Bændablaðið - 29.05.2007, Side 21
Bændablaðið | Þriðjudagur 29. maí 200721
McCormick MC 135
Árg 2006
Með miklum aukabúnaði
Verð 5.700.000 + vsk
McCormick 105 C-Max
Árgerð 2006,
250t.
Verð 3.100.000 + vsk
Krone 10-16
Árg 1996
Snyrtileg vél
Verð 600.000 + vsk
Krone 1500 Vario Pack
Árgerð 2000
Verð 1.000.000 + vsk
Nýjar og notaðar
Vélar
McCormick CX 105
Árg. 2006
600 tímar
Verð 4.100.000 + vsk
McCormick CX 105
Árg 2005
1300 tímar
Verð: 3.900.000 + vsk.
McCormick F 90
“gangstéttavél”
Árg. 2004
620 tímar
Verð. 3.300.000 + vsk
Íslandspóstur gaf út frímerkjaröð
24. maí sl. þar sem landgræðsla
og jöklar eru myndefnin. Sama
dag komu út Evrópufrímerkin
sem að þessu sinni eru tileinkuð
aldarafmæli alþjóðlegu skáta-
hreyfingarinnar. Loks kemur út
frímerki í tilefni þess að hundrað
ár eru liðin frá því landgræðsla
hófst á Íslandi.
Evrópufrímerkin 2007
Þess er minnst að í ágúst næst-
komandi eru liðin 100 ár frá því að
breski hershöfðinginn Robert Baden
Powell safnaði saman nokkru-
m drengjum til útilegu á eyjunni
Brownsea á Ermarsundi. Alþjóðlega
skátahreyfingin miðar stofndag sinn
við þessa fyrstu útilegu. Formlegt
skátastarf hófst hér á landi árið
1912. Fyrsta skátafélagið fyrir stúlk-
ur var stofnað 7. júlí 1922. Íslensku
skátafélögin sameinuðust árið 1944
og var það fyrsta sameiginlega
skátabandalagið í heiminum.
Verðgildi frímerkjanna er 80 og
105 krónur. Hönnuður er Örn Smári
Gíslason, grafískur hönnuður.
Jöklar á Íslandi
Myndefnin í frímerkjaröðinni um
jökla á Íslandi eru sótt til fimm
hveljökla á Íslandi. Þetta eru
Vatnajökull, Breiðamerkurjökull,
Langjökull, Hofsjökull og Snæ-
fellsjökull. Verðgildi frímerkjanna
fimm er 5, 60, 80, 110 og 300
krónur. Hönnuður frímerkjanna er
Tryggvi T. Tryggvason.
100 ár frá stofnun
Landgræðslu ríkisins
Árið 1907 samþykkti Alþingi lög
um landgræðslu á vegum opinberra
aðila um „skógrækt og varnir gegn
uppblæstri lands“. Talið er að þetta
sé elsta stofnun í heiminum sem
starfað hefur óslitið til þessa dags
að verndun jarðvegs og gróðurs.
Helstu markmið landgræðslu-
starfsins eru, og hafa alltaf verið,
að stöðva hraðfara jarðvegsrof og
gróðureyðingu, endurheimta gróður
og jarðveg og stefna að sjálfbærri
landnýtingu. Verðgildi frímerkisins
er 60 krónur (bréf 20 g innanlands).
Hönnuður er Ólafur Pétursson.
Félag þjóðfræðinga hefur um
nokkurt árabil haft þann sið að
efna reglulega til landsbyggð-
arráðstefnu sem bæði er hald-
in á landsbyggðinni og fjallar
um málefni sem tengist lands-
byggðinni. Nú er komið að
níundu ráðstefnunni af þessu
tagi og verður hún haldin í hinu
nýja Heklusetri að Leirubakka
í Landsveit.
Yfirskrift ráðstefnunnar er
að þessu sinni Hálendi hugans
og í frétt frá ráðstefnuhöldurum
segir að fjallað verði um hálendi
Íslands, söguna, þjóðsögur, nýt-
ingu og samspil náttúruaflanna
og mannsins.
Ráðstefnan skiptist í nokkrar
málstofur. Ein heitir Handan hins
óþekkta þar sem fjallað verður
um óttann við hið óþekkta, þar
á meðal því sem gerist á afrétt-
um. Landamerki og landamörk
er önnur málstofa þar sem meðal
annars verður fjallað um heim-
ildanotkun dómstóla í þjóðlend-
umálum. Ferðasögur og sýn
útlendinga á hálendið verður
rætt í þriðju málstofunni og í
þeirri fjórðu verður sjónum beint
að könnun hálendisins og rætt
jöfnum höndum um leiðangra
Þorvalds Thoroddsen og þjálfun
tunglfara í íslenska hálendinu.
Að sjálfsögðu koma virkjanir og
iðnvæðing hálendisins við sögu
og í opnu málþingi verður rætt
um fagurfræði hálendisins, firr-
ingu í firnindum, hálendi hugans
og þá hugmynd að hálendið eigi
að vera sjálfstjórnarsvæði í eigu
almennings.
Bændasamtök Íslands eru
meðal styrktaraðila ráðstefnunnar
enda hlýtur hún að vekja forvitni
bænda og annarra íbúa lands-
byggðarinnar.
Ný frímerki
Jöklar, landgræðsla og
skátastarf á nýju merkjunum
Hálendi hugans
Þjóðfræðingar efna til 9. landsbyggðar-
ráðstefnunnar í Heklusetrinu