Bændablaðið - 11.03.2010, Síða 1
Búnaðarþing 2010 ítrekar and-
stöðu sína við aðild Íslands að
Evrópusambandinu. Farsælast
væri fyrir stjórnvöld að draga
aðildarumsóknina nú þegar til
baka. Þetta kemur fram í ályktun
um aðildarumsókn að ESB sem
samþykkt var á Búnaðarþingi
sem lauk í síðustu viku. Ítarlega
er fjallað um störf og álykt-
anir þingsins í sérblaði með
Bændablaðinu að þessu sinni.
Í fyrrnefndri ályktun er fjallað
um röksemdir Bændasamtaka
Íslands gegn aðild. Bent er á að
þorri landsmanna sé bændum
sammála um mikilvægi íslensks
landbúnaðar og vísað í skoð-
anakönnun Capacent sem einnig
er fjallað um hér í blaðinu. Þá er
tekið fram að þrátt fyrir að fulltrúar
Bændasamtakanna starfi áfram í
samningahópum stjórnvalda verði
það gert undir formerkjum þeirra
varnarlína sem stjórn samtakanna
setti fram síðastliðið haust og ekki
verði hvikað frá þeim kröfum sem
þar voru kynntar, en áður hefur
verið fjallað um þær hér í blaðinu.
Sömuleiðis feli áframhaldandi þátt-
taka í samningahópunum ekki í sér
ábyrgð á samningaferlinu.
Framkvæmdastjórn Evrópu sam-
bandsins birti álit sitt á mögulegri
aðild Íslands að sambandinu 24.
febrúar síðastliðinn og lagði á sama
tíma til að hafnar yrðu viðræður
um aðildina. Í álitinu kemur fram
að grundvallarbreytingar þurfi að
gera á íslensku landbúnaðarkerfi
ef til aðildar kæmi. Meðal annars
þurfi að breyta styrkjakerfinu og
færa styrki frá framleiðslutengdum
stuðningi yfir til stuðnings óháð
framleiðslu. Fella verður niður tolla
í viðskiptum með landbúnaðarvör-
ur milli Evrópusambandslanda
og samræma tolla á landbún-
aðarvörur frá löndum utan
Evrópusambandsins við tollskrá
ESB. Þá er stjórnsýslan hér á landi
sögð veik og verulegar breytingar
verði að gera á henni með tilheyr-
andi mannahaldi og kostnaði.
Í álitinu kemur einnig fram að
afnema verði bann við innflutningi
á hráu, ófrosnu kjöti sem staðfest
var í matvælafrumvarpinu svokall-
aða fyrir skemmstu. Sömuleiðis
verði að leyfa innflutning á lif-
andi dýrum til landsins. Ítarlega
var fjallað um álit framkvæmda-
stjórnarinnar í fréttum á vefsíðu
Bændablaðsins, bbl.is, dagana 25.
og 26. febrúar. Eru lesendur ein-
dregið hvattir til að kynna sér þá
umfjöllun til að fá gleggri mynd af
þeim breytingum sem gera þyrfti ef
til aðildar kæmi. fr
28
Lífræn
garðyrkja í
Tungunum
5. tölublað 2010 Fimmtudagur 11. mars Blað nr. 322 Upplag 20.800
10
Kanadískar hagleiks-
smiðjur prófaðar á
Höfn í Hornafirði
Bærinn okkar
er Brautar-
tunga/Hali
Næsta Bændablað
kemur út 25. mars
32
Hvað líður
breytingum á
fánalögum?
Siv Friðleifsdóttir þingkona
Framsóknarflokksins hefur lagt
fram fyrirspurn á Alþingi til for-
sætisráðherra um breytingar á
fánalögum. Í fyrirspurninni er
spurt um hvað líði breytingum á
lögum um þjóðfánann og skjald-
armerkið sem leggja átti fyrir
Alþingi haustið 2009.
Í þessari fyrirspurn vekur
Siv máls á breytingum sem
Bændasamtök Íslands hafa
lagt áherslu á að gangi í gegn
allt frá haustinu 2008. Ástæða
þeirrar áherslu er beiðni
Bændasamtakanna um leyfi til að
nota íslenska fánann til uppruna-
merkinga á íslenskum landbún-
aðarvörum. Vinna við verkefnið
er langt komin, búið er að móta
reglur um notkun merkisins og
hefur verkefnið verið kynnt helstu
afurðafyrirtækjum og vinnslum.
Hins vegar hefur verið beðið eftir
ákvörðun forsætisráðuneytisins í
málinu og er vonandi að með fyr-
irspurn Sivjar komist aftur hreyf-
ing á það. fr
Mikil andstaða
við aðild að ESB
Ný skoðanakönnun sem Capa-
cent gerði nýlega fyrir Bænda-
samtökin leiðir í ljós mikla
and stöðu landsmanna við inn-
göngu í Evrópusambandið. Alls
eru 56% aðspurðra andvígir
aðild og 62,8% segja að fram-
tíð íslensks landbúnaðar hafi
mikil eða nokkur áhrif á afstöðu
sína til aðildar Íslands að ESB.
Svarendur bera ekki mikið
traust til stjórnvalda við að
leiða umsóknarferlið sem nú er
í gangi en 57,9% segjast treysta
stjórnvöldum illa eða alls ekki til
að gæta hagsmuna þjóðarinnar í
því.
Einnig var spurt út í mikilvægi
þess að Íslendingar væru ekki
öðrum háðir um landbúnaðarvör-
ur og svara 84,3% því til að það
skipti miklu máli. Það er greinilegt
að íslenskir bændur njóta mikils
trausts því 95,6% aðspurðra finnst
mikilvægt að hér á landi sé stund-
aður landbúnaður til framtíðar.
Úrtakið í könnuninni var 1.173
manns á aldrinum 16-75 ára,
handahófsvalið úr þjóðskrá og
svarhlutfall var 68,7%. Könnunin
er aðgengileg í heild sinni á vef
Bændasamtakanna, bondi.is, en
nánar er fjallað um niðurstöður
hennar á bls. 7.
Það gekk á ýmsu á fundum Búnaðarþings fyrstu daga marsmánaðar. Hér er komið að lokum, menn orðnir örlítið
dasaðir, enda klukkan farin að ganga ellefu um kvöld. Það er verið að leggja lokahönd á yfirlýsingu þingsins um
Evrópusambandið. Nánar er fjallað um störf Búnaðarþings 2010 á bls. 2, 4, 6, 7 og 13-18. Mynd | TB
Evrópusambandsmál í brennidepli á nýafstöðnu Búnaðarþingi
Búnaðarþing vill draga ESB-umsókn til baka
Allir áburðarsalar hafa nú
gefið út verðskrár sínar.
Segja má að þær séu nokk-
uð síðar á ferðinni en í
fyrra og mikillar óþreyju
var farið að gæta hjá bænd-
um með biðina. Fjórir aðil-
ar selja áburð að þessu
sinni, þeir hinir sömu og
voru á markaðinum í fyrra.
Það eru Skeljungur sem
selur áburð undir merkinu
Sprettur, SS sem selur áburð
frá Yara, Fóðurblandan
sem selur undir mekjum
Áburðarverksmiðjunnar og
Búvís sem eingöngu selur
áburð á norðausturhorninu.
Hækkun er á áburðarverði
frá því í fyrra ef horft er til
krónutölu. Þó er hækkunin
ekki mjög mikil og í engum
takti við það sem gerðist milli
áranna 2007 og 2008 og síðan
2008 og 2009. Veik staða krón-
unnar nú gagnvart erlendum
gjaldmiðlum veldur því að
lækkandi heimsmarkaðsverð
á síðasta ári skilar sér ekki til
lækkunar á áburðarverði til
íslenskra bænda.
Verðskrár áburðasalanna
má finna á heimasíðum fyr-
irtækjanna. fr
Allar áburðarverðskrár
hafa litið dagsins ljós
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur)
aðild Íslands að ESB?
10,8%
56,0%
33,2%
Hlynnt(ur) aðild Hvorki né Andvíg(ur) aðild