Bændablaðið - 12.06.2007, Page 36
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200736
Líf og starf
Stutt saga af uppátækjasömum
frum kvöðlum í sveitinni
Ábúendur í Holtsseli í Eyja fjarð-
arsveit, þau Guðrún Egilsdóttir og
Guðmundur Jón Guðmundsson,
eru þekkt fyrir að fara ótroðnar
slóðir og hafa í áranna rás verið
frumkvöðlar að mörgum nýjungum
í bútækni.
Þau hafa oftar en ekki flutt sjálf inn
tæki og tól til bústarfanna enda afar
dugleg að sækja sýningar erlendis
og ekki síður að fara á eigin vegum
og banka uppá hjá bændum í öðrum
löndum ef þurft hefur til að skoða
og spyrja eftir reynslu þarlendra
bænda af hinum og þessum búnaði
til búskaparins.
Þá hafa þau undanfarin ár flutt inn
og miðlað til bænda hómópatískum
náttúruefnum frá fyrirtækinu Alta-
Vet í Danmörku sem selur alls kyns
stoð- og bætiefni til notkunar við
margs konar sjúkdómum í skepn-
um, s.s. júgurbólgu, sleni og melt-
ingarsjúkdómum og föstum hildum
svo eitthvað sé nefnt.
Og nýjasta „uppátæki“ þeirra hjóna
er ísgerðin.
Fyrir tæpum tveimur árum hófst
framleiðsla á mjólkur-/rjómaís
nefnt Holtselshnoss hjá Guðrúnu
og Guðmundi eftir að þau höfðu
skoðað áhugaverða ísgerðarvél
erlendis.
Guðmundur rak augun í auglýsingu
í breska bændablaðinu Farmers
Weekly þar sem þessi vél var kynnt
og ákváðu þau að innrétta pláss á
hlöðuloftinu og hefja ísgerðina.
Ísinn er aðallega framleiddur
fyrir betri veitingahús og sælkera-
búðir og selst mjög vel.
Ísinn er gerilsneyddur (ísvél-
in sér um það sjálf) og er án allra
aukaefna og því hrein náttúruafurð
en hefur samt eins árs geymsluþol
í frysti.
Ísvélin er mjög fullkomin og tölvu-
stýrð en hægt er að velja á milli 400
mismunandi uppskrifta við ísgerðina
og allar hugsanlegar bragðtegundir,
s.s. allar hefðbundnar tegundir eins
og jarðarberja, vanillu, hnetu og
súkkulaðiís en einnig framandi teg-
undir eins og bjórís (gæti orðið góð
söluvara á börum) og margt fleira
sem ísunnendum gæti þótt gott.
Og svo datt þeim hjónum í
hug sú snildarhugmynd að hressa
uppá uppskriftalistann og hafa
sínar einkauppskriftir til viðbót-
ar. Auðvitað varð KEA-skyr fyrir
valinu og farið var af stað með til-
raunaframleiðslu af skyr-ís þar sem
notað er hreint KEA-skyr án bragð-
efna sem undirstaða í framandi og
frábæran ís sem býður uppá ýmis
bragðefni, undirritaður smakkaði
einmitt skyr-ís með bláberjum og
er ekki hættur að sleikja út um nú
þremur vikum síðar.
Þá hafa þau einnig framleitt ítalskan
ávaxtaís sem er bæði eggja- og
mjólkurlaus, að ógleymdum ís fyrir
sykursjúka.
Nú stendur fyrir dyrum vígsla
glæsilegs ísveitingastaðar sem inn-
réttaður hefur verið á fjósloftinu í
Holtsseli þar sem framreiddur verð-
ur ísinn góði ásamt léttum veiting-
um öðrum og verður gaman að rúlla
í fjörðinn með frúna og barnabörnin
í ísveislu í Holtssel.
Þau hjón eru góð fyrirmynd um
átakið „Beint frá býli“ og vís til
fleiri uppátækja ef ég þekki þau rétt.
Það var því mjög ánægjulegt og kom
ekki á óvart að Búnaðarsamband
Eyjafjarðar veitti þeim hvatning-
arverðlaunin 2007.
HEYRT Í SVEITINNI
Kristján Gunnarsson
mjólkureftirlitsmaður
www.bbl.is
Út er komin bókin Úr steina-
ríkinu. Höfundur er Bjarni E.
Guðleifsson, náttúrufræðingur, á
Möðruvöllum í Hörgárdal. Bókin
er þriðja ritið í bókaflokki hans
Náttúruskoðarinn, en áður hafa
komið út bækurnar Úr dýrarík-
inu, 2005, og Úr jurtaríkinu,
2006.
Bókin veitir margháttaðan fróð-
leik um steinaríkið, eins og fyrri
bækur höfundar veittu um dýrarík-
ið og jurtaríkið. Fram kemur bæði
í formála bókarinnar og heimilda-
skrá að vel hefur verið vandað til
efnisöflunar og að margir kunnáttu-
menn, hver á sinu sviði, hafa lesið
yfir handritið. Þannig er í bókinni
mikill og staðgóður fróðleikur um
steinaríkið, bæði eins og það er frá
náttúrunnar hendi en einnig inngrip
mannsins í það og hagnýting þess
til mannlegra þarfa
Væntanlegir lesendur gætu ætlað
að hér lægi klippt og skorið fyrir
alþýðleg og aðgengileg bók um
það efni, sem bókarheitið vísar til,
steinaríkið. Víst má það til sanns
vegar færa. Allar „ríkja“ bækur
Bjarna, dýra-, jurta- og steinaríkja,
sprengja þó þann ramma utan af sér.
Er þetta kostur eða galli? Víst
er hugsanlegt að einhverjir kaupi
bókina og telji sig svikna af því hve
langt Bjarni seilist út á jaðar eða út
fyrir uppgefið heiti á titilsíðu. Mér
segir þó hugur að hinir verði í mikl-
um meirihluta sem þakka fyrir allt
það hugmyndaríki, sem í bókinni er
að finna.
Þannig er að á þeirri upplýsinga-
öld, sem við nú lifum, þá er vandinn
frekar að verja sig fyrir upplýsinga-
flóðinu heldur en að láta það stjórn-
laust yfir sig ganga. Í því grugguga
fljóti, sem þar vellur fram, sé það
mörgum að skapi að leggja eyra
við þann streng sem Bjarni slær í
bókum sínum, þjóðlegan og nátt-
úruvænan stíl, þar sem höfundur
kann þá list að skopast að sjálfum
sér. Sögur og sagnir og ekki síður
ljóð og kveðskapur tengdur nátt-
úrunni er þar áberandi og meðvitað
eða ómeðvitað er bókin andóf gegn
tíðaranda efnishyggju og úrvals-
vísitalna og vitnisburður um það að
lífsfyllingin kemur innan frá þegar
betur er að gáð.
Ég sé fyrir mér að bókin henti
vel þeim sem er á leið í sumarbú-
stað til að vinda ofan af streitu
hversdagsins, hún er á bylgjulengd
við bjarkarilm og fuglasöng sem og
íslenskan ljóða og sagnaarf án þess
að slaka nokkuð á fræðilegu gildi
sínu.
Ég sé bókina einnig fyrir mér til
tækifærisgjafa, bæði handa leitandi
fólk á leið út í lífið og þeim sem
eiga sér ljúfar minningar um tengsl
við náttúru og umhverfi.
Það er margt og mikið vitað um
steinaríkið en tóninn sem sleginn er
í þessari bók er ekki víða sleginn.
Matthías Eggertsson
Bókarfregn
Úr steinaríkinu – Náttúruskoðarinn III
Vefrænt aðgengi að loftmyndum
Fram kom í síðasta Bændablaði
að Bændasamtök Íslands og
Loftmyndir ehf hafa gert með
sér samning um vefrænt aðgengi
BÍ að landfræðilegum gögnum
Loftmynda.
Loftmyndir ehf hafa staðið fyrir
loftmyndaflugi frá árinu 1996 og hafa
þeir nú lokið við að taka myndir af
öllu landinu. Myndatöku er þó hvergi
lokið því ætlunin er að endurnýja
myndirnar á nokkurra ára fresti.
Fjölmörg tækifæri skapast með
aðgengi að loftmyndasafni sem
þessu enda myndirnar í góðri upp-
lausn. Fyrst og fremst hafa ráðu-
nautar nú möguleika á að nota
loftmyndir sem hjálpargögn við
þeirra hefðbundnu störf. Einfalt
er að mæla vegalengdir og flat-
armál og taka hnitapunkta með
hjálp veflausnarinnar. Þess vegna
nýtast myndirnar vel í alla ráð-
gjöf hvað varðar jarðrækt og fram-
ræslu. Einnig til að staðsetja ýmsa
hluti svo sem vatnsból og rotþrær.
Veflausnin býður uppá möguleika til
að geyma í gagnagrunni þau atriðið
sem verið er að staðsetja og mæla.
Með tímanum mun því byggjast upp
miðlægur gagnagrunnur sem gefur
okkur t.d. yfirlit yfir úttektir á þró-
unar- og jarðabótaverkefnum svo
sem ræktun korns og upphreinsanir
úr framræsluskurðum. Einnig mun
með tímanum byggjast upp gagna-
grunnur yfir ræktað land á Íslandi
Bændur geta fengið gert túnkort
á hagstæðara verði en almennt
hefur tíðkast. Vegna þess að stað-
setning túnanna er geymd í miðlæg-
um gagnagrunni má með einföldum
hætti, breyta og laga túnkortin eftir
því sem ræktarlandið breytist.
Ýmis sérverkefni má vinna með
hjálp loftmyndanna gegn sérstöku
gjaldi og má þar helst nefna hnit-
un landamerkja og verkefni sem
tengjast skipulagsmálum við mann-
virkjabyggingar, afmörkun stakra
lóða og landspildna.
Aðgengi að loftmyndagrunn-
inum er nýtilkomið og eiga ráðu-
nautar því eftir að læra og tileinka
sér möguleikana sem honum fylgja.
Margt á enn eftir að þróa og laga
að þörfum ráðunauta og bænda.
Frekari fréttir af þessum vettvangi
er því að vænta von bráðar.
BPB
Hluti af ófullgerðu túnkorti.
Veflausn og myndagrunnur Loftmynda ehf.