Bændablaðið - 11.03.2010, Síða 13

Bændablaðið - 11.03.2010, Síða 13
13 Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 2010 Búnaðarþing 2010 BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 11. MARS 2010 14-16 » Landbúnaðarverðlaun 201018» Ályktanir Búnaðarþings Sigurgeir Sindri Sigurgeirsson í Bakkakoti var að sitja sitt tíunda Búnaðarþing nú og er því orðinn vel skólaður í þing- störfum. Það sem var hins vegar frábrugðið hjá Sindra, eins og hann er alltaf kallaður, að þessu sinni var að hann sinnti þingstörfum á tveimur víg- stöðvum að þessu sinni. Sindri var nefnilega að þessu sinni einnig sitjandi Alþingismaður en hann sat á þingi fyrr Framsóknarflokkinn í mán- aðartíma í fjarveru Guðmundar Steingrímssonar sem var í fæð- ingarorlofi. Alþingissetu Sindra lauk í síðustu viku en á meðan á henni stóð vakti hann athygli á fjölda mála tengdum landbún- aði. Síðasti Alþingismaður til að sitja á Búnaðarþingi á undan Sindra var Kjartan Ólafsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi en hann sat á Búnaðarþingi frá 1995 til 2003 og var Alþingismaður á meðan á því stóð á árunum 2001 til 2003. Bændablaðið náði í skott- ið á Sindra í einu kaffihléinu á Búnaðarþingi og spurði hann hvort væri nú skemmtilegra, að sitja á Búnaðarþingi eða Alþingi.„Þetta er erfið spurning. Hvoru tveggja er skemmtilegt og ég vil helst ekki þurfa að gera upp á milli. Það er hins vegar þannig að hér á Búnaðarþingi hittir maður einu sinni á ári hóp bænda sem gaman er að hitta og hér er eingöngu verið að fjalla um mál sem að varða landbúnaðinn, mín lífsafkomu. Hér er maður með auðveldum hætti inni í öllum málum sem verið er að fjalla um en maður þarf kannski aðeins meiri tíma og undirbúning til að setja sig inn í öll þau mál sem verið er að fjalla um niður á Alþingi. Ég hef hins vegar gaman að því að véla um landbún- aðarmál á Alþingi líka.“ – Hversu mikil áhrif heldur þú að Búnaðarþing hafi, og geti haft, á framgang þeirra mála sem síðan þarf að taka afstöðu til á Alþingi? „Það er klárt mál að allir þingmenn eru meðvitaðir um að Búnaðarþing er æðsta ákvörð- unarvald bænda. Það er því mikil vigt á bak við mál að hafa sam- þykkt Búnaðarþings að baki þeim. Það fer auðvitað fram mikil vinna og miklar umræður á Búnaðarþingi um málin og það er horft til þess. Það er fylgst með því sem ákveðið er á Búnaðarþingi af Alþingismönnum. Það sem helst vantar er eftirfylgni og þess vegna eru öll tengsl milli bænda og þing- manna mjög mikilvæg. Það er fjöldi fólks á þingi sem hafa reynst landbúnaði haukar í horni.“ Hálfgerð afturför Spurður hvort honum þyki ekki hálfgerð afturför að enginn bóndi skuli sitja bæði á Alþingi og á Búnaðarþingi öllu jöfnu játar Sindri því. „Ég er alveg sammála því, það væri mjög gott ef við hefðum full- trúa á báðum stöðum. Það er allt annað að fylgjast með umræðum og nefndarstörfum hér á Búnaðarþingi og geta þá fylgt þeim eftir á Alþingi, heldur en að lesa bara ályktanirnar á blaði. Það er þess vegna mín skoð- un að við bændur verðum bara að ganga í þetta mál og gera bragarbót á í næstu kosningum.“ – Hafa þínir flokksfélagar fylgst betur með Búnaðarþingi nú en í fyrra, í ljósi setu þinnar á Alþingi? „Já, ég held það. Ég hvatti þau meðal annars til þess á þingflokks- fundi um daginn til að mæta á setningu Búnaðarþings. Þau tóku þeirri hvatningu mjög vel og stór hluti þingflokksins mætti. Ég hef auðvitað verið að fjalla um mál- efni tengd landbúnaði á Alþingi eftir að ég tók þar sæti, sérstaklega Evrópusambandsaðildina. Það er því ljóst að maður getur vakið athygli á hlutum sem eru ekki allt- af í umræðunni.“ Sindri í Bakkakoti er maður ekki einhamur Þingmaður á tveimur vígstöðvum Mikilvægt að bændur eigi fulltrúa bæði á Búnaðarþingi og á Alþingi Búnaðarþing var sett við hátíðlega athöfn í Bændahöllinni sunnu-daginn 28. febrúar sl. og var yfirskriftin „Aftur kemur vor í dal“. Þar héldu ávörp Haraldur Benediktsson formaður BÍ, Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Brita Skallerud annar tveggja varaformanna norsku bændasamtakanna Norges bondelag og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís. Einnig voru veitt landbúnaðarverðlaun sem ábúendurnir á bæjunum Hraun á Skaga og Grænhóli í Ölfusi hlutu að þessu sinni og fjallað er um á bls. 18. Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi kom sá og sigraði með hressilegum fiðlutónum og Guitar Islancio tók nokkur vel valin lög. Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd- um var glatt á hjalla en setningarathöfnin var sú fjölmennasta í mörg ár, gestir um 250 talsins. myndir | TB Aftur kemur vor í dal Sindri á tali við Guðrúnu Stefánsdóttur, Hlíðarendakoti í Fljótshlíð.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.