Bændablaðið - 12.06.2007, Síða 26

Bændablaðið - 12.06.2007, Síða 26
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200726 Stærsta fjós á Íslandi fram til þessa var tekið í notkun á dögunum, en það er í Garði í Eyjafjarðarsveit. Nýja fjósið er um 2.140 fermetrar að stærð, íslensk límtrésskemma klædd yleiningum frá Límtré-Vírnet. Fjósið er glæsilegt í alla staði, vandað mjög og engu til spar- að að búa það sem best tækjum og tólum sem til þarf við nútíma búskap. Nýja fjósið stendur áberandi uppi á hæðinni ofan við bæjarhúsin skammt norðan við eldra fjósið og er útsýnið frá fjósinu einkar gott, en þaðan sést hvort heldur sem er yfir Akureyri og út fjörð sem og inn eftir. Félagsbú er í Garði, en þar búa bræðurnir Aðalsteinn og Garðar Hallgrímssynir, ásamt eiginkonum sínum þeim Ásdísi Einarsdóttur og Þórunni Ingu Gunnarsdóttur og börnum þeirra. ,,Hvað er mjólkin búin?,” spyr Aðalsteinn þegar hann tínir til kaffi, kex og súkkulaði þegar Bændablaðið kom í heimsókn að líta á nýja fjósið. Vitanlega var bærinn ekki mjólkurlaus, það leyndist léttmjólkurferna í ísskápn- um á kaffistofu fjóssins og því ekk- ert að vanbúnaði að hefja spjallið við þá bræður, Aðalstein og Garðar Í fjósinu eru 162 legubásar fyrir fullorðnar kýr og skipt þannig að 139 eru fyrir mjólkandi en 23 fyrir geldar en auk þess 82 legubásar fyrir kvígur á ýmsum aldri. Það eru því samtals 244 legubásar í fjós- inu. Þá eru mjög stórar hálmstíur fyrir smákálfa og einnig burðar- og sjúkrastíur. Haughús er undir fjósinu og steinbitagólf ofan á. Nú eru um 90 mjólkurkýr í hús- inu, geldneytið er úti við enn sem komið er og eitthvað af eldri kúm. Framkvæmdum innandyra er enda ekki að fullu lokið. Komin tími til að endurnýja Aðalsteinn og Garðar tóku við búinu af foreldrum sínum þeim Hallgrími Aðalsteinssyni og Magneu Garðarsdóttur. Þau hófu búskap í Garði, sem þau stofnuðu úr landi Jódísarstaða árið 1955. Bræðurnir tóku svo við árið 1980. ,,Það var kominn tími til að end- urnýja,” segir Garðar þegar talið berst að nýja fjósinu. Það sem fyrir var átti rætur sínar að rekja til upp- hafsára búskapar á jörðinni ,,og var á síðasta snúningi,” eins og hann orðar það. Bæði orðið of lítið og þarfnaðist mikillar endurnýjunar. ,,Við stöndum tveir að búinu og vildum gjarnan stækka við okkur, þannig að þegar farið var yfir málið kom ekki annað til greina en að byggja nýtt fjós. Ætli við höfum ekki byrjað að huga að bygging- arframkvæmdum árið 2003, þá tókum við ákvörðun um að byggja og fórum að skoða hvað best hent- aði,” segir hann. Auk þess að stunda búskapinn eru þeir bræður með umtalsverða verktakastarfsemi tengda landbún- aði, m.a. jarðvinnslu, plægingu, þeir tæta og eins stunda þeir kornrækt í samvinnu við hjónin í Grænuhlíð, Óskar og Rósu. Í sameiningu eiga búin félagið Grænagarð og hafa ræktað korn á um 50 ha lands á nokkrum stöðum í Eyjafjarðarsveit Vegna verktakastarfseminn- ar þótti ekki hentugt að koma upp hringekjufjósi líkt og er á Hrafnagili handan fjarðarins. ,,Sú leið sem við völdum hentar okkur afar vel, við eru ekki eins bundnir af því á hvaða tíma við förum í fjós og það fer vel saman við verktakavinnuna,” segja þeir bræður. Nú starfa 6 manns á búinu og við verktökuna, en synir Aðalsteins, Einar Örn og Magnús sjá um þann hluta starfseminnar að mestu leyti. ,,Við erum með fjóra á launum núna, en ætli megi ekki gera ráð fyrir að umsvifin verið eitthvað minni yfir vetrarmánuðina og við verðum þá þrír til fjórir. Það á eftir að koma í ljós,” segir Aðalsteinn. Allt undir sama þaki Það var Ívar Ragnarsson sem teiknaði fjósið og hannaði í sam- vinnu við bræðurna. ,,Við sátum lengi yfir þessu og vorum með frá fyrstu stigum málsins, við reyndum í sameiningu að finna út hvernig best væri að hafa þetta,” segja þeir Aðalsteinn og Garðar, en fljótt kom upp sú hugmynd að hafa allt undir sama þaki, þ.e. mjólkurkýr, kálfa- uppeldið og fóðrunaraðstöðu. Það er ein helsta ástæða þess hversu stór byggingin er. ,,Jú, þetta er sjálfsagt stærsta fjós á landinu, en alls ekki stærsta búið, það er ekki sama- semmerki þar á milli. Það lá fyrir að byggja þyrfti yfir bæði mjólk- urkýr og geldneyti og við ákváðum að hafa þetta allt í einni og sömu byggingunni. Af því skapast heil- mikið vinnuhagræði og þetta er allt óskaplega þægilegt,” bæta þeir við og bjóða upp á skoðunarferð um nýbygginguna. Þeir segjast hafa kappkostað að velja góð og vönduð tæki í fjósið. ,,Við reyndum að fá þau bestu tæki sem völ er á og okkur sýnist sem þau ætli að reynast afar vel, þau hafa verið í notkun í þrjár vikur og allt gengið mjög vel.” Fóðurgangur er eftir fjósinu endilöngu enda kúnum skipt eftir nythæð og væntanlegum burð- ardegi svo mismuna megi þeim í gjöf. Heillfóðurvagn gengur sjálf- virkt eftir fóðurganginum, og ratar eftir rafkapli sem fræstur er ofan í fóðurganginn en einnig má aka gjafavagninum eftir eigin höfði og stitur þá fjósamaðurinn við stjórn- völinn enda hægt að aka fóðri úr blöndurunum í næsta hús ef vill en í gamla fjósinu verður einnig geld- neytauppeldi. Flórgoðinn stendur fyrir sínu Í fjósinu er gríðar stórt og afkasta- mikið Cormall heilfóðurkerfi þ.e. blandarar og gjafavagn og mikið bákn áhorfs. ,,Við duttum niður á þetta kerfi og leist strax vel á, þetta er nýjung hér á landi að því er við best vitum,” segir bræðurnir. Þá er í nýja fjósinu tveir Lely A-3 mjaltaþjónar með öllum auka- búnaði og tveir Lely flórsköfu- róbótar sem er nýjung hérlendis en þeir skríða um eins og mýs og skafa mykjuna ofan í haughúsið gegnum rimana milli steinbitana. Flórskafan hefur fengið nafnið Flórgoði og er mikill vinnuþjarkur að sögn bræðranna. ,,Hann kemur vel út og kæmi mér ekki á óvart að fleiri bændur fjárfestur í slíku tæki,” segir Aðalsteinn. Flórgoðinn er forritaður þannig að hann fer af stað um fjósið á ákveðnum tíma og geta eigendur ákveðið hversu oft þarf að fara í leiðangur. Þá eru þær leiðir sem hann fer einnig stilltar inn, ,,hann fer þrjár leiðir núna, en vera má að þeim verði fjölg- að,” segir Garðar og bætir við að flórgoðinn anni mun meira svæði en hann geri nú. Hann er um 20 mínútur í hverri ferð og það er allt afskaplega hreint og fínt eftir hann.” Kýrnar voru ekki lengi að venj- ast flórgoðanum segja þeir og láta hann ekki trufla sig. Þá voru þær líka afar fljótar að venjast nýja fjósinu. ,,Þær eru vanar básafjósi þar sem þær voru bundnar. Við áttum alveg eins von á að þær yrðu órólegar fyrst í stað en raunin varð önnur. Þær voru ekki nema um sólarhring að átta sig á nýjum stað- háttum og nú er eins og þær hafi aldrei verið annars staðar en hér,” segja þeir Aðalsteinn og Garðar og bæta við að örlítið hafi þurft að ýta við sumum að skila sér til mjalta, þær hafi látið bíða aðeins eftir sér. ,,Annars finnst okkur þær almennt hafa verið furðu fljótar að ná þessu öllu.” Þá má nefna að í byggingunni er stórt mjólkurhús, það hýsir um 10 þúsund lítra mjólkurtank frá Lely Nautilus og er með sjálfvirku þvottakerfi. Loftræstikerfi er með loftræsti- mæni og opnanlegum gluggafögum sem eru á hliðum byggingarinnar en hvoru tveggja er stýrt sjálfvirkt frá veðurstöð á þaki hússins. Þá er lýsingu stýrt með birtu- skynjara og tímastilli og sjálfvirkt hitanemakerfi er tengt brunaboða. Einnig er hægt að stjórna hitastigi drykkjarvatns kúnna. Kálfafóstra er í fjósinu og annar þremur hópum kálfa. Þá er að sjálfsögðu fjöldi drykkjar kera í fjósinu svo og tvær kúa klór ur sem flestum nýjum fjós- um til heyrir, svo eitthvað sé nefnt. Rúmgóð 80 fermetra skrifstofu- rými og setustofa er á efri hæð mjólkurhússins í miðju fjósi og svalaloft framan við fjósmeginn en þaðan sést vítt og breitt um allt fjós. Úr skrifstofurýminu er fagurt útsýni yfir sveitina frá stórum vest- urglugga. Stefna að því að tvöfalda framleiðsluna Þeir Garðsbændur hafa nú um 400 þúsund lítra kvóta, en framleiðslu- getan í nýja fjósinu er um helmingi meiri. ,,Við ættum að gera framleitt hér um 7-800 þúsund lítra af mjólk á ári miðað við íslenskar kýr,” segir Aðalsteinn. Bræðurnir stefna að því að stækka við sig og mark- miðið er að ná fullri framleiðslu á næstu tveimur árum. Þeir segjast vera með mikið af gripum í uppeldi um þessar mundir og og á meðan greitt er fyrir umframmjólk eins og nú er gert telja þeir sig ekki þurfa að kaupa mjólkurkvóta strax. ,,Ég býst við að um þetta leyti á næsta ári verðum við komnir í þetta 6- 700 þúsund lítra framleiðslu og ná svo fullum afköstum innan tveggja ára,” segir Aðalsteinn. MÞÞ Stærsta fjós landsins tekið í notkun í Garði í Eyjafjarðarsveit: Kýrnar furðu fljótar að venjast nýjum aðstæðum Fjósið er engin smá smíði yfir 2.100 fm að stærð, en það hefur enn ekki verið að fullu tekið í notkun. Ljósm. MÞÞ Ábúendur í Garði, frá vinstri: Ásdís Einarsdóttir, Aðalsteinn og Garðar Hallgrímssynir og Þórunn Inga Gunnarsdóttir framan við mjaltaþjóninn í nýja fjósinu þegar það var til sýnis á dögunum. Ljósm. Benjamín Baldursson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.