Bændablaðið - 12.06.2007, Page 38

Bændablaðið - 12.06.2007, Page 38
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200738 Undanfarin ár hefur endur- mennt unardeild LbhÍ boðið upp á námskeið í tamningu fjár- hunda. Aðalleiðbeinandi nám- skeiðanna er Gunnar Einarsson frá Daðastöðum, en hann hefur í gegnum tíðina flutt inn öfluga hunda til undaneldis, alið og tam- ið fjölda hunda af Border Collie kyni. Hann hefur einnig leiðbeint um 850 manns á 111 námskeiðum á árabilinu frá 1993-2007. Áhugi á notkun fjárhunda við smala- mennskur, einkum í sauðfjárrækt en einnig í hrossarækt, hefur stóraukist. Tamningaaðferðin get ur þó nýst einnig í öðrum til- gangi, þ.e. að hafa almennt betri stjórn á hundinum. Boðið er reglulega uppá grunn- námskeiði í tamningu fjárhunda sem og framhaldsnámskeið. Grunn- tamning gerir hundinn ekki sjálf- krafa að góðum fjárhundi, frek- ar en grunntamning á hrossum. Mikilvægt er því að beita mark- vissari þjálfum og bæta við frekari þekkingu þegar grunnatriðunum er náð. Hámarksfjöldi þátttakenda á hvert námskeið er 10. Þátttakendur vinna með eigin hund á námskeiðunum. Kennsla er að mestu verkleg en að auki eru haldnir fyrirlestrar um notkun fjárhunda. Námskeiðið nýtist eig- endum Landamæra-Collie (Border- Collie) hunda best en eigendur ann- arra hunda geta einnig haft gagn af námskeiðinu. Lágmarksaldur hunda er 6 mánaða. Gerð er sú krafa að hundar sem koma á nám- skeiðið skulu vera bólusettir við smáveirusótt (smitsjúkdómur) og skal bólusetningin ekki vera eldri en 2 ára og ekki yngri en 10 daga. Hugsanleg smithætta er á ábyrgð hundaeigenda. Hundar skulu einn- ig vera ormahreinsaðir og skal sú hreinsun ekki vera eldri en 12 mán- aða. Þrjú námskeið verða haldin nú í júnímánuði. Grunnnámskeið: Tími: fös. 15. júní kl 10:00-18:00 og lau. 16. júní kl. 09:00-18:00 (22,5 kennslustundir) að Ytra- Lóni á Langanesi. Tími: þri. 19. júní kl 10:00-18:00 og mið. 20. júní kl 09:00-18:00 (22,5 kennslustundir) að Kirkju- bóli í Dýrafirði. Framhaldsnámskeið: Tími: mán. 18. júní kl 10:00-18:00 (10 kennslustundir) í Eyjafirði – nánar tilgreint síðar. Námskeiðin eru styrkhæft í gegn- um ýmis stéttarfélög sem og fyrir bændur gegnum Starfsmenntasjóð bænda – sjá www.bondi.is Upplýsingar og skráning: end- urmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5033/843 5308. Einnig er hægt að skrá sig í gegnum heimasíð- una www.lbhi.is undir Námskeið í hægri stiku og á www.landbunadur. is – Nám og námskeið. Heimildarmyndin Annað líf Ástþórs var forsýnd á hvítasunnu- dag á Skjaldborgarhátíðinni á Patreksfirði en myndin er hetjusaga ungs bónda, Ástþórs Skúlasonar á Melanesi á Rauðasandi, sem lamaðist fyrir neðan mitti eftir alvarlegt umferð- arslys í byrjun árs 2003. Þrátt fyrir lömunina ákvað hann fyrir tæpu ári að taka við búforráðum á Rauðasandi eftir foreldra sína ásamt unnustu sinni, Margréti Fanneyju Sigurðardóttur. Í myndinni er fylgst með dag- legu lífi Ástþórs, allt frá því hann stundaði endurhæfingu á Grensás- deildinni til dagsins í dag í bústörf- unum. Ungi bóndinn mætir á hverj- um degi miklum hindrunum og þröskuldum sem hann reynir að yfirstíga eftir bestu getu og eru fá verk sem vaxa Ástþóri í augum. „Ég hef alltaf verið hrifinn af bændum og mig hafði lengi langað að gera mynd um bónda. Síðan frétti ég af manni sem hafði lent í bílslysi, lamast fyrir neðan mitti og byggi í sveit en þá kviknaði áhugi minn. Ég hafði samband við Ástþór þegar hann var á Grensási og í fyrstu leist honum ekkert á að hafa mann yfir sér næstu árin en síðan sló hann til. Ég fylgdist með honum í þrjú ár frá 2003 og fór alls 11 ferðir vestur á mismunandi árstíðum. Viðbrögð við myndinni hafa verið framar vonum og ég hef fengið góða gagnrýni. Núna er ég að undirbúa aðra heim- ildarmynd sem of snemmt er að tala ítarlega um en ég get sagt að hún gerist í sveit og náttúran er alltaf til staðar í myndunum mínum,“ segir Þorsteinn Jónsson kvikmyndagerð- armaður. ehg Hetjusaga lamaðs bónda Sumarhátíðin Bjartar nætur Fjöruhlaðborð Um Jónsmessuna hefur á ann- an áratug verið haldin vegleg sumarhátíð í Hamarsbúð á Vatnsnesi. Að þessu sinni verður umrædd hátíð hald- in laugardaginn 23. júní og hefst kl. 19:00. Þetta er orð- inn árviss atburður þar sem Húsfreyjurnar á Vatnsnesi framreiða margs konar sæl- kerarétti sem sumir hverj- ir eru afar fáséðir á borð- um landsmanna. Mikið er lagt upp úr að matföng- in á hlaðborðinu séu allt í senn: Fjölbreytt, sérstök og í fyrsta gæðaflokki svo sem flestir geti fundið eitthvað við sitt hæfi í mat og drykk. Fjöruhlaðborðið er löngu landsþekkt og sækja gestir þangað um langan veg til að njóta þeirrar sérstöðu sem þarna er boðin. Áhugasömum skal bent á að matseðillinn er birtur á ://www. northwest.is Fastur liður í sumarhátíðinni eru tvær áhugaverðar göngu- ferðir sem farnar eru þennan sama dag, önnur á Vatnsnesfjalli, hin með ströndinni norðan Hamarsbúðar. Göngufólk endar ferðirnar við fjöruhlaðborðið. Mikið var um að vera hjá Birnu Mjöll Atladóttur, bónda á Breiðavík í Vestur-Barða strand- ar sýslu, í sauðburðinum sem og öðrum sauðfjárbændum. Á þess um mikla álagstíma prófaði Birna Mjöll nýtt græðandi krem, Sára-Galdur, sem hún fullyrðir að hafi bjargað sér og sínum á þess um tíma. „Þessi uppgötvun mín á Sára- Galdri átti sér stað í sauðburðin um í fyrra. Þá vorum við með heim- alninga og þrír þeirra fengu vört- ur í kringum munninn. Sú sem ann aðist þá kvartaði yfir þessu og fannst þetta ljótt. Sárakremið var á borðinu svo að ég sagði stelpunni að bera þetta á útbrotin. Tveimur dögum síðar sagði hún að vörturnar væru horfnar en eftir voru einung- is hárlausir blettir,“ útskýrir Birna Mjöll og segir jafnframt: „Ástæða þess að kremið var á borðinu var sú að í kringum sauð- burðinn eru lömbin slímug og það er farið inn í rollur og maður brenn- ur á höndum svo maður er alltaf að prófa ný krem. Sára-Galdur er svolítið feitt krem og þeir sem not- uðu það í kringum sauðburðinn núna héldu sér góðum af þurrki og bruna allan tímann. Þetta er algjört undraefni. Þegar náttúran var að lifna við fékk ég flóabit og var með töflur við því. Eina nóttina var ég alveg viðþolslaus vegna ertings og bar á bitin Sára-Galdur. Við það fór kláðinn en ég fann enn aðeins fyrir bitunum.“ Eingöngu íslenskar, ósnortnar jurtir Frá árinu 1990 hefur Aðalbjörg Þor- steinsdóttir starfað við að þróa og framleiða smyrsl, salva og áburði úr plöntum sem hún tínir á heima- slóðum sínum við Tálknafjörð og einnig á stórum svæðum við Patreksfjörð og Arnarfjörð. Hún á heiðurinn af kreminu Sára-Galdri sem Birna Mjöll á Breiðavík notar nú óspart með góðum árangri. „Það er mjög ánægjulegt að fá slík ummæli um vörurnar sínar en mest er um vert að virknin sé svona góð, þá er takmarkinu náð. Mér var ýtt út í þessa framleiðslu af fjölskyldunni eftir að hafa próf- að og þróað uppskriftir sem ég sótti í hefðir og sögusagnir sem gengið hafa mann fram af manni á Íslandi í hundruð ára. Ég nota eingöngu íslenskar jurtir í vörurnar mínar og nota engin rotvarnar-, litar- eða ilmefni. Ég er komin með lífræna vottun á landsvæðið þar sem ég tíni villtu jurtirnar og það hefur mikla þýðingu,“ segir Aðalbjörg sem framleiðir einnig vöðva- og liðagaldur, fótagaldur, húðgaldur, bossa- og bumbukrem og vara- salva. ehg Undrakrem úr íslenskum jurtum Hér má sjá á heimalning á Breiðavík hvernig hann steyptist út í vörtum í kringum munninn en með því að bera kremið Sára-Galdur á útbrotin hurfu þau á tveimur dögum. Um 300 árlegir viðburðir á landinu Landssamtök hátíða og menningarviðburða (LHM) eru eins árs gömul samtök og hafa á skrá um þrjú hundruð árlegar hátíðir og viðburði hér á landi. Júlíus Júlíusson, formaður samtakanna, segir ýmislegt vera á döfinni hjá samtökunum. „Samtökin voru stofnuð í maí árið 2006 í Ketilshúsinu á Akureyri. Þar komu um 60 stofnfélagar allsstaðar að af landinu. Þeir sem vinna í þessu áttu engan til að leita til og voru margir einir að vinna í þessu hátíðaskipulagi og núna eru þetta víða orðnar miklar og stórar hátíðir. Því stofnuðum við þessi samtök til að standa sameiginlega vörð um hagsmuni og vinna saman á landsvísu við að kortleggja menningarvið- burði. Núna er verkefni okkar að vera málsvari fyrir hátíðarnar, efla fagmennsku og fræðslu og koma upp þekkingarbrunni um alla við- burðina vítt og breitt um landið. Hugmynd er uppi um að stofna sjóð sem gæti þá hugsanlega styrkt viðburði og einnig er í burðarliðnum að opna heimasíðu með viðburðalista sem mikið er spurt um,“ segir Júlíus Júlíusson, formaður LHM, og framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík. Viðburðadagatal í júní 2. júní-19. ágúst Menningarveisla Sólheima 8.-17. júní Víkingahátíð í Hafnarfirði 18.-24. júní Við Djúpið, tónlistarhátíð á Ísafirði 23. júní Jónsmessuhátíð víða um land 23. júní Flughelgi Flugsafns Íslands á Akureyri 23. júní Skógardagurinn mikli á Egilsstöðum 23. júní Fjöruhlaðborðið í Hamarsbúð á Vatnsnesi 22.-24. júní Harmonikkuhátíð í Húnaveri í Húnavatnshreppi 28.-30. júní Blúshátíð á Ólafsfirði 29.júní-1. júlí Bíldudals grænar á Bíldudal 29. júní-1. júlí Hamingjudagar á Hólmavík 27.-30. júní Djasshátíð á Egilsstöðum 27. júní-1. júlí Act Alone leiklistarhátíð á Ísafirði 30. júní Handverksdagurinn á Blönduósi ehg Námskeið í tamningu fjárhunda Dagana 2.-6. júlí næstkomandi verður starfrækt sumarsmiðja fyrir börn í Tjarnarlundi í Saurbæ og er hún ætluð börnum á grunnskólaaldri úr Dalasýslu og Austur-Barðastrandarsýslu. Markmiðið með sumarsmiðj- unni er að gefa börnun á svæð- inu kost á samstarf við fagmenn á sviði lista og hönnunar þar sem fléttað er saman verklegri og fræðilegri nálgun og unnið út frá aðstæðum á svæðinu. Innblástur verður fenginn frá umhverfi og náttúru Vesturlands, jarðfræði og menningu, og áhersla lögð á að nýta þau hráefni og viðfangs- efni sem tiltæk eru. Hljóðheimur umhverfisins og hversdagslegra hluta verður kannaður, þar á meðal vindurinn sem er góður til að skapa hljóð en einnig til að láta hluti fljúga. Sumarsmiðjan er skipulögð í tengslum við Myndlistaskólann í Reykjavík en umsjónarmað- ur hennar er Þóra Sigurðardóttir fyrrum skólastjóri þess skóla. Skráning fer fram til 15. júní í síma 551 1990. Námskeiðið stend ur í 20 kennslustundir og er möguleiki á að skrá börn í sumar- dvöl dagana sem það stendur yfir að Ytri-Fagradal á Skarðsströnd í umsjá Höllu Stein ólfs dóttur sem hefur full réttindi til að annast börn í sumardvöl. Nánari upplýs- ingar veitir Þóra í síma 896 1930. Sveitarstjórn Dalasýslu styrkir námskeiðið ásamt fleirum. Sumarsmiðja í Tjarnarlundi

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.