Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 28

Bændablaðið - 12.06.2007, Qupperneq 28
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200728 Dreifbýliskonur styrkja böndin Á síðastliðnum tveimur árum hafa konur vítt og breitt um landið tekið þátt í verkefninu Byggjum brýr sem hefur það aðalmarkmið að efla og styrkja konur í dreifbýli með námskeiðahaldi. Tvær þessara kvenna, önnur á Austurlandi og hin á Vesturlandi, skýrðu Bændablaðinu frá þátttöku sinni í verkefninu. Hefur skilað mjög miklu Helga Guðmundsdóttir er við skipta fræð ingur og býr í Gilsár teigi II í Eiðaþinghá. Hún var svo kölluð lykilkona á sínu svæði og hafði það hlut- verk að ýta undir frum kvæði, örva og hvetja til þátttöku og var því eins konar þjálfari. „Ég bý í dreifbýli og hef sýnt þessum málum áhuga; það er, ég hef brennandi áhuga á fram þróun á nýsköpunarstörfum í sveitum. Ég hef setið í stjórn búnaðar sam bandsins á svæðinu og er gamall kennari og lenti því í leiðtogahóp en ég er vön að matreiða efni ofan í fólk,“ útskýrir Helga og segir jafnframt: „Mér finnst þetta verkefni frá bært framtak og hugmyndin er geysi lega góð. Eini gallinn var að námsefnið var svolítið sundurlaust og það krafðist mikils undirbúnings lykilkvennanna. Ákveðnir þætt ir námsefnisins eru þó algjör gull korn, eins og til dæmis hefti sem við fengum gefins um heima- vinnslu sem var mjög gott efni. Ég held að konunum upp til hópa hafi fundist þetta einstaklega skemmtilegt og þá einkum konum sem eru síst duglegar að sækja umræðufundi, námskeið og slíkt. Ég hefði ekki viljað vera án þessarar reynslu og er þakklát fyrir hönd þeirra kvenna sem komu í þetta. Konurnar okkar hér kalla á að við hittumst aftur í haust og það verður kannski til þess að tengslanet dreifbýliskvenna verður til. Þannig að þetta hefur skilað mjög miklu.“ Gott að styrkja og virkja konur Katharina Kotschote býr á Hofs stöðum í Eyja- og Miklaholtshreppi en er fædd og uppalin í Þýskalandi og hefur verið búsett hérlendis í þrjú ár. Hún var almennur þátttakandi í Byggjum brýr-verkefninu og er mjög ánægð með hvernig til tókst. „Þetta byrjaði á því að við kom um nokkrar saman á konudaginn fyrir tveimur árum þar sem Ragn hildur Sigurðardóttir kynnti verk efnið. Þetta hljómaði allt vel og skemmtilega hjá henni og því ákvað ég að prófa að vera með. Mér finnst mikilvægt að konur sitji ekki bara heima heldur taki þátt. Einnig finnst mér mikilvægt að styrkja konur hér til að þær taki virk- an þátt í samfélaginu,“ segir Katharina. Hún segir forvitnina hafa rekið sig áfram í verkefninu en hún tók þátt í örnámskeiði í landbúnaði og í vetur sótti hún námskeið um heimavinnslu og ferðaþjónustu. „Námskeiðin voru ágæt en nám skeiðsefnið var ekki aðalmál ið fyrir mig. Það var gaman að hitta konurnar og gera eitthvað saman og það fannst mér aðalmálið. Lykilatriði var að koma hugmyndafluginu af stað á fundunum. Ég kynntist nýjum konum og það kom mikið út úr því. Það kom til að mynda í ljós að nánast allar konurnar voru að gera eitthvað heima hjá sér og margar voru í einhvers konar handavinnu. Við ætlum að vera með markað í sumar en hugmyndin kom úr hópnum sem ég var í. Ég verð með græna rabarbarasultu á markaðnum að þýskri fyrirmynd og það verður spennandi að sjá hvernig fólki líkar hún,“ segir Katharina að lokum. ehg Building Bridges – Conference in Ársalur Hotel Radison SAS hotel Saga 22. june 2007 Ráðstefna verður haldin í tengslum við verkefnið Byggjum brýr föstudaginn 22. júní á Hótel Sögu, kl 13:00-18:00. Megin markmið verkefnisins er að virkja og hvetja konur í landbúnaði enn frekar í því sem þær vilja taka sér fyrir hendur og styrkja þær þannig persónulega, félagslega og samfélagslega. Ná fram jafnrétti innan landbúnaðargeirans og koma í veg fyrir flótta ungra kvenna úr greininni. 13:00 Rector Ágúst Sigurðsson, Agricultural University of Iceland (LbhÍ) 13:15 Building- Bridges, educating women in rural areas Ms. Ásdís Helga Bjarnadóttir, the project coordinator, LbhÍ 13:40 Women in icelandic agriculture Ms. Erna Bjarnadóttir, The Farmers Association in Iceland 14:00 Empower women in agriculture to succeed Ms. Jolande Leinenback, project manager from Ed-consult in Denmark 14:25 Building bridges succsess storys: From Iceland From Denmark From Slovak From Tuscany, Italy 15:25 The power of networking Ms. Guðrún Magnúsdóttir, The Icelandic Association of Women Entrepreneurs 16:00- 18:00 At the end of the Conference the Ministry of Agriculture will invite everyone to participate in a cultural end light dinner event….. Matarsetrinu að Grandagarði 8, milli kl. 13:00-16:00, laugardaginn 23. júní. Velkomin í Matarsetri þar sem matur, menning, líf og starf íslenskra og tékkneskra kvenna í dreifbýlinu verður kynnt; handverk, ferðaþjónusta, saga, upplifun, smakk og ýmislegt annað skemmtilegt verður á boðstólnum! An open day where women in Iceland and the Czech Republic presents their live in the rural area; their work, production, handcraft, nationality, hopes and dreams.

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.