Bændablaðið - 12.06.2007, Side 12

Bændablaðið - 12.06.2007, Side 12
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200712 Landbúnaðarháskóli Íslands brautskráði 38 nemendur þann 1. júní sl. en alls stunduðu 237 nemendur nám við skól- ann í vetur. Athöfnin fór fram í Reykholtskirkju þar sem Ágúst Sigurðsson rektor flutti ræðu. Helsta umfjöllunarefni hans var stefnuyfirlýsing ríkisstjórnarinn- ar sem tók við völdum í vor en hún hefur meðal annars boðað tilflutning verkefna milli ráðu- neyta. Um það sagði Ágúst: „Í stjórnarsáttmálanum er stefnt að því að færa til verkefni innan stjórnarráðsins og meðal annars rætt um að flytja menntastofn- anir landbúnaðarins undir ráðu- neyti menntamála. Þessi fyrirætl- an hugnast okkur hjá LbhÍ vel og við teljum að það sé fullkomlega eðlilegt að flokka allar íslenskar menntastofnanir undir sama fagr- áðuneyti. Við vitum að hvað skóla- starfið snertir þá er hér ekki um mjög stóra breytingu að … Hitt er annað að það er að mörgu að hyggja áður en þetta getur orðið því tryggja þarf áframhaldandi efl- ingu á því mikilvæga rannsókn- arstarfi sem unnið er innan vébanda LbhÍ enda hefur LbhÍ verulega sérstöðu í íslensku menntakerfi með um og yfir 60% starfseminn- ar í rannsóknum. Rannsóknum sem að stórum hluta eru unnar í miklu samstarfi við atvinnulífið. Gæta þarf að því að þessi miklu tengsl rofni ekki heldur eflist enn frekar enda er það í algjörum samhljómi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar um samstarf atvinnulífsins og íslensku háskólanna. Við vitum að Landbúnaðarháskólinn er fag- lega sterkur á sínum sérsviðum og innviðir traustir og við hlökkum einfaldlega til þess að takast á við þessar breytingar með góðum und- irbúningi og í nánu samstarfi við ráðuneyti landbúnaðar, mennta og fjármála.“ Að vanda hlutu þeir nemend- ur sem þóttu skara fram úr í námi verðlaun. Háskólamegin hlutu fimm nemendur verðlaun: Guðfinna Harpa Árnadóttir fyrir bestan árangur á búvísindabraut; Sunna Áskelsdóttir fyrir góðan árangur á sviði náttúru og umhverfis; Rakel Jakobína Jónsdóttir fyrir loka- verkefni til BS-prófs á sviði skóg- fræði og landgræðslu og Þórunn Pétursdóttir fyrir lokaverkefni til MS-prófs í landgræðslufræðum. Loks hlaut Lilja Filippusdóttir verðlaun fyrir góðan árangur í lokaverkefni til BS-prófs á sviði umhverfisskipulags. Á búfræðibraut hlutu sjö nem- endur verðlaun: Guðlaug Björk Guðlaugsdóttir fyrir góðan árang- ur á búfræðiprófi og voru þau verðlaun frá Bændasamtökum Íslands; Ásrún Árnadóttir fyrir góðan árangur í nautgriparækt- argreinum; Einar Guðmundur Þorláksson fyrir góðan árangur í sauðfjárrækt; Vagn Kristjánsson fyrir góðan árangur í bútæknigrein- um; Hildur Sigurgrímsdóttir fyrir góðan árangur í hagfræðigrein- um; Svala Skúladóttir og Guðrún Steinþórsdóttir fyrir góða ástund- un. Laugardaginn 26. maí sl. útskrif- aði Hólaskóli – háskólinn á Hólum 67 nemendur, þá fyrstu sem útskrifast frá skólanum sem háskóla samkvæmt íslenskum lögum. Skúli Skúlason, rektor Háskólans á Hólum, flutti ræðu við athöfnina. Hann sagði m.a. að nú væri hátíðisdagur á Hólum og að þessi hátíð markaði tímamót með ýmsum hætti. Í fyrsta lagi væru nú braut- skráðir nemendur með fyrstu háskólagráðu, BA-próf í ferða- málafræði. Í öðru lagi væri vor- brautarskráning deilda nú sameig- inleg og með nýju sniði. Þetta væri til að undirstrika nýja tíma skólans sem fullgilds háskóla. Þá sagði rektor: ,,Við lifum á breytingaskeiði þar sem sköpunarmáttur menntunar og lærdóms mun ráða úrslitum. Þörfin fyrir Háskólann á Hólum er ótví- ræð og sköpunarkraftur nemenda og starfsfólks er mikill.“ Í lok ræðu sinnar þakkaði rekt- or deildarstjórum, kennurum og starfsmönnum skólans fyrir vel unnin störf og óskaði nemendum til hamingju með daginn og bað þá muna að þeir væru nú orðnir sterkur hluti af því 901 árs samfélagi sem Hólaskóli er og bauð nemendur og allt þeirra fólk ævinlega velkomið heim að Hólum. Nemendur voru brautskráð- ir með eftirfarandi gráður: Hesta- fræð ingar og leiðbeinendur voru 28, tamningamenn 15, þjálfarar og reiðkennarar 14. Einn nemandi útskrifaðist með diplómatagráðu í ferðamálafræði og 9 nemendur með BA-gráðu í ferðamálafræði og eru þeir fyrstu BA- nemendur skól- ans. S.dór Háskólinn á Hólum útskrifaði 67 nemendur Rektors- kápan Kápan sem Skúli Skúlason rekt or skrýddist við brautskrán- inguna vakti óskipta athygli. Höfundur hennar og hönn- uður er Helga Rún Pálsdóttir og leitaði hún fyrirmynda til lærdómsaldarinnar svokölluðu, en þá réðu ríkjum á Hólum Guðbrandur Þorláksson og Arngrímur lærði meðal ann- arra. Málfríður Finnbogadóttir vann mikla heimildavinnu um búninga þessa tíma. Kápan er úr flaueli og hana prýðir geita- skinn.Skúli rektor ásamt útskriftarnemendum af ferðamálabraut, deildarstjórinn lengst til hægri. Útskriftarnemar úr hrossaræktardeild stilltu sér upp fyrir ljósmyndarann að lokinni útskrift. Rektor LBHÍ við skólaslit í Reykholti: Eðlilegt að allar menntastofnanir heyri undir sama fagráðuneyti Frá brautskráningu LBHÍ í Reyk- holtskirkju. Að ofan sést útskriftar- hópurinn, þjóðlega klæddur, og hér til hliðar sitja þeir saman Ágúst Sigurðsson rektor og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.