Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 6

Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 6
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 20076 Fjósin spretta eins og gorkúlur Hér til hliðar er fjallað um mál- efni mjólkuriðnaðarins og mætti draga þá ályktun af leiðaranum að þar logaði allt í illdeilum og hælbítar hefðu yfirráðin í grein- inni. Svo er ekki og fer raunar fjarri. Íslensk mjólkurframleiðsla virðist standa með miklum blóma um þessar mundir, í það minnsta ef marka má fréttir sem þaðan berast. Á forsíðu Bændablaðsins er greint frá því í frétt að mjólkur- kúm landsins hafi fjölgað um eitt þúsund sem samsvarar um 4% fjölgun á einu ári. Þetta end- urspeglar í raun það ástand sem ríkir á markaði fyrir mjólkurvör- ur: þar selst allt sem lagt er inn og það sem ekki er selt innanlands er flutt út á viðunandi verði. Innlögn hjá mjólkursamlögum landsins hefur aukist og greinin virðist vera búin að ná sér aftur á strik eftir nokkurn samdrátt í framleiðslu sem meðal annars var rakinn til þess hversu kúm fækk- aði vegna kvótaviðskipta milli landshluta. En nú er sem sé allt á uppleið og dæmi um það eru fjósbygg- ingar sem fréttist af um land allt. Í þessu blaði er sagt frá stærstu fjósbyggingu landsins sem er nýr- isin norður í Eyjafirði. Þar er hægt að framleiða 700-800 þúsund lítra af mjólk á ári hverju, þótt bændur verði að sætta sig við helming þeirrar framleiðslu til að byrja með vegna kvótastöðu sinnar. Þeir segjast ætla sér að ná fullum afköstum innan tveggja ára. Fjósið í Garði er langt í frá það eina sem er að rísa þessi misserin. Þannig fékk Bændablaðið ábend- ingu um það úr einu héraði að þar væru þrjár fjósbyggingar ýmist hafnar eða alveg að hefjast. Og þá eru ónefnd stóru ævin- týrin. Austur í Skaftafellssýslu hefur fyrirtækið Lífsval uppi áform um að reisa geysistórt kúabú þar sem áður var starfrækt grasköggla- verksmiðjan Flatey. Lífsvalsmenn hafa verið að búa sig undir þessar framkvæmdir með því meðal ann- ars að kaupa upp kúabú í fullum rekstri í öðrum héruðum í því skyni að flytja framleiðsluréttinn austur í Flatey. Þar mun því rísa einskonar mjólkurstóriðja með 400 kýr og fjölda starfsmanna og ekki víst að áköfustu unnendum fjölskyldubúanna standi alveg á sama um þessi tíðindi. Nýjustu tíðindin berast svo vestan úr Saurbæ í Dölum þar sem hugumstórir menn hafa keypt bæinn Kverngrjót og hyggjast byggja þar 2.600 fermetra fjós sem yrði 500 fermetrum stærra en áðurnefnt fjós í Garði í Eyjafirði. Það mun vera keypt inn í heilu lagi frá Ameríku og þarf lítið annað en að koma því fyrir á und- irstöðum sínum og skrúfa það saman. Núorðið er til siðs að mæla fjós ekki eftir kúafjölda sem kemst fyrir í þeim heldur fjölda mjaltaþjóna eða róbóta. Eftir þeim mælikvarða er fjósið í Garði tveggja róbóta fjós en í Kverngrjóti verða róbótarnir eflaust ekki færri en þrír ef allt fer sem ætlað er. Um Flateyjarfjósið er best að segja sem minnst fyrr en það er risið. Það sem er athyglisvert við framkvæmdirnar í Kverngrjóti er að fréttir herma að ekki sé á dag- skrá að kaupa kvóta heldur leggja inn mjólkina hjá Mjólku. Samanlagt sýnir þetta að ís- lenskir kúabændur hugsa stórt þessa dagana og eru hvergi bang- ir. –ÞH Málgagn bænda og landsbyggðar LEIÐARINN LOKAORÐIN Bændablaðið kemur út hálfsmánaðarlega. Því er dreift til allra bænda landsins og fjöl margra annarra er tengjast land búnaði. Bændablaðinu er dreift ókeypis til þeirra er stunda búskap en þéttbýlisbúar geta gerst áskrifendur að blaðinu Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. Árgangurinn kostar kr. 5.100 en sjötugir og eldri greiða kr. 2.300. Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294-2279 Ritstjóri: Þröstur Haraldsson, ábm. th@bondi.is Blaðamenn: Erla Hjördís Gunnarsdóttir ehg@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurdór Sigurdórsson ss@bondi.is Auglýsingastjóri: Eiríkur Helgason eh@bondi.is Netfang blaðsins (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Netfang auglýsinga er augl@bondi.is Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Upplag: sjá forsíðu – Íslandspóstur annast dreifingu blaðsins að mestu leyti. ISSN 1025-5621 Það brá óneitanlega mörgum í brún þegar Samkeppniseftirlitið réðst til inngöngu í húsa- kynni Mjólkursamsölunnar fyrir rúmri viku og krafðist þess að sjá bókhald fyrirtækisins. Höfðu starfsmenn eftirlitsins á brott með sér þvílíkt magn skjala að forsvarsmenn fyrirtækisins telja að það taki mánuði að afrita og skoða það allt. Þegar þetta er ritað er ekki ljóst hvert framhald málsins verður. Fram hefur komið að tildrög þessarar aðfarar að fyrirtækinu séu þau að forsvarsmenn samkeppn- isaðilans Mjólku hafi kært Mjólkursamsöluna fyrir að veita óeðlilega mikinn afslátt af vöruteg- undum sem keppa um hylli neytenda á markaði við vörur Mjólku. Einkum hefur verið rætt um Fetaost og jógúrt í því sambandi. Forsvarsmenn Mjólkursamsölunnar hafa svarað því til að þeir hafi ekki veitt afsláttinn sem auglýstur var í blöð- um heldur hafi það verið smásöluverslanirnar sem tóku það upp hjá sjálfum sér að veita afslátt af þessum vörum. Hér skal ekki lagður dómur á það hvor aðil- inn hefur rétt fyrir sér. Vonandi tekur rannsókn Samkeppniseftirlitsins fljótt af svo þessar ásak- anir hangi ekki lengi yfir markaðnum. Það væri engum til góðs. Það er hins vegar ástæða til að fjalla nokkuð um þau átök sem Mjólkursamsalan og Mjólka hafa átt í að undanförnu á markaði fyrir tiltekn- ar mjólkurafurðir. Einkum er það tvennt sem rétt er að staldra við. Annars vegar er það staðhæfing sem oft hefur heyrst úr ranni Mjólku og lögmað- ur fyrirtækisins endurtók í fjölmiðlum eftir innrás Samkeppniseftirlitsins en hún er á þá leið að sá munur sé á þessum tveimur mjólkursamlögum að annað njóti ríkisstyrkja en hitt ekki. Þessi staðhæfing stenst einfaldlega ekki. Hvorugt fyrirtækjanna nýtur ríkisstyrkja. Það gera hins vegar mjólkurframleiðendur sem fá bein- greiðslur úr ríkissjóði en þær tengjast hversu mikið þeir leggja inn af mjólk og greiðslumarki þeirra. Þá skiptir engu máli hvort þeir leggja inn hjá Mjólku eða Mjólkursamsölunni, greiðslurnar eru þær sömu. Mjólkuframleiðendur, sem eru í viðskipt- um við Mjólku og eru greiðslumarkshafar hafa nákvæmlega sömu stöðu og innleggjendur hjá MS. Með þessu er á engan hátt verið að draga úr því að vissulega er staða Mjólkursamsölunnar á mark- aðnum langtum öflugri en Mjólku, bæði í krafti stærðarinnar, sögunnar og eignartengsla við bænd- ur. Mjólka starfar því innan greiðslumarkskerfisins og forsvarsmenn fyrirtækisins eiga ekki að reyna ljúga öðru að þjóðinni, enda hafa þeir alla burði til að standa með sóma að sínu fyrirtæki. Hitt atriðið er heldur snúnara en það snýst um það sem nefnt hefur verið millifærslukerfi mjólk- uriðnaðarins. Í stuttu máli gengur það út á að hluti mjólkurafurða á markaði, einkum drykkjar- mjólkin, er háður opinberum verðlagsákvæðum. Verðið er ákveðið í þar til skipaðri nefnd, bæði mjólkurverð til framleiðanda og heildsöluverð þeirra vöruflokka sem undir nefndina heyra. Af einhverjum ástæðum hefur nefndin haft þann sið á undanförnum árum að hafa verðið á drykkjar- mjólkinni lægra en framleiðslukostnaður gefur tilefni til. Þennan mismun verða samlögin að bæta sér upp með hærra verði á þeim vörum sem ekki eru háðar verðlagákvæðum. Þetta þarf skilyrðislaust að leiðrétta. Fram- leiðslukostnaður verður að endurspeglast í verð- lagningu. Slíka leiðréttingu á að gera í samstarfi við fulltrúa neytenda í Verðlagnefnd búvöru. Heildar söluverðmæti mjólkurvöru þarf ekki að hækka þó slíkar leiðréttingar verði gerðar. Millfærslur í verði á milli mjólkurvara og mjólkursamlaga, með við- komu í ríkissjóði, birtist okkur síðan sem útgjöld ríkissjóðs upp á hundruð milljóna þótt fjármunirnir séu sóttir til fyrirtækjanna. En það er ekki sjálfgert að breyta þessu í einu vetfangi. Þegar Guðbrandur Sigurðsson forstjóri Mjólkursamsölunnar lagði það til í vetur brást Morgunblaðið hart við og sakaði hann um ein- okunartilburði. Eflaust eiga margir erfitt með að átta sig á því hvernig það geta talist einokunartil- burðir að afnema opinbera verðlagningu á mjólk. Skýringin er sú að millifærslukerfið veldur því að sumar afurðir eru hærra verðlagðar en aðrar á markaðnum. Þetta hefur Mjólka notfært sér, enda einskorðast framleiðsla fyrirtækisins við vörur sem hafa góða framlegð og þurfa ekki að leggja til þeirrar millifærslu sem meðal annars tryggir öllum neytendum landsins sama verð á mjólk- urvöru um allt land. Fyrir vikið getur Mjólka boðið bændum hærra verð fyrir afurðir sínar en Mjólkursamsalan gerir. Væri millifærslunum hætt og verðlag látið ráðast á markaði er hætt við að fyrirtækið lenti í vanda. Það er því vandséð hvernig best er að leysa þennan hnút. Vonandi bera menn þó gæfu til þess að koma á eðlilegu ástandi þannig að þessi tvö fyrirtæki og fleiri geti starfað hlið við hlíð. Þá ríkti eðlileg samkeppni á markaðnum sem öllum ætti að vera til góða – jafnvel þótt sumir séu stærri en aðrir. Það er hins vegar ekki endilega víst að besta leiðin að slíku ástandi liggi um dómssalina. –ÞH Vandlifað á markaðnum James Lovelock, sem um ára- tugaskeið hefur rannsakað og fjallað um umhverfismál, var nýlega á ferð í Noregi þar sem hann hélt fyrirlestur um þessi mál hjá „Miðstöð fyrir þróun og umhverfi“ (Senter for miljø og utvikling), en það er stofnun sem starfar við Háskólann í Ósló. Jafnframt var hann útnefndur fyrstur manna til að gegna gesta- prófessorsstöðu við háskólann, en þessi staða er nýstofnuð og kennd við Arne Næss, heimspekipróf- essor við skólann. James Lovelock er Englendingur, fæddur árið 1919. Hann lærði efna- fræði og læknisfræði en hefur um áratugaskeið verið sjálfstætt starf- andi vísindamaður með aðaláherslu á umhverfismál. Árið 1979 vakti hann á sér alþjóðaathygli þegar hann sendi frá sér bók sína: Gaia: A New Look at Life on Earth, eða Gaia, ný sýn á lífið á jörðinni, en Gaia er nafn á grísku jarðargyðj- unni. Í bókinni lýsir hann jörðinni sem lifandi veru. Árið 2006 gaf hann síðan út bókina The Revenge of Gaia, eða Gaia svarar fyrir sig. Í áðurnefndum fyrirlestri hélt hann því fram að lönd á norð- urslóðum jarðar, þ.e. Norðurlönd, norðursvæði Rússlands og Síberíu og Norður-Ameríku verði óska- lönd mannkyns þegar stórir hlut- ar jarðar verða orðnir óbyggilegir vegna hlýnunar andrúmsloftsins. Saharaeyðimörkin sækir norður á bóginn og Suður-Evrópa finnur þegar fyrir þurrkunum, segir hann. James Lovelock telur ólíklegt að unnt verði að stöðva hlýnunina. En nokkur hluti mannkyns mun lifa af. Noregur nýtur forréttinda með mikið vatnsafl og veðurfar sem víða verður hagstæðara til matvælafram- leiðslu við að hlýna nokkuð. En Norðmenn standa gagn- vart erfiðu siðferðilegu vandamáli vegna þess að mikill þrýstingur verður frá flóttamönnum sem munu sækja norður á bóginn í stórum stíl. Öll hin fögru markmið sem er að finna í Kýótó-bókuninni minna mig á München árið 1938 þegar velviljaðir stjórnmálamenn lýstu því yfir að það yrði friður um vora daga. Þegar veður hlýnar á jörðinni mun verða mikill samdráttur í mat- vælaframleiðslu. Jafnvel þó að úrkoma aukist þá eykst uppgufunin einnig vegna aukins hita, sagði James Lovelock. Jafnframt lítur hann á verksmiðju- búskapinn sem aðalógnina við heil- brigði jarðar. Hinn vélvæddi stórbú- skapur, sem nú er í mikilli sókn og Brasilía er glöggt dæmi um en einn- ig mörg önnur lönd, er miklu skað- legri en Tsjernobyl. Við húðflettum jörðina og losun koltvísýrings væri ekki jafn mikil og raun ber vitni ef við hefðum ekki gengið á skógana eins og við höfum gert, segir hann. Við völdum stórfelldum skaða á jörðinni en samt ert þú bjartsýnis- maður. Hvers vegna? „Við höfum ekki eyðilagt jörð- ina en við höfum valdið því að Gaia hefur flutt sig úr því ástandi sem hún var í yfir í hlýrra ástand. En það er allt í lagi með jörðina sem hnött, hún mun verða til um milljarða ára skeið,“ segir James Lovelock sem er einnig bjartsýnn á það að hluti mannkyns muni lifa af. „Breytingar á hitafari á jörðinni eru hluti af milljón ára langri sögu mannsins. Á þeim tíma hafa átt sér stað sjö stórar veðurfarsbreytingar sem valdið hafa gífurlega miklum breytingum. Norðurhvel jarðar var allt hulið ís á sínum tíma og sjáv- arborð hefur verið allt að því 120 metrum hærra en nú,“ segir hann. „Það tók Gaiu 2,7 milljónir ára að skapa dýr sem gat hugsað, skrif- að í blöð og skoðað jörðina utan úr himingeimnum. Eigum við að gefast upp? Nei, aldrei nokkurn tímann.“ Heimasíða James Lovelock er www.jameslovelock.com Nationen, stytt og endursagt Spáir flóttamannastraumi norður á bóginn þegar líður á öldina James Lovelock

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.