Bændablaðið - 12.06.2007, Síða 27

Bændablaðið - 12.06.2007, Síða 27
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200727 Atlantsolía ætlar að fjölga af- greiðslustöðvum um landið á næst unni. Nýlega var opnuð af- greiðslustöð á Akureyri og er það 10. afgreiðslustöðin sem Atlants- olía opnar frá því fyrirtækið hóf starfsemi. Albert Þór Magnússon, fram- kvæmda stjóri Atlantsolíu, sagði í samtali við Bændablaðið að fyr- irtækið hefði nú hafið sókn á lands- byggðinni en fram til þessa hefði það einkum reist afgreiðslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Þrjár lóðir Að sögn Alberts er fyrirtækið kom- ið með lóðir undir afgreiðslustöðv- ar á þremur stöðum til viðbótar á landinu, Selfossi, Hveragerði og í Borgarnesi. Á þessum stöðum verða næstu stöðvar reistar að sögn Alberts. ,,Í kjölfarið á því munum við víkka sjóndeildarhringinn enn frek- ar og reisa afgreiðslustöðvar víðar um landið,“ sagði Albert. Þjónusta við bændur Atlantsolía hefur boðið bændum upp á ákveðna þjónustu. Fyrirtækið býður þeim að láta þeim í té olíu- tanka og síðan er einn bíll ein- göngu í því að fara um og fylla á þessa tanka hjá bændum. Albert segir að það sé orðið þónokkuð um að bændur hafi komið inn í þessa þjónustu. Þeir þurfa í framhaldinu ekki að gera annað en svara spurn- ingum fyrirtækisins um hvort þá vanti olíu á tankana. Atlantsolía hefur verið gagnrýnd í fjölmiðlum í vetur fyrir að vera komin með sama olíu- og bens- ínverð og hin olíufélögin. Albert segir að þegar Atlantsolía hóf starf- semi sína hafi fyrirtækið boðið bensín og olíur á mun lægra verði en hin olíufélögin. Þetta hafi orðið til þess að þau lækkuðu sitt verð og því megi spyrja í dag, ef verð er borið einhvers staðar saman, hvort Atlantsolía hafi farið með sitt verð upp til þeirra eða þeir með sitt niður til Atlantsolíu. ,,Það hefur líka sýnt sig að þar sem Atlantsolía er með afgreiðslu- stöðvar er samkeppnin meiri. Tilboð eru meira ríkjandi og verð á bens- íni og olíu hjá gömlu félögunum er mun lægra þar sem þau eru með afgreiðslustöðvar nærri stöðvum Atlantsolíu. Fólk út á landi, þar sem Atlantsolía er ekki með afgreiðslu- stöðvar, geldur þess, vegna þess að gömlu félögin sinna þeim stöðum ekki neitt og þar er bensínverðið hæst. Þessu ætlum við að breyta,“ sagði Albert Þór Magnússon. S.dór Atlantsolía Fjölgar afgreiðslustöðvum á landsbyggðinni Albert Þór Magnússon framkvæmdastjóri Atlantsolíu við opnun bens- ínstöðvar á Akureyri, þeirrar fyrstu á landsbyggðinni.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.