Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 1

Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 1
12 Útskriftir nem- enda á Hólum og Hvanneyri 16 Keyptum jörðina til að vera þar 11. tölublað 2007 Þriðjudagur 12. júní Blað nr. 262 Upplag 16.500 8 Risaátak í ferða- þjónustu í ríki Vatnajökuls Nýtt líf hefur litið dagsins ljós, einmitt daginn sem sumarið kom loksins á Norðurlandi eftir eindæma kaldan og hráslagalegan maímánuð. Þetta folald á bænum Langhúsum í Fljótum fæddist svo sannarlega inní sumarið. Mynd ÖÞ Mjólk sem reykingavörn Sum matvæli fá vindlinginn til að bragðast verr og það geta þeir, sem vilja hætta að reykja, notað sér. Mjólk er efst á lista yfir reyk- ingafjandsamleg matvæli. Vís inda- menn við stofnunina The Duke Center for Nicotine and Smok ing Cessation Research í Banda ríkj- unum hafa fengið fólk til að neyta margs konar matvæla og reykja síðan á eftir. Í ljós kom að mjólk, ostur, ávextir og grænmeti gáfu vindling- unum verra bragð, en kaffi, te, áfengi og kókakóla bættu tóbaks- bragðið. Þessar niðurstöður ætti að vera unnt að nota til að setja saman and- reykingamatseðil eða til að búa til tyggigúmmí eða töflur, sem draga úr reykingaþörfinni. Rannsóknin var fjármögn- uð af National Institute on Drug Abuse, sem berst gegn hvers kyns mis notkun óhollra efna, og niður- stöðurnar eru birtar í aprílhefti tíma ritsins Nicotine and Tobacco Research. Splunkunýr heimur Handbók bænda 2007 er komin út og er á leið til áskrifenda. Í bókinni í ár kennir ýmissa grasa en auk hefðbundins uppflettiefnis er að finna nýtt efni sem gagnast lesendum. Þar má nefna minnispunkta fyrir umsjónarmenn stóðhestahólfa, upp- lýsingar um ræktun jarðarberja, túnslátt að hausti og sölu bújarða og meðferð söluhagnaðar. Nýlegur sauðfjársamningur er birtur í heild sinni í bókinni í ár, ásamt reglum um aksturs- og ferðakostnað dýralækna. Þá er kynning á nýja fyrirtækinu Matís ohf. sem sinnir rannsókna- og nýsköpunarstarfi í matvælaiðnaði auk þess sem fjallað er um verk- efnið Beint frá býli. Fast efni eins og dagatal, upplýsingar um girð- ingakostnað og listi yfir verktaka í landbúnaði er á sínum stað og fóð- urtöflur hafa verið uppfærðar, sumar hverjar sem verða notaðar í nýja fóðurmatskerfinu NorFor. Handbók bænda 2007 er 296 blaðsíður á lengd og í A5 broti. Ritstjórar eru Tjörvi Bjarnason og Matthías Eggertsson en prent- smiðjan Íslandsprent sá um prent- un. Þröstur Haraldsson setti bók- ina upp og teikningar eru eftir Þorstein Davíðsson. Bókin er seld í áskrift og lausasölu og kostar kr. 3.000 með vsk. Áskrifendur greiða ekki póstburðargjöld en í lausasölu greiðir móttakandi burðargjöldin. Hægt er að panta bókina með því að senda tölvupóst á tb@bondi.is eða hringja í síma 563-0300. Handbók bænda 2007 á leið til áskrifenda Sem kunnugt er fóru menn frá Samkeppniseftirlitinu í höfuð stöðv- ar Mjólkursamsölunnar (MS) að morgni 5. júní sl. Þeir höfðu með- ferðis úrskurð frá Héraðsdómi Reykjavíkur um heimild til hús- leitar. Í úrskurðinum kom fram að Samkeppniseftirlitinu er heim- il leit í húsakynnum Mjólk ur sam- sölunnar ehf. á Bitruhálsi. Magnús Ólafsson, aðstoðar for- stjóri MS sagði í samtali við Bænda- blaðið, skömmu áður en það fór í prentun, að þessi leit hafi farið fram. Hins vegar væri ekkert nýtt að frétta af málinu síðan fulltrúar Samkeppniseftirlitsins birtust á Bitruhálsinum 5. júní sl. ,,Það gerist ekkert í þessu máli í nánustu framtíð. Það tekur slíkan tíma að fara í gegnum þann fjölda gagna sem þeir afrituðu og ljósrit- uðu að það verður bið á því að eitt- hvað nýtt gerist í málinu,“ sagði Magnús. Varðandi þá ásökun talsmanna Mjólku um að MS hefði veitt Nettó 40% afslátt af MS Lgg+ jógúrt segir Magnús að það hafi aldrei átt sér stað. Það kom fram í auglýs- ingu frá Nettó í Fréttablaðinu að þessi afsláttur væri í boði en hann var alfarið á vegum Nettó og ekki byggður á afslætti sem MS veitti og kom því MS ekkert við. ,,Ég verð að segja það að okkur hér þótti tilefni þessarar húsleitar ansi rýrt,“ sagði Magnús Ólafsson. Þórunn Guðmundsdóttir lög- maður MS hefur sagt að MS hafi ávallt viljað vinna með Sam keppn is- eftirlitinu og því hefði verið hægur vandi að nálgast allar upplýsingar án húsleitar. S.dór Sjá einnig leiðara bls. 6 Samkeppniseftirlitið sótti gögn í húsakynni MS og skyldra félaga Tilefni húsleitar er ansi rýrt – segir Magnús Ólafsson aðstoðarforstjóri Mjólkursamsölunnar Mjólkurkúm fjölgar Endurskoða þarf skipulag búfjárverndarmála, segir landsráðunautur í búfjárrækt Í lok maí lauk árlegu uppgjöri forðagæsluskýrslna búfjáreftirlits- ins. Helsta breytingin frá fyrra ári er fjölgun mjólkurkúa um nær 1000, eru nú 25.504 að tölu en heildarfjöldi nautgripa í landinu er nú um 68.670. Hrossum hefur einnig fjölgað nokkuð, eru nú 75.644 á skýrslum. Sauðfjártalan er svipuð og nokkur undanfarin ár, nú örlít- il fjölgun á milli ára þannig að vetrarfóðrað fé er 455.656 að tölu. Svínastofninn er í nokkrum vexti, nú samtals 4218 gyltur og geltir, og sömuleiðis minkastofninn sem telur nú 41.957 læður og högna, en alirefastofninn er orðinn lítill, aðeins 116 dýr. Þá má geta þess að á liðnu sumri var ræktað korn á rúmlega 3000 hekturum með yfir 11.000 tonna uppskeru. Innan við 10% heyjaforðans var verkað sem þurrhey og fer það hlutfall lækkandi. Bændasamtök Íslands hafa umsjón með skýrslusöfnun og uppgjöri forðagæsluskýrslna ásamt búfjáreftirliti, í umboði Landbúnaðarstofnunar á Selfossi, en gert er ráð fyrir að stofn- unin taki við þessum verkefnum á næsta ári. Að sögn Ólafs R. Dýrmundssonar, sem hefur umsjón með búfjár- eftirlitsmálunum, þurftu búfjáreftirlitsmenn að hafa afskipti af lélegri fóðrun og aðbúnaði búfjár á allmörgum stöðum á landinu í vetur og hefur þurft að vísa nokkrum slíkum málum til héraðsdýralækna lögum samkvæmt. Iðulega er um að ræða sömu búin eða búfjáreigendurna ár eftir ár. Hann telur ástæðu til að endurskoða kerfið lið fyrir lið, taka þurfi búfjárverndarmálin fastari tökum enda auknar kröfur gerðar á þessu sviði sem snerta meðal annars ímynd landbúnaðarins. Magnús Ólafsson aðstoðarforstjóri Mjólkursamsölunnar.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.