Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 16

Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 16
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200716 Fyrir nokkru birtist hér í Bændablaðinu viðtal við Guðmund Óla Gunnarsson hljómsveitarstjóra sem tilheyrir þeim vaxandi hópi þéttbýlisbúa sem hafa fundið sér athvarf í sveit- inni. Nú er röðin komin að tvenn- um hjónum sem keyptu jörðina Búrfell í Reykholtsdal, eða því sem eitt sinn hét Hálsasveit, og hafa verið að byggja hana upp undanfarin fjögur ár. Það eru læknarnir Hannes Petersen og Friðrik Sigurbergsson og eig- inkonur þeirra, Harpa Kristj- ánsdóttir gullsmiður og kennari og Árný Sigurðardóttir hjúkr- unarfræðingur og forstöðu mað- ur heilbrigðiseftirlits Reykja- víkurborgar. Þau Hannes og Harpa eru nú búin að endurbyggja gamla íbúðarhúsið, að heita má frá grunni, en Friðrik og Árný ákváðu að byggja nýtt hús sem þau eru flutt inn í. Öll starfa þau í Reykjavík, þeir Hannes og Friðrik á Landspítalanum í Fossvogi, Árný hjá Reykjavíkurborg og Harpa kennir við Iðnskólann. Hvað var það sem dró þau upp í sveit? Friðrik: „Hjá okkur var það gamall draumur að eignast athvarf í sveit þar sem hægt væri að gera meira en á venjulegri sumarhúsa- lóð, eitthvað stærra. Við Árný höfum haft áhuga á skógrækt og getum sinnt henni hér.“ Hannes: „Það var hestamennsk- an sem dró okkur hingað. Við eigum 13 hesta og hafði lengi dreymt um að koma okkur upp aðstöðu til þess að geta verið með þá hjá okkur. Nú erum við með níu þeirra hér uppfrá en hinir eru enn fyrir sunnan.“ Góð skilyrði til skógræktar Þeir Hannes og Friðrik hafa þekkst lengi og starfa meðal annars saman í þyrlusveit lækna. „Við fórum að kíkja í kringum okkur og það er óneitanlega auðveldara að gera það úr þyrlu. Einn félaga okkar í þyrlu- sveitinni á jörð hér í mynni dals- ins og hann benti okkur á að hér á Búrfelli væri jörð að fara í sölu. Við brugðumst hratt við og buðum uppsett verð í hana og fengum hana seinnihluta vetrar 2003.“ Jörðin er 280 hektarar að stærð og liggur sunnan með Reykjadalsá upp í og yfir Búrfellin sem ná allt að 470 metra hæð. Þau eiga sem sé fjöll. Þarna var sauðfjárbú en ræktun er ekki mikil, túnin eru um 20 hektarar. Friðrik segir að gróðurskilyrði fyrir skóg séu góð í hlíðum Búrfellanna, enda sjáist það á næsta bæ að þar gengur vel að rækta skóg. Friðrik og Árný ætla að helga sig skógræktinni og eru orðnir þátt- takendur í Vesturlandsskógum sem hafa sett sér það verkefni að rækta allar suðurhlíðar Reykholtsdals. Þau ætla alveg að gefa hófdýrunum frí og mega ekki til þess hugsa að sauðfé komist í skóginn sem þau ætla sér að rækta. Þess vegna hafa þau lagt á sig að girða meðfram veginum inn dalinn á tveggja km kafla. Næsta skref verður að fá verk- taka til þess að girða annað eins uppi í Búrfellinu og loka hinn verð- andi skóg af. Fyrr geta þau ekki hafist handa við ræktunina fyrir alvöru. Harpa og Hannes ætla að taka þátt í skógræktinni og Harpa hefur meðal annars sótt skógræktarnám- skeið á Hvanneyri ásamt Friðriki og Árnýju. Það eru þó hestarnir sem eiga hug þeirra fyrrnefndu. Þau eru búin að koma upp gerði fyrir hest- ana og eru byrjuð að innrétta fjár- húsið svo þau geti tekið hestana á hús. Hlöðuna er Friðrik búinn að leggja undir sig en hann er með all- hastarlega véladellu. Betri netaðgangur breytti miklu Hingað til hefur hreinsun jarðar- inn ar og uppbygging tekið allan þeirra tíma og nú sjá þau fyrir end- ann á því. Þau eru búin að koma sér upp heilsársaðstöðu þar sem þau geta verið hvenær sem þau lystir. Raunin er líka sú að þau eru mikið á staðnum. Harpa: „Við Hannes fluttum lögheimilið okkar hingað upp eftir og erum hér alltaf þegar við getum. Í fyrrasumar kom ég ekki til Reykjavíkur samfleytt í tvo mánuði, átti bara ekkert erindi þangað!“ Árný og Friðrik eru enn heim- ilisföst í Reykjavík en eru einnig eins mikið í Búrfelli og þau geta. „Við þyrftum að draga úr vinnu ef við ættum að vera hér meira,“ segja þau. Raunar segist Árný oft koma upp eftir til þess að vinna. „Það er gott að vera hér í kyrrðinni ef maður þarf að lesa eitthvað eða skrifa. En þá sakna ég Netsins því aðgangur að því er ekki nógu góður hér. Ég gæti unnið miklu meira hér ef ég hefði betri aðgang að Netinu,“ segir hún. Hannes tekur í sama streng. Hann vinnur að rannsóknum í sínu starfi og vonast til að geta unnið að úrvinnslu og skriftum sem tengjast rannsóknum. „En það byggist á því að hafa góðan netaðgang. Stór hluti þessara rannsókna er unnin í hópum sem oft þurfa að hittast og vinna saman. Það væri vel hægt að gera hér og í Reykholti er fín aðstaða til fundarhalda og hægt að halda ráð- stefnur og útvega fólki gistingu. En þetta stendur og fellur með góðum netaðgangi.“ Nú er eina netsambandið um venjulega símalínu sem er óskap- lega seinvirkt og vonlaust að hlaða einhverju niður, í mesta lagi hægt að sinna bankaviðskiptum og þess háttar. Í boði hefur verið þráðlaust samband frá fyrirtækinu emax en það hefur þótt mjög óstöðugt svo þau hafa ekki tengst því. Nú hafa þau heyrt að til standi að setja upp nýja sendi á Skáneyjarbunguna og þá gæti sambandið lagast. „Þá tengjumst við strax því þá getum við boðið til okkar fólki og nýtt þá góðu þjónustu sem hér er að hafa,“ segir Árný. Vilja tengjast sveitinni Ekkert þeirra fjögurra tengist daln- um svo neinu nemi. Þau segjast líka hafa verið svo upptekin við tiltekt á jörðinni og uppbyggingu húsanna að lítill tími hafi gefist til þess að stunda félagslíf og rækta sambandið við sveitungana. „En nú fer það að breytast,“ segir Harpa og bætir því við að hún hafi þó alltaf tekið þátt í árlegri kvennareið sem konurnar í dalnum standa fyrir. Hannes segir að allir nágrannar þeirra hafi undantekningarlaust tekið þeim vel og reynst þeim hjálpleg- ir. „Ef við höfum bankað upp á eða hringt hafa allir verið boðnir og búnir að hjálpa okkur og gefa okkur ráð, lána okkur tæki eða kippa upp drátt- arvélinni þegar við festum okkur.“ „Við höfum líka kippt öðrum upp,“ skýtur Árný inn í. Hannes bætir því við að eflaust séu þau eitthvað milli tannanna á fólki. „Því finnst eflaust fyndið að sjá okkur snúa heyi með heytætlu þar sem aðeins þrír armar virka. En það er allt í lagi.“ Friðrik er reyndar kominn til áhrifa í sveitinni, hann tók sæti í stjórn veiðifélags Reykjadalsár í vetur, enda mikill veiðimaður, þótt uppáhaldsíþróttin sé að ganga til rjúpna. Þau segjast hafa fullan hug á að tengjast samfélaginu í dalnum, sækja fundi og samkomur og eiga samskipti við nágrannana. Friðrik bætir því við að þeir Hannes hafi getað liðsinnt fólki með sinni lækn- isfræðilegu kunnáttu og sparað því sporin niður í Borgarnes ef svo hefur borið undir. „Ætli það endi ekki með því að við opnum stofu hér uppfrá,“ bætir Hannes við og brosir. Þau segjast líka hafa séð að nóg framboð er á alls kyns félagslífi í sveitinni. „Það væri hægt að ganga í kirkjukór eða sækja tónleika í Reykholti eða Fossatúni. Á Mið- Fossum er mikið líf og hægt að sækja hin og þessi námskeið og þannig mætti áfram telja.“ Þetta er ekki fjárfesting Bændur hafa stundum kvartað yfir því að þegar þéttbýlisbúar kaupi jarðir sé það þeirra fyrsta verk að setja upp skilti sem á stendur: Einkalóð, allur aðgangur bannaður. Þeir segja líka að erfitt geti reynst að fá þessa nýbúa til að taka þátt í smölun og öðrum störfum sem þarf að sinna í sveitinni. „Við viljum taka fullan þátt í störfum sveitarinnar og lokum ekki landinu fyrir umferð,“ segir Harpa. „Við höfum að vísu ekki farið á fjall ennþá en við greiðum fjall- skilagjald og smölum heimaland- ið.“ Hannes bætir því við að hann geti vel hugsað sér að fara á fjall, hann þurfi bara að gefa sig fram við fjallkónginn Jón á Kópareykjum. „Meðfram ánni norðan við veg- inn eru reiðleiðir sem við ætlum að halda opnum. Við höfum meira að segja rætt um að koma þar upp gerði þar sem hestamenn gætu áð með góðu móti. Það yrði okkur til ánægju,“ segir Hannes. Harpa bætir því við að þegar Kvennareiðin átti leið hjá Búrfelli í fyrra hafi Hannes komið út og trakterað konurnar á viskíi. Það er best að háls-, nef- og eyrnalæknirinn Hannes Petersen eigi lokaorðin í þessu spjalli þegar hann segir fyrir munn þeirra allra: „Fyrir okkur er þetta ekki fjárfest- ing. Við keyptum þennan stað til að vera á, en ekki til þess að ávaxta okkar pund.“ Myndir og texti: –ÞH Keyptum þennan stað til að vera á Rætt við tvenn hjón úr Reykjavík sem keyptu sér jörð í Reykholtsdal Friðrik og Hannes með stolt staðarins, sexhjól sem þeir keyptu í vor og þeir segja að hafi komið sér afar vel í girðingavinnunni. Við borðstofuborðið í gamla húsinu á Búrfelli, frá vinstri: Friðrik, Árný, Hannes og Harpa. Við dráttarvélina sem nágrannarnir þurftu einhvern tímann að kippa upp. Að baki sér í Búrfellshlíðina sem brátt verður þakin skógi og til vinstri er hlaðan sem nú er orðin að vélageymslu.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.