Bændablaðið - 29.05.2007, Síða 18
Bændablaðið | Þriðjudagur 29. maí 200718
Hinn árlegi Skeifudagur Bænda-
skólans á Hólum var haldinn á
uppstigningardag. Þessi dagur er
Uppskeruhátíð nemenda á fyrsta
ári á hestfræði braut skólans þar
sem þeir sýna afrakstur af námi
vetrarins. Dagurinn er kennd-
ur við bikar sem Morgunblaðið
gaf upphaflega árið 1958 og er
eignagripur sem veittur er þeim
nemenda sem nær hæstu einkun
í þremur áföngum í reiðmennsku
yfir veturinn auk árangurs í
bóklegu námi.
Segja má að skeifudagurinn í ár
hafi verið dagur kvenþjóðarinnar
þær voru í miklum meirihluta af
28 nemendum á hestfræðibraut-
inni í ár og hirtu líka öll verðlaun
sem í boði voru. Þannig voru fimm
stúlkur í úrslitum í Gæðingafimi
sem var síðasta atriðið dagsins
sem boðið var uppá. Fjölmenni var
samankomið til að fylgjast með
nemendum við þetta tækifæri og
kunnu áhorfendur vel að meta það
sem boðið var uppá.
Morgunblaðsskeifuna hreppti
að þessu sinni Sonja Líndal Þóris-
dóttir frá Lækjamóti í Vestur-
Húnavatnssýslu. Hún var með
hryssuna Dagrós 8 vetra sem hún
og móðir hennar Elín Líndal eiga.
Sonja fékk einnig veglegan verð-
launabikar frá Hólaskóla til varð-
veislu og auk þess eignarverðlaun
en hún lenti í öðru sæti í keppn-
inni í gæðingafimi. Þessi geðþekka
stúlka var vel að þessum verðlaun-
um komin en varð svo sannarlegag
að hafa fyrir þeim því hin sænska
Anna Rebecka Wholert á Spegli frá
Ármóti og Bylgja Gauksdóttir úr
Garðabæ á hryssunni Hnotu veittu
henn gríðarlega harða keppni.
Bylgja hreppti fyrstu verðlaun
fyrir gæðingafimi þar sem hún
skaust upp fyrir Sonju í úrslitunum.
Bylgja hlaut einnig verðlaun Félags
tamningamanna sem veitt eru fyrir
reiðmennsku og ásetu á lokaprófi og
þar var einkunn hennar 10. Þá eru
ótalin eignarverðlaun sem tímaritið
Eiðfaxi veitir fyrir besta umhirðu
og fóðrun á hesti. Þarna eru það
nemendur og starfsmenn sem velja
þann sem verðlaunin hlýtur. Þarna
þótti Elín Hrönn Sigurðardóttir
frá Holtsmúla I í Landssveit eiga
verðlaunin skilið. Þetta var góður
dagur fyrir Hólafólk, nemendur
undantekningarlaust á góðum hross-
um sem sýndu ýmsar listir og ekki
spillti greinargóð kynning Þórarins
Eymundssonar reiðkennara á því
sem nemendur voru að sýna á vell-
inum. Eftir góðan dag í reiðhöll-
innivar svo öllum viðstöddum boðið
í veislukaffi heima á Hólum.
Texti og myndir: ÖÞ
Glæsilegur Skeifudagur nemenda Hólaskóla
Hólastelpurnar hirtu öll verðlaun sem í boði voru
Allir nemendur komu ríðandi inn á
völlinn í lokin áður en verðlaunaaf-
hending hófst.
Kvenþjóðin var sigursæl á Skeifu-
daginn. Hér eru verðlaunahafarnir
frá vinstri: Elín Hrönn, Sonja Líndal
og Bylgja Gauksdóttir.
Ánægðir reiðkennarar í lok vetrarstarfsins Mette Mennset, Þórarinnn
Eymundsson og Artemísa Bertus frá Hollandi.
Gestir fylltu áhorfendabekkina í gömlu reiðhöllinni á Skeifudaginn.
Elín Hrönn Sigurðardóttir frá Holtsmúla I hlaut Eiðfaxabikarinn fyrir um-
hirðu og fóðrun.
„Þetta er búinn að vera mjög
skemmtilegur vetur hérna á
Hólum. Námið gott og félags-
skapurinn líka og skemmti-
legur andi í bekknum. Svo var
pabbi hér líka í námi og það
var skemmtilegt því við erum
mjög náin og höfum verið að
vinna mikið í hestamennsku
saman. Aðstaðan fyrir hross
hér á Hólum er orðin mjög
góð. Hún breyttist heilmikið í
vetur með nýja hesthúsinu. Svo
var auðvitað mjög gaman að
vinna skeifuna. Þannig að ég er
mjög sátt eftir veturinn hér, ég
er búin að læra mikið og hann
endaði vel,“ sagði Sonja Líndal
Þórisdóttir þegar tíðindamaður
blaðsins náði tali af henni eftir
Skeifukeppnina á Hólum á dög-
unum.
Sonja sagðist vera búin að
þjálfa hryssuna sína, Dagrós frá
Stangarholti, í eitt og hálft ár. Hún
keppti á henni á landsmótinu síð-
asta sumar ásamt öðrum mótum.
Hún segir að það sé liður í að
þroskast með hrossinu og æfa sig
í að keppa.
Sonja er búin að vera í hesta-
mennsku frá barnsaldri, segist
hafa byrjað að keppa á mótum
sjö ára gömul. Hún tekur þó
skýrt fram að keppni sé ekki allt,
skemmtilegast af öllu er að þjálfa
góðan hest í lengri tíma, samskipt-
in við hestinn er aðalatriðið. Hún
hefur því verið á kafi í hrossum
alla tíð, enda reka foreldrar hennar
Elín R. Líndal og Þórir Ísólfsson
hrossaræktarbú á Lækjamóti í
Vestur-Húnavatnssýslu þar sem
hún er fædd og uppalin. Aðspurð
um hvað tæki við eftir dvölina á
Hólum sagðist Sonja verða heima
á Lækjamóti að þjálfa hross í
sumar og líklega keppa á ein-
hverjum mótum. Um hvort hún
kæmi aftur í Hóla í haust sagði
hún það ekki víst. Hún stefnir að
námi í dýralækningum og vonast
eftir að fá vist í dýralæknaskóla í
Danmörku. „Ef ég kemst ekki að
þar kem ég aftur hingað í Hóla en
stefnan er að verða hestadýralækn-
ir og þá tel ég að sé gott að hafa
góðan bakgrunn í reiðmennsku,“
sagði Sonja Líndal að lokum.
,,Stefni á hestadýralækningar”
segir skeifuhafinn Sonja Líndal Þórisdóttir
Sonja Líndal á Dagrós hlaðin verð-
launum í lok Skeifudagsins.
Lífið snýst um hross
segir Bylgja Gauks-
dóttir úr Garðabæ
„Ég held alveg örugglega áfram
næsta ár hér á Hólum. Þetta
er búinn að vera frábærlega
skemmtilegur vetur. Ég tel mig
vera búna að læra margt varð-
andi hestamennskuna og stefni
á að bæta mig enn frekar,“
sagði Bylgja Gauksdóttir eftir
Skeifukeppnina á Hólum á dög-
unum. Bylgja er úr Garðabæ
þar sem foreldrar hennar,
Gréta Boða og Sveinn Gaukur
Jónsson, eru með hesta og hafa
stunda ræktun og tamningar
um árabil. Bylgja hefur því
alist upp með hrossum og byrj-
aði að keppa níu ára gömul.
Hún hefur keppt á öllum lands-
mótum frá árinu 1994.
„Nú tekur bara við vinna í
sumar og svo verð ég eitthvað
að temja. Þetta var skemmtilegt
í dag þegar mér tókst að vinna
gæðingafimina. Við vorum tvær
nokkuð ofan við hinar eftir und-
ankeppnina, en ég í öðru sæti.
Það er alltaf gaman að sigra
jafnvel þótt þetta hafi ekki verið
stórmót og e.t.v. meira sett upp
fyrir áhorfendur. En mótttökurn-
ar við sýninguna voru mjög fínar.
Lífið hjá mér snýst að mestu um
hross,“ sagði þessi geðþekka hest-
astúlka sem tók ásetuverðlaunin
sem Félag tamningamanna veitir
með einkunnina tíu.
Bylgja Gauksdóttir úr Garðabæ á
Hnotu sem er í eigu móður hennar.