Bændablaðið - 29.05.2007, Side 24
Bændablaðið | Þriðjudagur 29. maí 200724
Sá frægi kynbótahestur, Orri frá
Þúfu, sem nú er 21 vetra, er enn
við hestaheilsu og sinnir skyldu-
störfum sem aldrei fyrr. Þegar
fulltrúi Bændablaðsins átti leið
hjá heimahögum Orra fyrr í
mánuðinum var Orri þegar
farinn að taka á móti hryssum
og ekki voru þær af verri end-
anum, en fyrstar mættu stólpa-
hryssurnar Lukka frá Víðidal
og Skör frá Eyrarbakka.
Orri hefur ákveðna sérstöðu
meðal íslenskra stóðhesta, en
hann þykir skara fram úr á þeim
vettvangi og undan honum eru nú
skráð tæplega þúsund hross, en
sú tala mun væntanlega hækka
enn frekar í sumar þegar árgangur
2007 kemur í heiminn.
Orri lítur mjög vel út, leik-
ur sér eins og ungfoli og honum
líður greinilega vel heima á
Þúfu þar sem ábúendurnir Guðni
Þór Guðmundsson og Anna B.
Indriðadóttir hafa umsjón með
honum. Margt þekktra kynbóta-
hrossa hefur komið undan Orra
og nú síðast sló sonur hans, Garri
frá Reykjavík, heimsmet í sýningu
í Danmörku um miðjan maí þar
sem hann fékk 8,35 fyrir sköpu-
lag, 9,05 fyrir kosti og 8,77 í aðal-
einkunn. Garri Orrason er því hæst
dæmdi íslenski stóðhestur í heimi
um þessar mundir. HGG
Orri léttur á sér, Skör og Lukka í baksýn. Myndir: HGG
Orri við hestaheilsu
Orri frá Þúfu ber árin 21 vel.
Stjórn FT heimsótti LbhÍ
Stjórn Félags tamningamanna heimsótti Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri á dögunum og kynnti sér þá starfsemi sem þar fer fram.
Mikill vöxtur hefur orðið í skólastarfinu á Hvanneyri og nú nýverið
kynnti skólinn nýtt nám til BS prófs í hestafræðum, í samvinnu við
Hólaskóla.
Á Hvanneyri tók Ágúst Sigurðsson, rektor, á móti FT fólki og kynnti
þeim starfsemi skólans og framtíðaráætlanir. Síðan var aðstaða til kennslu
í hestamennsku skoðuð, en skólinn hefur afnot af glæsilegri reiðhöll, hest-
húsi og vallaraðstöðu á Mið-Fossum. Sú mikla uppbygging hefur skilað
sér í mjög auknum áhuga á hestamennsku á svæðinu og kom fram í máli
Ágústar að reiðhöllin hefði valdið byltingu, t.d. í æskulýðsmálum hesta-
manna á svæðinu. Mikið hefur verið um námskeið tengd hestamennsku á
Mið-Fossum, en endurmenntunardeild LbhÍ býður upp á fjölbreytt nám-
skeið um ýmislegt er tengist hestamennsku og hrossarækt og hefur deildin
m.a. verið í samstarfi við Félag hrossabænda þar um.
Að skoðunarferð lokinni fundaði stjórn FT svo á Mið-Fossum og vilja
stjórnarmenn þakka LbhÍ og staðarhöldurum á Mið-Fossum góðar mót-
tökur og gestrisni. HGG
Hluti stjórnarmanna FT í reiðhöllinni á Mið-Fossum. F.v. Svanhvít Kristjáns-
dóttir, Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ, Guðmundur Arnarson, Bergur Jóns-
son, formaður FT, og Sigrún Ólafsdóttir. Ljósm.: HGG
Fundur um Vestfjarðaskýrsluna
svonefndu var haldinn á Café
Riis á Hólmavík á dögunum og
mættu fjölmargir til að kynna
sér og spyrjast fyrir um innihald
hennar. Skýrslan hefur hlotið
nokkra gagnrýni á Ströndum
og Strandamenn talið sig bera
skarðan hlut frá borði.
Meðal annars hefur verið bent
á að tillögur er varða rækjuiðnað
nýtist afar takmarkað fyrirtækinu
Hólmadrangi sem rekur stærsta
vinnustaðinn í byggðarlaginu.
Helstu tillögur sem snúa beint að
svæðinu eru annars vegar stofn-
un Þjóðtrúarstofu og hins vegar
stofnun Þróunarseturs á Hólmavík,
á sviði menntunar, rannsókna og
nýsköpunar.
Nefndin sem vann skýrsluna
svaraði fyrirspurnum heimamanna
á fundinum og hvatti til að tillög-
ur þær sem ekki náðu í gegn yrðu
unnar enn frekar til umfjöllunar
viðeigandi ráðuneyta, en nefndin
hefur áfram það hlutverk að fylgja
slíkum tillögum eftir. Stofnun
framhaldsdeildar er ein þeirra til-
lagna sem Strandamenn hafa horft
á og líklegt er að frekari vinna við
hana fari í gang innan tíðar. kse
Vestfjarðaskýrslan kynnt á Ströndum
Nefndin sem vann skýrsluna: Halldór Halldórsson bæjarstjóri á Ísafirði,
Guðrún Þorleifsdóttir í iðnaðarráðuneytinu, Halldór Árnason skrifstofu-
stjóri í forsætisráðuneytinu og Aðalsteinn Óskarsson framkvæmdastjóri
fjórðungssambands Vestfirðinga.
Fundargestir á Café Riis, fremst eru Finnur Ólafsson, Matthías Sævar
Lýðsson og Jón Hörður Elíasson.