Bændablaðið - 11.03.2010, Qupperneq 14
14 búnaðarþing 2010 BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 11. MARS 2010
Ályktanir Búnaðarþings 2010
Til afgreiðslu á Búnaðarþingi 2010 komu 40 mál. Ályktað var um 34 þeirra,
einu var vísað til stjórnar, fimm komu ekki til afgreiðslu úr nefndum þingsins
og eitt erindi var dregið til baka. Hér á eftir er farið yfir afdrif málanna.
Sameining ráðuneyta
Markmið
Búnaðarþing 2010 mótmælir
harð lega fyrirhugaðri sameiningu
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytis við iðnaðarráðuneytið.
Leiðir
Sjávarútvegs- og
landbúnað ar ráðuneytið er það
ráðu neyti sem fer með málefni
þeirra greina sem eru meginstoðir
atvinnu lífs í dreifðum byggðum
landsins. Mikil hagsmuna barátta
er framundan og því er sameining
þessara ráðuneyta ekki á nokkurn
hátt tímabær.
Framgangur máls
Ályktun send til forsætisráðherra,
fjármálaráðherra, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Háhraða netsamband í
dreifbýli
Markmið
Að koma upp öflugu háhraða net-
sambandi í öllu dreifbýli landsins.
Leiðir
Stjórnvöld framfylgi áætlunum sem
gerðar hafa verið um háhraða net-
væðingu dreifbýlis. Stjórnvöld setji
lágmarkskröfur um gæði háhraða
nettenginga, ásamt því að sjá til þess
að þjónustuaðilar á einstökum svæð-
um uppfylli þær kröfur.
Framgangur máls
Búnaðarþing 2010 felur stjórn BÍ að
fylgja málinu eftir við yfirvöld sam-
göngumála.
Hnitsetning á
landamerkjum jarða
Markmið
Skráning og hnitsetning landamerkja
jarða er lokamarkmiðið. Í byrjun
er eðlilegt að gera þá kröfu að við-
skipti með lönd og jarðir skuli skrá
með hnitsettum landamerkjum til að
tryggja réttarvernd og eyða óvissu
um stærð og staðsetningu.
Leiðir
Dómsmálaráðherra beiti sér fyrir
endurskoðun á skráningu kaupsamn-
inga og afsala í þinglýsingarbækur.
Þessar upplýsingar skulu vera tiltæk-
ar á tölvutæku formi.
Dómsmálaráðherra beiti sér fyrir
nauðsynlegum lagabreytingum.
Endanleg hnitsetning skal við-
urkennd og undirrituð af eigendum
aðliggjandi jarða.
Átak verði gert í miðlægum
skrán ingum landamerkja.
Framgangur máls
Ályktunin verði send dómsmálaráð-
herra, Landssamtökum landeigenda
og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Réttarstaða eigenda
sameignarjarða
Markmið
Greining á réttarstöðu eigenda sam-
eignarjarða.
Leiðir
Fram fari ítarleg skoðun á réttarstöðu
eigenda sameignarjarða.
Ef nauðsynlegt reynist þarf að
finna ný réttarúrræði til þess að
greiða úr ágreiningi, sem upp kann
að koma, á milli einstakra sameig-
enda.
Framgangur máls
Stjórn Bændasamtaka Íslands fylgi
málinu eftir við sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Raforkuverð
Markmið
Lækka raforkukostnað og auka gæði
og afhendingaröryggi raforku í dreif-
býli.
Leiðir
– Að niðurgreiðslur á raforku á köld-
um svæðum verði færðar að raun-
gildi upphafsárs niður greiðslnanna.
– Að gæði og afhendingaröryggi raf-
orku á landsbyggðinni verði tryggt.
– Að við yfirstandandi endurskoðun
raforkulaga verði tryggður jöfn-
uður á raforkuverði í landinu.
Framgangur máls
Að stjórn BÍ beiti sér í málinu.
Fjármál bænda
Markmið
Búnaðarþing 2010 krefst tafarlausra
almennra leiðréttinga á lánum, að
öðrum kosti blasir við að enn fleiri
bændur lendi í greiðsluerfiðleikum.
Einnig krefst þingið tafarlausra
úrlausna á skuldavanda þeirra búa
sem rekstrarhæf voru fyrir banka-
hrun, en eru nú komin í greiðslu-
vanda.
Leiðir
Við mótun þessara aðgerða þarf m.a.
að taka tillit til eftirtalinna atriða
X Z !
höfuðstóls lána.
X \
<
!
boðið upp á framtíðarlausnir á
lánamálum, óháð bústærð.
X ̂ !
mismunandi rekstrareiningar þurfi
mismunandi lausnir.
X _
!
skýrir, skerði ekki réttindi sem
kunna að skapast við seinni tíma
úrskurði og/eða dóma og hefti
ekki eðlilega framþróun í rekstr-
inum.
X _
!
raunhæfu mati á greiðslugetu,
óháð bústærð.
X
! <
eðlilegu verðmæti rekstrarins eins
og það er í dag.
X ̂
!
tillit til eðlilegrar launakröfu
og nauðsynlegrar endurnýjunar
rekstrarbúnaðar og fastafjármuna.
Framgangur máls
Búnaðarþing 2010 leggur áherslu á
að stjórn BÍ beiti sér af fullum þunga
í málinu.
Bændasamtök Íslands fylgi eftir
for dæmisgefandi málum, vinni að
gerð lykilgagna við úrlausn og end-
urskoðun lánamála.
Verð á dýralyfjum
Markmið
Að lækka lyfjakostnað í búrekstri.
Leiðir
Búnaðarþing 2010 felur stjórn sam-
takanna að skipa þriggja manna
starfshóp sem verði falið að skoða
allar færar leiðir til að lækka kostnað
bænda við kaup á dýralyfjum.
Verkefni hans verði m.a.:
1. Að gera samanburð á útsölu-
verði algengra dýralyfja hér-
lendis og í nágrannalöndunum
og kanna orsakir, sé verðmunur
mikill.
2. Að skoða verðþróun á dýralyfj-
um innanlands.
3. Að kanna hvaða dýralyf eru lyf-
seðilsskyld.
4. Að gera tillögur um breyting-
ar sem leitt gætu til lækkunar á
lyfjakostnaði.
5. Að farið verði yfir skilgreining-
ar á bætiefnum og lyfjum.
Framgangur máls
Stjórn BÍ skipi starfshópinn sem
fyrst til að vinna að framgangi máls-
ins og hlutist til um að hann fái þá
sérfræðiaðstoð við vinnu sína sem
nauðsynleg er. Æskilegt er að niður-
staða starfshópsins liggi fyrir á næsta
Búnaðarþingi.
Aðfangaverð
- gagnagrunnur
Markmið
Auka upplýsingagjöf til bænda um
verð á rekstrarvörum til landbúnaðar-
framleiðslu og styrkja þar með sam-
keppni á þeim markaði.
Leiðir
BÍ láti gera reglulegar verðkannanir á
rekstrarvörum til bænda og birta þær
ásamt niðurstöðum á þróun aðfanga-
verðs. Gögn úr gagnagrunnum BÍ
verði nýtt í sama tilgangi sem og
aðrar opinberar upplýsingar um verð
á aðföngum til landbúnaðar.
Framgangur máls
Stjórn BÍ feli ákveðnum aðilum að
annast framkvæmd verksins og vera
í samstarfi við allar búgreinar um
hvaða vörutegundum æskilegt sé að
fylgjast með og hve oft.
Sölusamtök
sláturleyfishafa
Markmið
Auka samkeppnishæfni íslenskra
kjötafurða.
Leiðir
Breyta búvörulögum þannig að kjöt-
afurðastöðvar fái sambærilega heim-
ild til hagræðingar með samruna og/
eða samstarfi eins og afurðastöðv-
ar í mjólkuriðnaði hafa nú þegar.
Nauðsynlegt er að ná fram meiri hag-
ræðingu á kjötmarkaði vegna auk-
innar samkeppni erlendis frá vegna
milliríkjasamninga.
Framgangur máls
Búnaðarþing skorar á Alþingi að
breyta búvörulögum og beinir því til
stjórnar BÍ og stjórnarmanna afurða-
stöðva að fylgja málinu eftir.
Tímasetning
Búnaðarþings
Markmið
Búnaðarþing 2010 samþykkir að
tíma setning Búnaðarþings verði
óbreytt.
Leiðir
Búnaðarþing hvetur aðildarfélög sín
til að efla fundahöld í aðdraganda
Búnaðarþings.
Með því fengist öflugra bakland
fyrir búnaðarþingsfulltrúa og vand-
Endurnýjun varð í stjórn
Bænda sam takanna á síðasta
Bún aðar þingi eins og getið er
um annars staðar í blaðinu.
Einn nýrra stjórnarmanna er
Árni Brynjólfsson á Vöðlum í
Önundar firði en Árni sat nú sitt
fyrsta Búnaðarþing svo segja má
að hann hafi stokkið út í djúpu
laugina. Bændablaðið hitti Árna
í einu þinghléinu og tók hann
tali um þingið, félagsstörfin og
framtíðina.
Árni er fæddur og uppalinn á
Vöðlum. „Ég er með samvinnu-
skólapróf frá Bifröst, ég útskrifað-
ist þar 1982. Í framhaldi af því var
ég verslunarstjóri í Kaupfélaginu á
Djúpavogi í tvö ár en tók síðan þá
ákvörðun að halda heim í búskap-
inn í samráði við foreldra mína og
þar er ég enn. Við tókum formlega
við búskapnum árið 1989, ég og
>
Q
\ `<>
q
w
\
! & ++
in í Búðardal en við kynntumst á
Djúpavogi. Við eigum þrjá stráka,
15 ára, 21 árs og 27 ára sem rétta
okkur hjálparhönd þegar á þarf að
halda en þeir eldri tveir eru í fullri
vinnu annars staðar. Núna er það
24 ára frændi minn sem leysti okkur
af til að komast á þingið.“
Á Vöðlum er kúabú með 260
þúsund lítra fullvirðisrétt miðað við
tólf mánuði. Þar er fjós með mjalta-
þjóni sem settur var upp fyrir sjö
árum síðan. Auk þess eru um sjötíu
kindur á Vöðlum sem faðir Árna
sinnir að mestu en foreldrar hans
búa þar enn.
Konan gaf leyfi
Þrátt fyrir að vera að sitja sitt fyrsta
Búnaðarþing er Árni ekki ókunnur
félagsmálum bænda. „Ég var fulltrúi
frá Ísafjarðarsvæðinu á aðalfundum
Landssambands kúabænda fyrir um
áratug og var fljótlega munstraður
inn í stjórn þess þ.e. Mjólkursamlags
Ísfirðinga sem var bæði félags-
skapur bændanna og sá um rekstur
samlagsins á Ísafirði. Þar varð ég
svo formaður þar til það var sam-
einað MS og hef setið sem fulltrúi í
Auðhumlu síðan. Þegar þessi sam-
eining varð, stofnuðum við Félag
kúabænda í Ísafjarðarsýslum til
að halda utan um félagslega þátt-
inn og hef ég verið formaður þess
frá stofnun. Sömuleiðis hef ég
setið síðustu sex ár sem formaður
Búnaðarsambands Vestfjarða.“
– Var þrýst á þig að gefa kost á
þér til setu á Búnaðarþingi nú?
„Já, það má segja að það hafi
verið þrýst á mig í þá átt síðustu tvö
kjörtímabil en ég hef alltaf smeygt
mér undan. Það tókst hins vegar
ekki núna og ég ákvað að það væri
nú í lagi að taka slaginn og sjá hvað
setur.“
– Þú endar svo inni í stjórn á
þínu fyrsta Búnaðarþingi. Þurftir þú
að liggja mikið yfir því áður en þú
ákvaðst að gefa kost á þér?
„Nei, ég er þannig að ég er ekki
að velta mér mjög lengi upp úr
ákvörðunum. Satt að segja var ég
ekkert sérstaklega búinn að íhuga
að þetta gæti komið upp þegar ég
fór að heiman. Ég tók nokkra and-
ardrætti og hringdi í konuna áður en
ég ákvað mig.“
– Konan hefur gefið leyfi?
„Já, hún heldur því enn fram
að hún ráði ekki yfir mér en það
er auðvitað tóm vitleysa. Annars
er þetta nú allt í góðri sátt, annars
gengi þetta auðvitað ekki.“
Ný bylgja í félagsmálum bænda
– Margir tala um að félagskerfi
og samstaða bænda hafi styrkst
upp á síðkastið. Hvað með þátttöku
bænda í félagsmálum, finnst þér
hún næg?
„Það er hægt að segja að félags-
áhuginn hafi frekar dofnað þegar
horft er til baka. Það er samt ekk-
ert sem ég hef áhyggjur af, það er
líka margt gott að gerast. Samtök
ungra bænda eru til að mynda afl
sem ég held að leiði nýja bylgju.
Það er mjög spennandi og von-
andi eykur það félagsvitund
bænda enn frekar. Ég held líka að
framganga Bændasamtakanna í
Evrópusambandsmálunum sem fer
ekki fram hjá neinum sé örugglega
jákvæð fyrir félagslega þátt okkar
bænda yfirleitt.“
– Þú nefnir framgöngu Bænda-
samtakanna í Evrópu sam bands-
mál unum. Hefur þér, sem hefur
stað ið aðeins utan við þetta þar til
nú, fundist Bændasamtökin hafa
verið sýnilegri síðustu ár en fyrir
þann tíma?
„Mér finnst Bændasamtökin
hafa komið sterk fram þegar ástæða
hefur verið til og í raun hvergi
misstigið sig. Það er það sem
gefur samtökunum styrk sinn. Ég
ætla að undirstrika þátt Haraldar
Benediktssonar í þeim efnum.
Haraldur og hans fólk hefur meðal
annars nýtt sér þjónustu almanna-
Árni Brynjólfsson á Vöðlum er nýr í stjórn Bændasamtakanna
Verðum að beita hörku ef með þarf
Mikilvægt að forsvarsmenn bænda komi sem víðast af landinu
Árni Brynjólfsson bóndi á Vöðlum
í Önundarfirði og stjórnarmaður í
Bændasamtökum Íslands.