Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 8

Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 8
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 20078 Ég hygg að flestir landsmenn séu stoltir af Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri og Hólaskóla - Háskólanum á Hólum í Hjaltadal. Þetta eru einir elstu skólar landsins, stofnaðir 1889 og 1882. Þeir standa nú í miklum blóma og eru ótvíræð flaggskip menntasetra í dreifbýli á Íslandi. Þótt allir vilji nú Lilju kveðið hafa hefur barátta þeirra fyrir tilveru sinni ekki alltaf verið dans á rósum hin síðari ár. Með breyttri menntastefnu og tilkomu fjölbrautaskólanna og niðurlagn- ingu iðnskólanna á árunum fyrir 1980 var gerð hörð hríð að land- búnaðarskólunum. Þeir þóttu úreltir og rétt væri að steypa þeim inn í hið samhæfða og einsleitna framhalds- skólakerfi. Hólaskóla var reyndar lokað í tvö ár í þessari hrinu en var settur af stað á ný með pólitískri ákvörðun fyrir þrýsting frá velunn- urum hans. Hér skal ekki lagt mat á hvort fjögurra ára samræmdur framhaldsskóli fyrir alla hafi verið rétt stefnumörkun á sínum tíma en ég tel að iðnmenntunin hafi ekki borið sitt barr út um land eftir að þessi ákvörðun var tekin. Heilu atvinnugreinarnar búa enn að nem- endum gömlu iðnskólanna, sérstak- lega út um land. Búnaðarskólarnir hafa skarað fram úr í þróun tækni og háskólanám á sviði grunngreina atvinnuveganna. Æ síðan hafa búnaðarskólarn- ir þurft að standa vörð um tilveru sína og sjálfstæði en jafnframt ná að þróast í fjölþættar viðurkenndar háskóla- og rannsóknastofnanir. Áhrifamiklum aðilum innan stjórnsýslunnar hefur verið tilvist þessara skóla einhver þyrnir í augum. Þeir skilja hvorki né þekkja til inn- viða þessara menntasetra né skynja hin sterku tengsl þeirra við atvinnu- lífið í landsbyggðarsamfélaginu og stöðu þeirra á alþjóðavísu. Ég var skólastjóri á Hólum í Hjaltadal 1981 til 1999 og þekki vel þessa baráttu. Mér er nær að full- yrða að hvorki Landbúnaðarháskóli Íslands né Hólaskóli væru við lýði með þeirri reisn sem þeir eru í dag ef þeir hefðu t.d. heyrt undir menntamálaráðuneytið. Sérstaða og náin tengsl skólanna við grasrótarsamfélagið Styrkur þessara skóla er sérstaða þeirra og náin tengsl við grasrót dreifbýlisins. Þeir heyrðu fyrst undir atvinnuvegaráðuneytið og síðar undir landbúnaðarráðuneytið og nutu þess. Samtök bænda og fjöldi velunnara stóðu vörð um þá. Þeir eru ekki venjulegir skólar í skilningi „teknókrata“ nútímans. Þetta eru staðir, fjölhliða mennta- og menningarstofnanir lands- byggðarinnar og þjóðarinnar allrar. Þeir eru lögbýli með fjölbreyttan búrekstur. Ég minnist þess veturinn 1999 þegar sett voru ný lög um bún- aðarfræðslu og Hvanneyrarskólinn viðurkenndur sem háskóli og Hólaskóli fékk lagaheimild fyrir sérhæfðu háskólanámi. Þá var einn- ig gerð hörð atlaga að skólasetr- unum og fram kom tillaga um að flytja þá til menntamálaráðuneytis. Þá var leitað ásjár forsætisráðherra, Davíðs Oddssonar. Hann spurði þeirrar eðlilegu spurningar hvort eitthvert vandamál væri að hafa þá undir landbúnaðarráðuneytinu, hvort eitthvað gengi illa. Hann vissi að þeir hafa haft þessa stjórnsýslu- legu stöðu í 100 ár, hún hefði reynst þeim vel og því hvorki rök né þörf fyrir slíkum breytingum? Fjöregg landbúnaðarins Búnaðarskólarnir hafa byggst upp á mjög sérstæðan hátt. Þar hefur farið saman menntun, endurmenntun, rannsóknir og ráðgjöf. Sami aðil- inn, sama stofnunin, hefur gjarnan haft alla þessi þætti á hendi. Þessi samþætting hefur reynst öllum hag- kvæm. Náin tengsl eru við háskóla og rannsóknastofnanir í nágranna- löndum en einnig mjög bein tengsl við bændur og annað starfsfólk í landbúnaði hér innanlands. Skólarnir hafa sýnt mikinn sveigjanleika og náð að aðlaga sig stöðugt að breyttum aðstæðum svo aðdáun vekur. Landbúnaðarskólarnir eru hluti af hinni sterku ímynd landbúnaðar- ins og dreifbýlisins. Þeir hafa einnig verið merkisberar nýrra tíma í land- búnaði sem borið er traust til innan greinarinnar. Við eigum ekki að taka neina óþarfa áhættu í þessum efnum. Ég skora á ríkisstjórnina að falla frá áformum sínum um að rjúfa meira en aldargömul tengsl land- búnaðarskólanna við atvinnuráðu- neyti sitt og samtök bænda. Þessi sambúð hefur verið öllum aðilum farsæl. Það veit enginn hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Næsta Bændablað kemur út þriðjudaginn 26. júní Ég var að glugga í nýútkomna bók, skáldsöguna Byggðir og bú Suður-Þingeyinga 2005. Tæplega verður þetta flokkað undir heim- ildarit, slíkar eru vitleysurnar. Menn sagðir dánir þó við þokka- lega heilsu séu. Sé bókin Byggðir og bú frá 1985 borin saman við þessa ber ekki saman um marga hluti, hvor sem er réttari. Ef skoð- uð er stærð til dæmis íbúðarhúsa er samanburður ekki góður. Húsin hafa annaðhvort minnkað eða stækkað, sum sennilega eins. Ekki skal fullyrt hvor bókin réttari er. Ekkert samræmi er við upptaln- ingu bygginga, ýmist gripafjöldi eða m2. Sé litið yfir jarðir í talinu á undan eyðibýlum virðast allar vera í byggð þótt svo sé ekki. Kannski hafa jarðir þurft að vera í eyði einhvern tiltekinn árafjölda til þess að flokkast sem eyðijarð- ir. Allavega sé ég ekki þar regl- una. Ábúendatal greinir ekki frá ábúðarlokum ef jörð fer í eyði. Af hverju lýsing á landamerkjum er sett með jörðum veit ég ekki og sé ekki hvaða heimildargildi slíkt hefur eða annan tilgang. Sagt er í formála að bókin miðist við 2005 og ætti því ábúendatal að mið- ast við það. Nokkrir aðilar eru með dánardægur 2006. Þar fer sú regla. Við hjónin eigum sumarhús í landi Þverár í Reykjahverfi. Þar eru fleiri bústaðir, en mín kona ein sögð vera eigandi að bústað. Ég hef sennilega ekki staðið nægj- anlega gegn eignatöku hennar. Ein kona, sem átti tvö börn fyrir hjóna- band, er sögð eiga börnin með sitt hvorum manninum. Konan segir svo ekki vera. Kannski veit ritnefndin eða höfundur betur en konan. Þá er á kjöl bókanna nafn Ragnars Þorsteinssonar eins og hann sé einn höfundur, gott fyrir aðra ritnefndarmenn eða Búnaðarsamband Suður- Þingeyinga að vera ekki bendlaðir við rangfærslur eða lélega vinnslu og yfirlestur en í öllu falli ein- kennileg merking á svona bók. Þá finnst mér vanta að bæjarnafnatal sé í báðum bókunum en ekki bara í síðara bindi, en það er svo sem ekki neitt rangt við það, aðeins mín skoðun. Þá þarf ekki að leita eins lengi að bæ ef maður er ekki þeim mun kunnugri og ekki að vera með báðar bækurnar við hendina. Og ekki er dýrðin gefin. Eg trúi því tæpast að ég hafi fund- ið allar villurnar en nóg er samt. Í Bændablaðinu frá 1.maí 8.tbl segir í viðtali við Ragnar Þorsteinsson: „Ég er búinn að kynnast fólk- inu vel, enda fór eg heim á hvern bæ. Það var gríðarleg áhersla lögð á að ná efninu sem réttustu og mér sýnist á þeim viðbrögðum sem bókin fær að litlar athugasemdir séu og almenn ánægja með hana.“ Auðvitað er ekki almenn ánægja með bókina og ég veit að henni hefur verið skilað enda lítið hægt að gera þegar verk- ið er komið út. Sjálfsagt er erfitt að skila svona bók til að fá end- urgreitt verðið enda getur maður illa skilað bók sem maður kaupir en er ekki ánægður með efnið. Þó tel ég að svona rit eigi að vera rétt og greina frá staðreyndum. Ég veit um aðila sem sendu inn leiðrétt- ingar í tæka tíð en þær voru ekki teknar með. Mér finnst ekki ástæða til að klappa lengi fyrir þessu verki. Ég held að enginn hafi sóma af þess- ari útgáfu, því miður, en til þessa virðist hafa verið vandað með prentun og annan frágang. Ég held að þetta rit megi kalla í besta falli Jarðalýsingu Suður- Þingeyinga með staðreyndaívafi. Þetta getur því miður aldrei orðið heimildarrit. Ævarr Hjartarson Furulundi 33 600 Akureyri Byggðir og bú Suður-Þingeyinga, skáldsaga með staðreyndaívafi Jón Bjarnason Alþingismaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs jb@althingi.is Menntamál Hvers vegna vill ríkisstjórnin fórna landbúnaðarskólunum? – Leyfum búnaðarskólunum á Hvanneyri og Hólum að njóta sérstöðu sinnar Stofnað hefur verið fyrirtækið Ríki Vatnajökuls ehf. Það eru ferðaþjónustuaðilar á svæð- inu frá Hvalnesi í austri og að Lómagnúpi í vestri sem að því standa. Undir klasann falla allir þeir aðilar svæðisins sem þjóna á einn eða annan hátt ferðamönn- um eða fyrirtækjum í ferðaþjón- ustu. Um er að ræða þá sem selja m.a. gistingu, veitingar, afþrey- ingu, reka verslanir og veita samfélagslega þjónustu, svo sem menningarstarfsemi, heilbrigð- isþjónustu og samgöngur. Undanfara stofnunar Ríkis Vatnajökuls má rekja til fundaferð- ar um klasasamstarf að tilstuðlan Frumkvöðlaseturs Austurlands ehf. árin 2004 til 2006, ásamt verkefn- inu Hagvöxtur á heimaslóð vet- urinn 2007. Fjöldi ferðaþjónustuað- ila hefur tekið þátt í vinnufundum, fyrirlestrum og námskeiðum vegna þessa. Eindreginn vilji til að efla ferðaþjónustuna Ari Þ. Þorsteinsson, sem sæti á í stjórn Ríkis Vatnajökuls ehf., segir að það sem einkennt hafi klasaundirbúninginn sé eindreginn vilji allra hagsmunaaðila til að byggja upp öfluga ferðaþjónustu sem byggi á samstarfi aðila sem gjarnan hafa verið í harðri samkeppni. Þátttakendur í klasanum meta því ávinning samstarfs fram yfir sundurlyndi. Hann segir að það hafi tekið tvö ár að undirbúa stofnun fyrirtækisins og sannfæra alla aðila í ferðamannaþjónustunni á svæðinu um nauðsyn þess að vinna saman en ekki að menn séu að pukrast hver í sínu horni. Mestur vandi íslenskrar ferða- þjónustu hefur verið að fá betri nýt- ingu yfir vetrartímann. Ari segir að afstaða fólks til vetrarins á Íslandi sé að breytast nokkuð. Myrkrið, kyrrðin, norðurljósin, snjósleða- ferðir og margt fleira verði eftirsótt- ara með hverju árinu sem líði. Í könnunum sem gerðar hafa verið kemur í ljós að ýmislegt er hægt að gera til efla ferðaþjón- ustuna yfir veturinn. Ari segir að fyrir austan hafi verið gerð tilraun með að auglýsa norðurljósin og þó nokkur hópur erlendra ferða- manna hafi komi til landsins þess vegna. Þeim var boðið að fara í hreindýraskoðunarferð, boðið upp á alíslenskan mat og loks horfði fólk á norðurljósin. Það er ekki síst fólk frá hinum heitu löndum Suður- Evrópu sem hefur áhuga á svona ferðum sem þó hafa afar lítið verið markaðssettar á þeim slóðum. Vatnajökull segullinn Ari segir að markmið klasans sé að vinna saman að því að gera Ríki Vatnajökuls að einu af fimm þekkt- ustu ferðaþjónustusvæðum Íslands innan fjögurra ára með áherslu á hið einstaka umhverfi Vatnajökuls, auðuga menningu og mannlíf og sérstöðu í matvælum. Ætlunin sé að auka fjölda ferðamanna í Ríki Vatnajökuls um 8-11% á næstu fimm árum. Í mars síðastliðnum sam- þykkti Alþingi lög um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs og verður hann stærsti þjóðgarður Evrópu. Vatnajökull og þjóðgarðurinn marka svæðinu mikla sérstöðu á heimsvísu og er einn helsti segull landsins gagnvart ferðamönnum. Þess má geta að fjörutíu aðilar skráðu sig sem stofnhluthafa í Ríki Vatnajökuls á stofnfundi fyrirtæk- isins. S.dór Ríki Vatnajökuls ehf. Risaátak hafið í að auka ferða- þjónustuna á Suðausturlandi

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.