Bændablaðið - 11.03.2010, Page 18

Bændablaðið - 11.03.2010, Page 18
Bændablaðið | fimmtudagur 11. mars 201018 búnaðarþing 2010 Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, afhenti bændunum á Hrauni á Skaga og Grænhóli í Ölfusi landbún- aðarverðlaunin 2010 við setningu Búnaðarþings. Frá Hrauni tóku þau Steinn Rögnvaldsson, Merete Kristiansen Rabølle og Guðlaug Jóhannsdóttir við verðlaununum en bændurnir Gunnar Arnarson og Kristbjörg Eyvindsdóttir fyrir búið á Grænhóli. Verðlaunin eru sem áður smíði Ívars Björnssonar gullsmiðs og let- urgrafara. Ráðherra sagði að tilgangur verðlaunanna væri einkum að vekja athygli á því sem vel er gert í landbúnaði og fyrir það fengju búin viðurkenn- ingu. Í ræðu sinni stiklaði Jón Bjarnason á stóru um búin og fer sá texti hér á eftir að hluta. Hraun á Skaga Nafn bæjarins er vel þekkt í hugum þjóðarinnar en í tæp 70 ár hafa verið lesnar veðurlýsingar frá Hrauni á Skaga í útvarpinu, og má geta þess að veðurathugunarstöð hefur verið starfrækt þar frá árinu 1942. Hraun er nyrsti bær í Skagafjarðarsýslu og einn af útvörðum landsins í þeim skilningi. Landið liggur að sjó og jörðinni tilheyra allmörg og góð veiðivötn. Landið er hrjóstugt sem gerir ræktun erfiða en hlunn- indi eru ágæt. Árið 1914 hófu búskap á Hrauni Steinn Sveinsson og Guðrún Krist mundsdóttir. Steinn stundaði sjósókn með búskapn- um, réri til fiskjar með nágrönnum sínum og eins til hákarlaveiða. Þá ákváðu þau hjónin að koma upp æðarvarpi sem 1914 taldi aðeins þrenn pör. Árið 1953 kom Rögnvaldur, son ur þeirra með þeim að búinu og hefur ásamt konu sinni Guðlaugu Jóhannsdóttur setið jörðina síðan. Fyrst og fremst var á Hrauni gott sauðfjárbú, kýr til heimilisnota og æðarvarp og önnur hlunnindi nýtt. Þá sinntu þau Rögnvaldur og Guð laug veðurathugunum fyrir Veður stofu Íslands og gera enn. Enn urðu ættliðaskipti þegar Steinn sonur þeirra hóf búskap með þeim og kona hans Merete Kristiansen Rabølle, sem er dönsk að ættum, flutti til Íslands árið 1991. Höfðu þá einnig aðrir synir Rögnvaldar og Guðlaugar sinnt búinu með þeim foreldrum sínum ásamt annarri vinnu. Steinn og kona hans Merete hafa að mestu staðið að rekstri sauðfjárbúsins en Rögnvaldur og Guðlaug lagt meiri áherslu á æðarvarpið með ágætum árangri. Í dag búa á Hrauni Steinn og Merete með þremur börnum sínum, einnig Rögnvaldur og Guðlaug svo og Jóhann sonur þeirra sem hefur reist sér hús á jörðinni, aðstoðar við búið á helstu álagstímum en stund- ar skólaakstur á Sauðárkrók auk annarrar vinnu sem til fellur utan heimilisins. Búskapurinn er fjölbreyttur á Hrauni en þar eru 400 vetrarfóðr- aðar kindur, æðarvarp sem gefur um 50 kg af hreinsuðum dún í bestu árum og nokkur silungs- veiði. Trillan Sæfari, sem er sam- eign feðganna og nágranna þeirra, er gerð út til fiskveiða á línu, hand- færi og grásleppu. Auk þessa sækir Merete póst fjóra daga í viku til Sauðárkróks og dreifir um sveitina. Fyrir myndarlegt íslenskt heim- ili, nýtingu hlunninda og ágætan búskap hlaut Hraun á Skaga land- búnaðarverðlaunin 2010. Hrossaræktarbúið á Grænhóli í Ölfusi Hjónin Gunnar Arnarson og Krist- björg Eyvindsdóttir hafa stundað hestamennsku frá ungum aldri og gerðu hestamennskuna fljótlega að lífsviðurværi sínu. Þau tömdu og þjálfuðu hross, sýndu fyrir kynbóta- dómi og tóku þátt í keppnum með afar góðum árangri. Einnig stund- uðu þau reiðkennslu, einkum þó Kristbjörg sem starfaði um langt árabil við reiðkennslu og æskulýðs- störf. Gunnar og Kristbjörg hófu útflutning á hrossum og reka nú umsvifamikið og traust fyrirtæki á þeim vettvangi. Hrossarækt Gunnars og Krist- bjargar á sér hátt í þriggja áratuga sögu. Þau byrjuðu í smáum stíl og lögðu traustan grunn að starfi sínu með því að koma sér upp öflugum ræktunarhryssum. Auk Gunnars og Kristbjargar koma börn þeirra bæði að rekstr- inum, þau Þórdís Erla sem er með lokapróf í hestamennsku og reið- kennararéttindi frá Hólaskóla og Eyvindur Hrannar sem stundar nám í hagfræði við Háskóla Íslands en vinnur við búið í námshléum. Meginstarfsstöð ræktunarbús- ins er núna á Grænhóli í Ölfusi. Hrossa rækt þeirra Gunnars og Kristbjargar er kennd við Auðsholtshjáleigu í Ölfusi en það er jörð sem þau eiga í félagi við Eyvind Hreggviðsson föð ur Kristbjargar og systkini hennar. Grænhól eignuðust Gunnar og Kristbjörg um síðustu aldamót. Þau hafa endurbyggt öll útihús og eru nú með góð hesthús þar fyrir um 50 tamningahross auk aðstöðu í Auðsholtshjáleigu og aðstöðu til útgjafa fyrir stóðið á löndum sín- um. Þá hafa þau komið sér upp góðu íbúðarhúsi á Grænhóli, byggt þar glæsilega reiðhöll sem var vígð í lok ársins 2007 og nú síðast- liðið haust komu þau upp lögleg- um keppnis völlum og skeiðbraut í fullri lengd heima á Grænhóli ásamt því að leggja reiðstíga um landið úr efni sem finna má í bæj- arlandinu sjálfu. Umgengni öll á búinu hvort sem er utan húss eða innan er til stakrar fyrirmyndar og mjög snyrtilegt heim að líta. Hrossaræktin í Auðsholts hjáleigu hefur verið byggð upp eftir þeirri forskrift sem best hefur reynst, vand- að til vals á stofnhryssum og notaðir þeir stóðhestar sem bestir eru. Búið er sífellt að stækka en aldrei slegið af hvað kröfur um gæði varðar. Frá búinu er sýndur álitlegur fjöldi hrossa ár hvert og hefur það verið tilnefnt til heiðursviðurkenn- ingarinnar: Ræktunarbú ársins 10 sinnum og hlotið verðlaunin flest allra eða fjórum sinnum; 1999, 2003, 2006 og 2008. Í lok ræðu ráðherra tók hann það fram að fyrir dugnað og snyrti- mennsku, ræktun íslenska hestsins og markaðsstarf hlytu þau hjónin Kristbjörg Eyvindsdóttir og Gunnar Arnarson, á Grænhóli í Ölfusi land- búnaðarverðlaunin 2010. Bændurnir á Hrauni á Skaga og Grænhóli í Ölfusi hlutu landbúnaðarverðlaun 2010 mynd | úr einkasafni mynd | úr einkasafni Grænhóll í ÖlfusiHraun á Skaga Merite K. Rabølle, Steinn Rögnvaldsson, Guðlaug Jóhannsdóttir, Jón Bjarnason, Kristbjörg Eyvindsdóttir og Gunnar Arnarson. mynd | TB „Skemmti- legir og anna- samir dagar“ Karvel Karvelsson frá Hýru mel í Borgarbyggð sat Bún aðar þingið fyrir hönd Svína rækt ar félags Íslands en þetta er fyrsta Búnaðarþing sem hann tekur þátt í. „Mér líst vel á þetta þing, þetta hafa verið skemmtilegir en anna samir dagar og glatt á hjalla hjá fólki. Ég var í Evrópunefnd þings- ins þar sem margt gott fólk kom að málum og nú veit ég töluvert meira um aðildarferl- ið. Það kom mér reyndar á óvart hversu umfangsmikið aðildarferlið er. Það eina sem ég gæti sett út á er að tíminn var ansi knappur til að ljúka málum. Það fór mikill tími í nefndarstörfin og mér finnst hálf súrt að hafa ekki haft meiri tíma þegar kom að málunum til að fjalla um þau.“

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.