Bændablaðið - 12.06.2007, Page 18

Bændablaðið - 12.06.2007, Page 18
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200718 Stjórn Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra veitir árlega einu fyrirtæki á starfssvæði sam- takanna hvatningarverðlaun. Að þessu sinni var það bátasmiðjan Siglufjarðar Seigur ehf. á Siglu- firði sem hlaut verðlaunin vegna hugkvæmni og áræðis sem starfs- menn og stjórnendur hafa sýnt við uppbyggingu fyrirtækisins. ,,Það er mikil viðurkenning og hvatning í að fá svona verðlaun,“ sagði Guðni Sigtryggsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins, þegar Bændablaðið ræddi við hann. Hann sagði að Siglufjarðar Seigur hefði verið stofnaður árið 2005 af JE véla- verkstæði ehf. á Siglufirði, Seiglu ehf. í Reykjavík og Siglu fjarð ar- kaupstað. Í byrjun fullvann fyrirtæk- ið plastbátsskrokka sem steyptir voru hjá Seiglu ehf. í Reykjavík en síðan fór fyrirtækið út í að smíða bátanna frá grunni. Það hefur nú lokið smíði á sjö bátum þar af þrír sem fyrirtækið hefur alfarið byggt. Einn af þessum bátum var seld- ur til Noregs í vor og segist Guðni búast við því að hann opni leiðir til frekari sölu á bátum frá Seig ehf. til Noregs. Hann segir að mark- aður sé ágætur fyrir svona báta hét á landi. Að vísu sé hann dálítið brokkgengur, eins og hann orðaði það, því þegar verið er að hræra í kvótakerfinu kemur það alltaf fyrst niður á bátasmíðinni. Guðni segir að það séu um 3.500 vinnustundir á bak við einn svona bát fullgerðan. Upphafleg ætlun fyrirtækisins var að smíða sex báta á ári en í ár verða þeir fjórir en Guðni telur að mark- miðinu um sex báta á ári verði náð. Hjá fyrirtækinu vinna nú fjórir sér- þjálfaðir starfsmenn í meðferð og vinnslu plastefna. Guðni segir að það sé markmið fyrirtækisins að smíða báta sem eru samkeppnishæfir í verði og gæðum á við það sem best gerist, bæði innanlands og utan og tryggja við- skiptavinunum þjónustu sem upp- fyllir þarfir þeirra og óskir eins og best verður á kosið. Það var Adolf H. Berndsen, formaður SSNV, sem afhenti hvatn- ingarverðlaunin í húsakynn um Siglufjarðar Seigs en verðlauna grip- inn hannaði Fríða Björk Gylfadóttir, listamaður á Siglufirði. Sunnudaginn 3. júní var félag sem heitir Ólafsdalsfélagið formlega stofnað í Ólafsdal. Fé lagið hefur það að markmiði að fá leyfi yfir- valda til að endur reisa byggingar í Ólafsdal í Gils firði þar sem Torfi Bjarnason stofn aði fyrsta bænda- skóla lands ins árið 1880. Formaður félags ins var kjörinn Rögnvaldur Guð mundsson, einn af afkomend- um Torfa í Ólafsdal. Flestir stofn- endur félagsins voru annað hvort afkomendur Torfa eða eiga rætur sínar í Gilsfirði og nágrenni. Rögnvaldur sagði í samtali við Bændablaðið að stofnendur félags- ins hefðu verið 35. Fjöldi manns víða um land hefur lýst yfir áhuga á að ganga í félagið. Einnig er verið að skoða aðkomu Dalabyggðar að félaginu. Hann sagði að það fyrsta sem félagið muni gera sé að leita til landbúnaðarráðuneytisins um að fá yfirráðarétt yfir Ólafsdal og hefja framkvæmdir við endurbætur en hús á staðn um þarfn ast mikilla við- gerða. Lítið sem ekk ert hefur verið gert hús um á staðn um til góða, að því frátöldu að skóla húsið var klætt að utan fyrir nokkr um árum, og eru húsin orðin illa farin. Ýmsar hugmyndir uppi Ýmsar hugmyndir hafa komið fram um hvað geri eigi við Ólafsdal í framtíðinni. Flestar hugmyndirn- ar eru tengdar menningartengdri ferðaþjónustu. Ein hugmyndin er að koma upp lifandi safni sem sýni hvernig búið var í Ólafsdal á tíma Torfa Bjarnasonar en skólinn starf- aði frá 1880 til 1907. Rögnvaldur tók skýrt fram að allar þær hugmyndir sem komið hafa fram séu ómótaðar og því alveg óvíst hvað verður ofan á. Hann sagði að fyrsta verkið yrði að leita til landbúnaðarráðuneytisins um leyfi fyrir félagið að koma þarna að málum. Fáist það sé næsta verk- efni að leggja upp plön fyrir fram- tíð staðarins, afla fjár og hefjast svo handa um framkvæmdir. Þessi und- irbúningur gæti tekið eitt og hálft ár eða svo að sögn Rögnvaldar. Stjórn félagsins Á stofnfundi Ólafsdalsfélagsins var kjörinn 7 manna stjórn. Rögn- valdur Guðmundsson er sem fyrr segir formaður en aðrir í stjórn eru Svavar Gestsson sendiherra, Þórður Magnússon, stjórnar for mað- ur Marels, Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur, Guðjón T. Sig urðs - son, oddviti Dalabyggðar, Sig ríð ur Jörundsdóttir sagnfræðing ur og Halla Steinólfsdóttir. Í varastjórn eru Laufey Steingrímsdóttir og Arn- ar Guðmundsson blaðamaður. S.dór Ólafsdalur í Gilsfirði Félag stofnað til varðveislu fyrsta bændaskóla landsins Rögnvaldur Guðmundsson ferða- málafræðingur er formaður Ólafs- dalsfélagsins. „Mýramaðurinn hefur bara gengið ljómandi vel og aðsókn verið meiri en ég bjóst við fyr- irfram,“ sagði Gísli Einarsson sjónvarpsmaður og höfundur Mýramannsins aðspurður í til- efni þess að sýningum á verk- inu fer nú fækkandi. „Þetta var samið með það í huga að sýna það í Landnámssetrinu hér í Borgarnesi. Þar rúmast liðlega 80 manns á sýningu. Svo gerðum við undantekningu og vorum með eina sýningu á Hofsósi. Þetta er bæðið skáldskapur og byggt á sögulegum heimildum. Það má segja að þetta sé tilraun til að viðhalda hinni gömlu sagna- hefð sem tíðkaðist í baðstofum þessa lands og við fleiri tækifæri í gamladaga. En hjá okkur er raunar talmálið brotið upp og skotið inná milli vídeómyndum.“ Verkið sem Gísli samdi fyrr á þessu ári og hefur síðan sviðsett í samráði við Kjartan Ragnarsson forstöðumann Landnámssetursins rekur kosti, galla, göngulag, söng- og drykkjusiði og margvísleg önnur sérkenni Mýramanna. Verkið spann- ar yfir tímabilið allt frá landnámi og til Mýraeldanna á síðasta ári. Fyrirmyndinni að þessu segir Gísli að Páll Brynjarsson bæjarstjóri hafi gaukað að sér. En á námsárum sínum í Noregi sá Páll þar flutt sagna- verk sem byggðist uppá að segja molbúasögur af Norðlendingum í Noregi. Þetta var grunnhugmyndin og þar sem mikið var til af göml- um og nýjum skemmtisögum af Mýramönnum þótti tilvalið að snúa þessu upp á þá en hefði í raun getað verið í hvaða byggðarlagi sem var á landinu þar sem nægur efniviður var til staðar. ÖÞ Um tvöþúsund hafa séð Mýrarmanninn Siglufjarðar-Seigur hlaut hvatningarverðlaun SSNV Hrönn Ásgeirsdóttir stjórnarformaður SSNV afhendir Guðna Sigtryggssyni hvatningarverðlaunin. Gert var við skólahúsið í Ólafsdal að utanverðu árið 1996 en síðan hefur ekkert verið gert þar. Á myndinni til vinstri segir Guðmundur Rögn valds- son, sonur bóndans sem tók við búi eftir fjölskyldu Torfa Bjarna sonar, fundarmönnum frá lífinu í Ólafsdal á æskuárunum. Svona líta bátar Siglufjarðar-Seigs út en á þessu ári verða smíðaðir fjórir bátar og vonandi sex á ári þegar fram líða stundir. Sæði tekið úr Stála frá Kjarri á hverj- um morgni út júní Sæðistaka úr hæst dæmda stóðhesti landsins, Stála frá Kjarri í Ölfusi, stendur nú sem hæst yfir og verður út allan júnímánuði. Páll Stefánsson, dýralæknir tekur sæði úr klárnum á hverj- um degi og sæðir síðan þær merar, sem komið er með undir Stála samdægurs. Stáli er eini stóðhesturinn á Íslandi þetta vorið þar sem sæði er tekið á þennan hátt eftir að sæð- ingastöðinni í Gunnarsholti var lokað. Gert er ráð fyrir að um 70 merar verði sæddar í þessu verkefni í Kjarri. Folatollurinn er 150 þúsund krónur en þá er allt innifalið. “Þetta hefur gengið mjög vel, það er gott að eiga við klárinn og fyljunarpró- sentan frá honum er mjög góð”, sagði Helgi Eggertsson, eigandi Stála. MHH Helgi með Stála, sem hefur í nógu að snúast þessa dagana í sæðistökunni í Kjarri. Skyldu- störfum hestsins lýkur 1. júlí þegar honum verður sleppt út í haga.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.