Bændablaðið - 11.03.2010, Side 10

Bændablaðið - 11.03.2010, Side 10
10 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn í Hornafirði er þátttakandi í alþjóðlegu samstarfsverkefni sem nefnist Economuseum Northern- Europe (ENE). Það gengur út á að yfirfæra kanadískt viðskipta- líkan fyrir handverksfyrirtæki, svonefndar hagleikssmiðjur, til landa Norður-Evrópu. Þátt töku- löndin eru, auk Íslands, Nor egur, Norður-Írland, Írland, Fær eyjar, Kanada og Grænland. Verk efnið stendur yfir í þrjú ár, það hófst í janúar 2008 og lýkur í marsmán- uði 2011. Markmiðið er að opna a.m.k. tvær hagleikssmiðjur í hverju þátttökulandi og gert er ráð fyrir að þær verði opnaðar sumarið 2010. Verkefnið hefur fengið fjárhagslegan stuðn ing frá Norðurslóðaáætlun Evr ópu- sam bandsins (NPP) og einnig frá Norrænu Atlantshafsnefndinni (NORA). Ari Þorsteinsson, verkefn- isstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Höfn í Hornafirði, stjórn- ar verkefninu hér á landi. Að hans sögn mynda fimm aðilar íslensk- an stuðningshóp fyrir þetta verk- efni, Nýsköpunarmiðstöð Ís lands á Höfn, Menningarmiðstöð Horna- fjarðar, Þekkingarnet Austur lands, Handverk og hönnun og Hönn- unardeild Listaháskóla Íslands. „Samstarfsaðilar okkar í Kanada eru tilbúnir að miðla okkur af þekk- ingu sinni, en við förum sameig- inlega yfir það hvernig best verð- ur staðið að yfirfærslu þekkingar þeirra. Viðskiptalíkan fyrir hag- leikssmiðjur hefur verið í þróun í Kanada undanfarin 20 ár og þar eru nú starfandi um 50 fyrirtæki af því tagi, öll á austurströnd landsins og eru starfsmenn þeirra um 500 tals- ins. Heildarvelta þessara fyrirtækja er um þrír milljarðar árlega og þau fá um 700 þúsund heimsóknir á hverju ári,“ segir Ari. Hagleikssmiðjur selja handverk, segja sögu þess og lýsa menningunni Markmið með hagleikssmiðjum er að sögn Ara að varðveita hefðbund- ið handverk, mæta þörfum sam- tímans fyrir nýsköpun í menningu, fræðslu og ferðaþjónustu og að gera eigendur fyrirtækjanna fjárhagslega sjálfstæða. „Munurinn á hagleiks- smiðjum og öðrum handverksfyr- irtækjum er sá að þau síðarnefndu selja ákveðna vöru eða handverk, en hagleikssmiðjur selja handverk, segja sögu þess, lýsa menning- unni sem handverkið er sprottið úr og upplifuninni sem fylgir því að sjá vöruna verða til,“ segir Ari. Hagleikssmiðjur eru einkafyrirtæki sem nota hefðbundna tækni eða þekkingu við framleiðslu á afurð- um sínum, kynna þekkingu sína og handverksmenn fyrir viðskiptavin- um, hafa aðstöðu til vinnslu, sýn- inga og kynninga á vörum sínum og þá þarf sala á vörunni að standa undir rekstri fyrirtækisins. Þá er einnig mikilvægt að hagleikssmiðj- ur séu staðsettar við eða í námunda við þekktar ferðamannaleiðir. Ari segir að ákveðnar hæfn- iskröfur þurfi að uppfylla til að fyr- irtæki komist inn í þetta ferli, m.a. að þau hafi starfað í einkarekstri í að lágmarki þrjú ár, þau verða að nota hefðbundna tækni eða þekk- ingu á vörum, framleiða vörur af viðurkenndum gæðum og eins þarf að vera fyrir hendi þekking og þörf fyrir að vinna að nýsköpun. Þá nefnir hann að fyrirtækin þurfi að halda úti heilsársstarfsemi og að vera opin fyrir mótttöku gesta í fjóra mánuði á ári. Lágmarksvelta þeirra verður að vera fimm millj- ónir króna á ári. Þá þarf húsnæði að uppfylla ákveðnar kröfur hvað varðar stærð og gæði, m.a. verð- ur að vera þar kynningarsvæði þar sem gestir geta kynnt sér handverk- ið, heimildamiðstöð og verslun. Íslenskar hagleikssmiðjur opnaðar í sumar Sem fyrr segir er gert ráð fyrir að verkefnið standi yfir í þrjú ár og að valin verði í það minnsta tvö fyrirtæki í hverju þátttöku- landi til að þróa eftir viðskipta- líkaninu. Þegar er búið að opna tvær hagleikssmiðjur innan verk- efnisins, báðar í Noregi, annars vegar Aurland Skofabrikk og hins vegar Oselvarverkstaden. Sú fyrr- nefnda er eins og nafnið gefur til kynna skóverksmiðja, henni átti að loka en ákveðið var að breyta henni í anda hagleikssmiðjanna. Oselvarverkstaden er bátasmiðja þar sem framleiddir eru bátar eftir hönnun frá víkingatímanum. Þau fyrirtæki sem valin hafa verið hér á landi eru hönnunarfyr- irtækið Gusta Design á Djúpavogi, sem framleiðir töskur og fylgihluti úr fiskroði og hreindýraskinnum, og fyrirtæki á Hornafirði sem fram- leiðir m.a. sólþurrkaðan saltfisk. Stefnt er að opnun þeirra beggja á komandi sumri. Ari segir að ferðamönnum hafi farið ört fjölgandi á Suðausturlandi undanfarin ár, líkt og á landinu öllu, „og því þurfum við að huga mjög að uppbyggingu á afþreyingu sem og framleiðslu minjagripa.“ Þróun í þá átt sé raunin, framleiðsla og sala á minjagripum hafi aukist sem og sala á handverki í heimabyggð. Hagleikssmiðjurnar bæti afþrey- ingarþættinum við, en að sögn Ara felst ákveðin afþreying og upplifun í því að heimsækja slíkar smiðjur og eins séu þær mikilvægur hluti af ferðaþjónustu. Stefnt að því að fjölga fyrirtækjum í hverju þátttökulandi Samstarfslöndin vinna nú að um- sókn til Norðurslóðaáætlunar Evr- ópu sambandsins svo unnt verði að halda verkefninu áfram í þrjú ár í viðbót og hefur eitt land, Svíþjóð, bæst í hópinn. „Það verkefni geng- ur út á að fjölga fyrirtækjum í hverju þátttökulandi, byggja upp netsamstarf þeirra á milli og eins á milli fyrirtækja í hverju landi fyrir sig. Aðaláherslan verður lögð á að þróa sölumál fyrirtækjanna, en það verður gert með aðgerðum sem hvetja til sölu í fyrirtækjunum sjálfum og eins með sölu á netinu,“ segir Ari. „Það skemmtilega við þetta verkefni er að þegar búið er að opna hagleikssmiðjuna fyrir við- skiptavinum er þróunarstarfi haldið áfram með handverksmönnum og reynt að sníða af vankanta, fara yfir það sem vel hefur gengið, það sem þarf að laga, hvaða sögur vekja athygli og hvað viðskiptavini þyrst- ir í að vita.“ Verðmæti fólgin í því að læra aðferðafræðina Ari segir að í sjálfu sér séu engin ný vísindi fólgin í hagleikssmiðj- um og margir hugsi á þessum nótum, þ.e. hvernig best fari á því að bjóða viðskiptavinum inn í fyr- irtæki sitt, gefa þeim færi á að sjá vörurnar verða til og heyra í leið- inni sögur af forfeðrum eða af svæðinu. Menn skynji verðmætin sem felist í slíkum tengslum við viðskiptavini. „Fyrir okkur eru helstu verðmætin fólgin í því að læra ákveðnar aðferðir við að búa til handverksfyrirtæki og það eru líka verðmæti fyrir handverksfólk- ið að vita að þessi aðferðafræði sé til staðar, fá hugmyndina að láni og þróa sín eigin fyrirtæki. Við höfum lært algjörlega nýjar aðferðir við að byggja upp og þróa handverks- fyrirtæki. Til staðar þarf auðvitað að vera góður handverksmaður sem verkefnið snýst um, en fleiri fagmenn taka þátt, m.a. þeir sem skrifa sögu handverksins og lýsa samfélaginu sem það er sprottið úr, sagnfræðingar eða mannfræðingar og eins er leitað til arkitekta og/eða hönnuða í tengslum við húsnæði og sýningu, það þarf þekkingu á sviði markaðs- og fjármála og jafn- vel leikara til að þjálfa handverks- manninn í að taka á móti fólki og segja því skemmtilegar og spenn- andi sögur. Það sem er merkilegt við hagleikssmiðjur er að við- skiptavinirnir verða helstu sölu- og markaðsmenn fyrirtækisins þegar heim er komið, þeir segja frá upp- lifun sinni, gefa minjagripi og upp- lýsa um hvar hægt er að nálgast vörurnar.“ Gusta Design Ágústa Arnardóttir lærði hönnun á skóm og fylgihlutum í Istituto Europeo di Design á Ítalíu. Hún hefur framleitt og selt vörur undir nafinu Gusta Design. Ágústa býr ásamt fjölskyldu sinni á Djúpavogi þar sem hún hefur framleitt tösk- ur, hatta og ýmiss konar fylgihluti. Hún notar hráefni úr heimabyggð, m.a. fiskroð og hreindýraskinn. Ágústa hefur starfað ein við hönn- un og framleiðslu fram til þessa en hefur hug á að ráða manneskju með sér í framtíðinni. Matvælaverkefni á Hornafirði Á Hornafirði eru starfandi marg- ir framleiðendur matvæla en þeir eru dreifðir. Nú er horft til þess að prófa nýtt líkan sem þegar hefur verið prófað og þróað á lítilli eyju norðan við Nýfundnaland í Kanada en hún heitir Change Island. Það gengur út á að framleiðendur sem eru með aðstöðu fyrir framleiðslu sína á mörgum stöðum sameinist um einn ákveðinn stað og komi sér fyrir undir sama þaki. Þar er sögð saga handverksins, varan boðin til sölu og viðskiptavinum boðið að heimsækja framleiðendur. Þetta líkan getur hentað vel þar sem fyrir eru mörg lítil fyrirtæki. MÞÞ *   ! +   <         => @Q!$+ Markmiðið að varðveita hefðbundið handverk og efla skapandi menningu, fræðslu og ferðaþjónustu Ari Þorsteinsson, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Hornafirði, stjórnar hagleikssmiðjuverkefninu hér á landi. Á myndinni er hann ásamt Siril Simmard, einum af kanadísku hugmyndafræðingunum á bak við Economuseum. Aurland Skofabrikk er hagleikssmiðja sem opnuð hefur verið í Noregi og byggir á gömlum grunni fyrrum skóverksmiðju sem átti að loka. Oselvarverkstaden er bátasmiðja í Noregi þar sem smíðaðir eru bátar eftir hönnun frá víkingatímanum. Gústa hannar töskur, hatta og ýmsa fylgihluti og nýtir hráefni úr heima- byggð, m.a. fiskroð og hreindýraskinn í framleiðslu sína. Ágústa Arnardóttir, Gústa, rekur fyrirtæki sitt Gusta Design á Djúpavogi og er hér með Búlandstind í bakgrunni.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.