og Erna Bjarna- dóttir. –ÞH/Ljósm. Sindri Þann 14. febrúar sl. var Landbún- aðarsafn Íslands formlega stofn- að og því skipuð stjórn. Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnað- arháskóla Íslands, er formaður stjórnar. Bjarni Guðmundsson, prófessor við LbhÍ, er fram- kvæmdastjóri eða ,,verkamað- ur stjórnarinnar“, eins og hann orðar það sjálfur, en hann hefur séð um Búvélasafnið á Hvanneyri frá upphafi. Bjarni sagði að stjórnin hefði komið saman til síns fyrsta fundar 16. maí sl. þar sem saman komu bæði aðalmenn og varamenn. Á þessum fundi var gengið form- lega frá stofnun Landbúnaðarsafns Íslands og fram fór ítarleg umræða um hlutverk þess og hvernig menn munu bera sig að til að byrja með. Margar góðar hugmyndir á lofti Margar góðar hugmyndir komu þarna fram og var Bjarna og Ágústi falið að vinna nánar úr þeim með það fyrir augum að búa til stefnu- skrá fyrir safnið. Hún yrði svo tekin til umræðu á næsta stjórnarfundi sem verður haldinn í byrjun júlí. Bjarni sagði að nokkuð hefði verið rætt um húsnæði fyrir safnið og hefðu menn þá beint sjónum að gamla Halldórs-fjósinu á Hvanneyri sem staðið hefur autt um tíma. Þar er um mjög stórt og gott húsnæði að ræða. Árið 2010 nefnt sem viðmiðunarár ,,Síðan hefur verið töluvert rætt um þann hluta safnsins sem yrði utan- húss og snýr að menningarminj- um, menningarlandslagi og að nýta annað umhverfi í þágu safnsins. Þá var rætt um mál sem varðar Bændasamtökin og er ein aðal- ástæða aðildar þeirra að safninu. Það er að um verði að ræða lifandi safn sem dragi fram stöðu landbúnaðar- ins eins og hún er núna. Umhverfið hér á Hvanneyri er hentugt til þeirra hluta,“ sagði Bjarni. Ekki hefur verið ákveðið hve- nær safnið verður opnað en Bjarni sagði að árið 2010 hefði verið nefnt sem viðmiðunarár. Hugsunin væri sú að þetta þróaðist hægt og síg- andi á grundvelli Búvélasafnsins á Hvanneyri sem á mjög ríkulegan safnkost sem þarf að hirða og ann- ast um. S.dór Landbúnaðarsafn Íslands Unnið að gerð stefnuskrár fyrir safnið

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.