Bændablaðið - 12.06.2007, Blaðsíða 40
Bændablaðið | Þriðjudagur 12. júní 200740
Ýmislegt spennandi er á döfinni
hjá fyrirtækinu Farmers Market
sem hannar og framleiðir föt
og fylgihluti eingöngu úr nátt-
úrulegum hráefnum þar sem
íslenska ullin er í hávegum höfð.
Nýjar vörur og útflutningur til
Norðurlandanna er nú helst á
dagskrá.
„Það er aðeins að bætast í hjá
okkur en við erum að hlaða utan
um kjarnann sem við erum með. Í
haust munum við selja alla vöru-
línuna okkar í Danmörku, Svíþjóð
og mögulega í Finnlandi. Við
erum að reyna að útvíkka og hugsa
íslensku lopapeysuna aðeins upp á
nýtt og þróa hana. Það er frábært
að geta verið með íslenskt hráefni
í sölu erlendis en við erum fyrst
og fremst að keppa í gæðum. Við
leggjum mikið upp úr hönnuninni
og setjum ekkert í gang nema vera
100 prósent ánægð með vöruna og
það kostar oft margar tilraunir,“
segir annar eigandi fyrirtækisins,
Jóel Pálsson.
Á síðasta ári vann fyrirtækið úr
tveimur tonnum af ull til að fram-
leiða vörur sínar og mun það magn
aukast töluvert á þessu ári.
„Við erum með prjónakonur hér
heima en til lengri tíma erum við
að hugsa þetta sem vörumerki og
útflutningsvöru og að hægt sé að
vinna þetta fyrir stórar pantanir. Því
höfum við kannað aðstæður í Kína
en þar eru möguleikar sem eru ekki
fyrir hendi hér heima. Hérna er þetta
aðallega gert í íhlaupavinnu en það
er erfitt að eiga við það til lengd-
ar nema að maður eigi verksmiðju.
Við teljum að bændamenning og
-stemmning eigi mikið inni og að
meira mætti gera úr verðmætum
sem skapast hjá bændastéttinni.“
ehg
Enn og aftur er grilltíminn
ofar lega í huga matarskríbents
Bænda blaðsins sem reiðir hér
fram lambasteik með Brie-osti
og furuhnetum, gúrkusalat með
ferskri myntu og kryddsmjör
með gráðosti eða kúmenfræjum.
Lambasteik með Brie-osti
Fyrir 4
4 stk. lambaframhryggjasneiðar
1 tsk. salt
1 tsk. pipar
1 tómatur, skorinn í sneiðar
200 g Brie-ostur
2 msk. furuhnetur
Aðferð:
Brúnið furuhnetur við lágan hita á
pönnu og geymið. Skerið mesta fitu
af lambaframhryggjarsneiðunum
og saltið og piprið. Setjið á grillið
og grillið við lágt hitastig 2-3 mín-
útur hvora hlið. Setjið eina sneið af
tómat og væna sneið af osti á hverja
lambasneið og stráið furuhnetum
yfir. Setjið lokið yfir grillið og
grillið áfram í tvær mínútur. Berið
fram með gúrkusalati og góðri sósu
að eigin vali.
Gúrkusalat með myntu
Fyrir 6
2 agúrkur
2 tómatar
2 hvítlauksrif
2 rauðir chili-aldin
2 dósir jógúrt, hreinar
1 dós sýrður rjómi
1 tsk. kúmen
10 blöð fersk mynta
salt
Aðferð:
Skerið gúrkuna í grófa bita og látið
safann renna úr. Flysjið tómatana,
fjarlægið fræin og skerið þá í litla
bita. Fínhakkið hvítlauk, chili-aldin
og myntuna. Blandið öllu saman
í skál og saltið eftir smekk. Látið
bíða í kæli í nokkra stund áður en
borið er fram.
Kryddsmjör
100 g smjör, við stofuhita
1,5 dl. rifinn gráðostur
1 tsk. kúmenfræ
Aðferð:
Hrærið smjörið þar til það verður
mjúkt. Deilið því í tvennt og bland-
ið rifnum gráðaosti í annan helm-
inginn og kúmenfræjum í hinn.
Hægt er að leika sér með blöndur
í kryddsmjör að eigin vild, nota til
dæmis ýmis krydd, hvítlauk, pestó
og sólþurrkaða tómata svo fátt eitt
sé nefnt. ehg
MATUR
Skorið, kryddað og grillað
5 2 8
3 4
9 1
7 5 9
4 8
4 7 6
7 5
8 2
2 6
4 2
8
5 6 3 1
2 9 7 4
8 7
6 4 8 1
7 3 1 9
7
2 8
2 4 7
1 6 8 2
8 9 3
1
2 1 9 4
7
3 2 5
9 6 4 7
1 2 9
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Kryddsmjör með gráðosti og kúmenfræjum.
Fyrrverandi landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson mætti á opna húsið,
ásamt núverandi ráðherra, Einari Kristni Guðfinnssyni. Það fór vel á með
þeim félögum enda mjög góðir vinir.
Ný heimasíða Landbúnaðarstofnunar
Einar Kristinn Guðfinnsson, nýr landbúnaðarráðherra opnaði nýlega
nýja heimasíðu Landbúnaðarstofnunar á Selfossi. Það var gert
við sama tækifæri og opið hús var hjá stofnunni þar sem gestir og
gangandi gátu komið og skoðað húsnæði stofnunarinnar og kynnt
sér starfsemi hennar. Þá var gestum boðið uppá pylsur og meðlæti
að hætti hússins. Mikil ánægja var með opna húsið og framtakið hjá
Landbúnaðarstofnun. MHH
Jón Gíslason, forstjóri Land-
búnaðarstofnunar kynnti nýja
heimasíðu stofnunarinnar eftir
að Einar Kristinn hafði opnað
hana formlega. Slóðin á síð-
una er www.lbs.is. Markmiðið
með nýrri heimasíðu er að við-
skiptavinir geti með auðveld-
um hætti nálgast upplýsingar,
nauðsynleg umsóknareyðu-
blöð og önnur gögn sem
varða hagsmuni og starfsemi
þeirra. Í framtíðinni er einnig
stefnt að rafrænum viðskipt-
um og að viðskiptavinir geti
nálgast upplýsingar um stöðu
mála sem eru til umfjöllunar
hjá stofnuninni.
Nýr vefur Veðurstofu Íslands
Nýlega opnaði nýr og endurbættur vefur Veðurstofu Íslands, www.
vedur.is. Nýi vefurinn tekur fyrst og fremst mið af auknum kröf-
um um myndræna framsetningu upplýsinga. Á vefnum má finna
mikið magn hagnýtra upplýsinga og fróðleiks sem ekki hefur verið
aðgengilegur áður. Nýjasta veftækni er notuð til að birta mikið af
rauntímaupplýsingum um veður, jarðskjálfta og fleira á aðgengi-
legan hátt. Þá hefur Veðurstofan sett sér það markmið að sem
mest af gagnasöfnum stofnunarinnar, framleiðslu hennar og þjón-
ustu verði á vefnum.
Sérstök áhersla er lögð á veðurspár í hárri upplausn en að þróun og
framleiðslu slíkra spáa fyrir Ísland og umhverfi þess hefur verið unnið
í nokkur ár í samstarfi Veðurstofunnar og Reiknistofu í veðurfræði
með stuðningi Vegagerðarinnar, Flugmálastofnunar, Siglingastofnunar,
Rannís og fleiri. Á grundvelli laga um veðurþjónustu, svo og breyttr-
ar stefnu stjórnvalda í aðgengi að opinberum upplýsingum, hefur
Veðurstofan sett sér það markmið að sem mest af gagnasöfnum stofn-
unarinnar, framleiðslu hennar og þjónustu verði á opnum og aðgengi-
legum vef. Miðar Veðurstofan við að verða í fremstu röð meðal veð-
urstofa hvað þetta áhrærir segir í tilkynningu.
Farmers Market
Útflutningur á næsta leiti
Nýjasta peysan frá Farmers Market
heitir Skarðshlíð en allar peysur
fyrirtækisins heita eftir íslenskum
bæjum. Hönnuður er Bergþóra
Guðnadóttir og efnið í peysunni er
100% íslensk ull.
Líka hjá Orkuveitunni
Orkuveita Reykjavíkur hefur
komið upp nýjum fræðsluvef um
starfsemi fyrirtækisins. Þar má
finna allar helstu upplýsingar
um fyrirtækið en einnig marg-
víslegan fróðleið um orku- og
umhverfismál.
Meðal þess sem þar er að finna
er fræðsla um kolefnisbindingu
með skógrækt og landgræðslu þar
sem útskýrt er á auðskiljanlegan
hátt hvað um er að ræða. Er óhætt
að mæla með því við þá sem vilja
setja sig inn í þau mál að eyða
nokkrum mínútum í að hlusta á
þær útskýringar.
Veffang þessarar nýju heima-
síðu er: http://fraedsla.or.is